Merkir veđurdagar

Ritstjóri hungurdiska lćtur á hverri nóttu tölvu á Veđurstofunni fara í gegnum athuganir dagsins og tilkynna um merka - og ómerka veđurviđburđi nćstliđins sólarhrings sem og reikna međalhita, úrkomusummur og margt fleira. Úr verđur heljarlangur listi - svo langur ađ ekki nema allra mestu áhugamenn um veđur komast í gegnum hann - og varla einu sinni ţeir. Lítill tilgangur er ţví í ađ auglýsa hann međal almennings. Ađ auki er rekstur tölvunnar ekki tryggđur til langframa - ţví um einkaframtak ritstjórans er ađ rćđa. 

Viđ skulum nú renna yfir nokkur merk atriđi sem fram koma á lista dagsins (hinu daglega ritstjórnarbrauđi) - ţess sem framleiddur var síđastliđna nótt.

Međalhiti mánađarins í Reykjavík til ţessa er 12,8 stig, en 13,4 á Akureyri. Hćsti hiti á landinu í gćr var 29,4 stig - á Hallormsstađ, hćsti hiti á hálendinu mćldist 24,7 stig á Eyjabökkum. Lćgsti hiti á landinu mćldist í Jökulheimum 8,8 stig og 8,9 í Seley. Sólarhringslágmarkshiti landsins hefur aldrei veriđ jafn hár frá upphafi sjálfvirkra mćlinga fyrir rúmum 20 árum. Međan mannađa stöđvakerfiđ var fullţétt varđ landslágmarkshiti heldur aldrei svona hár - en höfum ţó í huga ađ sólarhringurinn er ţar frá 18-18, en 0-24 í sjálfvirka kerfinu (ćtti samt litlu ađ skipta í ţessu tilviki).

Landsmeđalhiti í byggđ í gćr (24.ágúst) var 15,5 stig. Hann hefur einu sinni verđ hćrri á tíma sjálfvirku stöđvanna. Ţađ var 11.ágúst áriđ 2004 (15,9 stig) og 30.júlí 2008 var hann 15,3 stig. Landsmeđalhámarkshiti í gćr var 19,0 stig og hefur 7 sinnum veriđ jafnhár eđa hćrri á tíma sjálfvirku stöđvanna, hćstur 21,3 stig 11. ágúst 2004. Landsmeđallágmark (í byggđ) reiknast í gćr 13,0 stig. Ţetta er nýtt met, ţann 11.ágúst áriđ 2012 var međaltaliđ 12,2 stig. - Viđ skulum hafa í huga ađ allar tölur gćrdagsins eru til bráđabirgđa - gćtu breyst lítillega ţegar allt hefur skilađ sér. 

Viđ sjáum ţví ađ nćturhitinn var ekki síđur óvenjulegur á landinu heldur en dagshámarkiđ. 

Meir en hundrađ dćgurhámarksmet einstakra stöđva féllu í gćr - allt of langt mál ađ tíunda ţađ. 

Hiđ daglega brauđ rifjar upp fyrir okkur ađ 25.ágúst 1974 lentu „ferđamenn í hrakningum í hríđarbyl á hálendinu og Möđrudalsörćfi og Vopnafjarđarheiđi urđu illfćr. Alhvítt varđ á Grímsstöđum og 10 cm snjódýpt 26. Ţá var 21 cm snjódýpt á Sandbúđum sama dag. Bíll fauk 40 m út af vegi á Varmadalsmelum í Mosfellssveit, tvö hjólhýsi fuku undir Ingólfsfjalli“. - Kannski verđur stađan aftur ţannig á nćsta ári?

Viđ sjáum ađ sunnanstormur var um tíma í Ólafsvík í gćr, 22,7 m/s. Hiti fór í 20 stig eđa meira á 35 prósent veđurstöđva (á láglendi) - ţađ er mikiđ, en langt í frá met.

Ágústhitamet féllu á fjölmörgum veđurstöđvum - nú og ágústhitamet landsins alls fauk - eins og ţegar hefur veriđ fjallađ um á ţessum vettvangi. Hćsti hiti ársins til ţessa mćldist í Stykkishólmi, 19,5 stig. 

Listinn segir okkur líka frá úrkomumetum. Komu ritstjóranum nokkuđ á óvart - kannski vegna ţess hversu lítiđ rigndi á hans slóđum. Fimm ágústsólarhringsúrkomumet féllu á veđurstöđvum. Í Hjarđarlandi í Biskupstungum, á Hjarđarfelli, Bláfeldi , Brjánslćk og í Hćnuvík. Mest var sólarhringsúrkoman á Bláfeldi, 134,2 mm og 107,2 mm á Hjarđarfelli. Sums stađar austanlands er úrkoma hins vegar minni en vitađ er um áđur í ágúst. 

Hiti ţađ sem af er mánuđi er víđa óvenjuhár. Ţetta er sem stendur hlýjasti ágústmánuđur aldarinnar viđ Breiđafjörđ og á Vestfjörđum - og í Stykkishólmi eru dagarnir 24 ţeir hlýjustu frá upphafi mćlinga fyrir 176 árum - auđvitađ spurning hvert „úthaldiđ“ verđur síđustu dagana.

Međalhiti mánađarins til ţessa er hćstur á Akureyri (Lögreglustöđinni) 14,4 stig, á Bíldudal er hann nćrri ţví eins hár, 14,3 stig.

Í gćr vék hiti mest frá međallagi viđ Upptyppinga, ţar var hann 12,0 stigum ofan međallags síđustu 10 ára. Ámóta vik, en litlu minni voru á Gagnheiđi, Möđrudal, Reykjum í Fnjóskadal og á Brúsastöđum í Vatnsdal. 

Nokkuđ stórgerđar hitasveiflur voru fáeinum stöđvum á Austfjörđum í gćr. Mest 9,7 stig innan sömu klukkustundar á Kollaleiru í Reyđarfirđi. Ţar fór hiti snögglega úr 12,5 stigum upp í 22,2 milli kl.3 og 4 um nóttina. Hér takast á loft ađ ofan og sjávarloftiđ ađ utan.

Hiti komst í 20 stig í gćr á fáeinum stöđvum á höfuđborgarsvćđinu, 20,0 í Urriđaholti í Garđabć, 21,7 á Skrauthólum, 21,8 í Tiđaskarđi og 23,8 viđ Blikdalsá. Međalhiti í Reykjavik var 15,6 stig, hlýjasti 24. ágúst sem viđ vitum um. Dagurinn var einnig langhlýjasti 24.ágúst á Akureyri - ţó dćgurhámarksmet hafi ekki veriđ sett ţar.

Viđ látum ţessa yfirferđ duga. Dagurinn í dag (25.ágúst) býđur líka upp á óvenjuleg hlýindi. Ţegar ţetta er skrifađ er hiti kominn í 28,4 stig á Egilsstöđum. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 222
  • Sl. sólarhring: 245
  • Sl. viku: 2047
  • Frá upphafi: 2350783

Annađ

  • Innlit í dag: 204
  • Innlit sl. viku: 1832
  • Gestir í dag: 198
  • IP-tölur í dag: 197

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband