Bloggfærslur mánaðarins, september 2018
29.9.2018 | 20:59
Í sumarlok
Nú er veðurstofusumrinu um það bil að ljúka, það stendur frá 1.júní til 30.september. Það var svalara en meðalsumar síðustu tíu ára, -0,7 stigum neðan meðallags. Sé miðað við lengri tíma, t.d. 1961 til 1990 var hitinn hins vegar ofan meðallags. Myndin sýnir þetta allvel.
Hér má sjá landsmeðalhita í byggð á hverju sumri frá 1874 að telja (og ágiskun nokkuð lengra aftur í tímann - en við trúum því giski rétt mátulega vel - þó að segi okkur eitthvað um innbyrðis stöðu sumra á því tímabili). Það nýliðna er þrátt fyrir allt ekki mjög neðarlega í heildarsafninu og sker sig ekki úr öðrum köldum sumrum síðustu 20 ára.
Hins vegar fela meðaltölin það breytilega veðurlag sem var í sumar. Fyrrihlutinn var sérlega sólarlítill um landið sunnan- og vestanvert, en hlýr norðaustan og austanlands. Síðari hlutinn var hins vegar fremur svalur, en þá skein sól um landið suðvestanvert en þungbúnara og úrkomusamara var á Norðausturlandi.
röð | spásv | ár | vik | ||
18 | 1 | 2018 | -1,3 | Suðurland | |
18 | 2 | 2018 | -1,1 | Faxaflói | |
17 | 3 | 2018 | -1,0 | Breiðafjörður | |
15 | 4 | 2018 | -0,7 | Vestfirðir | |
11 | 5 | 2018 | -0,3 | Strandir og Norðurland vestra | |
9 | 6 | 2018 | 0,2 | Norðurland eystra | |
8 | 7 | 2018 | 0,3 | Austurland að Glettingi | |
15 | 8 | 2018 | -0,4 | Austfirðir | |
18 | 9 | 2018 | -1,1 | Suðausturland | |
13 | 10 | 2018 | -0,4 | Miðhálendið |
Taflan sýnir meðalhitavik (miðað við síðustu tíu ár) í einstökum landshlutum (spásvæðum) og röð sumarsins á hitalista þessarar aldar. Við sjáum að vikin eru alls staðar neikvæð nema á Norðurlandi eystra og á Austurlandi að Glettingi. Mest er neikvæða vikið á Suðurlandi.
Fyrsti dálkurinn sýnir röðina. Þar kemur fram að á Suðurlandi, við Faxaflóa og á Suðausturlandi er sumarið það kaldasta hingað til á öldinni og það næstkaldasta við Breiðafjörð. Á Norðurlandi eystra og Austurlandi að Glettingi raðast það hins vegar nærri meðallagi.
Ritstjóri hungurdiska hafði lengi afskipti af hættumati vegna snjóflóða og annarra náttúruhamfara en hætti því þó fyrir nokkrum árum. Við þau þáttaskil tók hann saman eins konar (persónulegt) uppgjör þar sem fjallað er um hættumatsmál á almennum grundvelli. Þetta uppgjör fer hér á eftir (sett saman fyrir fjórum árum).
Ritstjórar gömlu landsmálablaðanna áttu það til að birta eftir sig óskaplegar langlokur um aðskiljanleg málefni - misvel skiljanlegar þeim sem ekki tóku þátt í umræðunni. Ritstjóra hungurdiska koma þessar gömlu (tilgangslitlu?) langlokur óhjákvæmilega í hug við birtingu textans hér að neðan og biður lesendur velvirðingar - en þeir mega gjarnan hafa í huga að þeir þurfa þó alltént ekki að greiða fyrir - eins og lesendur blaða fyrri tíma. Til hagræðis áhugasömustu lesendum hefur pdf-gerð ritgerðarinnar verið lögð sem viðhengi með þessum pistli, myndir eru skýrari þar en hér að neðan. Tölur sem birtast á stangli í hornklofum [] vísa til aftanmálsgreina.
Inngangur
Snjóflóðin hér á landi 1994 og 1995 ollu stórkostlegu mann- og eignatjóni. Í framhaldinu voru öll snjóflóðamál og þar með hættumat tengt þeim tekin til endurskoðunar frá grunni. Sömuleiðis var ákveðið að verja umtalsverðum fjármunum til rannsókna, viðvarana og varnarvirkjaframkvæmda. Umhverfisráðuneytinu var falin ábyrgð á málaflokknum og hlutverk Veðurstofunnar aukið verulega.
Árið 1999 gaf Alþjóðaveðurfræðistofnunin (WMO) út skýrslu um hættumat vegna náttúruhamfara. Þá var að ljúka sérstökum áratugi átaks Sameinuðu þjóðanna gegn afleiðingum náttúruhamfara [1990 til 1999]. Í ljós kom að snjóflóðahættumat Veðurstofunnar féll mjög vel að þeim ramma sem skýrslan setti fram. Í framhaldi af birtingu hennar var rituð greinargerð þar sem matsaðferðir [hættumatsrammi] sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin mælti með og þær sem notaðar voru við snjóflóðahættumat Veðurstofunnar voru bornar saman. Greinargerðin er aðgengileg á vef Veðurstofunnar.
Í framhaldi af hamfaraáratugnum var síðan stofnað til alþjóðasamstarfs um varnir og viðbrögð gegn náttúruhamförum. Á ensku nefnist það United Nations International Strategy for Disaster Reduction, skammstafað unisdr. Síðan hefur mikið starf farið fram á vettvangi þessara samtaka, en því miður hefur Ísland ekki séð sér fært að taka þátt í því nema í mýflugumynd. Von er þó til að það breytist. Upplýsingar um störf unisdr, skýrslur sem komið hafa út á þess vegum, og upplýsingar um hugtök sem notuð eru má finna á vef verkefnisins.
Eru allir sem eitthvað koma nærri hættumati eða hafa áhuga á því hvattir til að kynna sér efni sem þar má finna.
Áherslubreytingar í hættumati
Áður en hættumatsramminn verður skýrður nánar má líta á lista um þær áherslubreytingar sem hafa orðið á síðustu 15 til 25 árum varðandi mat af þessu tagi. Áður fyrr var yfirleitt litið á hamfarirnar sjálfar og eðli þeirra sem meginviðfangsefni hættumats. Nú er skýr greinarmunur gerður á tjónmætti vár annars vegar, þar sem átt er við stærð og eðli ógnarinnar og hverjar séu líkur á að hún ríði yfir, og hins vegar tjónnæmi viðfangsins hvað það er sem fyrir vánni verður og hvers eðlis það er og þar með hver áhrif várinnar eru eða geta orðið. Vá sem að öðru jöfnu er lítil en tíð getur þannig smám saman valdið miklu meira tjóni heldur en mikil vá sem sárasjaldan ríður yfir. Nánar verður grein gerð fyrir eðlisþáttum tjónnæmis síðar í pistlinum.
Eldri áherslur | Núverandi áherslur |
Viðbragðastjórn | Áhættustjórn |
Vá / ógn / tjónmætti | Tjónnæmi / þol |
Viðbrögð eftir á | Fyrirbyggjandi aðgerðir |
Einn greiningaraðili | Samvinna margra aðila |
Þröngt fagsvið | Fjölgreinasamvinna |
Skipulag fyrir sveitarstjórnir / stjórnvöld | Skipulag með sveitarstjórnum / stjórnvöldum |
Fyrirmæli til sveitarstjórna | Samvinna með sveitarstjórnum |
Vert er að gefa öðrum atriðum listans gaum. Nú orðið er reynt að draga úr tjónnæmi með fyrirbyggjandi aðgerðum stundum má þannig minnka áhættu verulega þótt tjónmætti várinnar breytist ekki. Á síðari árum hefur aukin áhersla verið lögð á að hættumatsvinna sé samstarfsverkefni þar sem þekking úr mörgum vísinda- og reynslugreinum þarf að koma saman til að fullur árangur náist. Sömuleiðis er reynt að stjórna áhættu í stað þess eingöngu að bregðast við vá þegar og eftir að hún á sér stað. Einnig er mikilvægt að aðilar á öllum stigum stjórnsýslu sem og almenningur eigi kost á aðkomu.
Helstu jarðmannrænar ógnir langt í frá tæmandi listi | ||
jarðskjálftar | gróðureldar | fjölbreytnirýrnun/aldauðahrinur |
flóð | kuldaköst, hafís | sífreraeyðing |
jökulhlaup | hitabylgjur | votlendiseyðing |
eldgos/eldvirkni | þurrkar | mengun, eitranir |
snjóflóð, íshrun | jarðskjálftasjávarbylgjur | verksmiðjuóhöpp |
skriðuföll | skýstrokkar | flutningaóhöpp |
sjávarflóð/landbrot | þrumuveður, haglél | stíflubrot |
gróðureyðing | veðurfarsbreytingar | mannvirkjahrun |
fárviðri | farsóttir | tæknikeðjuverkun |
hríðarbyljir | ósoneyðing | óteljandi geimógnir |
landsig, landbólgnun | geislavirkni | styrjaldir |
o.s.frv. o.s.frv. |
Helstu ógnir
Listinn er langur en langt í frá tæmandi[1}. Sögulega eiga þær hættumatsaðferðir sem hér er fjallað um rætur í iðnaðaróhappafræðum. Hættumat vegna reksturs kjarnorkuvera, olíuhreinsistöðva og stórra verksmiðja í efnaiðnaði var unnið meira eða minna eftir þessum aðferðum allt frá því um 1950 væri það á annað borð gert.
Þegar ógn kemur í ljós í fyrsta sinn eða þá að hún reynist hættulegri eða meiri heldur en haldið var ætti að bera upp eftirfarandi spurningar:
Hversu mikil er áhættan?
Hversu mikil má hún vera?
Hvað er áhætta?
Vitum við fyrirfram um ástand sem rýfur áhættuviðmið jafnvel þótt við vitum ekki nákvæmlega hvert viðmiðið er?
Í mörgum eða jafnvel allflestum tilvikum kemur í ljós að svör við fyrstu þremur spurningunum eru ekki fyrir hendi. Menn þekkja ekki áhættuna eða hversu mikil hún er, því síður hversu mikil hún má vera og oftast eru hugmyndir um áhættu sem hugtak harla óljósar.
Í stöku tilviki er þó vitað um ástand sem mun rjúfa eða hefur ljóslega rofið áhættuviðmið jafnvel þótt við vitum ekki hvert viðmiðið í raun og veru verður. Þannig er ástandið oftast eftir óvænt tjón af völdum vár sem ekki var búist við eða reynist miklu meiri heldur en ráð var fyrir gert[2]. Þá getur fyrsta skref áhættustjórnunar orðið að setja upp aðvarana- eða viðbragðskerfi án tillit til þess hvort raunverulegt hættumat hefur farið fram eða ekki.
Hættumat á Íslandi - í nýlegri umræðu | |
snjóflóðavá | sjávarflóð |
jarðskjálftavá | gróðureldar |
eldgos (ýmsar eldstöðvar) | sjávarkuldi (fiskeldi) |
jökulhlaup | ljósabekkir - ósongöt |
öskufall | farsóttir |
efnamengun | geislavirkni í sjó |
hraunrennsli | Reykjavíkurflugvöllur |
Þessi viðfangsefni falla öll vel að hættumatsramma WMO |
Hættumat á Íslandi
Á Íslandi hafa ýmsar ógnir sem gætu þarfnast hættumats verið til umræðu[3], en í flestum tilvikum hefur matið verið nokkuð óskipulegt - að snjóflóðavánni undanskilinni. Þó eru menn komnir nokkuð áleiðis varðandi fleira á listanum. Hættumat sem fylgdi iðnaðarslysaramma var t.d. gert fyrir Reykjavíkurflugvöll síðla á tíunda ártugnum og var rammi þess svipaður ramma Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Vinna er nú í gangi varðandi hættumat vegna eldvirkni/eldgosa, farið er lítillega að sinna sjávarflóðum og gróðureldum og unnið er í jarðskjálftahættumati. Er þess að vænta að eftir einn til tvo áratugi hafi hættumat verið gert eða undirbúið fyrir flesta þætti náttúruógna.
Náttúruhamfarir á árunum 1965 til 1974 breyttu viðhorfum
Náttúruhamfarir hafa frá upphafi byggðar í landinu ógnað bæði einstaklingum sem og þjóðfélaginu í heild. Lengst af var litið á þær með viðhorfi örlagahyggju eða þá að þær voru túlkaðar sem refsing æðri máttarvalda[4]. Framfarahyggja 18. og 19. aldar breytti smám saman þessum viðhorfum. Á bjartsýnistímum eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar var svo komið að gert var ráð fyrir því að almennar framfarir og framkvæmdir myndu af sjálfu sér smám saman draga úr slíkum ógnum. Hér á landi var meira að segja gert grín að hugmyndum um almannavarnir[5] og þörfin á þeim nær eingöngu tengd kjarnorkuógninni[6]. Þessi sýn breyttist eftir að fáeinir stórir atburðir í náttúrunni skóku land og þjóð á sjöunda og áttunda áratugnum. Í ljós kom að viðhorfin höfðu í besta falli verið röng og sennilega hættuleg líka.
Þannig markaði tímabilið 1965 til 1974 þáttaskil í viðhorfi stjórnvalda til náttúruhamfara á Íslandi. Á þessum árum reið yfir röð mjög fjölbreyttra hamfara sem allar urðu til þess að minna á það hversu viðkvæmt þjóðfélagið í heild er gagnvart ógnum náttúrunnar. Árin 1948 til 1960 höfðu verið tiltölulega atburðalítil, allt frá gosinu mikla í Heklu 1947 til 1948. Nokkur snjóflóð og skriður höfðu þó fallið og valdið manntjóni. Samgöngur og fjarskipti voru sömuleiðis oft í lamasessi, en aðalógn þessa tíma fólst í gríðarlegu og viðvarandi mannfalli á sjó en flestum fannst þeir búa við öryggi á heimilum sínum.
Eldgosin í Öskju 1961 og í Surtsey 1963 til 1967 virtust undirstrika að eldgos væru alls ekki svo hættuleg og þau hefðu lítil áhrif á þjóðfélagið. Meira að segja sýndust Skeiðarárhlaup fara minnkandi eftir að jöklar fóru að hopa og veðurfar var orðið betra en á fyrri öldum. Hafís og drepsóttir höfðu vart sést síðan 1918. Sigur á berklaógninni var innan seilingar.
Þegar náttúruhamfarir gerðu vart við sig var áhersla fyrst og fremst lögð á viðbragðaþörf að viðbragðssveitir væru til reiðu eftir að hamfarir riðu yfir. Áhættustjórnun var nánast ekkert sinnt. Jafnvel þó hún sé eitt af aðalatriðunum[7].
Hér verða nefndir sjö náttúrufarsviðburðir sem áttu það sameiginlegt að fletta ofan af undirliggjandi vanmætti þjóðfélagsins gagnvart náttúruöflunum. Með þeim og eftir að þeir gengu yfir viðurkenndu stjórnvöld opinberlega nauðsyn viðbúnaðar gagnvart náttúruhamförum líka í nútímasamfélagi.
Tveir atburðir voru efnahagslega langþyngstir á metunum. Þetta eru annars vegar Heimaeyjargosið sem stóð frá janúar og fram á sumar 1973 og hins vegar endurkoma hafíssins til landsins 1965 og næstu árin á eftir.
Heimaeyjargosið er hin allra dæmigerðasta náttúruvá. Það hófst án (skiljanlegs) aðdraganda og nauðsynlegt var að spinna upp björgunaraðgerðir og greiða úr þeim frá degi til dags. Fimm þúsund manns björguðust hluti þeirra naumlega, allstór hluti Vestmanneyjabæjar eyðilagðist gjörsamlega og afgangurinn skaddaðist. Heildarkostnaður nam um 6 prósentum árslandsframleiðslu á þeim tíma[8]. Þetta var meira heldur en fjárlög réðu við og leggja þurfti á sérstaka skatta og grípa til víðtækra hliðarráðstafana. Merkasta aðgerðin á þeim tíma var stofnun Viðlagasjóðs og síðar Viðlagatryggingar Íslands sem hefur síðan verið hornsteinn viðbúnaðar gegn áhrifum náttúruhamfara hér á landi[9].
Endurkoma hafíssins 1965 var flóknari viðburður og virðist í fljótu bragði ekki sjálfsagt að telja hana til náttúruhamfara. Hins vegar var hún mjög fljótlega tekin alvarlega[10], jafnvel bar eins konar hættumat[11] á góma, Alþingi skipaði sérstaka hafísnefnd[12] og fjármunum var veitt til aukinna rannsókna á fyrirbrigðinu. Á síðari árum hefur komið betur og betur í ljós að þetta eru einmitt dæmigerðar náttúruhamfarir, jafnvel meðal bestu dæma um lúmskar ógnir veðurfarsbreytinga.
Þótt þessi ógn hafi verið mjög hægfara miðað við eldgos eða fárviðri telst hún samt skyndileg nær enginn bjóst við henni, hún var einnig nægilega áköf til þess að aðlögun gat ekki átt sér stað samstundis. Ársmeðalhiti féll á stuttum tíma um nærri 1 stig og hélst lágur í nærri sjö ár. Ekki er deilt um sumar afleiðingar, t.d. röskun á sjósamgöngum vegna ísreks og erfiðleika sem landbúnaður átti í á þessum tíma. Hafísinn varð e.t.v. til þess að hætt var við áform um byggingu álvers á Norður- eða Austurlandi og virkjanir nyrðra[13] . Áhrif á fiskveiðar kunna að vera umdeilanlegar en hrun síldarstofnsins tengdist mjög líklega þeim miklu breytingum á hitafari í sjó sem áttu sér stað samfara hafískomunni[14]. Allt ýtti þetta undir meiriháttar efnahagserfiðleika sem lækkandi fiskverð gerði enn erfiðari viðfangs. Gjaldmiðill landsins rýrnaði stórlega í verði, atvinnuleysi jókst mjög og landflótti varð meiri heldur en hafði verið um skeið.
Þann 20. desember 1974 fórust 12 í gríðarmiklum snjóflóðum í Neskaupstað auk þess sem mikið tjón varð á mannvirkjum[15]. Mikilvægi Viðlagatryggingar kom vel í ljós, hún bætti efnislegt tjón af völdum hamfaranna. Í framhaldinu, þegar sett voru lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum[16], var einnig stofnaður Ofanflóðasjóður. Frá upphafi styrkti hann rannsóknir og mælingar á snjóflóðum og skriðuföllum auk þess sem farið var að gera hættumat fyrir snjóflóðabyggðir á kostnað sjóðsins. Þetta var mjög mikilvægur áfangi þótt miklir gallar þessa hættumats kæmu síðar í ljós.
Mikil fárviðri gerði um þéttbýlustu hluta landsins í desember 1972 og september 1973. Fyrra veðrið felldi tvö möstur í meginflutningslínu frá Búrfellsvirkjun til álversins í Straumsvík og til byggðar á höfuðborgarsvæðinu fáeinum dögum fyrir jól[17]. Þetta hafði lamandi áhrif á samfélagið auk þess að valda miklu álagi í álverinu. Í október 1972 gerði einnig mikið veður þar sem ísing olli gríðarmiklum skemmdum á raflínukerfinu[18]. Eftir þetta var farið að huga enn meir en áður að öryggi raforkudreifingar á landinu. Margs konar endurbætur voru gerðar á næstu árum og fé veitt til rannsókna og úttekta. Hugað var að endurkomutímamati fyrir fárviðri og ísingu.
Fárviðrið í september 1973 (Ellenarveðrið) ollu gríðarmiklu tjóni, sérstaklega á nýbyggingasvæðum í Reykjavík og nágrenni. Menn áttuðu sig á þessum árum á því að skynsamlegar byggingarreglugerðir gætu dregið mjög úr tjóni af völdum fárviðra.
Þrátt fyrir að eldgosið í Heklu 1970 væri lítið hittist þannig á að þúsundir fjár drápust sökum flúoreitrunar í kjölfar gossins. Fyrir var bjargráðasjóður[19][20], til að taka á málinu, en nákvæmt hlutverk hans hefur ekki alltaf verið skýrt í gegnum árin og oft hefur hann verið félítill. Hann kom einnig við sögu í hallæri hafísáranna.
Áföll áranna 1975 til 1994
Þótt áföll væru tíð á tímabilinu 1975 til 1995 kom stærð þeirra eða eðli ekki svo mjög á óvart. Gagnsemi Viðlagatryggingar varð flestum eða öllum ljós enda náði hún til snjóflóða, skriðufalla, jarðskjálfta og sjávarflóða á þessu tímabili. Tryggingarnar bættu þó ekki tjón vegna vinds í fárviðrum. Einstaklingum gafst kostur á að kaupa vindtryggingar sjálfir af hefðbundnum tryggingafélögum. Það er að sjá að félögin hafi lengst af hagnast á tryggingum þessum. Þó tók fárviðrið í febrúar 1991 illa í og sýndi að vanda þurfti til verksins[21]. Viðhorf almennings til almannavarna varð mun jákvæðara.
Kröflueldar stóðu á árunum 1975 til 1984, umbrotin ívið lengur. Tjón var einkum tengt virkjuninni á staðnum og nýtingu jarðhita. Mikið tjón varð einnig í jarðskjálftum sem tengdir voru umbrotunum, mest þeim sem skók Öxarfjörð og Kópasker 13. janúar 1976. Heklugosið 1980 olli nokkru fjártjóni[22], en gosin 1981 og 1991 liðu hjá án tjóns að heitið gæti.
Í nóvember 1976 og í desember 1977 urðu allmikil sjávarflóð[23] við suðvesturströndina og ollu tjóni og enn stærra sjávarflóð með mun meira tjóni varð á sömu slóðum í janúar 1990[24]. Krapaflóð ollu manntjóni á Patreksfirði í janúar 1983.
Sá skilningur sem lagður var í hættumat á 9. áratugnum virðist hafa verið í líkingu við þann sem sýndur er á myndinni að ofan. Viðurkennt er að nauðsyn sé að kanna sögu og gerð þeirrar tegundar hamfara sem menn eru að fást við. Sömuleiðis að skyldir atburðir eru misstórir og ástæða getur verið til mismunandi viðbragða eða foraðgerða þess vegna. Því fóru nú að sjást kort þar sem greint var á milli hættusvæða og þess sem kallað var örugg svæði. Almannavarnanefndir voru stofnaðar um land allt og þær urðu smám saman virkari þegar gagnsemi þeirra kom í ljós. Nauðsyn aðvarana- og viðbragðsþjónustu varð ljósari. Talsvert vantaði þó upp á að raunverulegt hættumat væri gert.
Nýr hættumatsrammi
Snjóflóðin miklu á Súðavík og á Flateyri 1995 urðu til þess að mikil breyting varð á viðhorfum til áhættu. Á næstu árum varð til rammi utan um snjóflóðahættumatið sem féll að miklu leyti saman við þann sem sýndur er hér að neðan og er í öllum aðalatriðum fenginn úr áðurnefndri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar auk nýrra viðbóta úr skýrslum unisdr.
Við sjáum að nokkur atriði úr fyrri ramma eru í þeim nýja. Þar eru fyrst sporvalan og græni kassinn næst henni. Einnig var sumt af því sem er í bláa rammanum neðst til vinstri með á fyrri mynd. Mjög mikilvægir þættir hafa bæst við. Í fyrsta lagi er að nefna svokallað tjónnæmi (húf), það er hrá þýðing á enska hugtakinu vulnerability. Það hefur úrslitaþýðingu í hættumati að tjónnæmi sé metið. Því verður betur lýst hér á eftir hvað felst í hugtakinu.
Tjónmætti, tjónnæmi
Í greiningu á tjónmætti snjóflóða er fjallað um gerð þeirra, stærð og hraða. Þau sem eru mjög stór og hraðskreið eru mun sjaldgæfari en lítil og hægfara. Tíðni snjóflóða í hlíð fer oftast mjög eftir viðhorfi hennar, því hvort vindáttin sem safnar snjó í hlíðina er algeng eða sjaldgæf. Tjónmætti flóða er því misjafnt. Þegar það er greint verður til atburðaróf fyrir hvern stað sem fyrir getur orðið.
Á hinn bóginn er ljóst að gagnvart hættu er snjóflóð sem fellur í óbyggðum miklu veigaminna heldur en það sem fellur á fjölda íbúðarhúsa, tjónnæmi gagnvart þessum tveimur atburðum er gjörólíkt, jafnvel þótt mætti þeirra sé hið sama. Við þurfum ekki að byggja varnarvirki eða skipuleggja rýmingar nema eitthvað sé í hættu. Þetta eitthvað á sér líka róf, hús eru missterk, notkun þeirra er misjöfn og þar með viðvera fólks í þeim. Við snjóflóðahættumatið kom í ljós að dánarlíkur eru mun meiri í íbúðarhúsum á snjóflóðasvæðum heldur en almennt er á landinu. Sérstaklega munar miklu á dánarlíkum barna og ungs fólks. Þessi niðurstaða hafði í för með sér grundvallarbreytingu í vali áhættuviðmiða vegna snjóflóðahættu.
Allt sem atburður getur raskað er tjónnæmt næmt fyrir tjóni. Tjónnæmi er greint í nokkra meginþætti. Þeirra á meðal er nánd (hættunánd, viðvera, e. exposure). Sá sem dvelur löngum inni á áhrifasvæði ógnar er mun líklegri til að verða fyrir henni heldur en sá sem kemur þar sjaldan. Fjöldi bifreiða, tjaldvagna eða ferðamanna getur verið mjög misjafn inni á svæðinu, t.d. árstíðabundinn. Nándarhugtakið á einnig við um slík efnisleg verðmæti. Starfsemi ýmis konar kann að vera misjöfn á degi og nóttu nánd hennar í víðum skilningi getur þá verið breytileg að umfangi ekki aðeins sú sem fellst í starfsmönnum, tækjabúnaði og húsnæði heldur líka sú sem tekur til innviða starfseminnar og tengsla út fyrir áhrifasvæði várinnar í þrengri skilningi. Viðvera, nánd þeirra/þess sem er(u) á áhrifasvæði starfseminnar en ekki í beinni hættu vegna ógnarinnar sjálfrar getur verið veruleg og verður að taka tillit til hennar í nándargreiningu.
Annar meginþáttur tjónnæmis er áfallaþol (þol, e. resilience)[25]. Það er hæfni kerfis, sem býr við ógn, til að bregðast við henni, eða halda við eðlilegri virkni sinni og gerð eftir að áfall hefur orðið. Af þolinu ræðst hversu hæft kerfi er að nýta sér reynslu fortíðar og fræða - þannig að öryggi í framtíð sé sem tryggast og áhætta sem minnst. Stofnun Viðlagatryggingar er gott dæmi um aðgerð/stofnun sem jók þol íslensks samfélags gagnvart náttúruhamförum verulega.
Til þess tjónnæma teljast einnig innviðir samfélagsins, það er t.d. óheppilegt að samgöngu- eða veitumannvirki skaddist þannig að langan tíma taki að koma þeim í samt lag. Sé atburðurinn nægilega stór eða óhuggulegur getur hann valdið röskun langt út fyrir það svæði þar sem beint efnislegt tjón á sér stað. Þetta þarf einnig að greina. Mjög stórir atburðir geta jafnvel raskað þjóðfélagsgerðinni, en til að ná tökum á því þarf að kanna þol þess tjónnæma. Almennt er talað um að fari heildartjón í hamförum upp fyrir 0,5 til 1,5% af þjóðarframleiðslu þurfi hvaða þjóðfélag sem er að grípa til sértækra ráðstafana til að takast á við vandann rétt eins og átti sér stað hér á landi í Vestmannaeyjagosinu.
Áhætta og ákvörðun áhættuviðmiða [26]
Þegar tjónmætti og tjónnæmi eru þekkt er loks hægt að reikna út áhættuna sem ógninni fylgir. Það er ekki hægt nema þekkja hvort tveggja. Hættumat sem ekki tekur tillit til tjónnæmis er ekki fullbúið hættumat. Athuga má að stundum þarf ekki að reikna tjónnæmið eða tjónmættið nákvæmlega út, ágiskuð stærðarþrep geta nægt.
Eftir að áhættumat hefur farið fram á að setja fram áhættuviðmið, ákvarða það sem stundum er á óheppilegan hátt kallað ásættanleg hætta, fremur er að áhættan sé viðunandi. Mat er lagt á áhættuna og þann kostnað eða fyrirhöfn sem felst í því að draga úr henni eða losna alveg við hana.
Væntanlega er, þegar hér er komið, orðið ljóst hvers eðlis áhættan er og hve mikil hún er. Þá þarf að bera hana saman við áhættu sem búið er við af öðrum ástæðum eða fyrri ákvarðanir um áhættuviðmið í skyldum tilvikum[27]. Tala mætti um að norma áhættuna. Það er ekki endilega auðvelt.
Áhættuviðmið - áhættuviðhorf. Hvað ræður? | ||
atriði | enskt nafn | |
Umfang | scale | hversu margir farast (slasast) í einum atburði? |
Árleg dánartíðni | number-per-year | hversu margir deyja árlega að meðaltali vegna ógnarinnar? |
hefur hún áhrif á dánartíðni á hættusvæðum? | ||
Aldurssamsetning | age-groups-affected | hver er aldursamsetning áhættuhópa? (lífaldursvæntingar) |
er þýðið sundurleitt að öðru leyti? | ||
Einstaklingsstjórn | personal-control | getur einstaklingur bjargað sér? |
Áættusókn | voluntariness | að hve miklu leyti er hættan sjálfvalin? |
Fjölmiðlaumfjöllun | media-attention | hversu mikinn gaum gefa fjölmiðlar ógninni? |
Sérfræðiþekking | expert-knowledge | hversu vel er áhættan þekkt af sérfræðingum? |
Óhuggnaður | uneasiness | hversu órólegt er fólk yfir ógninni? |
Persónulegur ávinningur | household-benefit | hver er ávinningur / tap hugsanlegra ógnþola af varnaraðgerðum |
Taflan sýnir ýmislegt sem gæti þurft að taka tillit til. Að jafnaði hljóta öryggissjónarmið að vera veigamest (með rauðu letri á myndinni) en meðal annars verður að taka tillit til þess hvort áhættan er sjálfvalin eða ekki. Fjallaskíðamennska gæti í fljótu bragði talist áhættusöm íþrótt en ástundun hennar er sjálfvalin, þar ættu því önnur viðmið að gilda heldur en fyrir þá sem staddir eru á heimilum sínum. En er áhætta í þessari grein eitthvað meiri en hún er í öðrum íþróttagreinum? Oft er mikill munur á tilfinningu og reynd. Óhugnaður reynist stundum hafa mikil áhrif á einstaklingsbundið mat á áhættu og þar með jafnvel á kröfur þær sem gerðar eru til samfélagsins. Hætt er við að kröfur um áhættuviðmið gagnvart árásum villidýra séu aðrar hér á landi heldur en þar sem slík hætta er viðvarandi. Umræða um ísbjarnavá hefur borið þessa nokkur merki.
Viðmið ofanflóðahættumatsins
Hættumat ofanflóðaógnarinnar leiddi af sér tvenns konar áhættuviðmið, annars vegar gagnvart mannsköðum og heilsutjóni, sett fram sem hámark á umframdánarlíkum á hættusvæðum, en hins vegar gagnvart efnislegu tjóni þá sem kostnaðar-/ ávinningsmat. Í báðum tilvikum er áhættan metin staðbundið (staðaráhætta).
Mest áhrif? | |
Efnisleg | Kostnaðar/ávinningsgreining, endurnýjunarkostnaður. |
Manntjón | Viðbótardánarlíkur áhættuhegðun, einstaklingsáhætta - safnáhætta. |
Innviðaröskun | Staðbundið/á landsvísu (0.5% þjóðarframleiðslu), sjóðir - tryggingar. |
Skammtíma- eða langtíma | Skyndilegir atburðir krefjast annarra áhættuviðmiða heldur en þeir hægfara. |
Pólitísk sjónarmið
Almennar ákvarðanir um áhættuviðmið eiga alltaf að vera pólitískar eða samfélagslegar. Það er svo að grundvallarafstaða í þjóðfélagsmálum hefur áhrif á skoðanir manna um hver viðbrögð samfélagsins við náttúruvá eiga að vera. Mikilvægt er að andstæðar skoðanir fái tækifæri til að koma fram og takast á þegar áhættuviðmið eru rædd og ákveðin áður en umfangsmiklar mótvægisaðgerðir eru hafnar. Mistök í umræðuferlinu geta leitt til tilviljanakenndra ákvarðana og umtalsverðs kostnaðarauka í framtíðinni.
Meginsjónarmiðin eru gjarnan kennd við markaðshyggju og félagshyggju. Við skulum reyna að draga þau saman í nokkrum setningum. Í reynd hefur hvor um sig sitthvað til síns máls.
Markaðshyggja:
Einstaklingar eiga að treysta á sjálfa sig og bera ábyrgð á eigin gerðum. Hættumat er trúnaðarmál og ætti fyrst og fremst að ráðast af markaðssjónarmiðum. Markaðurinn, frjálsar tryggingar ásamt skatta- og gjaldastýringu draga sjálfkrafa úr tjónnæmi og þar með tjóni.
Félagshyggja:
Ríki og samfélag bera ábyrgð á öryggi þegnanna. Ríkið getur eitt tryggt lágmarksþekkingu á ógnum og mætti þeirra. Hættumat á að vera opinbert og öllum aðgengilegt. Almenningur á rétt á allri vitneskju um ógnir. Markaðurinn er óhæfur til að verjast tjóni og draga úr því.
Viðbrögð
Þegar áhættuviðmið hafa verið ákvörðuð kemur að viðbrögðum. Í sumum tilvikum er engra viðbragða þörf eða þá að viðmið eru þess eðlis að opinberir aðilar þurfi ekki að koma nálægt því sem síðan er gert. Sem dæmi um þetta má nefna núverandi fyrirkomulag á tjóni vegna fárviðra. Menn ráða því sjálfir hvort tryggt er og hvernig tryggingu er háttað en tryggingarfélagið velur sér áhættuviðmið með ákvörðun iðgjalda.
Viðbragðskostir eru að jafnaði fjölbreyttir, en stöku sinnum nær engir. Helsta má telja að áhætta sé lágmörkuð með skipulagðri umgengni við vána, landnotkun sé breytt ef þörf er á eða hún fest í sessi. Í sumum tilvikum má fara í ákveðnar varnaraðgerðir, en í öðrum er mest þörf á aðgerða- eða viðbragðsábendum, aðvaranaþjónustu, eða skipulagðri viðbragðsstöðu.
Unisdr nefnir þau atriði sérstaklega sem myndin sýnir og eru þau öll mikilvæg. Íslenskt samfélag stendur að sumu leyti vel að vígi, mjög misvel samt gagnvart hinum aðskiljanlegu ógnum náttúrunnar.
Lög og reglugerðarramma verður þó að setja og nauðsynlegt er að einhverjar tilteknar stofnanir sinni viðkomandi vá, samkvæmt þeim lögum og reglum. Nokkuð vantar upp á að þetta hafi verið tryggt. Oft vill gleymast að skipulagsmál, fjármálaumsýsla og tryggingar eru mikilvægur hluti mótvægisaðgerða.
Geta menn nú æft sig á hættumati með því að setja sínar uppáhaldsógnir inn í þessa ramma. Ekki munu allir komast að sömu niðurstöðu um forgangsröðun eða aðgerðaþörf.
Þróun áhættu
Hér má draga saman það sem sagt hefur verið um hættumat í eina einfalda mynd. Fundið er hvert tjónmætti ógnarinnar er og tjónnæmi þess sem fyrir henni verður. Áhættuviðmið eru sett og mótvægisaðgerðir framkvæmdar. Eftir stendur áhættuleif (viðunandi áhætta). Tjónmætti breytist venjulega lítið sem ekkert við aðgerðirnar undantekningar má þó finna en það getur þróast í tíma. Algengt er að tjónnæmi þróist í tíma þrátt fyrir mótvægisaðgerðir; fólksfjölgun á sér stað, landnýting breytist eða fjárfestingar aukast umfram það sem reiknað hafði verið með. Þá getur áhættuleifin orðið það stór að þörf sé á nýjum mótvægisaðgerðum eða þá að áhættuviðmið breytast vegna þróunar stjórnmálaviðhorfa eða efnahagsþróunar.
Hamfarahringurinn
Dæmigerðri atburðarás fyrir og eftir náttúruhamfarir er lýst með því sem kallað hefur verið hamfarahringurinn.
Hamfarirnar eiga sér stað oftast er lítið við því að gera. Þá fylgja misalvarlegt neyðarástand, viðgerðir og enduruppbygging. Mótvægisaðgerðir og aðlögun fylgja í kjölfarið. Viðbragðsástand er skilgreint aðvaranir gefnar og ógnin á sér stað aftur. Hafi mótvægisaðgerðir og aðlögun heppnast eiga neyðarástand, viðgerðir og enduruppbygging nú að taka minni tíma, útgjöld verða minni auk þess sem hliðaráhrif verða miklu minni heldur en hið fyrra sinnið.
Mikilvægt er að greina hvort atburðurinn er einstakur, sá fyrsti í röð fleiri eða sá versti. Sömuleiðis er mikilvægt að fækka í flokki óvæntra atburða svo sem kostur er.
Forboðar, viðbragðsábendi
Hver sem ógn/vá er er nauðsynlegt að rannsaka hvort hún kunni að eiga sér einhverja forboða. Þetta á jafnt við um skyndilegan atburð eins og sum eldgos eða jökulhlaup eða víðtækan og hægfara svo sem staðbundnar eða hnattrænar veðurfarsbreytingar. Forboðar eru margvíslegir og mynda eins konar róf allt frá því að grunur leikur á að eitthvað sé að fara að gerast og yfir í fullkomna vissu um tjónmætti atburðarins. Þetta róf þarf að stika með (viðbragðs-) ábendum. Hvaða forboðar eru það sem skilgreina viðbragðsástand, eða t.d. rýmingarþörf? Ofviðbrögð (úlfur, úlfur) geta verið jafn óheppileg og þau sem eru á van.
Til að auðvelda viðbrögðin og gera þau markvissari eru fyrirfram settar upp sviðsmyndir fyrir atburðinn og trúlega þróun hans. Sviðsmyndirnar ættu að vera nægilega margar til að sem mest af hugsanlegu atburðarófi falli innan þeirra. Viðbrögð við hverri þeirra eiga að vera skilgreind fyrirfram. Með þessu fækkar í flokki óvæntra atburða.
Viðbragðsábendi krefjast m.a. þess að í hverju því tilviki sem upp kemur þarf að greina hvaða fyrirframgefna sviðsmynd atburðarins sé líklegust í það skiptið. Viðbrögðin sjálf ráðast síðan af því. Sé atburðarás óvænt og óskilgreind kemur það strax í ljós. Það gerir þá viðbrögð við því óvænta mun markvissari en ella hefði orðið.
Lokaorð
Hér hefur verið fjallað lauslega um hættumatsramma þann sem Alþjóðaveðurfræðistofnunin setti fram í skýrslu 1999. Sömuleiðis hefur verið stiklað á stóru í sögu náttúruhamfara á Íslandi síðustu hálfa öld.
Pistillinn var tekinn saman í október 2014. Veðurstofa Íslands ber enga ábyrgð á þeim skoðunum sem fram koma. Vonandi er að lesendur séu einhverju nær.
Textatilvísanir
[1] Annan lista má sjá á bls. 18 í ritgerðinni Almannavarnir og áfallaþol íslensks samfélags sem finna má á vef Almannavarna ríkisins. Þar er fjallað um hverja vá í stuttu máli: http://www.almannavarnir.is/upload/files/Almannavarnir_og_afallatol_islensks_samfelags.pdf. Það sem nefnt er: Eldgos, jarðskjálftar, sjávarflóð og almenn hækkun sjávarborðs, ofanflóð, ofviðri, eldsvoðar, hópslys í mannflutningum, áföll í veitukerfum, þ.m.t. fjarskiptum, mengunarslys, olíu- og eldsneytisskortur, matvælaskortur, áföll í flutningastarfsemi til og frá landinu og við flutning hættulegra efna, farsóttir, þ.m.t. dýrasjúkdómar, hermdarverkastarfsemi og athafnir skipulagðra glæpasamtaka, áföll af völdum kjarnorku - efna- sýkla og geislavopna, áföll af völdum hernaðaraðgerða, stíflurof, jökulhlaup.
[2] Þannig var málum háttað eftir snjóflóðin miklu á Súðavík og Flateyri árið 1995. Áður en formlegt hættumat komst á skrið var höfuðáhersla lögð á bættar viðvaranir og rýmingar.
[3] Sjá einnig áðurtilvitnaða greinargerð Almannavarna.
[4] Annálabækur og skrif þessa lands sýna auðveldlega, hversu sá rjettláti guð hefur allopt heimsótt það með jarðeldsstraffi og öðrum eyðileggingum, þegar hann hefur sjeð, að guð-hræðsla og rjettvísi hefur tekið að ganga úr góðu lagi og kunni ei annars að koma í stand aptur eða betrast, nema hann tæki þannig i taumana með holdinu. Úr Eldriti Jóns Steingrímssonar, Safn til sögu Íslands, 4.b bls.3
[5] Gott dæmi um kaldhæðnina má finna í frétt á forsíðu Nýrra vikutíðinda 5. maí 1972: Frægt var um árið, þegar flóðin komu í stórfljótið" Elliðaár, og birgðargeymsla Almannavarna fór á bólakaf með þeim afleiðingum, að mestur hlutinn af teppum og öðru sjúkradóti gereyðilagðist.
[6] Fyrstu ár umræðna um hugtakið almannavarnir lenti það í pólítískri orrahríð kaldastríðsins. Það var nefnt í fréttagrein í Morgunblaðinu 28. janúar 1958: Óverjandi ef Reykjavík væri eina höfuðborgin á vesturlöndum sem hefði engar loftvarnir. Þrasað hafði verið um fjárveitingar í borgarstjórn til almannavarna. Í leiðara Morgunblaðsins 26. nóvember 1961 er á það minnst á almennara hlutverk almannavarna: Almannavarnir eru mannúðarmál, sem miða að því að bjarga mannslífum. Allar siðmenntaðar þjóðir einbeita sér að því að koma upp slíkum vörnum og skipuleggja fyrirfram aðgerðir, ef neyðarástand verður, sem auðvitað getur líka skapazt af náttúruhamförum, svo sem eldgosum, jarðskjálftum o.s.frv. Í leiðara Þjóðviljans 14. mars 1962 má lesa: Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um almannavarnir", og segja stjórnarflokkarnir að tilgangur þess sé að kenna landsmönnum að bjarga lífi sínu í kjarnorkustyrjöld. Þannig á nú einnig að framkvæma hér nýjasta og að mörgu leyti ósæmilegasta herbragðið í kalda stríðinu, þá kenningu að kjarnorkustyrjöld þurfi ekki að verða neitt ógnarleg ef menn búi sig aðeins nógu vel undir hana. Blaðið Verkamaðurinn á Akureyri segir í millifyrirsögn greinar um almannavarnafrumvarp sem til umræðu var á Alþingi þá dagana (6. apríl 1962): Frumvarp til laga um taugabilun. Frumvarpið var loks samþykkt 17. desember 1962.
[7] Árið 1967 er mörgum orðið ljóst að viðbrögð við náttúruhamförum séu á verkefnaskrá almannavarna, en aðaláhersla er samt á viðbrögð en ekki minnst á áhættustjórnun. Ágæt grein þáverandi forstjóra Almannavarna ríkisins, Jóhanns Jakobssonar er dæmi um þetta. Í greininni má sjá tilvísanir í nokkrar eldri greinar um náttúruvá. Náttúruhamfarir og önnur stórslys. Morgunblaðið 4. nóvember 1967, bls. 12.
[8] Sjá erindi Tómasar Jóhannessonar: Náttúruhamfarir á Íslandi, Orkuþing 2001. Orkumenning á Íslandi. Grunnur til stefnumótunar. María J. Gunnarsdóttir, ritstj. Reykjavík, Samorka, 238-246.
[9] Saga Viðlagatryggingar Íslands er rakin í stuttu máli á vefsíðu hennar: http://vidlagatrygging.is/resources/Files/Saga-VI.pdf [10. október 2014]
[10] Í frétt í Morgunblaðinu 20. október 1966 má lesa: Í gær var lagt fram á Alþingi frv. um breytingar lögum um almannavarnir, sem gerir ráð fyrir að þær taki einnig til náttúruhamfara, jarðskjálfta, eldgosa og hafíss, sem kynni að loka siglinga leiðum umhverfis land eða einstökum höfnum eða svæðum. Breytingin tók gildi með nýjum lögum um almannavarnir [30/1967] þar sem gert var ráð fyrir þátttöku Almannavarna ríkisins í viðbrögðum við náttúruhamförum. Fyrsta neyðaráætlunin sem tók til þessa var gerð fyrir Húsavík og var birt 1972, sjá: http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=247
[11] Orðið hættumat virðist þó varla hafa birst opinberlega á prenti fyrr en sumarið 1971. Þá geta Alþýðublaðið (13. júlí) og Vísir (14. júlí) um samráðsfund norrænna tryggingafélaga í Reykjavík.
[12] Sjá t.d. frétt í Þjóðviljanum 11. apríl 1968. Einnig var skipuð kalnefnd eða harðærisnefnd (í stöku texta kölluð harðræðisnefnd)
[13] Fleiri verksmiðjur lentu í umræðunni, t.d. vitnar Mjölnir [25. nóvember 1966] í orð Eggerts Þorsteinssonar á Alþingi. Rætt var um staðsetningu lýsisverksmiðju á Siglufirði. [A]ð á Norður- eða Austurlandi væri stöðug hafíshætta, hærra raforkuverð og erfitt yrði að fá framkvæmdastjóra og sérfræðinga til að setjast þar að.
[14] Sven-Aage Malmberg haffræðingur segir í grein í Ægi [1979, 72. 8, bls 465]: Endanlegur dómur verður varla felldur í málinu hvort olli frekar hruni síldarstofnana, umhverfisáhrifin eða sóknin. En e.t.v. má komast svo að orði um norsk-íslensku síldina, að síldveiðiflotinn með allri sinni afkastagetu hafi rekið flótta þeirrar síldar,sem komst frá Noregi, undan köldum og ætis-snauðum sjó íslandsmiða norður á bóginn til Jan Mayen og áfram til Bjarnareyjar og Svalbarða uns yfir lauk.
[15] Lesa má yfirlit um efnislegt tjón og mannfall af völdum ofanflóða í greinum eftir Tómas Jóhannesson og Þorstein Arnalds í Jökli 50, 81−90, 2001, Accidents and economic damage due to snow avalanches and landslides in Iceland, greinin er í heild sinni á: http://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/jokull-2001.pdf og í Sveitastjórnarmál, 61, 6, 474−482, 2001: http://www.vedur.is/gogn/snjoflod/haettumat/sveitarstjornarmal-2001.pdf
[16] 1985 nr. 28 4. júní. Þeim lögum hefur verið breytt mjög síðar.
[17] Ráðherra óskar skýringa frá stjórn Landsvirkjunar. Búrfellslína ekki hönnuð fyrir íslenzkt veðurfar? Þjóðviljinn 24.12. 1972.
[18] Raflínunefnd hafði verið stofnuð nokkrum mánuðum áður, sumarið 1972. Þá hét hún Vinnuhópur um háspennulínu milli Norðurlands og Suðurlands en var kölluð Raflínunefnd frá desember 1973 er hún fékk aukið umboð til umsvifa. Sjá: http://www.os.is/gogn/Skyrslur/1975/Framvinduskyrsla-juni-1973-mai-1975.pdf Lesa má um sögu nefndarinnar: http://www.orkustofnun.is/media/frettir/frett_23012004_saga_raflinunefndar.pdf
[19] Um flúoreitrunina og tjón af hennar völdum má t.d. lesa í Búnaðarriti [1971, 84. 1 [bls. 249 og áfram].
[20] Bjargráðasjóður hefur verið til frá 1913 (lög frá Alþingi) höfundur þessa pistils hefur ekki kannað sögu hans. Í grein í Norðra 10. mars 1914 má lesa mjög fróðlega grein undir titlinum Nokkur orð um hallærisvarnir og forðagæzlu. Höfundur titlar sig Alþýðumann.
[21] Þá var talið að þriðjungur tjónþola hefði þurft að bera sitt tjón óbætt með öllu. Morgunblaðið 5. febrúar 1991.
[22] Grein Sturlu Friðrikssonar í Morgunblaðinu 6. september 1980 Áhrif Hekluelda 1980 á lífríkið getur um flúoreitrun í þessu gosi.
[23] Til eru lög um sjóvarnir: http://www.althingi.is/altext/stjt/1997.028.html
[24] Lesa má um helsta tjón af völdum veðursins 9. janúar 1990 í Morgunblaðinu þ. 11. janúar. s.á.
[25] Skilgreining unisdr á áfallaþoli (e.resilience): Hæfni kerfis, samfélags eða þjóðfélags, sem býr við ógn til að bregðast við eða gera breytingar til þess að ná og halda við eðlilegri virkni samfélagsins og gerðar þess. Ræðst af því hversu hæft kerfi, samfélag eða þjóðfélag er að skipuleggja sig til að auka við hæfni og læra af fortíðinni til aukins öryggis í framtíðinni og til að minnka áhættu.
[26] Skilgreining unisdr á áhættuviðmiði viðunandi áhætta (acceptable risk): Það tjón sem samfélag (eða þjóðfélag) telur viðunandi miðað við félagslegar, efnahagslegar, stjórnmálalegar, menningarlegar, tæknilegar og umhverfislegar aðstæður á hverjum stað. Áhættuviðmið eru notuð til ákvörðunar og skilgreiningar aðgerða til að koma tjóni niður á viðunandi stig og geta tekið til m.a. bygginga- og landnýtingarreglna, varnarvirkja og varanlegra eða tímabundinna rýminga eftir aðstæðum hverju sinni.
[27] Nauðsynlegt er t.d. að áhættuviðmið gagnvart gasmengun eldgosa séu borin saman við þau sem notuð eru gagnvart mengun sömu lofttegunda af manna völdum. Til þess að það sé hægt verður að meta bæði tjónmætti eldgosagasmengunar sem og tjónnæmi þess sem fyrir henni verður.
Helstu tilvitnanir og ítarefni auk þess sem getið er í neðanmálsgreinum
Mitchell, James K.(1996) The long road to recovery: Community responses to industrial disaster. United Nations University Press.
Trausti Jónsson, (2002) Hættumat og hlutverk Veðurstofunnar í ljósi hættumatsramma Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. (Risk assessment and the role of the Icelandic meteorological office in the light of the WMO risk assessment framework). Icelandic Met. Office, VÍ-02021 (ÚR16) 15pp
United Nations Office for Disaster Risk Reduction (UNISDR) (2004), Living with risk: a global review of disaster reduction initiatives. [http://www.unisdr.org/we/inform/publications/657]
United Nations Office for Disaster Risk Reduction (UNISDR) (2009), UNISDR terminology on disaster risk reduction [http://www.unisdr.org/files/7817_UNISDRTerminologyEnglish.pdf]
WMO (1999) Comprehensive Risk Assessment for Natural Hazards WMO/TD No. 955, 92s.
Höfundur er veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á árunum 1994 til 2003 var hann sviðsstjóri Úrvinnslu- og rannsóknasviðs Veðurstofunnar, Hættumat vegna ofanflóða var unnið og þróað á því sviði.
Viðauki 1
Dæmi úr bókmenntum um skort á hættumati.
Viðauki 2
Óvissuþættir hættumats
Margs konar óvissuþættir og vandamál fylgja hættumati. Hér eru nokkrir taldir:
Séu atburðir tíðir (á landsvísu gjarnan litlir) er tíðniróf þekkt og áhættureikningar auðveldir (t.d umferðarslys). Séu atburðir stórir og (mjög) fátíðir er tíðniróf lítið eða ekki þekkt eru sviðsmyndir nauðsynlegar.
1. Reynslufræðileg vandamál
(i) Fortíðargögn eru stundum gagnslítil vegna breytinga á tjónnæmi (þjóðfélagslegra, efnahagslegra) eða tjónmætti (breytingar í náttúru). (ii) Gögn eru of strjál (eða taka til skamms tíma) til að unnt sé að greina tíðni og tjónmættisróf. (iii) Sérfræðimat er veikt, sérfræðingar eru kunnáttulitlir eða ekki hlutlægir.
2. Aðferðafræðileg vandamál
(i) Val milli líkana getur verið erfitt, á að reikna eða meta, hvert vægi sviðsmynda er? (ii) Val milli sérfræðiálita erfitt, hvert á að vera vægi þeirra (iii) Ólík líkön hneigjast til sömu villu.
3. Stofnanatengd vandamál
(i) Áhersla lögð á sameiginlega niðurstöðu, gjarnan í opinberum nefndum, hætt við að niðurstaða sé þvinguð (ii) Skipan nefnda ræðst oft af hagsmunum, hagsmunabreidd ræður niðurstöðu fremur en þekking. (iii) Birting niðurstaðna oft óformleg og án fagrýni.
4. Viðhorfstengd vandamál
(i) Sérfræðingar hafa mismunandi sýn á líkindafræði, vafamál er hvort formleg óvissulíkindi eigi einnig að ráða þegar líkindagrunnur er nánast enginn (ii) Mismunandi þjóðfélags- og framtíðarsýn.
Endir
27.9.2018 | 00:16
Smávegis af úrkomu, úrkomumælingum og ofanflóðum
Síðastlitinn vetur flutti ritstjóri hungurdiska óformlega tölu á fjölþjóðlegum fundi sem haldinn var á Veðurstofunni. Fjallaði fundurinn um skyndileg flóð, skriður og tengsl við sífrera. Tenging tölu ritstjórans við efni fundarins var harla lausleg enda sætir hún engum tíðindum. En það er samt ástæðulaust að allt efnið hverfi í glatkistuna - þó sundurlaust sé. Þeir fáu lesendur sem nenna að fletta í gegn um allt það sem hér að neðan stendur hafi þetta í huga.
Myndin sýnir hættumatsramma alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Fjallar hann um almenna greiningu náttúruvár og viðbrögð við henni. Við horfum ekki lengi á þessa mynd að þessu sinni (gerum það e.t.v. síðar), en verðum þó að líta á fyrirsagnir grænu kassanna. Náttúruvá greinist ætíð í tvo þætti. Annars vegar svonefnt tjónmætti - það um hversu öflugan atburð/ferli er að ræða (óháð því sem fyrir honum/því verður), en hins vegar það sem kallað hefur verið tjónnæmi - sem ritstjórinn gæti líka hugsað sér að kalla húf.
Tjónnæmi er viðamikið hugtak og má greina í ýmsa undirþætti. Ríði náttúruvá yfir getur hún valdið efnahagstjóni - en hún getur líka raskað samfélagi og jafnvel samfélagsgerð.
Þegar farið er í saumana á tjóni af völdum veðurvár hér á landi kemur fljótt í ljós að atburðir sem hafa svipað tjónmætti, t.d. illviðri, flóð í ám, skriðuföll og snjóflóð hafa í áranna rás mætt gríðarmisjöfnu tjónnæmi. Úrhelli sem nú gengur yfir landið eða hluta þess veldur allt öðru tjóni (meira eða minna eftir atvikum) heldur en nánast samskonar úrhelli gerði fyrir hundrað eða tvö hundruð árum. Saga veðurvár er ekki síður saga verðmætasköpunar og búskaparhátta heldur en að saga þróunar þeirra veðra sem valda henni.
Þetta veldur því að erfitt getur verið að finna rétt tíðniróf þeirra veðuratburða sem mestum vandræðum kunna að valda nú á dögum með því að rannsaka tjónsöguna eina.
Beinum nú sjónum að náttúruvá tengdri mikilli úrkomu. Hér falla undir skriðuföll, snjóflóð og vatnavextir (bæði skyndilegir og hægfara).
Við þekkjum tjónasögu allvel síðustu 100 til 200 árin, en mættum þó gera betur. Sögu tjónmættis þess sem að baki atburðanna liggur þekkjum við líka allvel, en eins og áður sagði er nokkuð erfitt að norma atburðina. Við þekkjum illa jafnaflmikla atburði sem engu tjóni ollu - vegna þess að ekkert varð fyrir þeim (en yrði nú). Sögu tjónnæmis væri hægt að greina - og hefur að nokkru verið gert - en talsverð vinna er enn óunnin hvað það varðar. Til að meta þá áhættu sem þessi tiltekna vá skapar í nútímasamfélagi þurfum við að þekkja þessa þrískiptu sögu - auk þess að þekking á húfi nútímans gagnvart henni er nauðsynleg við gerð áhættumats.
Stórfelld úrkoma eykur mjög skriðuhættu. Úrkoman getur hins vegar bæði tengst stórum veðrakerfum sem bera hlýtt og rakt loft til landsins í stórum stíl - getur þá magnast mjög staðbundið - en hún getur líka verið tiltölulega staðbundin - með óljósa tengingu við stóru veðrakerfin. Skyndileg hlýindi að vetri eða vori geta líka valdið flóðum og skriðuföllum, jafnvel þó úrkoma sé lítil samfara þeim. Sömuleiðis verðum við að gefa hægfara ferlum gaum, rannsóknir benda til þess að einhver sífreri sé í jarðvegi nokkurra þúsunda ferkílómetra landsins. Hlýnandi veðurfar bræðir þennan sífrera um síðir - og hefur verið að því á undanförnum áratugum. Þessi þróun er lítt kunn í smáatriðum og getur aukið skriðuhættu á landinu umtalsvert - hvað sem þróun úrkomu og úrhellis líður.
Veðurathuganir síðustu 140 til 150 ára geta margt sagt okkur um þá atburði sem orðið hafa á stórum kvarða á því tímabili, smáatriði höndlum við hins vegar ekki mjög vel nema síðustu 15 til 20 árin. En greiningum fer þó óðfluga fram.
Upplýsingar um úrkomu byggjast á mælingum á henni. Þó elstu úrkomumælingar á Íslandi (og varðveist hafa) séu frá árinu 1789 eru upplýsingar um úrkomumagn og úrkomutíðni harla rýrar fram yfir 1920. Myndin sýnir fjölda þeirra veðurstöðva sem mældu úrkomu á hverjum tíma frá 1856 til 2017. Mönnuðu stöðvarnar mæla aðeins einu sinni eða tvisvar á sólarhring, en voru þegar best lét svo margar að góð mynd náðist af úrkomu í byggðum landsins. Þeim fór aftur á móti að fækka upp úr aldamótunum síðustu. Þá tóku sjálfvirkar mælingar við. Mun betri en þær mönnuðu að því leyti að víðast hvar er mælt á 10-mínútna fresti árið um kring. Gallinn er hins vegar sá að mjög seinlegt er sem stendur að vinna úr þessum mælingum auk þess sem óljóst er hversu sambærilegar þær eru þeim eldri. Sjálfvirku mælingarnar hafa hingað til ekki getið um úrkomutegund - og er það mjög bagalegt. Vafalítið mun þó rætast úr þeim vandamálum í framtíðinni - aðalatriði er að varðveisla sé örugg meðan þróun úrvinnsluúrbóta og samanburður á sér stað.
Hver hefur úrkoma þá verið frá upphafi mælinga? Við lítum á þrjár myndir sem eitthvað kunna að segja okkur um það.
Hér má sjá meðalársúrkomu allra veðurstöðva landsins á árunum 1924 til 2017. Hún er um 1000 mm. Breytileiki er allmikill frá ári til árs. Hann ræðst mjög af tíðni vindátta og þrýstifari við Norður-Atlantshaf. Gallinn við meðaltalsreikninga af þessu tagi er fyrst og fremst sá að þróun stöðvakerfisins getur haft áhrif á heildarmyndina. Slíkt virðist þó ekki mjög áberandi í þessu tilviki. Svo sýnist sem úrkoma hafi aukist, leitni reiknast rúmlega 200 mm á öld, sem er verulegt - hátt í 20 prósent. Þetta er umfram þá aukningu sem vænst er vegna hlýnunar. Reyndar er langt í frá að samkomulag sé um hversu mikil aukning á úrkomu fylgir hlýnun - og víst að sé slíkt samband til á það alls ekki við einstök ár. Árið 2010 er t.d. meðal þeirra allrahlýjustu, en það var samt langþurrasta ár síðustu 30 ára (eða svo). Sama á við um 1960 - þurrasta ár á myndinni, en samt hlýtt. Leitni ein og sér er líka mjög vafasamt tæki til greiningar - og langoftast gagnslaus sem verkfæri til spádóma.
Næsta mynd nær allt aftur til 1857 (harla mikil bjartsýni það hjá ritstjóranum). Hér má sjá úrkomuna setta fram sem hlutfall meðalársúrkomu áranna 1971-1990. Reikningarnir eru gerðir þannig að stöðvar þar sem úrkoma er mikil vega jafnmikið og stöðvar þar sem úrkoma er lítil. Aðeins er spurt hver úrkoma ársins á stöðinni var sem hlutfall af meðalársúrkomu áðurnefnds tímabils.
Hér má líka sjá mikla úrkomuaukningu - örlítið minni þó en á fyrri mynd (en nær yfir lengri tíma), um 13 prósent á öld. Það er aukning sem er nær því að vera eftir hlýnunarvæntingum. Þurrasta árið er 1881 - með frostavetrinum mikla. Kannski hefur úrkoman þá mælst óvenjuilla og minnir á að snjókoma mælist mun verr heldur en rigning. Röskun á hlutfalli snævar og regns í heildarúrkomumagni getur því breytt báðum þessum línuritum. Hlutfall snævar rýrnar í hlýnandi veðurlagi og þar með sýnist úrkoma aukast vegna þess að hún mælist betur. Hugsanlegt er að þetta skýri að einhverju leyti þá aukningu sem við erum að sjá.
Hér höfum við talið fjölda úrkomudaga á veðurstöðvum landsins - þegar úrkoma mælist 0,5 mm eða meiri - og reiknum síðan hlutfall þess fjölda af öllum mælidögum. Mælieiningin sem notið er hér er þúsundustuhlutar (prómill). Við sjáum að yfirleitt er mælist úrkoma 0,5 mm eða meiri á milli 40 og 50 prósent (400 til 500 þúsundustuhluta) daga á íslenskum veðurstöðvum. Allgott samband er á milli þessa fjölda og heildarársúrkomunnar. Sé fylgnistuðull reiknaður milli þeirra reynist hann 0,73 (harla gott).
Fjölgun úrkomudaga sýnir því aukna úrkomu. Sé leitni reiknuð fyrir tímabilið í heild reynist úrkomudögum fjölga um 6 prósent á öld. Alengt er að úrkomudagafjöldi (munum að við erum að tala um 0,5 mm eða meira á sólarhring) sé um 150 (fleiri sunnanlands - færri nyrðra). Fjölgunin er því um 10 dagar á ári - á öld. Þetta mætti auðvitað ræða nánar - þó við skulum ekki trúa þessari tölu eins og nýju neti er hún samt efni til umhugsunar og skiptir trúlega miklu máli fyrir vangaveltur um aftakaúrkomu - sem svo sannarlega skiptir máli þegar rætt er um skriðu- og flóðahættu (og snjóflóðahættu reyndar líka).
Öfgaúrkoma er að minnsta kosti tvenns konar. Annars vegar langvinn úrkoma - ekki endilega aftakasnörp og hins vegar skyndileg úrhelli. Auðvitað er sambland af þessu tvennu líka í myndinni.
Það hefur sýnt sig að magn úrkomunnar eitt og sér er ekki ráðandi varðandi hættu á skriðuföllum, heldur skiptir einnig máli hversu vanur staðurinn er að taka við úrkomu. Þannig getur 150 mm aftakasólarhringsúrkoma verið hættuminni á stað þar sem ársúrkoman er 3000 mm heldur en 30 mm sólarhringúrkoma á stað þar sem ársúrkoman er 400 mm. Við vitum í raun ekki hvaða viðmið eiga við hér á landi í þessu sambandi - en algengt er á alþjóðavísu að miða við 5 til 8 prósent ársúrkomunnar. Falli slíkt magn eða meira á einum degi er talin sérstök hætta á ferðum.
Myndin hér að ofan sýnir talningu slíkra atburða - viðmiðið er 6 prósent ársúrkomunnar (en hefði getað verið annað). Reyndar eru stöðvar svo fáar fyrir 1925 að vafasamt er að telja, en við látum okkur hafa það. Lóðrétti ásinn sýnir meðalfjölda slíkra atburða á veðurstöð á ári. Meðaltalið er í kringum 0,2 - sem þýðir að við erum að telja svonefnda 5-ára atburði (eða þar um bil). Greinilega eru mikil áraskipti af tíðni þeirra - fáein ár skera sig úr, en ekki er að sjá neina leitni. Aftakaúrkomuatburðum (af þessu tagi) virðist ekki hafa fjölgað þrátt fyrir úrkomuaukninguna sem fyrri myndir sýna.
Þá skulum við líta á hvað háupplausnarmælingar sjálfvirku stöðvana eru að segja okkur um klukkustundarúrfelli. Þær mælingar hafa alls ekki staðið nægilega lengi til þess að við getum fjallað um einhverja þróun tengda hugsanlegum veðurfarsbreytingum - en að því kemur þó í framtíðinni.
Myndin sýnir einfalda talningu þeirra klukkustunda þegar úrkoma hefur mælst 10 mm eða meiri og hvernig slíkar klukkustundir dreifast á árið. Í ljós kemur að árstíðasveiflan er mjög eindregin. Úrhellin eru sjaldgæfust á vorin (þá er hins vegar hætta vegna snjóbráðnunar) en vex eftir því sem á sumarið líður og nær hámarki í september. Höfum í huga að mælitímabilið er ekki mjög langt þannig að tíðnimunur milli einstakra mánaða (þar sem litlu munar) er varla eða ekki marktækur. Vetrarsnjókoma gæti villt okkur sýn - atvik eru mun líklegri til að týnast í snjókomu. Líklega er tíðni atvika meiri að vetralagi heldur en myndin sýnir.
Við getum einnig athugað hvernig úrhelli dreifast á sólarhringinn.
Myndin sýnir allt árið. Við sjáum síðdegishámark - en annars virðist sem líkur á úrhelli dreifist nokkuð jafnt á tíma sólarhringsins. Ásamt ártíðasveiflumyndinni sýnir þetta okkur talsvert um þau ferli sem ráða atburðarásinni. Blautar lægðir eru algengari að haust- og vetrarlagi heldur en á vorin, og lægðir koma að landinu á hvaða tíma sólarhrings sem er.
Mynd sem dregur sumarið út er nokkuð öðruvísi:
Hér sést dægursveifla úrhella mjög vel. Þau eru miklu algengari síðdegis að sumarlagi heldur en annars. Að vísu er nokkuð ákveðið síðnæturhámark líka til staðar. Hér sjáum við tvímælalaust áhrif síðdegisskúranna - sem knúðir eru af lóðréttum hreyfingum lofts vegna upphitunar lands í sólaryl. Dembur af þessu tagi hafa alloft valdið landspjöllum og rétt hugsanlegt að við ættum aðeins að huga að afleiðingum - sérstaklega nú á tímum gjörbreyttrar landnýtingar. Síðnæturhámarkið er ekki alveg jafn auðútskýrt - e.t.v. hverfur það þegar fleiri ár bætast í safnið - en vel má vera að hér komi stöðugleiki líka við sögu. Útgeislun á efra borði skýja getur sett af stað veltu - en við skulum ekki fara að velta okkur upp úr því að sinni.
Ritstjóri hungurdiska hefur tekið saman veðurtjóna/atburðaskrá sem nær til áranna 1874 til 2010 (reyndar hefur bæst við - en er ekki komið í tölvutækan gagnagrunn). Í þessari einföldu atburðaskrá eru 215 skriðuatburðir og 215 snjóflóðaatburðir. Eins og áður er fjallað um er tjón í þessum atburðum mjög bundið tjónnæmi hvers tíma - tíðni þeirra gegnum tíðina markast því ekki síður af því heldur en tíðni undirliggjandi veðuratvika. Veðuratvikin koma hins vegar fram í árstíðasveiflunni.
Þessar myndir hafa reyndar birst á hungurdiskum áður. Efri rammarnir sýna árstíðasveifluna (skriður í brúnu til vinstri, snjóflóð í bláu - til hægri). Skriðuatburðir eru langsjaldgæfastir í mars og algengastir á haustin. En þetta gæti breyst með hlýnandi veðurfari. Snjóflóð eru að sjálfsögðu algengust að vetrarlagi, í janúar, febrúar og mars, tjón af þeirra völdum hefur verið ámótaalgengt í apríl og desember.
Neðri rammarnir sýna þróun í tíma. Tjónvaldandi skriðuatburðum virðist hafa fækkað á síðari árum - en eins og áður sagði er jafnvíst að ástæðan sé tjónnæmið en ekki tíðni þess tjóni veldur. Tíðni snjóflóða óx - eftir því sem fleira gat orðið fyrir þeim.
Eins og áður sagði er talsvert verk óunnið í tíðnigreiningu þeirra veðurþátta sem valds skriðuföllum, flóðum og snjóflóðum og að meiri þekking safnist á ástæðum þeirra. Mikilvægt er að þeirri vinnu verði sinnt af alúð í framtíðinni.
Við látum hér staðar numið að sinni - ekki miklu nær.
26.9.2018 | 00:08
Athyglisverð lægð -
Athyglisverð lægð - en ekki víst að hún komi okkur nokkuð við. Suðvestur af Asóreyjum er nú vaxandi lægð - hvarfbaugshroði (sub-tropical system eðe eitthvað svoleiðis á erlendum tungum). Á fimmtudaginn segir evróprureiknimiðstöðin stöðuna vera þá sem myndin sýnir.
Ísland er ofarlega til hægri á myndinni í vestanátt. Vaxandi lægð er við Labrador - og fer hún hiklaust í átt til landsins - á að fara hjá strax á föstudag. En við horfum á lægðina vestsuðvestur af Asóreyjum. Hér er hún um 970 hPa í miðju - með hlýjan kjarna. Næstu vikuna á hún að grynnast og dýpka á víxl - en haldast á svipuðum slóðum, lokuð inni af miklum hæðarhryggjum norðan við.
Það sem gerir hana eftirtektarverða fyrir okkur er að hún gæti skotið lofti og lægðabylgjum til norðurs - eða farið þá leið sjálf um síðir. Þetta loft er þrungið raka og bleytu og/eða fóðri til lægðadýpkunar á okkar slóðum - hvort sem nú af slíku verður eða ekki. Ritstjórinn mun alla vega halda áfram að gefa henni gaum - svona persónulega - eins og sagt er.
25.9.2018 | 14:41
Kalt - eða kannski hlýtt?
Eitthvað skiptar skoðanir munu vera um það hvort tíðarfar ársins 2018 hafi til þessa verið hlýtt eða kalt. Reyndar er það svo að niðurstaðan fer nokkuð eftir því við hvað er miðað. Hér fjöllum við aðallega um stöðuna í Reykjavík - minnumst þó á fleiri staði í lokin. Í Reykjavík er niðurstaða sú að sé eingöngu miðað við síðustu 20 ár falla fyrstu 9 mánuðir ársins á kaldasta þriðjung hitadreifingar - og geta þar með kallast kaldir. Sé hins vegar miðað við tímann frá upphafi samfelldra hitamælingar lendir sama tímabil í efsta þriðjungi hitadreifingar - og árið 2018 það sem af er telst því vera hlýtt.
Lítum nánar á þetta á mynd.
Lóðrétti ársins táknar meðalhita fyrstu 9 mánaða ársins í Reykjavík. Sá lárétti sýnir hins vegar lengd viðmiðunartímabils - lengsta tímabilið (147 ár) er lengst til vinstri, en síðustu tíu ár lengst til hægri.
Rauði ferillinn sýnir hvernig þriðjungamörk hitadreifingarinnar liggja eftir því hversu langt tímabil er undir. Sé meðalhiti fyrstu 9 mánaða ársins ofan rauðu línunnar teljast þeir hafa verið hlýir, liggi hitinn á milli rauðu og bláu línanna telst hitinn í meðallagi, en lendi hann undir bláu línunni hefur verið kalt.
Það vekur auðvitað eftirtekt að bæði bláa og rauða línan hækka mjög eftir því sem styttra tímabil er undir. Þetta er afleiðing hinnar miklu almennu hlýnunar sem átt hefur sér stað síðustu 150 árin - og sérstaklega síðustu 20 ár. Þeir sem halda því fram að veðurfar hafi ekkert breyst hljóta að nota þau viðmið - því við getum auðvitað fengið veruleg kuldaköst í framtíðinni - einhvers réttlætis verða þau að njóta. Þeir sem aftur á móti halda því fram að varanlegar breytingar hafi átt sér stað vilja gjarnan miða við síðustu 20 til 30 ár (flestir hljóta að samsinna því að 10 ár séu of stuttur tími).
Sé miðað við síðustu 20 ár er hiti fyrstu 9 mánaða ársins í ár lágur - það hefur verið kalt - við erum þó ekki langt inni í kalda þriðjungnum. Sé hins vegar miðað við síðustu 30 ár hefur hiti verið í meðallagi - og á lengri viðmiðunartímabilum reyndar rétt að sleikja mörk meðalflokksins og þess hlýja. Förum við aftur til þarsíðustu aldamóta lenda þessir níu mánuðir hins vegar í hlýja flokknum - og enn greinilegar ef við miðum við allt tímabilið frá upphafi mælinga.
Nú ætlar ritstjóri hungurdiska ekki að fara að fullyrða neitt um það hvers konar viðmið er eðlilegt. - Honum þykir þó að í umræðum um veðurfarsbreytingar sé eðlilegt að miða við sem lengst tímabil - hlýindi síðustu áratuga eru einstök á mælitímanum. Hjá einstaklingum sem eru að lifa sínu lífi - og eru að reyna að aðlaga athafnir sínar að veðurfari er hins vegar alls ekki óeðlilegt að miða við mun styttri tíma. Þeir yngstu geta jafnvel gripið til tíu eða tuttugu ára, þeir eldri e.t.v. 30 eða 40.
Ritstjóri hungurdiska lifir langtímalífi í veðurfarinu - honum finnst árið í ár falla vel í flokk hlýrra ára - þó það sé alls ekki í hópi þeirra allrahlýjustu um landið vestanvert.
Við sjáum á myndinni að sé farið 50 til 80 ár aftur í tímann eru línurnar á myndinni frekar flatar. Sé t.d. litið á 70-ára viðmiðið teljast fyrstu 9 mánuðir ársins í meðalflokki í Reykjavík - rétt neðan hlýju markalínunnar - en samt allmörg sæti (8) neðan hennar því mjög litlu munar á hita sama tíma margra ára. Á Akureyri eru fyrstu 9 mánuðir ársins langt inni í hlýindunum, í 12. sæti, 11 sætum ofan marka. Austur á Dalatanga stendur árið enn betur, er það fjórðahlýjasta hingað til á síðustu 70 árum.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2018 | 01:52
Kaldur dagur
Sunnudagurinn 23.september varð heldur kaldur. Dægurlágmarksmet féllu (að sjálfsögðu) á fjölmörgum stöðvum og septembermet á allmörgum. Hér verður aðeins minnst met á sjálfvirkum stöðvum þar sem athugað hefur verið lengur en frá aldamótum. Það eru: Súðavík, Siglunes Þingvellir, Ögur, Ísafjörður, Kjalarnes og Bolungarvík. Mánaðarmet féllu ekki á öðrum stöðvum sem athugað hafa svona lengi.
Frostið á Þingvöllum fór í -8,7 stig. Á mönnuðu stöðinni þar mældust mest -8,6 stig í september, það var 1954. Þessi munur er ómarktækur (þó stöðvarnar væru á sama stað - sem ekki er).
Dægurlágmarksmet fyrir landið var sett á Brúarjökli, frostið þar fór í -12,8 stig, eins fór frostið við Gæsafjöll í -12,2 stig, báðar tölur lægri en eldra landsdægurlágmarksmet sem var -12,1 stig sett á Hveravöllum 1971. Þann sama dag, 1971 fór frostið á Grímsstöðum á Fjöllum í -10,0 stig og stendur það enn sem dægurmet landsins í byggð. Frostið mældist nú -16,1 stig á Dyngjujökli, en skynjari á þeirri stöð er ekki í staðalhæð og því ekki hægt að telja töluna met. Frost hefur einu sinni mælst meira á landinu en -16,1 stig. Það var í Möðrudal 1954 (-19,6 stig). Í Reykjahlíð við Mývatn 1943 mældist frostið -16,1 stig í september 1943.
Það er aðallega lágmarkshitinn sem er óvenjulegur. Landsmeðallágmarkshiti (í byggð) reiknast -2,6 stig. Það er lægsta meðallágmark þessa almanaksdags, en ekki munar þó miklu því og meðallágmarki sama dag 2003 og 1971.
Sólarhringsmeðalhiti reiknast nú 2,9 stig, sá lægsti á þessum degi frá 2005. - En fjölmargir septemberdagar hafa verið kaldari í áranna rás. Meðalhámarkshiti var ekkert sérlega lágur - var reyndar lægri í bæði gær (22.) og í fyrradag (23.) - enda meiri blástur þá daga.
22.9.2018 | 20:25
Fyrir 60 árum var líka fjallað um bláa blettinn
Í júlíhefti fréttablaðs Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar [WMO-bulletin) árið 1960 birtist dálítil grein eftir Jacob Bjerknes (1897-1975). Jakob var einn af þekktustu veðurfræðingum sinnar tíðar og var sonur Vilhelm Bjerknes (1862-1951) sem er gjarnan talinn einn af upphafsmönnum nútímaveðurfræði.
Greinin sem hér er rætt um heitir Ocean temperatures and atmospheric circulation í lauslegri þýðingu Sjávarhiti og hringrás lofthjúpsins og fjallar einkum um breytingar á sjávarhita og veðurfari í Norður-Atlantshafi frá því seint á 19. öld og fram á þá tuttugustu. Hér er um fremur óformlegar vangaveltur að ræða og síðar birti Bjerknes talvert ítarlegri greinar og fræðilegri um þetta viðfangsefni - og teygði það síðan reyndar suður um höfin og til Kyrrahafs. Síðustu greinarnar höfðu töluverð áhrif á þankagang manna um suðursveifluna svonefndu og El niño og enn til þeirra vitnað.
Þó það sé sjálfsagt ýmislegt sem varla heldur vatni í þeirri grein sem hér er til umfjöllunar hefur hún þann stóra kost að vera einföld og margt er þar sem vekur umhugsun og staðist hefur tímans tönn. Við skulum hér líta á tvær myndir úr greininni og fjalla aðeins um niðurstöður hennar. Greinina sjálfa má finna á netinu, tengillinn nær í pdf-útgáfu tímaritsins og byrjar hún á síðu 151.
Það sem nútímalesendur munu helst sakna er að ekkert er minnst á það sem síðar var nefnt varma-seltu-hringrás heimshafanna [færibandið] - sem ritstjóri hungurdiska vill af sérvisku sinni nefna flothringrás. Ekki var búið að finna hana upp árið 1960.
Í upphafi segist höfundur ætla að reyna að rekja sjávarhitabreytingar í Norður-Atlantshafi áratugina fyrir síðari heimstyrjöld og hvernig þær tengjast breytingum á hringrás lofthjúpsins (þrýstifari).
Fyrri myndin sýnir mismun á sjávarhita áranna 1926-1933 og 1890-1897. Jákvæðar tölur segja að síðara tímabilið sé hlýrra en það fyrra. Hér má sjá að mjór borði sem nær allt frá Mexíkóflóa og austur fyrir Nýfundnaland var mun hlýrri á síðara tímabilinu heldur en því fyrra. Bent er á að annað tveggja hafi gerst, að Golfstraumurinn hafi styrkst, eða hann hliðrast lítillega til. - Aftur á móti virðist sem svæði frá Labrador, austur um í átt til Bretlandseyja hafi kólnað. - Það sama svæði og hitavik hafa lengst af verið neikvæð undanfarin ár og óformlega kallað blái bletturinn.
Bjerknes spyr nú hverjar séu líklegar skýringar. Mynd 2 í grein hans sýnir þrýstibreytingar á svæðinu milli tveggja áðurnefndra tímaskeiða. Heildregnu línurnar sýna mismuninn í hPa. Þrýstingur hefur stigið yfir stórum hluta Atlantshafs frá Bandaríkjunum í vestri til Kanaríeyja og Portúgal í austri. Sömuleiðis hefur þrýstingur stigið lítillega norðan Íslands, en fallið á svæðinu frá Labrador austur um til Bretlandseyja. Strikalínur sýna ársmeðalsjávarhita.
Bent er á að suðvestanátt undan austanverðum Bandaríkjunum hafi aukist að afli og Golfstraumurinn þar með. Sömuleiðis hefur lægðasveigja aukist sunnan og suðaustan Grænlands og í þriðja lagi hefur vestanátt út frá meginlandi Norður-Ameríku aukist milli tímabilanna tveggja. Þar sem hin aukna lægðasveigja ríkir hefur uppdráttur á köldum sjó úr undirdjúpunum aukist að mati Bjerknes. Lægðarhringrás svonefndrar íslandslægðar ýtir alltaf undir slíkan uppdrátt á svæðinu. Hann er þó mjög mismikill frá ári til árs og sömuleiðis er einhver breytileiki á lengri tímakvarða eins og þessi mynd sýnir. Hin aukna vestanátt eykur kuldaaðstreymi að vetrarlagi út yfir Atlantshaf og skýrir kólnun sunnan Grænlands - ásamt hinum aukna uppdrætti. Þetta styður hvort annað.
Í greininni má lesa meira um meðalástand sjávar sunnan Grænlands. Við rekjum það ekki hér (en hungurdiskar hafa reyndar fjallað nokkuð um það fyrir nokkru).
Meginástæða þess að verið er að rifja þetta upp hér og nú er sú að ástandið um þessar mundir minnir mjög á þær breytingar sem greinin lýsir. Blái bletturinn suðvestan Íslands sem hefur verið mjög til umræðu undanfarin ár er sá sami og fyrri myndin hér að ofan sýnir. Hringrásarvik hafa líka verið svipuð.
Bjerknes lýkur greininni á því að benda á helstu ferli sem ráða munu sjávarhitavikum. Fyrst telur hann þau hröðustu. Athugasemdir í hornklofum eru ritstjóra hungurdiska.
Varmatap yfirborðs sjávar:
1. Beint tap til lofthjúpsins, vex með styrk vestanáttarinnar, sérstaklega að vetrarlagi þegar aðstreymi frá köldum meginlöndum á haf út er meira en venjulega. [Hefur verið mjög áberandi á Atlantshafi frá og með 2014].
2. Kæling yfirborðslaga vegna vind- og öldublöndunar þeirra og kaldari sjávar neðar. [Sólríkt og hægviðrasamt sumar getur falið kulda vetrarins tímabundið - en sá varmi blandast að hausti og vetri hinum kaldari sjó neðar.]
3. Kæling vegna aukins Ekmansdrags úr norðri (í vestanátt). [Núningur af völdum vinds flytur sjó - en um 30 gráður til hægri við ríkjandi vindátt. Kaldari sjór úr norðri dregst því suður - og dýpri sjór leitar því upp norðan við mikla og þráláta vestanvindstrengi - uppdráttur á sér því líka stað í miðju lægðasveigju.]
Sömuleiðis koma hægari ferli við sögu:
4. Breytilegt aðstreymi varma með vinddrifnum straumum - sem laga sig að breyttum vindum. [Samanber þá tilgátu hér að ofan að aukin suðvestanátt undan austurströnd Bandaríkjanna hafi aukið styrk Golfstraumsins - og þar með aukið varmaflutning hans inn á svæðið fyrir norðaustan hann.]
5. Mismunandi uppdráttur (eða niðurstreymi). [Lægðasveigja fylgir kulda - hún dregur upp kaldan sjó - sem aftur heldur lægðasveigjunni við og styður uppdrátt frekar - eykur þar með á tregðu til breytinga].
Bjerknes segir að lokum að ferli 5 sé það sem virðist vera ríkjandi í langtímabreytingum við Íslandslægðina.
Eins og áður sagði birtist þessi grein árið 1960 og hún fjallar einkum um breytingar sem urðu snemma á 20.öld - fyrir hundrað árum. Athyglisvert er að þær eru ekki ósvipaðar þeim sem við höfum orðið vitni að nú nýlega. Bjerknes minnist í greininni á kaldan djúpsjó úr norðurhöfum og áhrif hans á hringrás í undirdjúpunum undir íslandslægðinni, en aftur á móti getur hann ekki um þann möguleika að sú djúpsjávarmyndun beinlínis dragi saltari sjó að sunnan til norðurs - óháð beinum áhrifum vinda.
Mjög erfitt virðist að greina að skammtímaþætti (veðurlag eins vetrar/sumars), fjöláraþætti (breytingar sem sjávarhiti hefur á vindafar og vindafar á sjávarhita) og síðan áratugaþætti (stöðugleikabreytingar sem samspil hita, úrkomu, jökla og ísbráðnunar valda á hafstrauma - og þar með veðurlag). Það er svosem ekkert óeðlilegt þó almenn umræða á hverjum tíma litist nokkuð af þessum erfiðleikum og valdi ætíð töluverðum ruglingi.
22.9.2018 | 01:45
Alhvítt fyrst að hausti
Spurt var hvenær, að meðaltali, yrði fyrst alhvítt í byggð að hausti hér á landi. Tilefnið er að alhvítt varð í yfirstandandi hreti á að minnsta kosti einni veðurstöð. Hungurdiskar hafa fjallað um málið áður - en ekki þó svarað þessari ákveðnu spurningu. Sannleikurinn er sá að ekki er mjög auðvelt að svara henni svo vel sé. Ástæðan eru breytingar í stöðvakerfinu, mönnuðum stöðvum hefur fækkað mikið og því ekki fullvíst að eldri tölur og nýlegar séu alveg sambærilegar. Það krefst mikillar vinnu að tryggja (nokkurn veginn) að svo sé. Ritstjóri hungurdiska mun ekki leggja í hana.
En látum sem allt sé í lagi. Snjóhuluupplýsingar eru aðgengilegar í töflu í gagnagrunni Veðurstofunnar aftur til 1966 fyrir þær stöðvar sem athuganir hafa gert. Eldri upplýsingar hafs ekki að nema litlu leyti verið færðar á tölvutækt form.
Myndin hér að neðan er dregin eftir niðurstöðum einfaldrar leitar í töflunni. Einhverjar villur gætu leynst í gögnunum og lesendur því beðnir um að taka niðurstöðum með nokkurri varúð.
Lóðrétti ásinn sýnir dagsetningar - eftir 1.ágúst, en sá lárétti árin frá 1966 til 2017. Súlurnar gefa til kynna hvenær fyrst varð alhvítt á hverju hausti. Eins og sést hefur nokkrum sinnum orðið alhvítt í byggð í ágúst á þessu tímabili.
Sé meðaldagsetning reiknuð fæst út 14.september, en miðgildi er 11. september, það þýðir að í helmingi ára hefur fyrst orðið alhvítt fyrir þann tíma, en í helmingi ára síðar. Við tökum reyndar strax eftir því að mikill munur er á síðustu 20 árum og fyrri tíð. Miðgildi þessarar aldar er þannig 28.september - þrem vikum síðar en miðgildi tímabilsins alls. Í nærri öllum árum tímabilsins frá 1970 og fram um 1995 varð fyrst alhvítt fyrr en nú.
Ef við reiknum einfalda leitni kemur í ljós að fyrsta alhvíta degi hefur seinkað um um það bil 6 daga á áratug á tímabilinu öllu. - En höfum í huga að leitnireikningar af þessu tagi segja nákvæmlega ekkert um framtíðina. Hins vegar er líklegt að við sjáum hér enn eitt dæmi um afleiðingar hlýindanna sem hafa ríkt hér á landi síðustu tvo áratugina. Þó sumum kunni að þykja fyrsti snjór haustsins í byggð nú koma snemma - er það í raun þannig að hann er 10 dögum seinna á ferðinni heldur en að meðaltali 1966 til 2017 og 16 dögum síðar en var á tímabilinu 1966 til 1995.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 02:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2018 | 01:36
Tuttugu septemberdagar
Meðalhiti fyrstu 20 daga septembermánaðar er 8,3 stig í Reykjavík, +0,4 stigum ofan meðallags áranna 1961-1990, en -1,1 neðan meðaltals sömu daga síðustu tíu árin. Hitinn er í 14.hlýjasta sæti (af 18) á þessari öld, en í 69.sæti á 143-ára listanum langa. Þar eru sömu dagar árið 1939 hlýjastir, meðalhiti 12,0 stig, en kaldastir voru þeir 1979, +5,3 stig.
Á Akureyri er meðalhiti það sem af er mánuði 8,2 stig, +1,3 ofan meðallags 1961-1990, en -1,1 neðan meðallags síðustu tíu ára.
Hiti er undir meðallagi síðustu tíu ára á öllum veðurstöðvum landsins, minnst er neikvæða vikið á Brúaröræfum, -0,4 stig, en mest við Siglufjarðarveg, -1,9 stig.
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 29,2 mm og er það um þriðjung neðan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 41,1 mm, vel ofan meðallags þar.
Sólskinsstundir hafa mælst 114,7 í Reykjavík það sem af er mánuði og hafa aðeins 10 sinnum mælst fleiri sömu daga í september. Rétt hugsanlegt er að sólskinsstundir mánaðarins í heild verði fleiri en í júní og júlí samanlagt. - En við látum vera að velta okkur upp úr slíkum möguleikum fyrr en kemur að mánaðamótum.
20.9.2018 | 20:36
Af árinu 1763
Virðist hafa verið nokkuð hagstætt ár þegar á heildina er litið. Ekki er getið um hafís. Framan af sumri var óþurrkasamt syðra, en þurrt nyrðra, en snerist síðan við. Allir íslendingar hafa nú full hús matar - sagði Eggert Ólafsson í bréfi þ.14.september.
Daglegar loftþrýstimælingar ársins hafa varðveist. Gallinn er sá að ekki er vitað með vissu hvar loftvogin var. Mælingarnar varðveittust með gögnum tengdum Eggerti Ólafssyni en alls ekki er víst að þær séu hans. Möguleiki er að þær séu úr fórum Guðlaugs Þorgeirssonar prests í Görðum á Álftanesi en hann var tengdur veðurathugunum Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar á sínum tíma og var með mælitæki. Loftvog þessi sýnir allt of háar tölur - séu þær franskar tommur, en of lágar séu tommurnar enskar eða danskar. Auk þess er næsta líklegt að ekki sé leiðrétt fyrir hita eða hæð ofan sjávarmáls. Að öðru leyti eru mælingarnar ekki ótrúlegar - breytileiki frá degi til dags er eðlilegur. Við grípum til þess örþrifaráðs að lækka allar tölur um 25 hPa (til að við ruglumst síður í ríminu).
Hér má sjá venjulegan vetraróróa þrýstingsins fyrstu þrjá mánuði ársins - þó eru alllangir rólegir kaflar bæði um miðjan janúar og fyrri hluta febrúar - ber vel saman við aðrar lýsingar. Sömuleiðis er þrýstingur hár um vorið (eins og algengast er) og aftur er hann hár síðari hluta september og fyrst í október - og vel er um veðráttuna þá talað. Aftur á móti er þrýstingur lágur í ágúst - þá var norðanátt ríkjandi og svalviðri nyrðra (að minnsta kosti).
Við förum nú í gegnum árið með aðstoð annála og annarra heimilda. Frásögnum annálanna hefur verið skipt upp eftir árstíðum - til að auðveldara sé að bera þá saman. Einnig er stafsetning víðast færð til nútímahorfs (nema í grein Espólíns sýslumanns um sjúkdóma).
Við látum heildaryfirlit Vatnsfjarðarannáls hefja leikinn - athugum að hann lýsir veðri vestanlands - blaðsíðutöl vísa í prentaða útgáfu Bókmenntafélasins (binda ekki þó getið hér - auðvelt á að vera að finna út úr því).
Vatnsfjarðarannáll yngsti: Vetur frá nýári allt til sumarmála rétt góður; sumarið, haustið og allt til nýárs í sama máta. ... Heyskapur ogso góður, og yfir allt var árferðið allt til ársins enda eitt með þeim bestu. (s342)
Vetur með orðum annála:
Grímsstaðaannáll [Breiðavík á Snæfellsnesi]: Vetur sá allrabesti frá nýja árinu til góuloka, svo enginn mundi eins eður svo góðan. Á þorranum rist torf og þakin hús. Íkast gerði í 2. viku góu, gerði svo snart aftur dáviðri til sumarmála. Eftir sumarmálin gerði kulda, komu síðan dáviðri. ... Skiptapi skeði inn til eyja fimmtudaginn næsta fyrir öskudag [10.febr.], af fiskiróðri í áhlaupagarði á norðan, áttu heima í Elliðaey. Formaðurinn hét Ólafur Ólafsson; þar var á og sonur hans og 2 eður 3 aðrir. (s650) ... Skiptapi varð á Suðurnesjum, slóst á það boði, tók út formanninn og aðra tvo, en 7 gátu bjargað sér til lands á skipinu, en hinir 3 deyðu. (s651) ...
Sauðlauksdalsannáll: Vetur ofanverður mikið góður og vorið með. ...
Höskuldsstaðaannáll: Veturinn var góður, einmánuður hvað bestur. (s515) ... Kalt um sumarmál. Vorið þó gott. ...
Íslands árbók: Öndvegisgóður vetur og bestu hlutir bæði syðra og í öllum verstöðvum.
Viðaukar Espihólsannáls (1): Vetur í Múlasýslu norðanverðri hinn harðasti.
Dagbækur Jóns Jónssonar (eldri) á Möðrufelli eru yfirleitt heldur læsilegri heldur en bækur sonar hans - en á móti kemur að þar er mikið af skammstöfunum (sem væntanlega er hægt að læra). Ritstjóri hungurdiska hefur reynt að rýna í vikuleg yfirlit Jóns um árið 1763 og reynir að draga þau saman - fyrst veturinn (fram að sumardeginum fyrsta):
Svo virðist sem janúar hafi lengst af verið staðviðrasamur, en nokkuð köld tíð og þegar á leið versnaði um beit. Fyrsti hluti febrúar var svipaður og þess getið að fimmtudaginn 10. hafi komið fyrsta hríð vetrarins [áhlaup það sem minnst var á í Grímsstaðaannál]. Afgangur febrúarmánaðar var nokkuð hríðasamur og svo fór að hestar höfðu vart snöp þegar á leið þennan kafla. En eftir 5. mars kom þíða og frá þeim 9. var talin næg jörð. Síðan hélst allgóð tíð um stund en varð stirðari þegar á leið mánuðinn. Einmánuður var ekki slæmur, en tíð samt heldur óstöðug, kaldir dagar komu. Eftir miðjan aprílmánuð talar Jón um andkalda tíð og frost - jafnvel grimm eftir þann 23.
Úr Djáknaannálum: §1. Öndvegis vetur til þess viku eftir kyndilmessu [kyndilmessa er 2.febrúar], gjörði þá norðanhríðir með miklum frostum. Kom bati í miðgóu með æskilegri veðráttu fram yfir sumarmál ...
Espólín: XLIX. Kap. Um veturinn í febrúar kom veður svo mikið, at löskuðust kirkjur norðanlands, reif hey en spillti skipum; í það mund fórust tvö skip í lendingu undir Eyjafjöllum, komust menn af nema tveir. Sá vetur var góður og öll þau misseri, bæði á sjó og landi; var afli mikill, en vætusamt, og nýttist illa fiskur.
Sigurjón Páll Ísaksson gaf út árið 2017 uppskrift sína af ferðadagbókum Eggerts og Bjarna og öðrum gögnum tengdum rannsóknum þeirra. Ótrúlegt eljuverk. Afritaði hann m.a. áðurnefnda veðurbók ársins 1763. Auk þrýstimælinganna er stutt dagleg veðurlýsing. Greinilega er verið að lýsa veðri á Suðvestur- eða Vesturlandi, léttskýjað er í norðanátt, en úrkoma í suðlægum áttum og svo framvegis.
Í janúar er mest um norðaustan- og austanátt, en þó er oft þítt. Austan- og norðaustanáttir eru einnig ríkjandi í febrúar, en heldur kaldari. Norðanofviðrið þann 10. og minnst hefur verið á hér að ofan náði til athugunarmanns og segir hann um vindhraðann: Extraordinare stærk blæst, noget sneefog, tyck luft og meget skarp frost - þetta má útleggja sem: Sérlega sterkur blástur, dálítill skafrenningur, þykkt loft og hart frost. Frostið var hart í viku - en linaði nokkuð þann 17. Í mars var frost og þíða á víxl - útsynningsveðráttu bregður fyrir dag og dag. Kalt var síðari hluta aprílmánaðar og þann 30. er getið um skafrenning.
Vor með orðum annála:
Grímsstaðaannáll: Votviðri um vorið frá krossmessu til Jónsmessu, kom varla eður aldrei þurr dagur. [Þá var oftast þurrt nyrðra segir Jón.]
Íslands árbók: Voraði einnig vel og gjörði góðan grasvöxt víðast um land. (s49)
Úr Djáknaannálum: kólnaði þá aftur með fjúki og frosti, sem hélst til uppstigningardags, komu þá sunnan góðviðri. Gjörði fjúk 11. júní svo næstu 2 daga var ei nautjörð. Sá snjór var á fjöllum til sólstaða, var þó vorið gott.
Jón segir maímánuð hafa verið kaldan og heldur óhagkvæman gróðri. Þann 14. segir hann t.d. um undangengna viku: Að sönnu gott veður, en þó andkæla, og þann 28.: Þurr og óhagkvæm gróðri. Júníbyrjun var hlý, en þurr og ei mjög gróðursæl. Um 10. kólnaði og var kalt næstu daga - þann 18. segir: ei gott gróðurveður þurrka sakir og loftkulda.
Sumar með orðum annála:
Grímsstaðaannáll: Grasár hið besta á túnum, engjar í meðallagi; gerði þá einlægt þerra eftir messudagana með norðanstormum og blástri, kom aldrei vott á jörðina fram yfir höfuðdag. Heyskapur í besta máta í flestum stöðum og nýttist vel, en brann þó af sumum harðbalatúnum. Þetta sumar voru frekari vætur fyrir norðan. ...
Sauðlauksdalsannáll: Grasvöxtur hinn besti og nýting líka þetta sumar. (s461)
Höskuldsstaðaannáll: Sumarið þokusamt norður undan með súldum. ... Heyskapur í betra lagi.
Viðaukar Espihólsannáls (1): Þess eftirkomandi vor einnig mjög stirt, svo allflestir (s222) urðu fyrir gripatjóni, en í sunnanverðri sýslunni féll mikið betur. Grasvöxtur í meðallag. Heynýting slæm. (s223)
Úr Djáknaannálum: Síðan gengu vætur framan af slætti, varð þó nýting góð og grasvöxtur fínn svo heyskapur varð í betra lagi og mikill á Vestfjörðum.
Upp úr miðjum júní gerði góðan kafla í Eyjafirði og segir Jón þann 25. að vikan hafi verið hlý og gróðursæl, og 2.júlí segir hann vikuna bæði hlýja og þurra. Þá skiptir aftur um og næstu viku segir hann vota, þokusvækjusama og ei hlýja og þar á eftir kemur bæði köld og votsöm vika. Í ágúst kvartar hann áfram undan óþerri og kælum þó ekki sé illviðrasamt. Um miðjan ágúst snjóaði í fjöll.
Í veðurdagbókinni áðurnefndu er ágústmánuður sólríkur lengst af og norðlægar áttir ríkjandi. Athugunarmaður segir mjög hlýtt þann 17. Næturfrost gerði þann 9. september.
Haust með orðum annála:
Grímsstaðaannáll: Haustið var gott með þurrviðrum í meira lagi, eftir sem að gera er á haustdag. Gerði frost og hörkur á jólaföstunni og það til jóla, hvar með fylgdu jarðleysur sumstaðar. (s653)
Höskuldsstaðaannáll: Haustið gott. Fjúkhríð um allraheilagramessu; fennti sumstaðar fé. (s515)
Úr Djáknaannálum: Haust gott til 30. október., þá gjörði mikið norðanveður með krapafjúki og hleypti svo í frosti; þar eftir góð veðrátta. Kom önnur hríð 10.desember og kafhaldasamt öðru hvörju þar til sú seinasta hríð kom á annan dag jóla og varaði árið út. (s 128). Verhlutir í betra lagi syðra og í öllum verstöðum. Góður afli norðanlands. Gekk smáfiskur inn á Húnafjörð. Fiskaðist á Innnesjum syðra fram á jólaföstu, þar eftir ekki vegna ógæfta. Fiskur nýttist illa og meltist. Á Fellsreka í Sléttahlíð bar upp vænan hval um haustið og tvítugan reiðarkálf á Bessastöðum í Hrútafirði 18. nóvember §3. Þann 30. október hraktist og fennti fé á Vatnsnesi í kafaldi. Þann 10. desember hraktist þar aftur fé og fennti hesta. (s 129).
Espólín: XLIX. Kap. Harðnaði þá veðrátt með nóvember en fiskiafli þá allgóður; gekk fjársýkin syðra, en bólusóttin vestur um land. (s 73).
Yfirlit Jóns eru mjög skammstöfuð í september, en þó má sjá að minnst er á kulda og votviðri þann 10. og þann 24. virðist talað um stillt og klárt veður. Fyrsta vika október sögð kulda, frosta- og fjúkasöm, en er tíð þæg, góð og gæftasöm allt fram til síðasta yfirlits mánaðarins þann 29. Svo virðist sem nóvember haf verið óstilltur fram undir þann 20., en þá tók við hægari kafli sem stóð fram til 9.desember. Úr því var mikill snjór í Eyjafirði og talað um dæmafáa fönn undir áramótin.
Veðurdagbókin áðurnefnda segir frá norðanátt mestallan desember, sérstaklega ríkjandi frá og með þeim 8. Þá er lengst af úrkomulítið syðra, sólskin og stöðug frost.
Espólín segir frá manna- og fénaðarsóttum þetta ár (við látum stafsetningu halda sér):
Bólnasóttin gekk vestr ok um land allt, ok þá all-mannskæd, ok meir en sú er næst var fyrir, þó bólubörn væri nú færri; varadi hún náliga lengr enn hver bóla önnur, þvíat alls sleit hana ekki nær því á fjórum árum. Fjársýkin gekk ok yfir mjök sunnanlands, sló út um saudkindr á herdakambi, kvidi eda nárum, ok var ei ætt þat er drapst, fyrir því skáru margir fé sitt heilbrigdt fyrir ótta sakir; var hún í því verri enn önnur sóttarkyn, at þó ein saudkind sýndist heil ordin, var hún jafnskjótt yfirfallin aptr, tvisvar eda þrisvar á sama vetri eda voru, en á sumrum var heldr hlé á; kom hún þó aptr jafnskjótt sem á haustadi eda vetradi, ok gekk svo hvert ár at ödru; vard eitt ár á milli á sumum bæum, svo at peníngr sýktist ei skadliga, en annat ár var hún þess þýngri; hafdi hún ýmisligt atferli á saudfé, kom út á sumum med þurrum kláda, vosum ok skurfum, þurfti þá at klippa ullina; en á ödru kom bleitusuddi um herdakambinn, ok svo hrygg ok sídur, í gegnum ullina, til þess er ullarkápan losnadi af hörundinu í einu, ok var eptir kvikan vot, var sú miklu verri ok hættuligri en hin; á sumum kom mest í fætrna med bjúg ok bólgu, svo klaufir leysti af, var þat verst vidreignar, ok varla ómaksverdt at draga þær kindr vid líf, er med þeim hætti sýktust, þó etid gæti. Þá voru enn nokkrar sem bólgu fengu í höfudit ok gróf úr augum, ok féllu af horn, bólgnudu varir ok túnga, ok þurfti þeim ei líf at ætla; má af slíku sjá hver bágindi ok skort á ull ok ödru bjargrædi menn á þá vid at vera. (s 71-72).
Eggert Ólafsson ritar úr Sauðlauksdal til Bjarna Pálssonar [Bréfin birtust í Andvara 1875]
Sauðlauksdal 14-9 1763: Árferðið er hér á landi það allra besta til lands og sjóar, þó nokkuð mismuni í sumum stöðum. Fiskiafli góður víðast hvar, og sumstaðar í mesta lagi, svo sem sunnanlands hefir drjúgum hver kotungur á Innesjum fengið (s186) lestar hlut, og sumir hafa fengið fjórar lestir. Hér fyrir Vesturlandi meiri þorska-fengur, en áður hefir verið í mörg ár, og steinbíts-afli rétt góður. Veturinn var hinn allra-besti, með fárra vikna frosti og snjóvi framanaf, en þar eftir, allt fram á jól, sífeldar þíður og þeyvindar, já stundum svo mikill lofthiti (hvað thermometrum sýndi), sem þá hlýtt er í mollum á sumardag [hér er verið að lýsa hausti 1762 - 1763 er hér að neðan].
Á liðnum jólum kom snjór nokkur og frerar, þó allt í meðallagi, og sjaldnast fullkomin vetrarfrost að kalla. Vorið og sumarið hefir gott verið; sumarið samt þurrkasamt síðan á leið, og þess vegna nýting hin allrabesta. Allir íslendingar hafa nú full hús matar. Guð gefi þeim vel með að fara! ... Æ tímgast hér maturtir og ýms aldini betur og betur. Mustarðslundur, 9 fóta hár kringum nýbyggt lysthús, með borði, bekkjum og ilmandi blómi, er hér á landi nýbyggð, sem jafnast kann við ditas sumra þar ytra.
Sauðlauksdal 1. desember 1763
Árferðið má það besta kalla bæði til lands og sjóar, og þó að haustið hafi gengið nokkuð svo óstöðug veðurátt, þá samt jafnan stillt og mild, og nú um þessa tíma hreinviðri, að segja frostlaust og auð jörð. Ætíð er hér heldur en ekki að aukast kálátið með bændum. Sýslumaður hefur nú í sínum nýupptekna jarðepla garði fengið yfir máta stórar Tar-tuplur [kartöflur], á rek við þær sem ég fékk hjá Prófasti síra Guðlaugi í fyrra haust; annars eru þær stóru fáar, og hinar færri og smærri við þann mun. Jafnari og betri eplatekja var hér heima í haust en nokkurn tíma fyrri, og kálfarnir [trúlega verið að tala um grænkál] nú jafn-stærri. Kál vex her allstaðar sæmilega, en næpur mjög misjafnt og vilja títt artast; en nú hefur mágur minn í haust fengið gott íslenskt næpna frjó, og mun það ei svo fara sem hitt framandi. Salviur hefir ég fengið til thes sem svari Vs pd. og eiga nú rætur að standa til ævintýris veturinn af. Mustarðurinn vex hér langhæstur af öllum kálgresum, sem skriptin segir: sá sem girti lysthúsið, og bróðir minn Jón mun til muna, varð 10 feta hár að íslensku máli og fræ fékkst af honum nokkuð. Pílarnir ganga meir og meir til þurrðar. Sanddrifið og hin auða jörð og sterkir stormar hygg og þeirra veiku lífi hafi að fullu riðið; samt, þá lifðu fjórir í sumar, hvort sem þeir-þola veturinn af. Blómkál hefur nú fyrst í sumar vaxið, svo að ávöxt gæfi til muna. það fræ er auðsjáanlega skemmt, blandað við meira hluta af ordinairu hvítkáls fræi. Blóm-hnúðurinn, sem vóx úr því íslenska blómkáli, varð svo stór sem gildur karlmannshnefi. Hvað komst það aldin langt í Reykjavík? því Madma Dahl sýndi mér af því í fyrra haust, en var smátt, og ég hygg væri blómkerfið sundur tekið; mun það vaxið hafa annarstaðar?
Yfirmáta mikill sjóargangur kom hér sunnudaginn næstan eftir allraheilagra messu [6.nóvember], var hér þá nokkuð hvass útsynningur, frostlaust og úrkomulaust með skýjarofum og sólskini þess á millum, en frysti lítið um kvöldið; víða tók skip út hér um pláss, og bændur tveir við Arnarfjörð misstu fé sitt allt. (s141)
Appendix: Það var á sunnudagsmorguninn, sem mikla flæðurin var og missti sýslumaður okkar þá sexæring vænan, og eitt fimm-manna-far. Daginn fyrir var enn meira stórviðri sunnan, lítið við útsuður og lamvirðus (I = lamviðurs) regn, en á Thermometro (hitamæli) nokkuð hlýrra. Barometrum (loftvogin) sökk þann dag um heilan þumlung [35 hPa], en steig aftur, þ.d. minna á sunnudaginn. Þetta ritar ég, ef þú vilt bera saman við veráttina þar suður frá, hellst ef orðið hefur af þessari flæði þar, hvort sem það hefur verið í sama mund sem hér um pláss.
Hér lýkur að sinni yfirferð hungurdiska um veður- og tíðarfar ársins 1763. Ritstjórinn þakkar Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir innslátt meginhluta annálanna og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt texta Árbóka Espólíns.
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.12.): 119
- Sl. sólarhring: 149
- Sl. viku: 954
- Frá upphafi: 2420769
Annað
- Innlit í dag: 110
- Innlit sl. viku: 842
- Gestir í dag: 105
- IP-tölur í dag: 104
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010