Sérlega hlýtt loft yfir landinu í dag (en stóð stutt við)

Gríðarlega hlýtt loft var yfir landinu í dag (fimmtudag 24. nóvember) - og reyndar sló því niður sums staðar um landið austanvert. Þegar þetta er skrifað hafði hiti á Dalatanga komist í 20,1 stig. Þetta er nýtt landsdægurmet (en slík falla að jafnaði nokkur á hverju ári). Tuttugu stig hafa aðeins einu sinni mælst síðar að hausti. Það var fyrir þremur árum að hiti fór í 20,2 stig á Dalatanga þann 26. nóvember. Má um það lesa í gömlum pistli hungurdiska.

Þuklforrit ritstjóra hungurdiska segir hámarkshitann á Dalatanga í dag þann hæsta sem þar hefur mælst á þessu ári (2016) - rétt að hinkra augnablik með að staðfesta það. - Það er ekki dæmalaust á einstökum stöðvum að hæsti hiti ársins falli utan sumarsins. Um þennan „sjúkdóm“ var fjallað í pistli hungurdiska í desember 2010 - þá var vitað um fjögur tilvik í nóvember. 

w-blogg251116a

Þykktarkort evrópureiknimiðstöðvarinnar sem gildir kl.18 í dag sýnir að hámarkið 5560 metra við Austfirði. Þykktin mælir meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs og svona há tala þykir bara nokkuð góð um hásumar og heldur sjaldséð í nóvember - en ekki einstök þó. 

Hlýindi sem þessi að vetrarlagi eru sýnd veiði en ekki gefin - erfitt er að koma þeim niður til mannheima - engin sólarylur til að hjálpa til og oftast er verið að eyða varma í snjóbræðslu. Dugar lítt nema töluverður vindur og fjöll til að búa til þá lóðréttu hreyfingu og blöndun sem til þarf. 

Litirnir á kortinu sýna hita í 850 hPa-fletinum, í um 1400 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar er hæsta talan við Austurland 11 stig.

w-blogg251116b

Við getum reynt að draga 850hPa-hlýindin niður til sjávarmáls (strangt tekið 1000 hPa-flatarins) og kortið sýnir niðurstöðu slíkar æfingar - útkoman er kölluð mættishiti, til aðgreiningar frá þeim sem við mælum beint með hitamæli. Á kortinu er mættishiti við Austfirði 25,0 stig. - Það er alltaf rétt hugsanlegt að hiti nálgist þá tölu - en mjög ólíklegt þó á þessum árstíma. - Mun þó sjást einhvertíma í framtíðinni þegar vel hittir á - bíðum við nægilega lengi og mælum nógu víða og oft - og það er alveg óháð auknum gróðurhúsaáhrifum - lottóið lætur ekki að sér hæða. 

En - það má benda á kuldann yfir Grænlandi - þar er þykktin í vetrarveldi. Að hluta til er raunar um sýndarþykkt í líkaninu að ræða - sem ekki getur hreyfst frá Grænlandi - en ekki bara. Það er mjög kalt loft við Grænland, að sögn fór frost á stöðinni á Grænlandsbungu (3000 metra yfir sjávarmáli) í -57 stig í dag (óstaðfest) - óvenjumikið ef rétt er. 

Þetta kalda loft verður að voma yfir okkur næstu vikuna - sumar spár eru að reyna að slá því suður til okkar undir miðja næstu viku - alla vega um tíma - en aðrar telja ekki verulega hættu á ferðum - stundarkulda þó. En full ástæða er til að fylgjast með þessu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 316
  • Sl. sólarhring: 460
  • Sl. viku: 1632
  • Frá upphafi: 2350101

Annað

  • Innlit í dag: 283
  • Innlit sl. viku: 1486
  • Gestir í dag: 276
  • IP-tölur í dag: 266

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband