Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2021

Af árinu 1803

Tíð var talsvert skárri en árið áður, en harðindi í maí settu strik í reikninginn og víða syðra var erfið heyskapartíð. Talsverður hafís var við land, en ekki nærri því eins og árið áður. Mælingar eru heldur rýrar. Sveinn Pálsson mældi þó stóran hluta ársins í Kotmúla í Fljótshlíð og undir lok árs í Reykjavík, en hann var um hríð settur landlæknir. Giskað er á að ársmeðalhiti í Reykjavík hafi verið 4,3 stig, en 3,2 stig í Stykkishólmi. Þessar tölur eru þó mjög óvissar. 

ar_1803t

Við sjáum af mælingum Sveins að ekki er kalt fyrr en kemur fram í miðjan febrúar, vorið virtist síðan ætla að fara eðlilega af stað, en talsvert bakslag kom með sumri og sárkalt var langt fram eftir maí. Hiti var viðunandi um hásumarið, en seint í ágúst kom verulegt kuldakast, óvenjulegt að því leyti að þá snjóaði í Fljótshlíðinni ef rétt er skilið. Síðasti hluti ársins fékk allgóða dóma. 

Hér að neðan eru helstu heimildir um tíðarfar og veður á árinu. Ítarlegust er frásögn Minnisverðra tíðinda, samantekt Brandstaðaannáls er einnig góð, lítið þetta ár hjá Espólin. Jón Jónsson á Möðrufelli og Sveinn Pálsson skráðu veður daglega auk þess að draga það saman viku- eða mánaðarlega. Mjög erfitt er hins vegar að lesa þessi handrit - og ekki víst að þau brot sem hér birtast séu rétt eftir höfð. Að vanda var talsvert um slys, menn drukknuðu og urðu úti, óljóst hvað tengist veðri. Lesa má um það í Annál 19.aldar. Þar má m.a. lesa alllanga frásögn um sjóskaða við Grímsey á einmánuði - en því miður er dagsetningar ekki getið. Þar segir frá lygnu veðri sem hafi litlu eftir miðjan dag snúist í dimmviðrishríðarbyl af norðri með ofsaveðri svo hús hristust við. Níu konur urðu ekkjur. Segir einnig af öðru skipi sem í veðrinu lenti, en komst af við illan leik. Annállinn segir að 17 menn hafi orðið úti á árinu. 

Minnisverð tíðindi segja frá [1804 2.hefti bls. 224-232]

Veturinn 1802 [til 1803] , byrjaði á Suðurlandi með stakri veðurgæsku, er líktist vorblíðu, og hélst það veður að kalla fram seint á þorra, enda skall þá veturinn á, með náttúrlegri hörku, snjó og frostum, er viðhélst framyfir sumarmál, eins og síðar greinir. Líkt þessu var árferðið i syðri hluta hluta Vestfirðingafjórðungs; þó gjörði í Dalasýslu, þann 30. nóvember [1802] mikið áhlaups kafald, en afleiðingar þess voru ekki mjög skaðvænar. Í Ísafjarðarsýslu var veturinn rétt góður, allt að góubyrjun, en þá skall á með kaföldum, hafísum og stormum, sem að segja héldust veturinn út. Í Strandasýslu gjörði óveðrakast mikið á jólaföstu, þá sumstaðar tók af alla jörð, er síðan ekki uppkom á þeim vetri. Annars var veðurátt rétt góð fram á þorra, en þaðan af mjög óstöðugt með stóráhlaupum framyfir sumarmál. Í Norðurlandi var veturinn víðast sæmilegur á þorra, þá hörkur ágnúðu og viðhéldust það eftir var vetrar. Í nyrðra hluta Austfjarða byrjaði vetur þessi með framhaldi haustharðindanna, er varaði til skömmu fyrir aðventu, þá góða hláku gjörði, var þá sauðfé komið á hvassa merg, en hestar horfallnir, þó ekki, að menn meintu, af eiginlegum vetrarhörkum, heldur af einskonar pestartaðri sýki, um hverja síðar mun getið verða. Í syðra parti Norður-Múlasýslu, einkum Fljótsdalshéraði, var fyrri hluti vetrar rétt góður, og kýr gengu hér sumstaðar úti alt til jólaföstu; þaðan af var veturinn óvenjulega góður víðast í sýslunni, allt að sumarmálum, nema í Hrafnkels- og Jökuldal upp til fjalla, hvar hann var einn harðasti í manna minnum. Í Suður-Múlasýslu var veturinn, í tilliti til veðráttufars, einn hinn æskilegasti.

Brandsstaðaannáll [vetur]:

Í janúar þíður og smáblotar, þess á milli gott og stillt frostveður; eftir miðþorra [um 5.febrúar] vestanátt mjög óstöðug og í síðustu viku [12. til 19.febrúar] norðanhríðar og fannlög. Kom þá fé á gjöf, en beit var nú notuð sem mest var mögulegt. Á góu var snöp lengst og hross lítið inntekin, en óstöðugt veður; ... Hafísinn kom á þorra og lá fram á sumar, ... (s45)

Geir Vídalín biskup lýsir vetrinum 1802 til 1803 í bréfi:

Lambastöðum 1. apríl 1803: Veturinn byrjaði hér strax með Mikaelsmessu [29.september 1802] með norðan- (s32) veðri, frosti og snjó, svo heiðar urðu ófærar, og mörgum, sem á ferð voru, lá við stórslysum. Margir átti þá enn hey úti, sem allt varð að litlum eða engum notum. Þetta veður varaði hér um mánuð, batnaði síðan ágæta vel hér sunnanlands, og sama góða veður viðvaraði til febrúarm. byrjun. Síðan hafa oftast verið umhleypingar, frost, kaföld og stundum jarðleysur. Norðanlands hefur fyrri partur vetrarins verið harðari, en sá seinni betri. ... Svo var stór grasbrestur á Ströndum í sumar eð var [1802], að tún urðu ekki ljáborin, og margir flúðu með gripi sína inn að Ísafjarðardjúpi og fengu þar leyfi til að slá fyrir þeim, það sem aðrir ekki vildu nota, svo þessi sveit sýndist framar öðrum stödd í dauðans kverkum. Þar skal annars í Hælavík, skammt frá Horni, vera enn nú einu sinni strandað skip frá Skagaströnd, hlaðið með kjöt, tólg og ull. Menn meina menn komist hafi lífs á land, en drukknað í forvaða einum, en þaðan er yfir að fara til mannabyggða. ... (s33)

Frú Gytha Thorlacius sýslumannsfrú á Eskifirði minnist á vetur og sumar:

(Úr „Fru Th.s Erindringer fra Iisland“) „Den følgende Vinter 1802—1803 var haard“. (s19) „Sommeren var god".(s23)

Í lauslegri þýðingu: „Veturinn 1802 til 1803 var harður. Sumarið (1803) var gott.

Brandsstaðaannáll [vor]:

... með einmánuði [byrjaði 22.mars] góður bati, svo frostalitið og gott til sumarmála. Þá skipti til landnyrðingsstorma með frostum miklum, er héldust allt vorið. 3. til 13. maí var mikil norðan- og suðaustanhríð. Seint í maí kom gróður. Var þá mjög þrotin taða að vonum og kýr magrar.

Minnisverð tíðindi halda áfram - og lýsa vori og síðan sumri og hausti:

Vorið 1803, var á Suðurlandi mjög kalt og stirt, hver veðrátta viðhélst langt fram á sumar, fylgdi henni grasvöxtur í minna lagi, sumstaðar mjög aumur. Töður nýttust nokkurnveginn víðast hvar, en útheyjanýtingin varð bágari; haustveðráttan var þó góð og blíð. Í Vestfirðingafjórðungi var líkt veðráttufar. Heyskapur, einkum í Mýra-, Snæfellsness-, Ísafjarðar- og Strandasýslum, mjög aumur, vegna grasbrests og bágrar nýtingar. Í Mýrasýslu var, af þeim langvinnu rigningum, sjaldgæft vatnsmegn samsafnað í hennar mörgu flóum og mýrum. Að álíðanda sumri varð veðráttan í Strandasýslu aftur mjög kafalda- og úrfellasöm, en frost fylgdi hverri fannkomu, og voru þar um haustið skornar ungar og hagbærar kýr vegna fóðurleysis. Í Norðurlandi var vor þetta mjög hart; þó voru skepnur víðast í nokkurnveginn holdum, en gróður vara bæði seinn og lítill, og fyrst í júlímánuði fyrir sauðfé nýkominn að kalla. Í Þingeyjarsýslu var sannkallað vetrarveður allt fram að trínitatishátíð [5.júní]. Í nyrðri hluta Vestfjarða sýndist náttúran að breyta eðli sínu í tilliti til veðráttufarsins á fyrrtéðu sumri. Að enduðum þeim, víðast þar, yfrið góða vetri, og sauðfé, er horað hafði verið undan haustinu, aftur var komið í sæmilegt stand, skall á með sumarmálum geysiharka, er kom sér því verr, sem menn þá voru orðnir heylausir fyrir pening sinn, og væntu síst þvílíkrar veðráttu um þær mundir. Þó tók út yfir hið stóra áfelli, sem gjörðist fyrir hvítasunnuhátíð [29.maí], er varaði rúmar 3 vikur, og gjörfelldi mestan þorra sauðpenings í mörgum sveitum, en einkum í Hjaltastaðarþinghá og Eiðasókn, í hverjum og hestar í mannsminni ekki höfðu þannig gjörfallið. Afleiðingar þessara harðinda létu sig strax í ljósi, nefnilega: mesta hungur og hallæri; keyptu þeir, er gátu kjöt og tólg, fyrir dýra dóma, úr kaupstöðum, er þeir þangað sjálfir fellt höfðu haustinu áður, fyrir miklu minna verð, en fluttu nú þangað með miklum kostnaði, í ófærð og snjóum, heim til sín aftur. Með messum batnaði veðuráttan, og varð hin hagstæðasta, er viðhélst til höfuðdags [29.ágúst]. Tún, sem um vorið kalið hafði til skaða, voru mjög graslítil; úthagi betri og nýting á heyjum sæmileg. Eftir höfuðdaginn versnaði veður, er gekk með snjóhretum, frostum og stormum allt til Mikaelsmessu [29.september]. Í Suður-Múlasýslu var sumarið framan af vindasamt og rosablandið, en seinni hluti þess og haustið hið blíðasta að veðráttufari. Grasbrestur var þó hér mikill, vegna undangengis gróðurlítils vors, en heynýting yfir höfuð hin besta. Veturinn 1803, byrjaði á Suðurlandi með blíðri veðurátt, og hélt þannig við til nýjárs 1804. Sama hagstæða veðurlag gekk einnig víðast í hinum landsins fjórðungum, og kvaddi þannig ár þetta, í því tilliti, land vort eins mildilega og hið næst undanfarna.

Brandsstaðaannáll [sumar]:

Á fráfærum, fært frá 10 vikur af sumri [23. til 29.júní], gróðurlaust á heiðum og fjöllum. Sláttur byrjaði í 15. viku sumars [28.júlí til 3.ágúst]. Voru þá vætur og óþurrkar, þar til í 18. viku [19. til 24.ágúst] og kom góður þerrir. Grasbrestur mikill varð á túni og engi. Í 19.-20. viku mikið snjóhret [25.ágúst til 7.september], er tók fyrir vinnu um vikutíma í meðallagi hálendum sveitum. Eftir það flóði jörð. Eftir það hélst úrfelli og þerrileysi fram yfir göngur. Síðan voru hey inn látin hrakin og illa þurr.

Brandsstaðaannáll [haust og vetur til áramóta]:

Haustið var vott og óstöðugt. Mikil norðanhríð á Mikaelsmessu og ofsa vestanveður á föstudag fyrstan í vetri [29.október], eftir það allgott utan íkast á hverjum föstudegi til jólaföstu. Var þá kominn snjór og frost, en allan desember stillt veður, auð jörð og frostalítið, svo ei þurfti að gefa lömbum. Eftir áður sögðum málnytuskorti og ýmislegum aðdráttahnekki, þá kalla mætti, að allar bjargir væri bannaðar.

Espólin er heldur stuttorður um tíðarfar ársins 1803:

Espólín: XCIV. Kap. Var þá vetur áhlaupasamur öndverður [1802], en rættist vel af. Var miður veturinn góður, en misjafn endrarnær. Þá dó margt fólk úr sótt, en sumt úr harðrétti. (s 125). XCVI. Kap. Það vor var hið kaldasta, og svo öndvert sumar, og voru hafísar við land. (s 126). Var þá þungt árferði, og lítill fiskifengur víða. (s 127). XCVII. Kap. Á því ári dóu ei allfáir úr harðrétti, og fleiri dóu en fæddust; skipatjón þeirra, er í förum voru, urðu í ýmsum stöðum. Allmargir menn drukknuðu, og fleiri urðu misfarir. (s 128). XCVIII. Kap. Þá gjörði vetur hinn besta [1803-1804]. (s 130).

Við reynum að draga saman nokkra punkta úr dagbókum Jóns Jónssonar á Möðrufelli í Eyjafirði og vonum að ekki sé mikið um mislestur:

Hann segir janúar allan gæðagóðan og stilltan. Febrúar hafi verið allsæmilegur nema ein vika, sú fyrsta (bókuð þann 5.) var stillt og aldrei var frosthart enda þó skafheiðríkt væri, jarðir nógar. Þann 12. segir Jón af sæmilegri viku, en nokkuð óstöðugri en áður. Þann 19. segir Jón af harðri viku, en sæmilegri þann 26. en frosthörð hafi hún verið síðast. Mars segir hann í meðallagi, nokkuð óstöðugar og frostaríkan síðast af hafískomu. Í apríl var fyrri partur dágóður en síðan sára bág tíð. Í maí samfelld bágindi og harðindi með sífelldum fannhríðum og norðan stormum, oft jarðlaust af snjó. Júní var sæmilegur og gróðri fór fram. Júlí segir hann gæðagóðan mestallan að veðráttu og grasvöxtur besti. Ágúst mikið hlýr og góður fyrri part en síðast kaldur mjög með áfelli. September allur mjög andkaldur og óþurrkasamur. Október mikið stilltur og góður. Nóvember teljist þar um pláss góður þó frost væru mikil um tíma, jörð alltaf dágóð. Desember stillur og góður að veðráttu og snjólaust allstaðar. Sama góðviðri fréttist að vestan og sunnan.

Vikuyfirlit Sveins Pálssonar eru illlæsileg eins og venjulega - en smávegis má lesa um veðurviðburði, merkastur frá okkar sjónarhóli er snjókoman í ágúst:

Nokkuð var um þrumuveður í Kotmúla, 4.janúar (með ljósagangi), 21.mars og 7.apríl Þann 14.mars segir Sveinn að gluggafluga sé fyrst séð. Seint í mars segir hann frá „fiskreki“ meðfram Eyjafjöllum öllum. Þverá ruddi sig nærri Kotmúla 12.apríl. Alhvít jörð 29.apríl. Ofsaflóð var í jökulvötnum þann 27.júní. Að kvöldi 24.ágúst snjóaði niður í byggð og um nóttina hvítnaði niður í Landeyjar, mikið snjóaði í fjöll. 

Brot úr tíðavísu Jóns Hjaltalín yfir árið 1803:

Veitti snjóa vítt á móa vetur liðinn
lítinn góa græddi friðinn
gaf óróa logna biðin.


Gróðurs kyrða kraft réð myrða kælinn andi
hafís nyrðra lá að landi,
læsti stirður eyjabandi.


Njótar meina nóg spratt ei þó nýttust töður
en úthey um engja stöður
í fór þvegið garð og hlöður.

Haust veðráttan hefur mátt þó heita blíða
kvikfé fátt sem lifir lýða
lurast smátt um jörðu víða.

Úr tíðavísum Þórarins í Múla 1803:

Árið leið fyrir utan neyð mjög stóra
þorra skeið ei þreytti hríð
þá gekk heiðrík frosta tíð.

Storma þrasi stýrði lasin góe
um nam flasa yggjar sprund
ör í fasi` og stygg í lund.

Einmánaðar ofsa-glaðir vindar
hétu skaða hauðri` og lá
harðlundaðir víða þá.

Vorið allt sár voða kalt með hretum
kosta hallt af kvikfénað
komst gjörvallt og lotum að.

Menn því kviðu mundu við ei standast
frost-hretviðrum frekum þó
fram að miðjum júlíó.

Sendi drottinn sumars gott hádegi
heitt og vott því hagsæld bar
hauðri` er sprottið lítt þá var.


Mæðu klemmdir menn við rembdust sláttinn
vætur stemmdu verkin því
víða skemmdust heyin ný.

September þó sýndist verr útleika
hretin þver og hryðju loft
hreyfðu sér til þrautar oft.

Úr Mikkaelismessu vel nam batna
frosta él og fjúka þrá
framar teljast ekki má.

Hret á ný í nóvembrí kom miðjum
allt frá því, á árs-lok fram
örn ei skýja bærði hramm.

Hefði tíð svo hæð og blíð ei fallið
fyrir kvíða máttu menn
missi víða stórum enn.

Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um árið 1803. Sigurði Þór Guðjónssyni er þakkað fyrir innslátt Brandstaðaannáls og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt Árbóka Espólíns (stafsetningu hnikað hér - mistök við þá aðgerð sem og allan annan innslátt eru ritstjóra hungurdiska). Örfáar tölur í viðhengi.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Ósamstæðar spár

Maður er nokkuð farinn að venjast því að spár þær sem evrópureiknimiðstöðin gefur út á fimmtudögum og segir til um veðurlag næstu viku (mánudags til sunnudags) vísi sæmilega á hita- og úrkomufar, jafnvel þó veður einstaka daga víki síðan frá því sem gert var ráð fyrir. Hér er verið að tala um svonefndan spáklasa, 51 spá sem eru eins að öðru leyti en því að upphafsskilyrðum er hnikað lítillega (ein er að vísu í hærri upplausn).

Þetta er spáin sem blasti við á fimmtudaginn var (8.apríl) og gilti fyrir alþjóðavikuna sem hófst í dag, mánudaginn 12.apríl. [Íslenskar vikur byrja sem kunnugt er á sunnudegi - en ekki mánudegi]. 

w-blogg120421a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, jafnþykktarlínur eru strikaðar (mjög daufar), en þykktarvik eru sýnd með lít. Spáð er ríkjandi norðvestanátt í háloftum og kulda hér á landi, en mjög miklum hlýindum yfir Labrador.

Reiknimiðstöðin endurskoðar löngu klasaspárnar á mánudögum - og sendir út fyrir næstu fjórar vikur. Þetta er spáin sem kom í dag - og gildir fyrir sama tímabil - þessa sömu viku, frá deginum í dag til næsta sunnudags.

w-blogg120421b

Hér er allt annað veðurlag - suðvestanátt í stað þeirrar norðvestlægu og þykktarvikin orðin jákvæð, vel jákvæð fyrir norðaustan lands þar sem kaldast átti að vera í spánni fyrir nokkrum dögum.

Nú verðum við auðvitað að benda á að vikan er rétt að byrja og hver endanleg útkoma verður vitum við ekki - en líklega er seinni spáin þó nær því sem verður heldur en hin fyrri. 

Þetta sýnir rétt einu sinni að spár eru bara spár - þó sannfærandi séu og dýrt kveðnar. - Gagnlegar engu að síður - munum það líka. 


Af árinu 1802

Almennt samkomulag virðist um að telja árið 1802 eitt hið versta sem um getur hér á landi. Við eigum þó engar hitamælingar veturinn 1801 til 1802. Svo sýnist samt sem frost hafi e.t.v. ekki verið meiri en oft áður og síðar, en tíð var mjög ill. Fannkomur, blotar,  áfreðar og illviðri. Vorið var mjög kalt og snjór alveg sérlega mikill lengi fram eftir. Sumarið var kalt, bleytur og ísaþokur ríktu nyrðra, en syðra var lengst af þurrt, bjart og mjög næðingasamt - oft með næturfrostum. Heyskapur gekk sérlega illa fyrir norðan. Séra Jón dagbókarhaldari Jónsson á Möðrufelli í Eyjafirði greinir skilmerkilega frá heyfeng nær allan sinn búskapartíma - og varð heyfengur aldrei jafn lakur hjá honum og þetta sumar. Við gefum þessari merku tímaröð meiri gaum síðar. Nóvember var eini mánuður ársins sem virðist hafa fengið sæmilega dóma.  

ar_1802t

Þó Sveinn Pálsson hafi setið með brotinn mæli allt fram í miðjan nóvember reynir hann samt að segja okkur eitthvað af hitafari. Við fáum að vita hvort frost hafi verið á athugunartíma eða ekki og hvort sumardagur hafi verið kaldur eða hlýr. Á myndinni er reynt að koma þessum upplýsingum hans til skila á myndrænan hátt. Við sjáum vel þá daga sem hann telur hafa verið kaldasta (merktir -2 eða meira á vísikvarðanum til vinstri. Annars fær dagur með frosti töluna -1 að vetrinum - en hláka fær +1. Að sumarlagi segir hann allmarga daga hlýja - við merkjum hlýjan dag með +2, kaldan sem +1. Tveir hlýir dagar eru í maí - en enginn í júní og mestallan ágúst skiptast á kaldir dagar og hlýir. Jafnvel er frost á athugunartíma - frostnætur eru reyndar enn fleiri. Frá því um 20.september er oftar frost en ekki. - Síðan kemur hitamælir og við getum litið á kvarðann lengst til hægri á myndinni. Athugið að ekkert  beint samræmi er á milli hans og vísiskvarðans - nema að frostmark er á sama stað. 

Hér að neðan eru helstu heimildir um tíðarfar og veður á árinu. Ítarlegust er frásögn Minnisverðra tíðinda, samantekt Brandstaðaannáls er einnig góð, einnig er eitthvað hjá Espólin. Jón Jónsson á Möðrufelli og Sveinn Pálsson skráðu veður daglega auk þess að draga það saman viku- eða mánaðarlega. Mjög erfitt er hins vegar að lesa þessi handrit - og ekki víst að þau brot sem hér birtast séu rétt eftir höfð. Að vanda var talsvert um slys, menn drukknuðu og urðu úti, óljóst hvað tengist veðri. Lesa má um það í Annál 19.aldar.    

Ítarlegasta árferðislýsingin er í Minnisverðum tíðindum 1803: (s108-112, 114 hafís) Fyrri hluti árs (og aðeins lengra):

Um haustið [1801] var í Barðastrandarsýslu eins og víðast hvar annarsstaðar, allbærileg veðrátta, þó nokkuð vindasöm og óstöðug, en um nýársleytið 1802 umbreyttist hún til kafalda og blota. Strax í fyrstu blotum tók hreint fyrir alla jörð, sem ekki kom til gagns upp fyrr enn í maímánuði. Um sama bil féll veturinn á Ísafjarðarsýslu og var hann þar (eins og um allt land) hinn harðasti, sem menn til mundu, og vissulega harðari og lengri en nokkur á hinni umliðnu 18. öld. Í Strandasýslu lögðust harðindin sumstaðar á með jólum, en allstaðar með þorra og svo geysilegum snjóþyngslum, óminnilegum frostum og margföldum áfreðum, að hvergi sást hin allraminnsta vitund af jörð fyrir útigangspening, og seinast í maí var hún enn þá ekki til hlítar uppkomin; olli þessu að miklu leyti hafísinn, um hvern síðar mun greint verða.

Af því, sem hér er sagt er auðsagt, að vorið á Vestfjörðum mátti í þetta sinn heldur vetur nefna; komu þar sumstaðar ekki tún upp fyrr en undir venjulega sláttarbyrjun, hver veðrátta olli stöku gróðurleysi, og var undirrót fádæmalegs grasbrests á sumrinu 1802, frá hverjum næstu Tíðindum byrjar nákvæmlegar að skrifa. Á sama máta er það hér af augljóst, að þessi óvanalegu harðindi, ásamt undanfarið bágt árferði, hafa eins hér, sem annarstaðar, orsakað hallæri fólks á milli. Víðast hvar bönnuðu ísalög, hafísar og ófærð fólki sjóróður og kaupstaðarferðir, svo mjög fáir þannig gátu leitað bjargar sinnar. Alltsaman þetta var orsök í, að margir um vordaga 1802, flosnuðu upp í öllum Vestfirðingafjórðungi, og kvað það svo rammt að í Barðastrandarsýslu, að börn fóru þar að leita sér uppeldis á húsgangsflakki; var þá líka víðast hvar fé tekið að stráfella, en þótt flestir hefðu farið að skera á þorra, og síðan á ýmsum tímum, en hesta og kýr drápu menn þó sumstaðar niður. Svo bjargþrota fólk í þessum kringumstæðum varð hinum betur megnandi til þyngsla, olli að nokkru leyti þeirra tjóni, sem ekki höfðu hjarta til að sjá nauðstadda bræður allt í kringum sig deyja flokkum saman af hungri.

Veðráttan var í Norðurlandi stirð og og misjöfn frá veturnóttum 1801 fram til jóla, þó nokkru stilltari enn hinn fyrra vetur. Grimmastur skall þessi víðast á um nýársbil, og tók víðast alla jörð af upp til dala, sumstaðar fyrr, t.d. í Fljótum og Svarfaðardal. Í miðjum febrúar var jarðlaust það tilfréttist um allan Norðlendingafjórðung. Þó hafði í Húnavatnssýslu vetur nær því allt þangað til verið hvað skástur, og nóg jörð á svokölluðum Ásum fyrir hross og fé, en jarðskarpara til dala. Eins var lengi frameftir vetri allgóð útiganga í Blönduhlíð í Skagafirði, en dalir þar skyldu þó hafa verið undirlagðir jafnmeiru fannfergi en veturinn 1800 og 1801, svo að jörð, var bönnuð þar skepnum nú, sem hún þá var nóg; en þegar áleið, gengu harðindin eins almennt yfir í Skagafirði sem annarstaðar. Í Vaðla- og Þingeyjarsýslum urðu menn strax, öndverðlega á vetri, að taka bæði hesta og og fé inn á hey, og við það mátti víðast standa fram að (og sumstaðar fram af) sumarmálum; í einstöku stöðum kom þó jörð upp þann 30. mars. Framarlega í Eyjafirði var nokkru fyrr reynt til að hleypa hrossum út, en forgefins, þar þau vildu ekki standa á stundu lengur. Vorið var hér mjög hart og kalt, sem sérdeilis orsakaðist af óvenjulega miklum og langvarandi hafís, fylgdi þessum vorharðindum hræðilegur lambadauði yfir allt, var víðast hvar ekki fært frá fyrr en í 11. viku sumars [júlí], og urðu þá sumir að skera hvert einasta lamb, sem þeir áttu, sökum snjókyngju og gróðurleysis á afréttum. Þriðjudag í nefndri viku [6.júlí] var fyrst hleypt kúm úr fjósi í Fljótum. Hross nokkur féllu í Norðurlandi af hor og harðindum, og fátt sauðfé á einstöku stöðum. Að nú, þennan vetur og vor, sem hvorttveggja var þá harðara en hin nærst umliðnu, drápust færri skepnur en þá, olli fæð þeirra, þar flestir áttu ekki eftir nema þær hörðustu og útvöldustu skepnur, er ekki gátu týnst og fargast af hins fyrra árs harðindum; líka var heyaflinn 1801 (eins og hér að framan er sagt) sæmilegur, og hinn fyrri vetur hafði gjört bændur varsamari en áður með ásetningu skepna á sumarheyin. Vetrinum 1802 fylgdi hér hér gróður- og grasleysi, en bágindi fólks á milli, er voru því þyngri, sem ófærð og aðrar kringumstæður hindruðu velflesta frá vanalegum suðurferðum til sjóróðra og kaupskipakoma varð líka mjög sein.

Á Austfjörðum gnúði vetrarharkan á strax á veturnóttum [1801], með köföldum og snjóþyngslum; þó urðu þar ekki stórkostleg jarðbönn fyrr enn með jólaföstu, og síðan voru allir gripir á heyi, að kalla, fram yfir sumarmál. Fellir varð mikill á fénaði víðast hvar í Múlasýslum, þó mestur í Álfta-, Hamars-, Stöðvar-, Fáskrúðs- og Reyðarfjörðum. Sumarið byrjaði þar með stórviðrum og fannfergi; enda var þar lengst af kuldasamt, og fylgdi þar af grasbrestur í nokkrum sveitum, þó heyjavon væri allgóð í sumum mýrlendum hreppum um miðsumarsbil 1802.

Hér á Suðurlandi var veturinn ekki stórum betri en í hinum landsins fjórðungum, féll hann sumstaðar á upp til dala öndverðlega á jólaföstu - Í Skaftafellssýslum strax með veturnóttum – en í láglendum plássum og við sjóarsíðu, vart eftir nýár, hélt við með iðulegum kaföldum, blotum og frostum langt fram yfir sumarmál, og olli hér (einkum í Borgarfjarðar-, Árness- og Skaftafellssýslum) dæmafáum harðindum. Vorið var yfrið kuldasamt og þurrt, svo grasvöxtur varð á túnum og vallendi mjög seinn og bágur, en víða hvar á engjum og í mýrlendi góður. Miðvikudaginn í 14. viku sumars [28.júlí] var heysláttur almennt byrjaður í Kjósarsýslu.

Fyrir skömmu nefnda ég hafís þann, sem á öndverðum vetri umkringdi Vestfjarða-, Norðurlands-, og Austfjarða-strandir. Sérdeilis kom mikill ís fyrir allar Vesturstrandir, og með honum 2 bjarndýr, af hverjum annað kom á land í Trékyllisvík, og var, eftir nokkurra daga dvöl í fiskihjöllum, lagt að velli, urðu menn þó þar varla varir við nokkurn trjáreka, er ísnum fylgdi. Héðan fór hafísinn um höfuðdag 1802. Um Jólaleytið 1801 sást hann frá mörgum stöðum í Þingeyjar-, Vöðlu- og Hegranessýslum, en litlu fyrr frá Vopnafirði og Langanessströndum, og skömmu seinna umkringdi hann öll annes í Norðlendingafjórðungi og nefndum byggðarlögum. Þann 14. ágúst 1802 fór ísinn fyrst burt af Skagafirði, um sömu daga af Húnafirði, en fullri viku síðar af Eyjafirði. Þá björg, sem Skagfirðingar eru vanir að hafa af fuglaveiði og eggjatekju kringum og á Drangey, samt fiskiafla og sérdeilis hákarlsveiðar, fyrirmunaði og bannaði ísinn algjörlega. Líka tálmaði hann mikillega komu danskra kaupskipa, svo 2 af þeim náðu ekki Eyjafirði fyrr en þann 29. ágúst, og urðu þó þangað skipa fyrst; hafði annað þeirra átt langa og harða útivist í 17 vikur, og verið 14 daga blýfast í hafís fyrir framan Langanes. Fáum dögum áður komu 6 Norðurlandsskip inn að Hrísey á Eyjafirði, en komust þá ekki lengra fyrir jökum. Eitt af Spákonufellshöfða skipum varð, vegna hafíss, að fara inn á Vopnafjörð og létta þar af sér farmi, sem að mestu leyti var innifalinn í matvörum, og sigldi þaðan heim aftur til Kaupmannahafnar.

... (s121) Síðan varð í Norðurlandi þann 12. janúar 1802 vart við jarðskjálfta, sem þó hvergi orsakaði húshrun eður viðlíkan skaða.

Brandsstaðaannáll [vetur]:

Varð mikið neyðarár. Á sunnudaginn 29. janúar hlóð niður stórfönn í sunnanhríð. Kom þá fé á gjöf. 17. hleypti bloti í gadd, og komu þá öll hross á hús og hey. Ísinn rak þá fast að landi. Á Pálsmessu [25. janúar] og í miðþorra [um 5. febrúar] voru mestar hríðar og fannalög orðin mikil. Í Holti [þar sem faðir annálsritans bjó] var 15 faðma langur snjórangali í brunninn. 25. febrúar gjörði mikinn vatnshríðarblota, hleypti í krapi, og þar ofan í norðanhríð með bitru frosti, sem bræddi yfir og svellaði allt. Aftur blotaði 10. mars allmikið, en vann (s40) ei á, og svo í marslok. Veður sífellt frosta- og kafaldasamt.

Brandsstaðaannáll [vor]:

Fyrir páska [18.apríl] gjörði hláku, er vann ei á utan hnjóta móti vestri, en páskadagana, 18.-19. apríl, var mesta vestan fannkomuhríð, svo ei var éljaskil 4 dægur. Skafhríðin var eins á þriðja. Var þá sú fönn komin mót austri, að enginn hafði séð því líka. Ennþá var á sunnudag, mánudag og þriðjudag fyrsta í sumri [25. til 27.apríl] sífelld norðanhríð með fannkomu og brunafrosti. Fór þá að bera á heyleysi og treiningi. Lifðu þá víða hross við lítið. Síðan bjartviðri með hörkufrosti. Sást þá ei munur á hafi og jörð, hæðum og dalverpi, brekkum, giljum og brúnum. Allt var slétt, yfir þakið með harðan snjó, svo sleðafæri var hið besta, en bágt var orðið að fá hey við þessi ódæmi. 2 maí kom mikil hláka í 5 daga. Urðu vandræði mestu að verja hús og bæi, er allt var sokkið í gaddinn, ásamt litlu heyi í tóftum, fyrir vatnsgangi, þá allt neðra hljóp í krap, en náði ei framrás utan með miklum skurðum og mokstrum. Við þetta komu aðeins upp litlir jarðarrindar mót vestri, en enginn móti austri. Eftir það hjarnaði aftur, en úr því lifðu hross og sauðir, sem vel gátu borið sig. Þokur, frost og slyddur gengu út maí. Rýmdi mest um jörð að neðan af rennsli og jarðvarmi. Á þeim tíma var hestum vart við komið, því gaddur var holur, þó svell sýndist yfir. Samt tók upp nokkuð með köflum, svo í fardögum sá á 3 þúfur í Gaflsvelli.

Brandsstaðaannáll [sumar]:

... í fardögum sá á 3 þúfur í Gaflsvelli. Þá gjörði drápshríð mikla. Stóð þá sumstaðar fé málþola inni, en þar hey var eftir, gekk það nú upp, því margir voru þá þrotnir. ... Eftir hvítasunnu [6.júní] fóru ær algjörlega út og í 8. viku sumars [10. til 16.júní] var brú á Blöndu og ís á vötnum öllum og ýmsum ám. (s41) ... Loks var fært frá eftir Maríumessu [2.júlí], lömb setin, aldrei rekin á fjall. Kýr, sem gefið varð, fóru út í miðjum júní. Þá linnti fyrst frostum og kulda. Hross og sauðir stóðu við um 15-16 vikur. Miklar skemmdir urðu á úthaga við vatnsgang og flóð 15.-17. júní. Annars tók aldrei upp gadd í giljum og austan undir brekkum og Hrafnabjargartúni allt sumarið. Jörð á heiðum og fjallendi fúnaði til skemmda og tapaðist þar gras og kvistur, en varð upptök að foksandi. Jökulbreiður voru yfir öll fjöll og hafísinn fór í ágústlok. Grasleysi var hið mesta. Sláttur byrjaði í 15. viku sumars [29.júlí til 4. ágúst]. Þá var þurrkatími, nýting besta, en heyafli hinn minnsti. Skást var sinumýrlendi mót vestri og deiglend tún. Við heyskap var verið til jafndægra, þar sinureytingur fékkst. Ekki kom frostlaus nótt til fjalla. Snemma i september 3. daga hret. ... Grasfengur varð lítill, um mitt sumar einasta. (s43)

Geir Vídalín fjallar um tíðina í bréfi:

Lambastöðum 30. september 1802 (Geir Vídalín biskup): Veturinn sem leið var sá harðasti yfir allt land, sem nokkur man, og líklega síðan hvítavetur [1633]. Vorið sambauð honum, svo enn nú um Jónsmessu var Mosfellsheiði alls ófær fyrir snjó. Sumarið þurrt, svo hér hefur ekki verið regn yfir 3 daga. Á túnum og harðvelli hefur grasbrestur verið, víðast allt til helminga, en mýrar spruttu vel síðast, svo í Flóa og Ölvesi skal vera ágætlega heyjað, en báglega til fjalls. Haustið hefur verið gott, allt til þessa, en afli mjög lítill hér um pláss. (s29)

Gytha Thorlacius sýslumannsfrú á Eskifirði segir frá í endurminningum sínum (Erindringer fra Island):

Det følgende Foraar (1802) var meget strængt. Ved Paaske kom „den grønlandske Haviis", der medfører en overordentlig Kulde, og kuer alle Væxter, saa at Foraar og Efteraar synes at ville reekke hinanden Haanden, og ganske udelukke den længe med Længsel forventede korte Sommer. Den dannede en Bro flere Mile ud i Havet, og endnu ved St. Hansdag bespændte den Eskefjord. Dog var der smale Aabninger mellem Isen, gjennem bvilke man med Forsigtighed kunde seile.(s15)

Í lauslegri þýðingu: „Eftirfarandi vor (1802) var mjög hart. Grænlandsísinn kom um páska. Með honum kemur yfirgengilegur kuldi sem kvelur allan gróður þannig að vor og haust virðast takast í hendur og algjörlega útiloka hið langþráða stutta sumar. Ísinn myndaði brú fleiri mílur (dönsk míla er rúmir 7 km) á haf út og á Jónsmessu fyllti hann enn Eskifjörð.

Brandsstaðaannáll [haust og vetur til áramóta]:

1. október gjörði nær því vikuhríð með stórfenni, svo vatnsföll voru lengi ófær og vegir ófærir. Með vetri tók það vel upp og varð gott í nóvember. Með desember hríð og harðviðri. Jörð varð vel notuð til nýárs. (s42)

Frásögn Minnisverðra tíðinda heldur áfram í  2. tölublaði (s224-232):

Með tilliti til veðurlags og árferðis, var meirihluti sumarsins 1802, á Suðurlandi mjög kaldur, eins og vorið verið hafði, svo frost og snjóar gengu hér, sérdeilis nálægt fjallbyggðum, í miðjum júlímánuði, einkum þann 19. þess mánaðar, þá verulegt kafald gjörði. Víðast hvar var, eins og áður er ádrepið, grasvöxtur mjög bágur, nema á fáeinum mýrlendisjörðum, einkum í Kjósarsýslu, hvar hann var í betra lagi, en hreinveðurs vegna mestan parts sumars varð nýting hin besta. Um haustið, nálægt Mikaelsmessu, gjörði fáheyrða frosta- og snjóa-skorpu, á þeim árstíma, með geysilegum kafaldshríðum, er urðu nokkrum mönnum að bana. Afleiðingar þessa veðrabáls urðu þó ekki fénaði svo banvænar, sem fólk í fyrstu uggði, því góð og bráð hláka fylgdi honum á eftir.

Um árferði til lands á þessum tíma, gengu misjafnar fréttir úr þeim víðlenda Vestfirðingafjórðungi: Í Mýrasýslu tjáðist grasvöxtur víðast hvar sæmilegur, og nýting hin besta. Í Snæfellsesssýslu heyafli í minna lagi. Í Dalasýslu hermdist sumarið mjög kalt, svo að þær nætur voru fleiri, sem fraus, jafnvel í byggð, og stundum varð svo mikið fjúk og frost um hádag, að varla var vinnufært úti. Þessi harða sumarveðrátta varaði allt til haustjafndægra; grasbrestur var hinn mesti á túnum, og þau til stórskemmda kalin. Vott útengi spratt nokkuð, en allt harðlendi var svo að segja graslaust. Það lítið, sem fékkst af heyjum, nýttist þó bærilega, en horuð málnyta gjörði lítið gagn. Fyrrnefnt Mikaelsmessukast geisaði hér, eins og í nálægum sýslum, með mestu snjókomu; urðu þá sumstaðar töluverð hey úti, og komu síðan að litlu liði; misstist einnig sauðfé nokkurt. Í Barðastrandarsýslu féll heyskapur út miklu betur, en menn áður gátu ímyndað sér, er mest orsakaðist af æskilegustu veðurátt, er gekk þar mestan hluta sumars, og stöðugum þurrkum frá sláttarbyrjun, svo heyja nýting varð þar hin besta. Í Ísafjarðarsýslu fylgdi aftakshörðu vori – svo að ísalög ekki tóku af jörðum, fyrr en eftir messur, hver svo höfðu verið samföstuð orðin, að eftir kóngsbænadag [14.maí] urðu fiskiskip að setjast úr Vatnsfirði á ísi útá Snæfjallaströnd, nær því þingmannaleið vegar - kalt og þurrt sumar, með náttfrostum og grasleysi, hafís fyrir Ströndum og stórköföldum við sjóarsíðu, einkum seinni part ágústmánaðar, með fannfergi og bitrum frostum; áttu þá margir hey úti; en skömmu seinna leysti snjóinn upp, og varð því þá að nokkru leyti heimkomið. Úr Strandasýslu fluttust sorglegar fréttir um veðráttufar sumars þessa: frost og kuldi og snjór er sumstaðar lá á túnum fram á engjaslátt, hindraði grasvöxtinn svo, að hann varð loksins óvenjulega lítill, og norðarlega víða nær því enginn, þar eftir fór heyskapurinn í þokum og votviðrum, enda var ljár óviða borinn á gras utangarðs, nema sinuforæði, þar til þeirra náðist, og urðu þesskonar heyföng mjög léttvæg. Óvenjulegt kafald og hörkufrost sem innféll frá 17. til 20. júlí, neyddi nokkra í Árnessókn til að gefa kúm og sauðfé fisk til fóðurs, eins og menn víða hvar, á næsta gegnum harða vetri, höfðu, af heyskorti, gefið peningi sínum, til lífsbjargar, harðan fisk, hákarl, hval og lýsi, og jafnvel mjólk. Um Mikaelsmessu [29.september] féll aftur snjór mikill, og byrgði hey, er víðast úti lá, svo það aldrei síðan náðist, nema vott og freðið uppbarið úr klaka. Hláka sú er fylgdi kasti þessu á Suðurlandi, varð hér að engum notum.

Í Norðurlandi fylgdi hörðu og gróðurlitlu vori, kalt og óveðrasamt sumar, heyjabrestur og bág nýting. Í Þingeyjarsýslu var einkum graslendið stakt, og veðráttu harka ekki minni, svo sumarið var sannkallaður vetur. Gekk þá staðföst norðan átt, hörku krapahríðir og áfelli á víxl, en aldrei náttúrlegt sumarregn eða landvindar, að undantekinni einni viku, samantöldu öllu þessu sumri. Peningur var þar mjög gagnslítill sumarlangt, og hafís allsstaðar landfastur til höfuðdags (29.ágúst). Heyafli samsvaraði þessu, svo á einni, annars sæmilegri, jörð, fegnust t.d. eftir 4 sláttumenn, einungis 100 hestar af moðsalla. Norðurpartur sýslunnar var þá um haustið gjörfalinn að nautpeningi, og öll matvara útfeld í Húsavíkurkaupstað seinast í september, þá fæstir höfðu fengið svo mikið sem þörf krafði.

Austfjörðum viðvíkjandi, var sumar þetta í Norður-Múlasýslu, eins og næst undanfarið vor og vetur, eitt hið harðasta í elstu manna minni. Í norðurhluta hennar greru ekki tún og úthagi fyrr en eftir miðsumar, sökum sífelldra stórhríða og hörkufrosts, nálega dag sem nótt. Grasvöxtur varð því mjög vesæll, svo fáir fengu meira hey enn naumlega til kúnna, til hvers heyafla í þeim fjársveitum þykir lítið koma – og urðu margir því að skera þær, sér til stórs skaða. Með Mikaelsmessu gjörði hér, sem annarstaðar um land, mikið áfelli, varð þá að mestu leiti jarðlaust, og undir snjónum það lítið er laust var af útheyi, einkum í Vopnafirði, norður um Strandir og Langanes. Heyleysið, og hið harða haustáfelli, gjörði, að margir förguðu flestu eftirlifandi fé sínu, bæði í kaupstað og heima, jafnvel þó lítið frálag væri í því, þar flest ekki var betur en mergjað, og svo kvað rammt að á einum bæ, hvar slátrað var 30 fullorðins fjár, meðal hvers 10 sauðum gömlum, að ekki fékkst úr öllu því fullt kvartil tólgar. Í Suður-Múlasýslu, hvar vorið hafði verið sömu artar, kom varla daggardropi úr lofti sumarið út, heldur nokkrum sinnum krapi og snjór, með sífeldum sterkum landnyrðingum, oft heitu sólskini um daga, en hörðu frosti um nætur. Grasbrestur varð því hér stór og nýting hin versta; varð því, ofaná hinn stórkostlega sauðafjárfelli veturinn fyrir, fólk að skera niður fjölda kúa um haustið.

Veðráttu vetrarins til jóla lýsa Minnisverð tíðindi í umfjöllun um árið 1803 (innan um afgang vetrarins). Við birtum þá frásögn í pistli „af árinu 1803“. 

Espólín: XCI. Kap. lýsir árinu svo:

Með veturnóttum [1801] lagði þegar að vetur mikinn fyrir norðan og austan land, og helst eystra, og jafnvel syðra, með hríðum og snjóaþunga, öndverðlega á jólaföstu, en með nýári gnúði hann á víðast um allt land, og var hinn harðasti, tók fyrir jörð alla í hinum fyrstu blotum, og kom víða ei upp aftur fyrr en hálfur mánuður var af sumri [í maí]; gengu blotarnir allan veturinn milli hverrar hríðar; enginn maður mundi þá jafnharðan vetur og langan. Var jarðlaust í Strandasýslu, og kom ei upp til hlítar fyrr en mánuður var af sumri, svo var og víðar. (s 121). Bönnuðu ísalög, hafísar og ófærðir, bjargir allar, og flosnuðu margir upp vestra. Í dölum öllum norðanlands var jarðbann mikið, en þó best í Húnavatnssýslu, en í Eyjafirði voru harðindi mikil, og norður þaðan frá. Eystra var engin jörð fram um sumarmál, svo var og víða syðra, helst í Borgarfirði, Árnessþingi og Skaftafellsþingi. (s 122). Hafísar miklir lágu fyrir landi vestan, norðan og austan, og komu á þeim tveir birnir vestra, var annar unninn í Trékyllisvík. Var þá hinn mesti vorkuldi með hríðum, og aldrei hlýnaði á því sumri eftir, svo telja mætti, og spratt mjög illa, en fiskitekja var sumstaðar, og eigi síst fyrir norðan, og mikil síldarganga á Eyjafirði. (s 122). Hvali rak víða fyrir norðan. (s 122).

Jón Jónsson á Möðrufelli er nokkuð langorður um veður og tíð á árinu - en ritstjóri hungurdiskar ræður illa við lestur á hönd hans (þó hún sé hér skýrari en oft var síðar). Við reynum þó að ná orði og orði á stangli.

Janúar var allur mjög harður vegna jarðbanna, tvo blota gerði. Febrúar allur mjög harður og allstaðar jarðbönn. Mars einnig harður - mest af jarðbönnum. Apríl á sama hátt, sólbráð nokkur, en líka hríðar og snjókoma. Um miðjan maí segir Jón að almenningur sé kominn í allra stærstu nauð því margur sé uppiskroppa orðinn. Júní var sárbágur og júlí ogso mjög bágur, ágúst kaldur. Október oftar harður og stirður en þó komu góðir kaflar í bland en 2 áhlaupastórhríða. Nóvember allur mikið stilltur og góður að veðráttufari. Desember í meðallagi, (ástöðuveður sæmilegt oftast), jörð nokkuð óskemmd í rót. Að lokum segir hann að þetta afliðna ár megi teljast fullkomið harðindaár.

Svipað er með það sem Sveinn Pálsson skrifar. Hér eru sundurlausir punktar frá árinu 1802:

Þann 9.janúar jöklafýla, 20.janúar snjór í mið læri. Þann 31.mars getur hann um vatnsflóð og mikið hafi þiðnað daginn áður. Um vikuna 9. til 15.maí skrifar hann (lauslega þýtt hér úr dönsku): Þessa viku mikið frost, kuldi. Norðan og norðaustanblástur. [Þjórsá ennú á gaddís]. 25.maí Blátt mistur í austri, 31.maí Eldmistur í austri. Þann 5. júní segir af rekís vestur fyrir (Reynis)Dranga að landi og meðfram ströndinni til vesturs. Sömuleiðis milli Eyja og lands. 10. júní. Rekís með allri ströndinni. Næturfrost þann 25.júní og þann 29. segir hann að frosið hafi á vatni í nótt. Þann 3.júlí snjóaði í fjöll. Þ.19. segir hann (eftir fréttum kannski - en 28.segist hann þó hafa komið heim að sunnan) að alsnjóa hafi orðið í sjó á Kjalarnesi. Þann 24.júlí segir hann um undangegna viku að fyrst hafi verið mikill kuldi og snjór síðan mildara veður (snjó hefur þó varla fest í Kotmúla). Þurrt var flesta daga í ágúst, en oft ryk og kólga. Talsvert næturfrost gerði nótt eftir nótt um 20.ágúst. 10.september segir hann að vötn hafi spillst af frosti. 29.nóvember var sterk jöklafýla. 22.desember ofsaflóð.

Hér stingur Jón Hjaltalín upp á nafni á veturinn:

Blota fanna sendir sá
svells um hvanna reita,
lýsing fanna liðinn á
Lurkur annar heita.

Þórarinn í Múla er efnislega sömu skoðunar í sínum vísum og líkir sumrinu við meðalvetur:

Lurkur títt um landið vítt
lék í þjóð-minningum
þessi par ei vægri var
vetur, að fanna dyngjum.

Harðindin og hafviðrin
hótuðu grimmum dauða
væri heyja-aflinn ei
eins til hesta og sauða.

Þorri og góa með þungum snjó
þegar niður hlóðu
hafís-þök með hörku blök
hring um landið tróðu.

Ærsli hríðar enn nú stríð
einmánuður þreytti
ekki hót á böli bót
byrjað sumar veitti.

Á út-kjálkum óárs bálk
allt fram dró að messum
engin jörð en áföll hörð
oft á tíma þessum.

Vetrartíðin var óblíð
vorið snautt af góðu
misseri heilt við hey óveilt
hestar víða stóðu.

Sumarið allt var sára kalt
sinnti ei högum betur,
enn meðal ára margur klár
mildur og góður vetur.


Haustið eins var mjög til meins
mengað fjúka rokum
heyaflinn var harðsnúinn
harla rýr að lokum.

Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um árið 1802. Sigurði Þór Guðjónssyni er þakkað fyrir innslátt Brandstaðaannáls og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt Árbóka Espólíns (stafsetningu hnikað hér - mistök við þá aðgerð sem og allan annan innslátt eru ritstjóra hungurdiska). Örfáar tölur í viðhengi.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Fyrstu tíu dagar aprílmánaðar

Fyrstu tíu dagar aprílmánaðar hafa verið mjög kaldir hér á landi. Meðalhiti í Reykjavík er -0,8 stig og er það -3,5 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020 og -4,2 stigum neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin. Þetta er kaldasta aprílbyrjun á öldinni (21 ár). Hlýjastir voru sömu dagar 2014, meðalhiti þá +6,0 stig. Á langa listanum er hitinn í 129.hlýjasta sæti (af 147). Kaldastir voru sömu dagar 1886, meðalhiti þá -4,4 stig. Fyrir 30 árum, 1991 var talsvert kaldara en nú, meðalhiti -1,9 stig - og fyrir 60 árum var meðalhiti þessara sömu daga -3,1 stig. Fyrstu 10 dagar aprílmánaðar voru hlýjastir í Reykjavík 1926, meðalhiti þá +6,6 stig.
 
Meðalhiti á Akureyri er nú -1,7 stig, -2,9 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, og -3,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Þetta er kaldasta aprílbyrjun aldarinnar víðast hvar á landinu, en sú næstkaldasta við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra.
 
Miðað við síðustu tíu ár er neikvæða vikið minnst á Gufuskálum, -2,5 stig, en mest -5,2 stig við Hágöngur og í Jökulheimum.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 15,4 mm og er það um 60 prósent meðalúrkomu. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 6,9 mm, líka um 60 prósent meðalúrkomu.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 48,2 í Reykjavík og er það í meðallagi.
 
Loftþrýstingur hefur verið sérlega hár. Meðaltalið í Reykjavík er 1026,3 hPa og hefur aðeins tvisvar verið hærra sömu daga síðustu 200 árin, 1934 og 1986.

Óvenjukalt í Alaska

Óvenjukalt er nú í Alaska, heimamenn tala um metkulda (en hér erum við langt frá metum - alla vega enn). Lítum á hefðbundið háloftakort - það er greining evrópureiknimiðstöðvarinnar á hádegi í dag (fimmtudag 8.apríl).

w-blogg090421a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins heildregnar - af þeim ráðum við vindstyrk og stefnu. Litir sýna þykktina en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Fjólubláu litirnir eru kaldastir - ef vel er að gáð eru þeir þrír, sá dekksti sýnir lítið svæði þar sem þykktin er minni en 4800 metrar. Það er talsvert lægra en nokkurn tíma hefur mælst hér við land. Það er tvennt sem er óvenjulegt. (i) Óvenjulegt að sjá þrjá fjólubláa liti á kortinu í apríl - kemur þó fyrir, en dekksti liturinn þekur þá alltaf lítið svæði og lifir aldrei lengi. Ef við þó gerum ráð fyrir því að hann beri einhvers staðar niður - eru líkurnar á því að einhver ákveðinn staður verði undir afskaplega litlar (ii), Norðuríshaf og strendur þess eru víðfeðm. Hvar sem svona lág þykkt verður (á þessum árstíma) verða kuldamet nær óhjákvæmilega slegin - það er líklegt að áratugir líði á milli þess að einhver ákveðinn staður verði fyrir - jafnvel þó kuldi af þessu tagi sé ekki einstakur - einhvers staðar. 

Þessi kuldi lifir væntanlega ekki lengi - en samt nægilega til þess að við verðum að gefa „Stóra-Bola“ og hreyfingum hans á næstunni gaum. Sá kuldi sem nú ríkir hér á landi er - eins og við sjáum - eins konar afleggjari kuldans í Norður-Íshafi. Þykktin yfir landinu í dag var um og innan við 5060 metrar (um 13°C hærri en nærri miðju Stóra-Bola). Það er óvenjulegt í apríl - en langt í frá einstakt.

Eins og nefnt hefur verið á þessum vettvangi áður er þó mesta furða að veðrið skuli ekki vera verra heldur en það er. Svo virðist sem lítillega hlýni næstu daga en veður haldist  lengst af skaplegt í byggð (fylgist þó með spám Veðurstofunnar). Versnandi veðurlags er fyrst og fremst að vænta sæki hlýtt loft að úr suðri - eða jaðar Stóra-Bola úr norðri eða vestri. 


Norðvestanáttin fláráða

Um þessar mundir er norðvestanátt ríkjandi í háloftunum við landið og útlit fyrir að það ástand haldi áfram - að vísu með einhverjum tilbrigðum eins og gengur. Lægðardrög berast úr vestri yfir Grænland og svo ýmist austur, suðaustur eða suður yfir Ísland. Köld norðanátt steypist yfir landið í kjölfar þeirra allra. Miðað við kuldann sem kom með páskadraginu kemur það þó á óvart að veðrið skuli þó ekki vera verra heldur en það er. 

Drag er við landið í dag (miðvikudag 7.apríl). Norðanáttin í kjölfar þess er að vísu nokkuð snörp - veldur vetrarveðri - en virðist eiga að ganga fljótt hjá. Næsta drag verður síðan í undirbúningi síðdegis á föstudag - eins og kortið hér að neðan sýnir.

w-blogg070421a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, þykkt er sýnd með litum. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því minni sem hún er því kaldara er loftið. Kuldapollur er yfir Austurlandi - leifar norðanáttar lægðarinnar sem er við Vesturland í dag - en lægðin sjálf verður á föstudaginn komin til Noregs.

Næsta lægðardrag er hér við Vestur-Grænland - fer yfir jökulinn aðfaranótt laugardags og lægð myndast á Grænlandshafi. Eins og spár eru í augnablikinu er gert ráð fyrir öðru lægðardragi strax í kjölfarið - sem sameinist því fyrra og valdi nokkuð snarpri norðanátt upp úr helginni.

Kuldinn á þannig að halda áfram. En eins og áður sagði hefur samt farið til þess að gera vel með veður til þessa - miðað við stöðu og tilefni. Vonandi að slíkt haldi áfram. 

En útnorðanátt í háloftum er mjög fláráð og getur með skömmum fyrirvara farið að sýna á sér hinar verstu hliðar - þannig að rétt er að fylgjast vel með.  

Kuldinn þessa dagana hefur verið fremur óvenjulegur fyrir aprílmánuð - sé miðað við síðustu áratugi. Aðeins einn apríldagur á öldinni hefur verið kaldari - á landsvísu. Það var 7.apríl árið 2005 - einnig í snarpri háloftanorðvestanátt. Sú staða stóð hins vegar aðeins þann eina dag. 

Í eldri gögnum - aftur til 1949 finnum við 24 kaldari apríldaga heldur en nú. Kaldastur þeirra var auðvitað hinn illræmdi 1.apríl 1968 - honum fylgdu 2 aðrir kaldari en nú. Sá næsti á undan þeim 2005 var 1991 - en á árunum 1949 til 1991 komu kaldari apríldagar í 12 árum (af 53) - svona fjórða hvert ár. Varla mjög óvenjulegt. 

Tíðnin í Reykjavík er ekki ósvipuð - frá 1990 er aðeins einn apríldagur kaldari en nú (7. 2005) og 14 ár á tímabilinu 1949 til 1991 skreyta sig með að minnsta kosti einum apríldegi kaldari en nú. Frá 1871 eru slíkir dagar hins vegar 69 (fáeina aprílmánuði vantar), kaldastur 1.apríl 1886 - ómarktækt kaldari heldur en sá 1. 1968. 

Fyrstu 3 dagar mánaðarins voru hlýir nú þannig að meðalhitinn er ekki enn kominn á aldarbotninn - en mun væntanlega ná honum fljótlega haldi kuldinn áfram. 


Mars í háloftunum

Tíð var hagstæð í nýliðnum mars (eins og fram kemur í yfirliti Veðurstofunnar) og hiti vel yfir meðallagi. Við lítum nú á hitavik í neðri hluta veðrahvolfs.

w-blogg050421a

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, daufar strikalínur sýna meðalþykkt, en litir þykktarvik, miðað við tímabilið 1981 til 2010. Eins og sjá má var hiti nærri meðallagi víðast hvar við norðanvert Atlantshaf - en nokkuð ofan þess við Ísland. Við Austurland er vikið mest um 65 metrar - það segir okkur að hiti í neðri hluta veðrahvolfs hafi verið rúmum 3 stigum ofan meðallags 1981 til 2010. Hér á landi er meðaltalið 1981 til 2010 um -0,5 stigum lægra heldur en nýja meðaltalið 1991 til 2010 - og líklega á svipað við um neðri hluta veðrahvolfs. 

Við þökkum Bolla P. að vanda fyrir kortagerðina. 


Kaldur dagur

Páskadagur, 4.apríl, var kaldur í ár. Meðalhiti í byggðum landsins var -6,8 stig, sá lægsti sem við vitum um þennan almanaksdag - við eigum meðaltal aftur til 1949. Sami dagur í fyrra (2020) var líka kaldasti 4.apríl á sama tímabili, meðalhiti þá var -5,9 stig. Slatti af öðrum dögum hefur þó verið kaldari í apríl heldur en þessi - bara ekki hitt á þann fjórða. Kaldastur var 1.apríl 1968, meðalhiti þá var -12,7 stig og síðan koma 10.apríl 1963 með -10,7 stig og 2.apríl 1953 með -10,1 stig. 

Við eigum lengri raðir fyrir Reykjavík - þar var meðalhitinn sá fimmtilægsti meðal almanaksbræðranna (4.apríl) - sá lægsti síðan 1921. Á Akureyri var hitinn sá lægsti 4.apríl síðan 1990. 

Lágmarkshiti dagsins var sá lægsti á árinu (og vetrinum öllum) hingað til á allmörgum veðurstöðvum. Það er ekki sérlega algengt að kaldasti dagur vetrarins sé í apríl, en gerist þó rétt endrum og sinnum. Um slíkt hefur verið lauslega fjallað áður á hungurdiskum - og fyrir hefur komið að apríl hefur verið kaldasti mánuður ársins (1953).  

Viðbót:

Eins og nefnt er að ofan var meðalhiti gærdagsins í byggðum landsins -6,8 stig. Hann var þó ekki kaldasti dagur ársins til þessa því þann 10.janúar var sólarhringsmeðalhitinn -7,4 stig. Við vitum ekki enn hver meðalhiti dagsins í dag (5.apríl) verður - og er enn rétt hugsanlegt að hann verði ámóta kaldur. 

Það rétt ber við að apríldagur er sá kaldasti á árinu (á landsvísu), við vitum alla vega af 2.apríl 1953 og 10.apríl 1963. Engir aðrir dagar þeirra ára voru kaldari. Svipað var með 7.apríl árið 2005. Það var kaldasti dagur ársins sé miðað við mönnuðu stöðvarnar eingöngu, en hann var sá næstkaldasti á sjálfvirku stöðvunum. 

Það hefur gerst aðeins einu sinni í Reykjavík að apríldagur hefur verið sá kaldasti á árinu (sólarhringsmeðalhiti). Það var 1953. Í Stykkishólmi gerðist þetta 1901, 1914, 1925, 1953 og 1963. Við höfum upplýsingar frá Akureyri aftur til 1936. Þar var 2.apríl 1953 kaldasti dagur ársins - eins og í Reykjavík og Stykkishólmi. Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum vitum við um 4 tilvik eftir 1948, það var 1953, 1963, 1968 og 2005.

Athugið að hér er miðað við sólarhringsmeðalhita en ekki lágmarkshita - við athugum hann e.t.v. betur síðar. 


Af árinu 1801

Tíð var erfið á árinu 1801. Veturinn var snjóþungur og jarðbönn mikil. Mars var illviðrasamur. Sumarið var mjög óþurrkasamt syðra, en nýting góð norðanlands og austan. Hitamælingar Sveins Pálssonar í Kotmúla eru þær einu sem vitað er um að hafi varðveist, en mælir hans brotnaði í maí og féllu mælingar niður eftir það. Hann getur þó sérlega kaldra og hlýrra daga. Við giskum á að ársmeðalhiti í Stykkishólmi hafi verið um 2,4 stig. Mars var mjög kaldur, og janúar og apríl einnig fremur kaldir, febrúar hlýrri. 

ar_1801t 

Hér að neðan eru helstu heimildir um tíðarfar og veður á árinu. Ítarlegust er frásögn Minnisverðra tíðinda (nokkuð ruglingsleg þó á köflum), samantekt Brandstaðaannáls er einnig góð, en Espólin tyggur að mestu eftir Tíðindunum. Jón Jónsson á Möðrufelli og Sveinn Pálsson skráðu veður daglega auk þess að draga það saman viku- og mánaðarlega. Mjög erfitt er hins vegar að lesa þessi handrit - og ekki víst að þau brot sem hér birtast séu rétt eftir höfð.  

Minnisverð tíðindi: (1801, s414-417) rekja tíðarfar ársins:

Vetrarfarið frá nýári 1801. mátti heita, eins og ég umgat bls. 417. víðast um landið allgott heita til miðgóu, en með þeim 11.mars lagðist vetrarríkið algjörlega að með ofsa kafalds-kyngjum og uppfrá því sífelldum ofviðrum, ísalögum og fjúkbyljum, allt til þess 13. apríl, svo varla mátti kafalds-hríða upprof kalla, eða gegnt bæja á milli, án lífsháska. Margan skaðræðis-byl , mátti þá telja hér og hvar um landið um seinni hluta marsmánaðar, þó eru hvað orðlagðastir þeir, sem tilféllu fyrrgreindan 11.mars og á góuþrælinn [23.mars]. Fyrra daginn fylltust allar Norðurlands og Vestfjarðahafnir, firðir og sjáarstrendur með grænlenskum hafís, sem loks umspennti allt landið norðanvert, jafnvel frá Barðastrandasýslu vestra allt suðaustur á Reyðarfjörð í Suður-Múlasýslu, langt fram á vor, allt undir Jónsmessu og sumstaðar lengur. Þá varð úti í geysilegu kafalds-áhlaupi fjársmali í Hítardal með 161 af rosknu fé, af hverju hér um 30 alls fundust með litlu lífi á 3ja degi, ásamt smalamanni tórandi. Um hann get ég framar þegar slysfarir nefni. Þá hrakti í sjóinn og fórust 40 fjár frá Hamraendum í Hraunhrepp í Mýrasýslu, á Svarfhóli þar misstust um 30 fjár, á Staðarhrauni 17, mestallt fé á Litla-Fjalli í Borgarhrepp, og nokkuð í Þverárhlíð, allt í sömu sýslu. Hvort heldur þessi sami kafaldsbylur, eða góuþrælsbylurinn, ellegar aðrir þar á milli, ellegar Allraheilagra-messu kastið þann sama vetur [haustið 1800], orsakað hefir hið mikla fjártjón, er varð á Vatnsnesi, á Torfalæk, á Hjaltabakka, en einkum í Vatnsdal á Haukagili (allt í Húnavatnssýslu) hvar allt sauðfé efnugs sauða-bónda Jóns Ísakssonar, að sögn hérum bil 200 fjár, eður fleira, varð úti, áfram hirðinum Sæmundi Guðmundssyni, efnilegum ungum manni giftum, er mér ekki tilnefnt; hann minnist ég síðar ásamt öðrum slysförum, en ef sauðkindunum er mælt, að einar 9 hafi lifandi fundist. Góuþrælsbylurinn varð víða um landið skaðvænn, en þó einkanlegast, á sjó, hvers ég síðar mun geta undir eins og slysfaranna.

Vorbati náttúrunnar kom ekki fyrr en að liðnum fardögum sunnan- og vestanlands, og þó var vorið sárkalt og gróðurlítið, en norðan- og austanlands kom hann ekki fyrr enn eftir Jónsmessu, þegar hafísinn var þar loksins viðskilinn. Vetrarfarið hafði í Múlasýslunum verið áþekkt því, sem sagt er um Norðurland, og varð því fyrir norðan og austan, hvar jarðbönn lengst af haldið hefðu við frá allraheilagramessu, stórfellir penings bæði á hestum og kúm, en þótt vægari enn sauðfénaðarins, af hverjum hr. Amtmaður Stephán Þórarinsson telur að þá hafi fallið í sínu amti hérum 50 þúsund fjár. Í Skagafjarðar-sýslu varð hrossafellirinn einna mestur, jafnvel í vornæðingunum 1801. En Norður-og Austurland þarf ekki til að taka í þessu tilliti, því fellirinn varð því nær eins stórkostlegur á sauðfé og hrossum víða um Suður- og Vesturland, þó vægur og lítill til margra dala, eins og á Norðurlandi. Nokkrar sveitir misstu alls ekkert, aðrar mikið og þannig reyndist það í Skaftafells- og Rangárvallasýslum, í efra parti Árnessýslu féll lítið, í öllum neðra eður fyrri hluta hennar stórmikið, eins og um Mosfellssveit og Kjalarnes, Borgarfjörð, Mýrar og allt Vesturland, þó féll þetta ár lítið í Strandasýslu, og Vestmannaeyjar kenndu ekki á fellinum. Köldu, næðingasömu og kafaldskastasömu vori 1801, fylgdi, að líkindum, lélegur og lítill gróður allvíða, þó náði hann um Norður- og Vesturland sumstaðar meðallagi, nýting heyja varð þar og betri, en á Suðurlandi og eystra víðast hvar aumur gróður, einkum á útengi, og nýting hálfu verri. ...

Þess gat ég, bls. 421, að Grænlandshafís hafi þann 11.mars 1801 fyllt upp Norðurland og Vestfjarðahafnir og firði. Af því hlutu margir í Bolungarvík þeirri ystu og helstu verstöðu við Ísafjarðardjúp ærinn baga. … Þann 21.apríl eður mánudag síðastan í vetri 1800, rauk á mesta ofsaveður af norðri. Þá týndust 3 skip úr Staðarsveit nálægt Jökli, 2 þaðan hröktust, og öll önnur náðu báglega lendingu. Úr þeim þremur, sem týndust voru 2 áttæringar og 1 feræringur, og á þeim 22 manns, flestir úr Dalasýslu. … Góuþrællinn hefur oftar en einu sinni á Suðurlandi orðið mannskæður sjófarendum og svo varð hann árið 1801. Fullgreinilega eru mér ekki tilkynnt hans skaða tilfelli, því set ég hér, hvað mér hefir eftir ýmsum um þau borist, nefnilega: að þá hafi 3 skip farist í Höfnum, með 15 manns á, bátur með tveimur mönnum í Garði, og annar með jafnmörgum á Strönd, allt í Gullbringusýslu. Þann 3.apríl drukknaði skip frá Keflavík undir Jökli nálægt Eyrarsveit, með 7 (önnur fregn telur 9) mönnum á, er ætluðu heim til sveita í Dala- og Snæfellsness-sýslum.

(1803, s108 ...) Seinni hluta sumars 1801 var á Suðurlandi sérdeilis votviðrasamur, svo heynýting varð mjög bág; annars var grasvöxtur hér um pláss, sem víðast um landið, í betra meðallagi. Í Norðurlandi þar á móti var allvíðast þurrari veðrátta þá áleið, en bæði grasvöxtur og nýting rétt góð. Um haustið voru bæði hér og á Suðurlandi mjög slæmar heimtur á fé af afréttum. Á Austfjörðum var hin besta og blíðasta sumartíð með sífeldu hægviðri, þurrkum og og hitum, sem að sönnu gjörðu góða nýting á grasi, en þarhjá skemmdu stórum hálend tún, er fyrir þá orsök sumstaðar skrælnuðu og brunnu til stórskemmda; urðu helst uppsveitir, einkum Fljótsdalshérað fyrir þessum skaða; Í Tungusveit hafði téð veðrátta betri afleiðingar, þar útengi spratt í betra lagi, og nýting var rétt góð. Á Vestfjörðum var víðast hvar sumarið allnotalegt og bærilegur heyskapur, en bágari var tíðin kringum Jökul vegna óþerra þegar áleið. Um haustið var í Barðastrandarsýslu eins og víðast hvar annarsstaðar, allbærileg veðrátta, þó nokkuð vindasöm og óstöðug, en um nýárs-leytið 1802 umbreyttist hún til kafalda og blota. 

Brandsstaðaannáll [vetur]:

Viku fyrir jólaföstu hleypti bloti fönn í gadd, svo hestar voru innteknir í Svínadal, en mót austri í dölum, á Ásum og Þingi var snöp og næg jörð frá jólum fram yfir miðþorra. Um jólatímann blotar og einkum 3 vikur síðast í janúar, þess á milli frost mikil og köföld. Fór þá flatlendi i ófær svell, svo lítt varð beit notuð. Skepnur komust frá húsum aðeins á tilbúnum brautum. Með góu versnaði veður. Jörð þraut í flestum stöðum, og harðviðri börðu á gaddi, en ei blotar. [Öskudaginn] 18. febr. var hleypt út fé á Haukagili. Brast á bylur mikill. Hrakti og tapaðist þá um 200 fjár bónda Jóns Ísakssonar. 9 kindur náðust, (s37) en Sæmundur Guðmundsson, fyrirvinna og sonarsonur Jóns, varð úti fram á Skútaeyrum [í athugasemd útgefanda segir að Sæmundur hafi orðið úti 4. mars samkvæmt kirkjubók]. ... Á góu kom hafís og umkringdi landið frá Breiðafirði og að Reyðarfirði. Lá hann á fram yfir fardaga. 5 vikna skorpa varð hin harðasta, með hörkum og hríðum yfir allt land, en í Svínadal stóðu hross við gjöf 17 vikur. 3 vikur voru þau úti um miðjan vetur. ... skaði mikill í Bolungarvík á veiðarfærum, þá ísinn rak að 11. mars. (s39).

Espólín [vetur] (að miklu leyti endurtekning á texta Minnisverðra tíðinda):

Espólín: LXXXVI. Kap. Vetrarfar var allgott víða frá nýári til miðgóu, en hinn 11. dag mars lagðist að mikið vetrarríki með hríðum og stórviðrum, frostum og ísalögum; gjörði varla upprof til hins 13da apríl, svo að fært væri á milli bæja hættulaust; gjörði þá bylji marga skaðvæna, en þó má helst telja þann hinn 11. mars, og á góuþrælinn [23.mara]. Í hinum fyrra rak inn hafísa fyrir Norðurlandi öllu, og tóku frá Barðaströnd til Reyðarfjarðar austur, umhverfis land; varð þá úti smalamaður í Hítardal með 160 fjár, og fannst 30 af því á þriðja degi með litlu lífi, og maðurinn mjög skemmdur, svo að af honum voru sagaðar síðan hendur og fætur, gjörði það ólærður læknir, og þótti þeim sumum miður takast, er lærðir voru til þess. (s 115). Í byljum týndist einnig sauðfé að Vatnsnesi í Húnavatnsþingi, að Torfalæk og Hjaltabakka, en að Haukagili í Vatnsdal, ..., varð tjón mikið á öskudaginn; þar var sauðamaður Sæmundur, hann las húslestur um daginn, og er honum lauk, hljóp hann út, því að brast á hríðin; var forráðsveður hið mesta, fann hann 7 eða 8 kindur, og hafði látið inn; en eftir á föstudaginn fannst Sæmundur fram á Skútueyrum, nær hálfri þingmannaleið frá Haukagili, frosinn við svell niður, með litlu lífsmarki, og andaðist síðan, er hann var fluttur heim, en féð fannst aldrei, nema ein eða tvær kindur um vorið, og týndust 200. (s 115). Það varð enn á góuþrælinn, at fórust 3 skip í Höfnum með 15 mönnum, bátur með tveimur mönnum í Garði, og annar á Strönd, en hinn þriðja apríl týndist skip fyrir Keflavík vestra, með 8 mönnum eða 9, er voru á heimleið til Dala. (s 115).

Brandsstaðaannáll [vor]:

Fyrsta sunnudag eftir páska, 12. apríl, kom góður bati, þann 18. harður bylur. Varð þá mikill fjárskaði í Sauðadal. Vorið var kalt og þurrt, síðgróið, en eftir fardaga góð tíð, og varð grasvöxtur í betra lagi.

Espólín [vor]:

Var þá kalt vor og batnaði seint, og féll mikill fjöldi kvikfjár um Austurland, svo at Stephán amtmaður sagði, að verið mundi hafa um 50 þúsundir í hans amti. Var sú hin fyrsta hnekking, er þessi vetur ofanverður og vorið gjörði á velgengni manna, er þá var áður orðin allgóð víða í sveitum, því að allir lifðu í þann tíma sæmilega. (s 116). LXXXVII. Kap. Þá var mislægur fiskafli og ógæftir stórar, þó var vorfengur mikill á Innnesjum þegar gaf, og þegar varð fyrir lagnaðarísum, jafnvel meira en 9 hundruð stór; fiskaðist og allvel umhverfis Jökul; en af því varð mörgum manni bagi í Bolungarvík við Ísafjörð, að fyllti alla fjörðu af ísi, þar sem veiðarfærin höfðu lögð verið, og misstust þau öll af 30 skipum, og varð lítið eitt upp slætt af seinna, en menn urðu at yfirgefa skipin og brjótast heim með allmiklu vosi, og voru þó áður máttþrota mjög af hallæri, því er þar var. (s 116). Hvalur braust þar upp um ís á föstudaginn langa [3.apríl] og nýttu menn það eftir því sem við varð komist en örðugt var um aðfærslu alla, því ófærðir voru miklar, en hestar illa orðnir undan vetri. (s 116). Vor var þá kalt, og gróður lítill, en fiskafli í Múlasýslum var næsta mikill um sumarið, og svo fyrir norðan, svo að bátar í Eyjafirði fengu 300 af góðum þorski á hálfum mánuði, en tví- ok þrí-hlaðið á degi skammt undan landi á Sléttu og Langanesströndum, þar ei hafði lengi fiskast. Selir voru og allmargir teknir á Langanesi, en í fjörðunum: Borgar-, Loðmundar- og Seyðisfirði voru tvö eða þrjú hundruð sela rotuð í ísi. (s 116).

Brandsstaðaannáll [sumar]:

Þurrkasumar og heyin góð. Áttu enn flestir allmiklar fyrningar, þó mikið gæfist upp um veturinn.

Espólín [sumar]:

XC. Kap. Það sumar voru illar nýtingar fyrir sunnan, helst þar sem ei var þurrlendi, en þó heyjaðist víða eigi all-lítið. (s 119). Það sumar var víða grasgott, nýttist vel fyrir norðan þó votsamt væri, og allt var sumar hið besta fyrir austan. Hvali rak hér og hvar, og tvo mikla á Vestfjörðum, seint um sumarið. (s 121). Þá var fólk á landi hér á áttunda hundraði hinnar fimmtugustu þúsundar. (s 121).

Brandsstaðaannáll [haust og vetur til áramóta]:

Haustið oft frostamikið og ekki fannir miklar, um veturinn blotasamt og hörkur á milli, óstöðugt, en þó víðast nóg jörð til nýárs. (s38)

Sveinn Pálsson ritar talsvert um veður á árinu 1801 - verst hvað ritstjóra hungurdiska gengur illa að komast fram úr skrift hans. Það sem hér fer á eftir er því misáreiðanlegt því hætta á mislestri er veruleg.

Getið er um sterka jöklafýlu þann 12.janúar. Þó umhleypingasamt hafi verið í janúar og febrúar getur Sveinn aldrei um storm í þessum mánuðum - en 8 sinnum í mars. Sveinn var í Reykjavík seint í júní. Í mánaðaryfirlitinu kvartar hann undan tíðinni, þrálátri þokufullri og óþægilegri suðvestanátt. Að kvöldi þess 25. júní hafi gengið í sterkan („hæftig“) storm með sjógangi. Þá hafi bátum hlekkst á. Um nóttina hafi snjóað niður í byggð (sjálfsagt útsynningsél). Fram eftir júlí var vindur aðallega af vestri og oft þoka - en síðan varð áttin norðlægari í nokkra daga - oftast skýjað og fjallaskúrir. Hann segir mjög hlýtt þann 17.júlí. Þann 19. var sunnan stormur og rigning. Suðlægar og suðvestlægar áttir voru ríkjandi í ágúst oft rigning eða skúrir - en fáeinir flæsudagar, t.d. 12. til 14. Seint í mánuðinum fór Sveinn aftur austur í Kotmúla. Næturfrost gerði snemma í september og þrumuveður með óvenjusnörpu hagli þann 15. Svo er að sjá að í kringum 10.desember hafi verið mikið frost hann giskar á -15 til -20°R (-19 til -25°C) - og minnist á meiri frostbresti en hann hafi áður heyrt. Jörð hafi sprungið í kringum hús í Odda á Rangárvöllum. Frost í jörð hafi verið 1 3/4 alin [ekki fjarri 100 cm] í Þingvallakirkjugarði, en um 3/4 alin á Breiðabólstað í Fljótshlíð.

Brot úr dagbók Jóns Jónssonar í Möðrufelli - athugið að lestri ritstjórans er ekki alveg treystandi.

Jón segir janúar allan harðan vegna jarðbanna af áfreðum. Fyrsta vika febrúar var mild og stillt, önnur vika hans einnig still og gerði þá góða hláku. Mánuðurinn var – þrátt fyrir að veðrátta hefði ekki verið svo slæm - allur harður vegna sífelldra jarðbanna.Mars allur harður af jarðbönnum. Fyrri partur apríl ákaflega harður, en síðari partur batnaði með sumartungli. Hafís. Maí allur harður, nema síðasta vikan. Júní að vísu stillur að veðuráttu, enn oftast lofkaldur. Fyrsta vikan rétt góð og grænkaði jörð þá í betra lagi – en síðan spratt seint. Júlí allur mjög þurr og loftkaldur, en veðráttan stillt. Ágúst allur þurr og stilltur. September. Um tíma kaldur en yfirhöfuð góður. Vikan 6. til 12. september stillt, en óþurrkasöm er áleið, vikan 13. til 19. köld og fjöll alsnjóa, vikan 20. til 26. rétt góð og hagstæð. Október má yfirhöfuð teljast rétt sæmilegur nokkuð. Nóvember í meðallagi uppá veðráttu en jörð léleg. Desember allur í harðara lagi. Umliðið ár má víst teljast hart ár.

Úr tíðavísu Jóns Hjaltalín 1801:

Margt ángræði, mein og fár
mæddi svæði þetta ár
hjarl og víðir hörku bar
harðna tíðir víða hvar.

Orma myrðir ánauð bjó,
einatt stirður framast þó
gjörðu hretin hörkustands
harðan vetur norðanlands.

Örlynd góa illsku til
af sér snjóa fæddi byl
sem framundir sumarmál
svell um grundir barði hál.

Hrundu víða hross og féð
hjarðir lýða fenntu með
banasárin sveltið gaf
sumir skáru heyjum af.


Sveitar trega sumarið hratt
sæmilega grasið spratt
skaða-næm þó nærði grand
nýting slæm um Suðurland.

Rosum hreyfði haustið þó,
hörkur, leysti frost og snjó.
skafla hvíta hauður ber
hagalítið víðast er.

Minnisverð tíðindi 3.árgangur 1.tölublað s121 segja frá því sem líklega var framhlaup í Bægisárjökli:

Um sumarið 1801 sáu menn hraun uppkomið í svokölluðum Bægisárjökli, er liggur til landsuðurs frá Yxnadalnum, hvert hraun aldrei fyrr skal sést hafa: hvaraf orsakaðist, að Bægisáin sjálf, ein lítil Þverá, er fellur í Hörgá, varð, móti allri venju að undanförnu, á lit, sem korgótt jökulvatn, hvað eð viðhélst frameftir öllu sumri, þá þessi þverá og jafnan var í ótíðvænlegum vexti, og vatnið að sögn volgt. Geta menn ekki ólíklega til, að orsökin til uppkomu nefnds hrauns hafi verið jarðelds hiti, en þótt þar annars ekki eigi að hafa sést merki til reyks eður eldsuppkomu.

Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um árið 1801. Sigurði Þór Guðjónssyni er þakkað fyrir innslátt Brandstaðaannáls og Hjördísi Guðmundsdóttur fyrir innslátt Árbóka Espólíns (stafsetningu hnikað hér - mistök við þá aðgerð sem og allan annan innslátt eru ritstjóra hungurdiska). Örfáar tölur í viðhengi.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Kuldakast (páskahret)

Það virðist stefna í snarpt kuldakast um helgina og að það verði viðloðandi á einhvern hátt alla næstu viku. En spár gefa nú (að kvöldi skírdags) til kynna að við sleppum við mesta hvassviðrið - það ryðst til suðurs fyrir austan land. - Nóg samt. 

w-blogg010421a

Við sjáum hér spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hita í Reykjavík næstu daga, frá fimmtudegi - fram á fimmtudag í næstu viku. Höfum í huga að margs konar staðhætti vantar í líkan reiknimiðstöðvarinnar - en aðalatriði koma vel fram. Hitakvarðinn er lengst til vinstri, af honum má ráða að hiti á að vera á bilinu 4 til 6 stig fram undir kvöld á laugardag - en þá kólnar snögglega (sé að marka spána) og á sunnudagskvöld á að vera komið -7 stiga frost. Þrettán stiga hitasveifla - sem er býsna mikið í Reykjavík við það að „skipta um loft“, Síðan á að hlýna nokkuð aftur - en búist er við öðru kasti á miðvikudaginn með þónokkurri hitasveiflu og ámóta frosti.

w-blogg010421b

Kortið hér að ofan sýnir spá um hita í 850 hPa-fletinum (litir) og þykkt (heildregnar línur) um hádegi á páskadag. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því minni sem hún er því kaldara er loftið. Það er sjaldan sem við sjáum svona lágar tölur við landið í apríl. Ekki stefnir þó í met að því er sýnist - þó ekki muni mjög miklu. 

Ef hægt er að tala um að eitthvað sé hagstætt í þessu miðað við ámóta eldri tilvik má nefna tvennt: Annars vegar að hreyfistefna kuldans er okkur hagstæð - hann er á mikilli siglingu til suðausturs - og kaldasta loftið fer fljótt hjá. Hvassviðrið nær sér eitthvað á strik - sérstaklega austanlands - en það stendur ekki lengi og versta veðrið er alveg austan við landið. Hins vegar er mjög lítill ís í norðurhöfum og sjór er hlýr norðan við land miðað við það sem hann var t.d. 1968 og 1963 þegar þykktin (og hiti í 850 hPa) varð jafnlítil eða minni heldur en nú. Það þýðir að sjórinn nær að hita kaldasta loftið um nærri 1 stig á klukkustund á leið þess frá ísjaðrinum til landsins. Því var t.d. ekki að heilsa 1968 eða 1963. 

Bæði 1963 og 1953 lenti vindstrengurinn yfir landinu og lá þar - sem virðist ekki eiga að gerast nú. Kastið 1968 var líkara því nú hvað vind varðar. Við eigum líka fleiri ámóta köst á lager, t.d. páskahretið fræga 1917 - sem var mjög líkt 1863 hretinu (nema gróður varð ekki eins illa úti vegna þess að hann var ekkert kominn á legg þegar kastið reið yfir). Sömuleiðis var svipað uppi á teningnum 1920. 

En þó óneitanlega sé ættarsvipur með þessu yfirvofandi hreti og þeim fyrri er hvert og eitt með sínum sérstöku einkennum - ekkert þeirra er nákvæmlega eins. Norðvestanátt á að ríkja í háloftum næstu vikuna - hún er afskaplega svikul - henni fylgir oft hið besta bjartviðri - jafnvel hlýindi á þeim tíma árs sem sól er hæst á lofti - en oft er hún hið allraversta sem yfir okkur getur gengið - með ísköldum norðansveljanda og hríðarköstum heilu vikurnar út - jafnvel þótt langt sé komið fram á vor. 


« Fyrri síða

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 356
  • Sl. sólarhring: 358
  • Sl. viku: 1930
  • Frá upphafi: 2350557

Annað

  • Innlit í dag: 273
  • Innlit sl. viku: 1722
  • Gestir í dag: 259
  • IP-tölur í dag: 257

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband