Meira af hlýindum á Akureyri

Sem kunnugt er var meðalhiti á Akureyri ofan við 14 stig bæði í júlí og ágúst. Hefur ekki gerst áður svo vitað sé. Til gamans leit ritstjóri hungurdiska á meðaltöl „síðustu 30 daga“ á hverjum degi. Það meðaltal fór fyrst yfir 14 stig þann 20.júlí (14,1 stig, 21.júní til 20.júlí) - rauf síðan 15 stiga „múrinn“ þann 24. (25.júní til 24.júlí) og var líka ofan 15 stiga daginn eftir. Fór síðan niður fyrir 14 stig þann 16.ágúst (18.júlí til 16.ágúst) og niður fyrir 13 stig þann 22. - Síðan fór hitinn aftur upp á við og 30 daga meðaltalið var aftur komið í 14 stig þann 30.ágúst (1. til 30.) Var hæst í fyrradag (5.september), 14,6 stig (meðaltal 7. ágúst til 5.september).
 
Ljóst er að hitatölur munu hrapa nokkuð næstu daga - en spurning þó með úthald hitanna. Mun mánuðurinn eiga möguleika í harðsnúið lið hlýrra septembermánaða? Þar er 1941 á toppnum á Akureyri með 11,6 stig og 1939 litlu kaldari með 11,5 stig. Í minni okkar (gamalla veðurnörda) er september 1996 með 11,4 stig og 1958 með 11,6 stig. Árið 1933 var meðalhiti í september á Akureyri 10,4 stig og 10,1 árið 2017 - það er hlýjasti september aldarinnar nyrðra.
 
Þann 25.ágúst var meðalhiti sólarhringsins á Akureyri 20,9 stig. Keppir við 22.júní 1939 þegar meðalhitinn reiknast 21,6 stig og 24.júlí 1955 og 21.júní 1939 þegar meðalhitinn var 20,9 stig eins og nú. Aðrir dagar með yfir 20 stiga meðalhita á Akureyri eru 31.júlí 1980 (20,8), 5.júlí 1991 (20,6), 24.júlí 1936 (20,3), 4.júlí 1991 (20,1) og 9.ágúst 2012 (20,0). Gögn um daglegan hita á Akureyri eru aðgengileg í tölvugagnagrunni Veðurstofunnar aftur til 1936.
 
 
Við getum líka rifjað upp að fjóra daga í röð, 13. til 16. júní, var sólarhringsmeðalhiti á Akureyri neðan við 4 stig - en samt urðu mánuðirnir þrír, júní til ágúst saman þeir hlýjustu sem vitað er um á Akureyri.
 
Hæsta 30 daga meðaltal sumarsins í Reykjavík var 28.júlí til 26.ágúst, 13,1 stig. Hæsti sólarhringsmeðalhiti sumarsins í Reykjavík var 15,7 stig, þann 29.júlí. Sólarhringsmeðalhiti hefur einu sinni náð 20 stigum í Reykjavík. Það var 11.ágúst 2004, 20,1 stig. 
 

Enn af ágúst

Eins og fram hefur komið á þessum vettvangi og víðar var veðurfar í ágúst mjög afbrigðilegt hér á landi. Sérstaklega hlýtt var um allt norðanvert landið. 

w-blogg020921iic

Myndin sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins (heildregnar línur), meðalþykkt (daufar strikalínur og þykktarvik - litir - eftir greiningu evrópureiknimiðstöðvarinnar. Gríðarlegt jákvætt þykktarvik er við Ísland. Evrópureiknimiðstöðin segir að meðalþykkt yfir landinu hafi verið 5390 metrar - um 90 metrum meiri en að meðaltali í ágúst. Það þýðir að hiti í neðri hluta veðrahvolfs hefur verið um +4,5 stigum yfir meðallagi, sem er reyndar svipað og hitavikið á háfjöllum á Norður- og Austurlandi, t.d. Vaðlaheiði og Gagnheiði. Þetta er meiri þykkt en vitað er um í nokkrum öðrum mánuði. Næstu tölur eru 5523 metrar í júlí 1984 og 5822 í ágúst 2006. 

Hæðarvik voru einnig óvenjuleg. Meðalhæð 500 hPa-flatarins í greiningu evrópureiknimiðstöðvarinnar var 5648 metrar. Endurgreiningum ber ekki alveg saman um hvort þetta er hæsta tala sem við þekkjum - eða ekki. Sú ameríska heldur fram júlí 1968 sem hæðarmeti, en evrópureiknimiðstöðin er með lítillega lægri tölu. Ágúst 1960 er ekki mjög langt undan sem og júlí 1967. Mánaðarhæð 500 hPa-flatarins nú er sú sama yfir Keflavík og var í júlí 1968. Ætli við verðum ekki að telja þennan hæðarmun ómarktækan - en þykktarvikið er marktækt met.

Þess má svo geta að frostlaust var á öllum veðurstöðvum í ágúst (og reyndar í júlí líka). Það hefur ekki gerst síðan sumarið 1950 - og líka 1947. Bæði þau sumur var frostlaust í þessum tveimur mánuðum. Hafa verður í huga að veðurstöðvar voru mun færri en nú og kann að hafa áhrif. Veðurlag sumarsins 1947 var ekki mjög óskylt því sem var nú, en sumarið 1950 var hins vegar gjörólíkt. 

Við þökkum Bolla P. að vanda fyrir kortagerð. 


Sumareinkunn 2021

Ritstjóri hungurdiska hefur nú reiknað „einkunn“ sumarsins 2021 í Reykjavík og á Akureyri. Aðferðin hefur verið skýrð áður (og er auðvitað umdeilanleg). Sumarið nær hér til mánaðanna júní til ágúst - aðferðin gæti gengið fyrir maí líka en varla september. Hæsta mögulega einkunn í þessu kerfi er talan 48 - ekkert sumar hefur náð slíkum hæðum - hvorki í Reykjavík né á Akureyri. Lægsta talan er núll, sumarið 1983 komst nærri henni - einkunn þess sumars var einn. Rétt er að taka fram að einkunnin er háð hverjum stað - hún gefur engan tölulegan samanburð milli stöðva (sem sumardagatalningin sem hér var fjallað um fyrir nokkrum dögum gerir frekar).

w-blogg020921a 

Sumareinkunn Reykjavíkur 2021 er 22. Það má heita í meðallagi síðustu 99 sumra (meðaltalið er 23), en 4 stigum undir meðallagi aldarinnar til þessa. Súlurnar á myndinni sýna einkunn hvers árs. Tvö sumur síðustu 10 ára voru áberandi lakari en nú, það var 2013 og 2018, staðan 2014 og í fyrra (2020) var ómarktækt lægri en nú. Júlí gaf flest stig (10 af 16 mögulegum), ágúststigin voru 8, en ekki nema 4 í júní. Mjög hlýtt var í ágúst og lengst af sumarsins var fremur þurrt - þessi atriði gáfu af sér stig. Sumarið gaf hins vegar aðeins eitt sólskinsstig (af 12 mögulegum).

Það vekur alltaf athygli á sumareinkunnarmyndinni í Reykjavík hversu tímabilaskipting er mikil. Tíuárameðaltal fór lægst niður í 15 stig á árunum 1975 til 1984, en hæst í 32 stig, á árunum 2003 til 2012 - árin 2009 til 2012 skera sig sérstaklega úr fyrir gæði. Eins og áður sagði er meðaltal síðustu tíu ára 26 stig, alveg „á pari“ við bestu tíu ára skeið í kringum 1930 og á sjötta áratugnum. - Hvað síðan verður næstu árin vitum við auðvitað ekki, en 2015, 2016, 2017 og 2019 voru öll í flokki öndvegissumra í Reykjavík.

Ritstjórinn reiknar einnig einkunn á kvarðanum 1 til 10, sumarið nú fær 6,0 í einkunn á þeim kvarða - það er ekki falleinkunn. Hæsta einkunn fær sumarið 2009, 9,31, en lægst er sumarið 1983 (auðvitað) með 0,9 í einkunn.

Þess má geta að maí fékk 10 (af 16 mögulegum) í einkunn í Reykjavík.

w-blogg020921b 

Sumarið var afburðagott fyrir norðan - náði 43 stigum og hefur aldrei náð jafnhátt. Júlí og Ágúst fengu fullt hús stiga (16 hvor mánuður), en júní 11. Það hefur ekki gerst áður að tveir mánuðir sama sumars hafi náð fullu húsi.

Heildaútlit línurits fyrir Akureyri er nokkuð annað en fyrir Reykjavík. Lægsta tíu ára meðaltalið er þannig 19 (1966 til 1975) og það hæsta 29 (2000 til 2009) - munar 10 stigum, en 17 í Reykjavík. Ritstjóri hungurdiska túlkar það svo að meiri þráviðri séu syðra heldur en nyrðra - mánuðirnir „sjálfstæðari“ á Akureyri heldur en í Reykjavík. Þannig eru það 6 sumur í Reykjavík sem ekki ná 10 stigum, en aðeins 1 á Akureyri (1985). Ellefu sumur ná 35 stigum eða meira í Reykjavík - en ekki nema sex á Akureyri. Þetta bendir til þess að mánuðir í Reykjavík „vinni“ fremur sem heild heldur en fyrir norðan. Ekki er þó á þessari hegðan byggjandi við langtímaveðurspár.

Það er nákvæmlega ekkert samband á milli sumareinkunnar nyrðra og syðra. Þó eru fleiri sumur góð á báðum stöðum (samtímis) heldur en vond á báðum. Frábærlega góð á báðum stöðum voru 1931, 1939, 1957, 2004, 2007, 2008 og 2012, en 1959, 1969 og 1992 voru slök á báðum stöðum - 1983 var ekki sérlega gott á Akureyri heldur - á mörkum hins laka.

Ritstjóri hungurdiska hefur gert tilraunir með aðrar reikniaðferðir. Efnislega verður útkoman nánast sú sama - innbyrðis röð sumra breytist þó auðvitað lítillega. Til dæmis má reyna að bæta vindhraða við. Gallinn er hins vegar sá að vindmæliröð Reykjavíkur er mjög ósamfelld. Mjög mikil breyting varð við mæliskipti í maí árið 2000. En hægt er að nota mælingar síðan þá og gera samanburð á þeim 20 sumrum sem liðin eru síðan.

Munum að lokum að þetta er bara ábyrgðarlaus leikur - ekki má nota þessar niðurstöður í neinni alvöru.


Sérlega hlýr ágústmánuður

Nýliðinn ágústmánuður var (rétt eins og júlí) sérlega hlýr á landinu. Methlýindi voru um allt norðanvert landið, hafa aldrei verið meiri í ágúst á fjölmörgum veðurstöðvum og á nokkrum stöðvum var mánuðurinn hlýrri en nokkur annar mánuður hefur verið til þessa, t.d. bæði í Stykkishólmi og í Grímsey, en athuganir hafa verið gerðar á þeim stöðum frá því á 19.öld. Þetta er líka hlýjasti mánuður sem við vitum um á Hveravöllum. Í Reykjavík er þetta næsthlýjasti ágústmánuður allra tíma - lítillega hlýrra var 2003. Á Teigarhorni var hann næsthlýjastur, ásamt ágúst 1947, lítillega hlýrra var þar í ágúst 2003 rétt eins og í Reykjavík. Heldur svalara að tiltölu var syðst á landinu. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum var hitinn í 6.hlýjasta sæti ágústmánaðar. Við bíðum endanlegrar staðfestingar á tölum í yfirliti Veðurstofunnar sem ætti að vera tilbúið á morgun (fimmtudag) eða á föstudag. 

w-blogg010921i

Taflan sýnir eins konar uppgjör fyrir einstök spásvæði. Víðast hvar er mánuðurinn sá hlýjasti á öldinni. Það er aðeins á Suðausturlandi, Suðurlandi og við Faxaflóa þar sem hitinn er ekki í fyrsta sætinu.

Meðalhiti í byggðum landsins í heild reiknast 12,2 stig. Það jafnar fyrra met, úr ágúst 2003 og meira en hæst hefur orðið í öllum öðrum mánuðum ársins.

Ágústmeðalhámarkshiti veðurstöðvar varð nú hærri en áður, 19,0 stig, það var í Ásbyrgi. Hæsta eldri tala sem við hiklaust viðurkennum er 18,4 stig (Staðarhóll í ágúst 2004). Lágmarksmeðalhitamet var slegið - ekki aðeins fyrir ágúst heldur fyrir alla mánuði.  Hann mældist nú hærri en nokkru sinni. Það gerðist á Bíldudal, 11,6 stig. Eldri met (fyrir hvaða mánuð sem er) er 11,0 stig (Garðar í Staðarsveit, júlí 1991, Surtsey, júlí 2012 og Arnarstapi á Snæfellsnesi, júlí 1943 (vafasamt)). Hæsti meðallágmarkshiti í ágúst til þessa var 10,9 stig, í Vestmannaeyjakaupstað 2003.

Það er líka óvenjulegt að hiti komst upp fyrir 20 stig 20 daga í mánuðinum. Er það með mesta móti, mest er vitað um 23 slíka daga í einum mánuði (ágúst 2003) síðustu 70 árin rúm.

Uppgjör Veðurstofunnar með endanlegum hita-, úrkomu- og sólskinsstundatölum mun eins og áður sagði væntanlega birtast fljótlega. Úrkoma var lítil víða norðaustan- og austanlands, sumstaðar minni en í ágúst í fáeina áratugi. Úrkoma var einnig neðan meðallags víða á Suður- og Vesturlandi, en á því voru samt nokkrar undantekningar, sérstaklega á utanverðu Snæfellsnesi og á stöku stað austanfjalls.

Suðvestanlands var sólarlítið, sólskinsstundir hafa ekki verið jafnfáar í Reykjavík í ágúst síðan árið 1995, en mjög sólríkt inn til landsins norðaustanlands. Mögulegt er að sólskinsstundamet ágústmánaðar verði slegið á Akureyri - eða alla vega nærri því - við Mývatn mældust sólskinsstundir nú ámóta margar og í ágúst 2004. Endanlegar tölur ættu að liggja fyrir næstu daga.


Sumardagafjöldi 2021

Ritstjóri hungurdiska skilgreinir sumardaga og telur þá. Lesa má um skilgreininguna í eldri pistlum. Í Reykjavík hafa langflestir sumardagar ársins skilað sér í lok ágúst - meðaltalið er aðeins tveir til þrír dagar í september (hafa þó orðið ellefu þegar mest var).

w-blogg310821c 

Í ár eru sumardagar í Reykjavík til þessa orðnir 24 (4 fleiri heldur en langtímameðaltal 70 ára segir), en 9 dögum færri en að meðallagi á þessari öld. Þrjú sumur á öldinni hafa skilað færri sumardögum heldur en þetta, 2001, 2013, 2018 og 2020. Komi sumardagar í september fer fjöldinn nú einnig yfir 2005 og jafnvel 2015 líka. Langflestir urðu sumardagarnir í Reykjavík 2010, 2011 og 2012. Þó sumardagar ársins í ár (hingað til) séu fáir miðað við það sem algengast hefur verið að undanförnu (2019 voru þeir t.d. 43) eru þeir samt fleiri en var nokkru sinni öll árin frá 1961 til og með 1986. Kannski megum við því vel við una, þó rúma viku vanti upp á þann fjölda sem við höfum „vanist“ á þessari öld. Í Reykjavík voru aðeins tveir sumardagar í júní, 10 í júlí og 12 í ágúst.

w-blogg310821d 

Á Akureyri eru sumardagarnir nú orðnir 70 - 22 fleiri en meðaltal þessarar aldar - og hafa aldrei verið fleiri þann tíma sem talningin nær yfir. Að auki bætast að jafnaði um fjórir í september (en þar er auðvitað ekki á vísan að róa). Aldeilis einstakt sumar á Akureyri. Þar voru 5 sumardagar í maí, 12 í júní, 23 í júlí og 30 í ágúst (allir dagar mánaðarins nema einn).

Eftir nokkra daga lítum við svo á sumareinkunn hungurdiska (enn er beðið eftir lokatölum ágústmánaðar). Talsvert samhengi er á milli mælitalnanna tveggja þannig að líklegt er að einkunnin í Reykjavík verði lægri en hún hefur oftast verið á öldinni - en við sjáum til.


Atlaga að loftþrýstimeti ágústmánaðar

Þegar þetta er skrifað er þrýstingur á Önundarhorni undir Eyjafjöllum kominn í 1036,3 hPa. Þetta er meira en „opinbert“ eldra met ágústmánaðar, sett í Grímsey 13.ágúst 1964 (1034,8 hPa) og vel yfir því sem hæst hefur áður mælst á þessari öld (1032,2 hPa á Gufuskálum 25.ágúst 2003).

Eitt hærra gildi er til í gögnum Veðurstofunnar, 1036,7 hPa sem mældust í Stykkishólmi þann 28.ágúst árið 1869 - fullleiðrétt til frostmarks, sjávarmáls og breiddarstigs. Við vitum þó ekki mikið um þessa loftvog eða hversu rétt stillt hún var við framleiðslu. Það styður þó þetta met að sama dag mældi Sr. Björn Halldórsson í Laufási við Eyjafjörð 1037,6 hPa á loftvog sína, bæði að morgni og kveldi. Í þeim tölum eru þó engar leiðréttingar - og talan nær örugglega nokkuð of há. - En þetta er þó hæsta tala sem Björn festi á blað í ágústmánuði á löngum mæliferli sínum (1854 til 1882). 

Ágúst 1964 er mjög eftirminnilegur. Veðráttan segir um tíðarfarið:

„Tíðarfarið var sæmilega hagstætt fyrrihlutann, en síðar mjög kalt og óhagstætt. Fjallvegir urðu þungfærir og jafnvel ófærir með köflum norðanlands, og fé fennti á stöku stað. Sunnanlands féll kartöflugras í frostum og hvassviðri. Góður þurrkur var um sunnanvert landið, og náðist hey inn, en nýting var víða slæm“.

Hiti fór yfir 20 stig fimm daga mánaðarins, en á móti kom að næturfrost var einhvers staðar í byggð 15 daga. Snjódýpt mældist 7 cm á Hólum í Hjaltadal að morgni þess 21. og daginn eftir lokaði snjóflóð veginum um Siglufjarðarskarð. Þann 20. varð allmikill jarðskjálfti á Suðurlandi - sem lítið er um talað. Þó urðu talsverðar skemmdir, húsveggir hrundu, innveggir hrundu í húsum í byggingum, hitakerfi eyðilögðust og jörð sprakk. 

Ritstjóri hungurdiska minnist veðurlags háþrýstidagana vel - eins og það var í Borgarnesi. Það hefði átt að vera sæmilega hlýt - og hefði átt að vera sólskin. Sólin sýndi sig að vísu í gegnum ískaldar þokuslæður sem lögðust inn af Faxaflóa. Hiti komst þessa daga í tæp 19 stig í Síðumúla og kannski hefur verið enn hlýrra fram í Hvítársíðukrók og á Húsafelli - en þar var ekki mælt. Rúmri viku síðar (21.) var sólarhringsmeðalhiti á landinu ekki nema 4,6 stig. 

w-blogg310821a

Hér má sjá kort japönsku endurgreiningarinnar 13.ágúst 1964. Allt virðist í lukkunnar velstandi. Mikið og hlýtt háþrýstisvæði í háloftum yfir landinu - og þykktin vel yfir 5500 metrum (rétt að geta þess að ameríska endurgreiningin sýnir minni þykkt þennan dag). 

Við norðurjaðar kortsins er mjög snarpur kuldapollur. Hann átti aldeilis eftir að valda leiðindum. Þokaðist suður og réðist að landinu aðfaranótt þess 15. og yfirgaf okkur ekki fyrr en á höfuðdaginn (29.ágúst).

w-blogg310821-timinn1964-08-22

Fyrirsögn úr dagblaðinu Tímanum laugardaginn 22.ágúst 1964.

Mikill kuldi fylgdi háþrýstingnum undir lok ágúst 1869, meðalhiti þá daga í kringum 5 stig í Stykkishólmi. Stórrigning var næstu daga á undan fyrir norðan, en mikil hríð á fjöllum (sjá ítarlega umfjöllun hungurdiska um árið 1869).

Annað er uppi á teningnum nú - til allrar hamingju. 


Af höfuðdegi

Í dag er „höfuðdagur“ - tengdur sögunni af lífláti Jóhannesar skírara. Þessi dagur hefur löngum verið tengdur veðrabrigðum - halla tekur að hausti. Dagurinn hefur ætíð tengst þeim hluta kirkjuársins sem fylgir almanaksdögum, eins og flestir dýrlingadagar og jólin. Höfuðdagurinn er 29.ágúst ár hvert, rétt eins og jólin eru 25.desember. Í kirkjuárinu eru líka það sem er oft kallað „hræranlegar hátíðir“ - allar meira og minna tengdar páskum. Leifar úr gömlu tungltímatali gyðinga og þar með vorkomu á Gyðingalandi. 

Hin ýmsu kirkjuþing fjórðu aldar reyndu að búa til eins konar samræmt kirkjutímatal - fella páskatímatalið á reglubundinn hátt að hinu rómverska tali sem langoftast er kennt við Júlíus Cæsar - júlíanska tímatalið. 

Smám saman kom í ljós að árið var örlítið of langt í júlíanska talinu, munaði tæpum þremur dögum á því og „réttu sólarári“ á hverjum 400 árum. Þetta þýddi að bæði sólstöður og jafndægur fluttust smám saman til - urðu fyrr og fyrr á dagatalinu. Þannig séð skipti það ekki svo stóru máli fyrir flesta hluti - hver kynslóð fyrir sig varð ekkert vör við þetta misræmi - jól voru eftir sem áður alltaf 25.desember. Hins vegar fóru páskar á flot - vegna þess að þeir eru tengdir fullu tungli nærri jafndægrum. Reiknimeistarar kirkjunnar sáu að um síðir myndi stefna í óefni, þeir hugsuðu nefnilega langt fram í tímann. Að því myndi koma að níuviknafasta fyrir páska færi að rekast á jólahaldið - var orðið furðustutt í það á 16.öld - og að því kæmi. Og á endanum (eftir þúsundir ára að vísu) rækjust páskarnir á jólin. 

Þessi hugsun var nægilega óþægileg til þess að ljóst var að eitthvað yrði að gera. Margt kom til greina. Það hefði einfaldlega verið hægt að festa páskana í ákveðinna daga fjarlægð frá jólum - en dálítið subbuleg lausn ein og sér - almanaksárið væri enn of langt miðað við sólarárið. Það hefði líka verið hægt að láta þá „villu“ sem safnast hafði fyrir halda sér - en sjá til þess að árið yrði af réttri lengd eftir það - og gera ekki meir. 

Ritstjóri hungurdiska þekkir hinn trúarlega þátt umræðunnar lítið sem ekki neitt - en honum er þó ljóst að það var mikilvægt að ekki væri unnt að efa réttmæti dagsetningar páskanna. Þar var ákveðin samkeppni við gyðinga, rétt skyldi vera rétt - var augljóslega orðið vitlaust þegar komið var fram á 16.öld. Það var hins vegar kannski bara ágætt að jólin var að reka frá sólstöðunum (og sólstöðuhátíðum heiðingja). 

Fyrst ákveðið var að flytja páskana á „réttan stað“ gagnvart sólargangi (og þar með vori) þurfti að ákveða hvernig það skyldi gert. Einfaldast þótti að sleppa þeim 10 aukadögum sem júlíanska tímatalið hafði í ófullkomleika sínum bætt við árið frá því kirkjuþingin voru haldin á fjórðu öld. 

Í kaþólskum löndum var þetta gert haustið 1582, en misvel gekk að leiðrétta annars staðar, hér á landi ekki fyrr en haustið 1700. Þá hafði 11 dagurinn bæst við villuna. Leiðrétta tímatalið er kennt við Gregoríanus páfa, en oftar er hér á landi talað um „nýja“ og „gamla stíl“ þegar fjallað er um breytinguna.

En hvað hefur þetta allt með höfuðdaginn og veðurspávísi þá sem honum tengist að gera?

Jú, í gamla stíl var höfuðdagurinn eins og nú 29.ágúst. Haustjafndægur voru hins vegar  12.september. Í íslensku almanaki sem gefið ver út á Hólum í Hjaltadal 1671 segir: „Þann 12. september gengur sól í metaskálar (vogarmerkið), þá er dagur og nótt aftur jöfn, frá uppgöngu sólar að reikna til niðurgöngu“.

Höfuðdagur var þannig 14 dögum fyrir jafndægur árið 1672 - í nýja stíl eru jafndægur að hausti hins vegar 22.september. Höfuðdagurinn er því 24 dögum fyrir jafndægur nú á dögum. Allir sem fylgjast með veðri vita að sé einhver tímatalsregla á því á annað borð tengist hún fremur gangi himintungla (sólar) heldur en heilagramannadögum. Þetta olli því að veðurreglur tengdar messudögum urðu allar á svipstundu fremur ótrúverðugar. Margir héldu þó enn í og töluðu um „gamla höfuðdaginn“ - 14 (eða 13) dögum fyrir jafndægur - sem þann sem taka skyldi mark á, 8. eða 9. september í nýja stíl. 

Fleiri messudagareglur komust við þetta í uppnám - við rekjum það ekki hér og nú (kannski síðar?).

En tökum annað dæmi. Árið 1672 bar fyrsta vetrardag upp á 12.október - hann var þá 30 dögum á eftir jafndægrum - og að meðaltali var hann í gamla stíl jafnlangt á eftir jafndægrum og er nú á dögum - um mánuði. Íslenska misseratímatalið var nákvæmara heldur en það júlíanska, en var hins vegar ekki tekið upp fyrr en í kringum árið 1000. Ekkert þurfti því að hringla með veðurreglur gagnvart því. Gallinn er hins vegar sá að flest gömul veðurspeki er innflutt, tengd annað hvort kirkjuárinu eða gangi himintungla - samin suður í Evrópu. Hér er hvorki vit né rúm til að rekja þau mál - þó ritstjóri hungurdiska gæti malað sitthvað - án ábyrgðar (hann er ekki menntaður í forn- eða miðaldaspeki). 

Eftir að nýi stíll var tekinn upp var hægt að leita á náðir misseristímatalsins og velja fimmtudag í 21.viku sumars þann dag sem mark skyldi taka á - þá hófust réttir. 

Útgefandi Hólaalmanaksins 1671 getur ekki veðurreglu tengda höfuðeginum, en nefnir aðra - sem reyndar er enn á floti á okkar dögum - eða var það alla vega þegar ritstjóri hungurdiska var ungur maður. Þar segur um Egedíusarmessu 1.september:

„Þurrt veður á Egedísusarmessu halda sumir merki þurrt haust“. 

Ritstjóri almanaksins tekur ekki afstöðu til reglunnar - segir aðeins að sumir haldi. Við gætum tekið eftir því í ár hvort reglan gengur eftir - svo gætum við líka litið til „gömlu Egedíusarmessu“ sem er (miðað við jafndægur) þann 11.september í ár (eða þann 12. ef það hentar betur). 

Þessi breyting - að sleppa 11 dögum úr árinu - hefur verið mörgum meiriháttar höfuðverkur. Nú á dögum væri þetta einfaldlega ekki hægt - ímyndum okkur öll tölvuvandræðin sem myndu af þessu skapast. 

En hvað með höfuðdaginn í ár, 2021? 

w-blogg290821a

Hér má sjá stöðuna á Egedíusarmessu (miðvikudag 1.september) úr ranni evrópureiknimiðstöðvarinnar. Jafnhæðarlínur eru heildregnar af þeim má ráða vindátt og styrk. Litir sýna þykktina, en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Eitt helsta átakasvæði norðurhvelsins er við Ísland. Óvenjuöflug hæð vestan Skotlands dælir til okkar mjög hlýju lofti úr suðri. Þykktin er mikil, þó ekki alveg jafnmikil og í mestu hlýindunum í síðustu viku. Reiknilíkön eru helst á því að hæðin gefi heldur eftir í lok vikunnar, afl hennar minnki og að hún hörfi heldur austur á bóginn. Ekkert er þó enn gefið í þeim efnum.

Ógurlegur kuldapollur er yfir Norðuríshafi - og haustsvipur á honum. Hann er búinn að vera þarna um nokkra hríð - sækir heldur í sig veðrið með lækkandi sól. Langtímaspám gengur ekki mjög vel að ráða í framtíð hans - þær sjá þó að hann mun færa sig nær Kanada næstu daga - en hvort eða hvernig hann kemur hér við sögu er enn óljóst - fer af því fjölmörgum sögum sem við getum ekki verið að rekja hér. En vel má vera að þessi kuldapollur nái að gangsetja haustið hér á landi. 

Til gamans (fyrir þrekmikla) er hér meira um tímatalsbreytinguna:

Tímatalsbreytingin gekk hratt fyrir sig hér á landi - tilkynning konungs er dagsett 10.apríl og skyldi lesin upp á Alþingi um sumarið: „Forordning om Almanakkens Forandring til Brugelighed paa Island og Færöe“. Ritstjóri hungurdiska hefur ekki aðgang að prentaða frumritinu, en tilkynningin er prentuð í „Lovsamling for Island“, 1.bindi, s.550 til 552. En dagatal nóvembermánaðar fylgdi. Þar má sjá Marteinsmessu 11.nóvember, fullt tungl þann 15., laugardag 16. og síðan er næsti dagur sunnudagur 28.nóvember, 1.sunnudagur aðventu. [Enginn svartur föstudagur þetta árið] - og jól bar brátt að.

Alþingi brást við og gaf út sérstaka tilkynningu um hvernig skyldi farið með íslenska misseristalið (sama heimild, s.553-554). - Hún hefst svona - orðalag í svokölluðum kansellístíl sem ritstjóri hungurdiska hefur stundum verið sakaður um að nota (en er því miður ófær um):

„Hans Kóngl. Maj[st] allranáðugustu befalníng, sem hér fyrskrifuð er, með stærstu undirgefni að hlýða og eptir lifa, var af lögmönnum með ráði forstandugra manna innan og utan vebanda svo skikkað og fyrir sett (eptir því sem þeim skiljanlegt er) um eptirkomandi ára timatal þess nýja stíls, sem næst kynni gánga tímatali fyrirfarandi ára eptir þeim gamla stíl, sem ei er svo allt glöggt í dönsku almanaki að finna, en þarf þó, eptir nauðsynlegu landsins og búskaparins háttalagi að aðgætast, svo enginn misskilningur og tvídrægni útaf hljótist meðal innbyggjaranna:“

Síðan koma fyrirmæli: i) um vetrar komu [og miðsvetrar þorrakomu, sumar komu og fardaga tíð], ii) um vertíðar hald, iii) vinnuhjúa skildaga, iv) auxaráralþing, v) hey-annir.

Að lokum segir:

„Hverir helzt sem vera kunna hér i landi, andlegrar stéttar eður veraldlegrar, sem lærðir eru uppá rímtal, eru vinsamlega umbeðnir (eptir sínu viti) íslenzkt rím uppsetja eptir þeim nýja stíl, undir approbationem eður staðfestu eðla og velæruverðugra herra biskupanna þessa lands, svo því síður misskilningur eður sérvizka kunni meðal þess fáfróða almúga af hljótast, heldur sérhver láti sig af sér hyggnari manni góðmannlega sannfæra, svo því síður nokkur verði fundinn í því, sig mót Hans Kóngl. Maj[st] allranáðugustu befalningum óhæfilega að forgrípa“.

Allt til þess að gera mjög einfalt - en samt ótrúlega ruglandi. Fyrir breytinguna voru jólin komin 14 dögum aftur fyrir sólstöður - í stað þeirra 3 sem „rétt“ var talið (eins og var á tíma Níkeuþingsins árið 325). Til leiðréttingar þurfti að sleppa 11 dögum úr árinu - nóvember varð fyrir valinu.

 

En hér á landi gekk tímatalsbreytingin þó mun betur heldur en bæði í Englandi og Svíþjóð. Svíar lentu í óttalegri martröð - í þeirra dagatali er m.a. 30.febrúar 1712 en í Englandi þurfti að flytja áramótin líka - þau voru áður á jafndægrum eða sýndarjafndægrum (ég veit ekki hvort). Páskadagsetningar milli 1582 fram að nýja stíl eru líka hálfgerð martröð - misjafnar eftir löndum. 


Enn af hlýindum - en mest vangaveltur

Ágústmánuður er ekki liðinn þannig að tölulegt uppgjör hans (og alþjóðasumarsins) liggur auðvitað ekki fyrir. Nú þegar er þó ljóst að hann verður einn þeirra hlýjustu hér á landi. Þegar þetta er skrifað (að kvöldi þess 26.) stendur landsmeðalhiti í byggð í 12,1 stigi - lækkar trúlega eitthvað næstu daga, en gæti hæglega lent í einu af fimm hlýjustu sætunum. Í Reykjavík er meðalhiti til þessa í mánuðinum 12,8 stig. Hefur aðeins þrisvar verið hærri og kólni ekki því meira síðustu dagana gæti mánuðurinn endað enn ofar á listanum. Í Stykkishólmi hefur aldrei verið hlýrra þessa sömu ágústdaga og nú - og góður möguleiki á meti. Sama má segja um Akureyri, meðalhiti þar stendur nú í 13,8 stigum - þar er keppt við 13,2 stig í ágúst 1947 (allur mánuðurinn, eftir 25 daga stóð 1947 í 13,3 stigum). Ágústmet er því nærri því í hendi. Met er heldur ólíklegra á Egilsstöðum - en ekki alveg útilokað samt, verði síðustu 5 dagar mánaðarins mjög hlýir. 

Þá er það alþjóðasumarið. Akureyri og nágrenni virðist í fljótu bragði standa best að vígi varðandi met. Mánuðirnir þrír, júní til ágúst voru hlýjastir þar árið 1933 - meðalhiti þá 12,2 stig. Meðalhiti til þessa er nú nærri 12,7 stigum - en met eru ekki met fyrr en þau eru komin í hús. Júní var svalur sunnan heiða og þó ágúst hafi verið óvenjuhlýr nægir það ekki til að búa til methlýindi fyrir mánuðina þrjá. Ljóst er þó að þetta telst hlýtt sumar það sem af er - líklega um 11 stig, meðal 25 hlýjustu (af 150) í Reykjavík. 

Hungurdiskar munu vonandi reikna út sumarvísitölu Reykjavíkur og Akureyrar - og telja „sumardaga“ fyrir lok næstu viku. 

Eins og fram kom á þessum vettvangi í fyrri pistli var lágmarkshiti (sólarhringsins) víða í hæstu hæðum. Hæstur var hann á Brúsastöðum í Vatnsdal, 17,1 stig - og 17,0 stig á Nautabúi í Skagafirði. Þetta nær þó ekki Íslandsmeti - um það má lesa í fornum hungurdiskapistli.

Í gær (þ. 25.ágúst) fór hiti á Grímsstöðum á fjöllum upp í 27,4 stig (en 27,2) á sjálfvirku stöðinni. Í júlíhitabylgjunni 1991 fór hiti þar í 27,2 stig. Í júlíhitabylgjunni miklu 1911 mældist hámarkshiti þar 28,1 stig. Við trúum því (svona nokkurn veginn). Um þessa merku hitabylgju geta fróðleiksfúsir lesið í gömlum bloggpistli hungurdiska.

Í óvenjulegum ágústhlýindum verður veðurnördum alltaf hugsað til þess mánaðar 1880 - og umskiptana sem fylgdu í kjölfarið. Ágúst var síðast sérlega hlýr árið 2012 - þá kólnaði reyndar verulega upp úr þeim 20. Hretin í september og síðar um haustið voru eftirminnileg. Eftir hinn ofurhlýja ágúst 2003 héldu hlýindi áfram eins og ekkert hefði í skorist - og svipað var 2004. Hvað gerist nú? 


Merkir veðurdagar

Ritstjóri hungurdiska lætur á hverri nóttu tölvu á Veðurstofunni fara í gegnum athuganir dagsins og tilkynna um merka - og ómerka veðurviðburði næstliðins sólarhrings sem og reikna meðalhita, úrkomusummur og margt fleira. Úr verður heljarlangur listi - svo langur að ekki nema allra mestu áhugamenn um veður komast í gegnum hann - og varla einu sinni þeir. Lítill tilgangur er því í að auglýsa hann meðal almennings. Að auki er rekstur tölvunnar ekki tryggður til langframa - því um einkaframtak ritstjórans er að ræða. 

Við skulum nú renna yfir nokkur merk atriði sem fram koma á lista dagsins (hinu daglega ritstjórnarbrauði) - þess sem framleiddur var síðastliðna nótt.

Meðalhiti mánaðarins í Reykjavík til þessa er 12,8 stig, en 13,4 á Akureyri. Hæsti hiti á landinu í gær var 29,4 stig - á Hallormsstað, hæsti hiti á hálendinu mældist 24,7 stig á Eyjabökkum. Lægsti hiti á landinu mældist í Jökulheimum 8,8 stig og 8,9 í Seley. Sólarhringslágmarkshiti landsins hefur aldrei verið jafn hár frá upphafi sjálfvirkra mælinga fyrir rúmum 20 árum. Meðan mannaða stöðvakerfið var fullþétt varð landslágmarkshiti heldur aldrei svona hár - en höfum þó í huga að sólarhringurinn er þar frá 18-18, en 0-24 í sjálfvirka kerfinu (ætti samt litlu að skipta í þessu tilviki).

Landsmeðalhiti í byggð í gær (24.ágúst) var 15,5 stig. Hann hefur einu sinni verð hærri á tíma sjálfvirku stöðvanna. Það var 11.ágúst árið 2004 (15,9 stig) og 30.júlí 2008 var hann 15,3 stig. Landsmeðalhámarkshiti í gær var 19,0 stig og hefur 7 sinnum verið jafnhár eða hærri á tíma sjálfvirku stöðvanna, hæstur 21,3 stig 11. ágúst 2004. Landsmeðallágmark (í byggð) reiknast í gær 13,0 stig. Þetta er nýtt met, þann 11.ágúst árið 2012 var meðaltalið 12,2 stig. - Við skulum hafa í huga að allar tölur gærdagsins eru til bráðabirgða - gætu breyst lítillega þegar allt hefur skilað sér. 

Við sjáum því að næturhitinn var ekki síður óvenjulegur á landinu heldur en dagshámarkið. 

Meir en hundrað dægurhámarksmet einstakra stöðva féllu í gær - allt of langt mál að tíunda það. 

Hið daglega brauð rifjar upp fyrir okkur að 25.ágúst 1974 lentu „ferðamenn í hrakningum í hríðarbyl á hálendinu og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði urðu illfær. Alhvítt varð á Grímsstöðum og 10 cm snjódýpt 26. Þá var 21 cm snjódýpt á Sandbúðum sama dag. Bíll fauk 40 m út af vegi á Varmadalsmelum í Mosfellssveit, tvö hjólhýsi fuku undir Ingólfsfjalli“. - Kannski verður staðan aftur þannig á næsta ári?

Við sjáum að sunnanstormur var um tíma í Ólafsvík í gær, 22,7 m/s. Hiti fór í 20 stig eða meira á 35 prósent veðurstöðva (á láglendi) - það er mikið, en langt í frá met.

Ágústhitamet féllu á fjölmörgum veðurstöðvum - nú og ágústhitamet landsins alls fauk - eins og þegar hefur verið fjallað um á þessum vettvangi. Hæsti hiti ársins til þessa mældist í Stykkishólmi, 19,5 stig. 

Listinn segir okkur líka frá úrkomumetum. Komu ritstjóranum nokkuð á óvart - kannski vegna þess hversu lítið rigndi á hans slóðum. Fimm ágústsólarhringsúrkomumet féllu á veðurstöðvum. Í Hjarðarlandi í Biskupstungum, á Hjarðarfelli, Bláfeldi , Brjánslæk og í Hænuvík. Mest var sólarhringsúrkoman á Bláfeldi, 134,2 mm og 107,2 mm á Hjarðarfelli. Sums staðar austanlands er úrkoma hins vegar minni en vitað er um áður í ágúst. 

Hiti það sem af er mánuði er víða óvenjuhár. Þetta er sem stendur hlýjasti ágústmánuður aldarinnar við Breiðafjörð og á Vestfjörðum - og í Stykkishólmi eru dagarnir 24 þeir hlýjustu frá upphafi mælinga fyrir 176 árum - auðvitað spurning hvert „úthaldið“ verður síðustu dagana.

Meðalhiti mánaðarins til þessa er hæstur á Akureyri (Lögreglustöðinni) 14,4 stig, á Bíldudal er hann nærri því eins hár, 14,3 stig.

Í gær vék hiti mest frá meðallagi við Upptyppinga, þar var hann 12,0 stigum ofan meðallags síðustu 10 ára. Ámóta vik, en litlu minni voru á Gagnheiði, Möðrudal, Reykjum í Fnjóskadal og á Brúsastöðum í Vatnsdal. 

Nokkuð stórgerðar hitasveiflur voru fáeinum stöðvum á Austfjörðum í gær. Mest 9,7 stig innan sömu klukkustundar á Kollaleiru í Reyðarfirði. Þar fór hiti snögglega úr 12,5 stigum upp í 22,2 milli kl.3 og 4 um nóttina. Hér takast á loft að ofan og sjávarloftið að utan.

Hiti komst í 20 stig í gær á fáeinum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu, 20,0 í Urriðaholti í Garðabæ, 21,7 á Skrauthólum, 21,8 í Tiðaskarði og 23,8 við Blikdalsá. Meðalhiti í Reykjavik var 15,6 stig, hlýjasti 24. ágúst sem við vitum um. Dagurinn var einnig langhlýjasti 24.ágúst á Akureyri - þó dægurhámarksmet hafi ekki verið sett þar.

Við látum þessa yfirferð duga. Dagurinn í dag (25.ágúst) býður líka upp á óvenjuleg hlýindi. Þegar þetta er skrifað er hiti kominn í 28,4 stig á Egilsstöðum. 


Nýtt ágústhitamet á landinu

Í dag mældist hiti á Hallormsstað 29,4 stig. Þetta er hæsti hiti sem mælst hefur í ágústmánuði á landinu. Fyrra met var sett á Egilsstaðaflugvelli 11.ágúst 2004, 29,2 stig. Mesti hiti sem við vitum um á Hallormsstað er 30°C sem mældust þar 17.júlí 1946 (um þá mælingu er fjallað í gömlum hungurdiskapistli).

Met voru þó ekki sett víða í dag - ágústmet á fáeinum stöðvum á hálendi í námunda við Hallormsstað, og nýtt árshitamet var sett á Brú á Jökuldal, 27,3 stig. Þar höfðu mest mælst 27,0 stig áður (í júlí 1991). 

Hafgola setti víða strik í reikninginn - og sló mjög á hitann einmitt þegar hann var á hraðri uppleið. Hún gæti þó gefið sig aftur og ekki alveg útséð um lokahámarkstölur á einstökum stöðvum. 

Þess má geta í framhjáhlaupi að dagurinn í dag (24.ágúst) er sá 52. á árinu þegar hámarkshiti nær einhvers staðar 20 stigum eða meira á landinu. Lítið var um slíka daga fyrir sólstöður í ár, fyrstu 20 stigin komu þó fyrr en nokkru sinni áður, eða 18.mars þegar hiti fór í 20,3 stig á Dalatanga. Síðan gerðist ekkert í tuttugustigamálum fyrr en 27.maí og svo aftur 5.júní. Frá og með 24.júní hafa hins vegar flestir dagar náð 20 stigum einhvers staðar á landinu og eins og áður sagði eru dagarnir nú orðnir 52 á árinu. Metfjöldi slíkra daga var árið 2010, þá urðu þeir 55 talsins, og 54 árið 2012. Góð von virðist um að árið í ár muni skila fleiri slíkum dögum en vitað er um áður.

Ritstjóri hungurdiska reiknar einnig hitabylgjuvísitölur eins konar. Ein þeirra er hlutfallstala tuttugustigahita á hverjum degi. Vantar nokkuð upp á met einstakra daga (ekki hefur verið mikið um tuttugustig suðvestanlands), en vísitölusumma sumarsins er komin langt upp fyrir það sem mest er vitað um áður - og enn mun bætast við næstu daga. 

Miklum hlýindum er spáð á morgun (miðvikudaginn 25.ágúst) - og víðar heldur en í dag. Það er hins vegar óvíst hvort hið nýja ágústmet fellur og við fáum að sjá enn hærri tölu. 

Svo þarf auðvitað að fylgjast með sólarhringsmeðalhita, meðalhámarks- og lágmarkshita og ýmsu öðru. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg130925-ak-a
  • w-blogg130925a
  • w-blogg130925b
  • Slide8
  • Slide7

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.9.): 138
  • Sl. sólarhring: 182
  • Sl. viku: 1754
  • Frá upphafi: 2498728

Annað

  • Innlit í dag: 125
  • Innlit sl. viku: 1602
  • Gestir í dag: 118
  • IP-tölur í dag: 116

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband