Tuttugu maídagar

Tuttugu dagar liðnir af maí - blessunarlega tíðindalitlir í veðri - slatti þó af fallegum sólarlögum (og nú er maður farinn að sjá upprásina líka). Mikið mistur og rykfall gekk yfir suðvesturhornið - sennilega mest innlend framleiðsla - en svo hittist reyndar á að erlendar greiningar sáu eitthvað fleira á ferð. - En meðalhiti dagana 20 er 6,0 stig í Reykjavík, nákvæmlega í meðallagi 1991 til 2020 og -0,1 stigi neðan við meðalhita sömu daga síðustu tíu árin. Hitinn raðast í 10.sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru dagarnir 20 árið 2008, meðalhiti þá 8,1 stig, en kaldastir voru þeir 2015, meðalhiti 3,7 stig. Á langa listanum er meðalhitinn nú í 62.sæti (af 144). Hlýjastir voru dagarnir 20 árið 1960, meðalhiti 9,3 stig, en kaldastir 1979, +0,5 stig.

Meðalhiti á Akureyri er nú 4,8 stig, -0,6 stigum neðan meðallags 1991 til 2020, en -0,7 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Við Faxaflóa, Breiðafjörð og á Suðurlandi raðast hitinn nú í 10.sæti á öldinni, en öllu kaldara hefur verið austanlands, hitinn raðast í 17.sæti á Austurlandi að Glettingi og á Austfjörðum. Hiti er rétt ofan meðallags síðustu tíu ára á fáeinum stöðvum suðvestanlands, mest +0,2 stig í Grindavík og við Reykjanesbraut, en kaldast að tiltölu hefur verið á Gagnheiði, hiti þar -2,2 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma er neðan meðallags. hefur mælst 14,6 mm í Reykjavík og er það tæplega helmingur meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 4,5 mm, rúmur fjórðungur meðalúrkomu. Úrkoma hefur þó oft mælst minni sömu daga.

Sólskinsstundir hafa mælst 155,9 í Reykjavík, um 20 stundum umfram meðallag 1991 til 2020. Á Akureyri hafa mælst um 107 stundir.

 

Svo virðist sem hvorki stórhlýindi né teljandi áföll séu í kortunum á næstunni. 


Fyrri hluti maímánaðar

Maímánuður hefur verið stórtíðindalítill hvað hitafar varðar. Meðalhiti fyrstu 15 dagana í Reykjavík er 5,7 stig, það er -0,2 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -0,3 neðan meðallags síðustu tíu ára og raðast í 11. hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2008, meðalhiti þá +8,3 stig, en kaldastir voru þeir 2015, +2,8 stig. Á langa listanum er hitinn í 63.sæti (af 144). Hlýjastir voru sömu dagar 1960, meðalhiti 9,4 stig, en kaldastir 1979, meðalhiti 0,3 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 15 daga mánaðarins 4,5 stig, -0,7 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og síðustu tíu ára.

Kaldast að tiltölu hefur verið á Austfjörðum, þar sem hitinn er í 16.sæti (af 20) á öldinni, en um sunnan- og vestanvert landið er hann í 12.sæti.

Hiti er rétt ofan meðallags síðustu tíu ára á fáeinum stöðvum suðvestanlands. Mest er jákvæða vikið í Surtsey og við Reykjanesbraut, +0,2 stig. Neikvætt vik er mest á Gagnheiði, -2,3 stig.

Mánuðurinn hefur það sem af er verið í þurrara lagi víðast hvar á landinu. Úrkoma í Reykjavík er nú 10,7 mm, rétt innan við helmingur meðalúrkomu, en hefur oft verið minni. Á Akureyri hafa aðeins mælst 4,5 mm - en hefur oft mælst minni. Það er um helmingur meðalúrkomu - eins og í Reykjavík. 

Sólskinsstundir hafa það sem af er mánuði mælst 118,4 í Reykjavík, 17 stundum ofan meðallags 1991 til 2020.

 


Óvenjudjúp lægð við Svalbarða

Nú er óvenjudjúp lægð við Svalbarða. Evrópureiknimiðstöðin segir þrýsting í lægðarmiðju vera um 958 hPa. Þetta er ekki algengt í maí. Lágþrýstimet maímánaðar hér á landi er 967,3 hPa, sett á Stórhöfða í Vestmannaeyjum þann 13. árið 1956. 

w-blogg130520a

Að auki er mikil hæð yfir „vestanverðu“ Norðuríshafi, 1042 hPa - ekki nærri því eins sjaldséð og lægðarþrýstingurinn - en samt. Lægðin grynnist á morgun og hreyfist til vesturs og síðar suðvesturs. Norðvestanvinds frá henni á að verða vart við Norðausturland á fimmtudagskvöld eða föstudag - en verður ekki sérlega mikill. 


Fyrstu tíu dagar maímánaðar

Hiti fyrstu tíu daga maímánaðar er ekki fjarri meðallagi. Meðaltalið í Reykjavík nú er +5,4 stig, -0,1 stigi neðan meðallags áranna 1991 til 2020, en -0,3 stigum neðan meðallags sömu daga síðustu tíu árin og raðast í 11.hlýjasta sæti (af 20) það sem af er aldar. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2011, meðalhiti þá +8,6 stig, en kaldastir voru þeir árið 2015, meðalhiti +1,7 stig. Á langa listanum er hitinn nú í 66.sæti af 144. Hlýjastir voru sömu dagar 1939, meðalhiti +9,1 stig, en kaldastir voru þeir 1979, meðalhiti þá -1,0 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu tíu daga maímánaðar 4,6 stig, -0,3 stigum neðan meðallags áranna 1991 til 2020, en -0,2 neðan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti er yfirleitt rétt neðan meðallags síðustu tíu ára á landinu, raðast í 10.hlýjasta sæti á Ströndum og Norðurlandi vestra, en í 15.hlýjasta sæti á miðhálendinu - á öðrum svæðum lendir hann í sætum þarna á milli.

Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Teigarhorni, hiti þar +0,8 stigum ofan meðallags, en kaldast að tiltölu hefur verið á Gagnheiði, hiti þar -1,6 stig neðan meðallags.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 1,6 mm - það er aðeins tíundihluti meðalúrkomu - en hefur alloft verið enn minni sömu daga. Á Akureyri hefur hún mælst 3,7 mm sem er líka allnokkuð undir meðallagi.

Sólskinsstundir hafa mælst 96,5 í Reykjavík og er það 32,1 stund fleiri en að meðallagi 1991 til 2020 - en hafa 14 sinnum mælst fleiri sömu daga síðustu 100 árin rúm, flestar 1958, 129,3.


Met - en þó ekki samanburðarhæft við annað

Síðastliðna nótt [9.maí] mældist -22,2 stiga frost á veðurstöðinni á Dyngjujökli, stöðin er í nærri 1700 metra hæð yfir sjávarmáli, sú langhæsta á landinu og í allt öðru veðurfari en allar aðrar stöðvar. Þann 2.maí 2013 mældist frostið á Brúarjökli -21,7 stig (í um 850 m hæð). Mesta frost sem mælst hefur í byggð í maí er -17,6 stig. Það mældist á Grímsstöðum á Fjöllum sama dag og metið var sett á Brúarjökli (2.maí 2013).

Athugað hefur verið á Dyngjujökli frá 2016, en mikið vantar í mæliröðina. Fjöldi meta mun því falla þar næstu árin verði athugunum haldið áfram. Hitamælir stöðvarinnar er ekki í staðalhæð (lægri en á öðrum stöðvum) - og því ekki um staðalaðstæður að ræða. - En út af fyrir sig er þetta lægsti hiti sem mælst hefur á íslenskri veðurstöð í maímánuði.  


Af sólskinsstundum (og lúmsku meti)

Tilefni þessara skrifa er lúmskt met sem sett var í Reykjavík í gær (föstudag 8.maí). Sólskinstundir mældust þá 16,2 og hafa aldrei mælst fleiri þennan sama almanaksdag. Þetta er reyndar í annað sinn á árinu sem sólskinsstundadægurmet fellur í Reykjavík. Mælt hefur verið í um 100 ár og því má búast við því að 3 til 4 slík met falli á hverju ári - að jafnaði. Að dægurmet sé slegið er því ekki svo sérlega merkilegt - gerðist líka 8.mars. En metið í gær er örlítið merkilegra - 16,2 stunda sólskin hefur nefnilega aldrei mælst áður svo snemma vors. 

En sólskinsstundir eru nú mældar með tveimur mælum í Reykjavík. Annars vegar svokölluðum Campbell-Stokes glerkúlumæli - og hins vegar með sjálfvirkum geislunarskynjara. Þegar sólin skín í gegnum kúluna brennir hún svartan blett (ræmu sé sólskinið samfellt) í pappír sem liggur í sæti bakvið kúluna. Margt getur farið úrskeiðis í mælingum sem þessum, en þær eru samt býsna öruggar þegar á heildina er litið, því margt getur líka farið úrskeiðis í geislunarskynjurum nútímans - þar er reyndar fleira sem getur beinlínis bilað heldur en í eldri mælum. 

En mælagerðirnar tvær sýna ekki alltaf nákvæmlega sömu tölu. Einn af megingöllum eldri gerðarinnar er að hér á norðurslóðum er sólargangur svo langur á sumrum að pappírssætið vill skyggja á sólina seint á kvöldin - og eldsnemma morguns. Mælt er með því að á norðurslóðum séu mælt með tveimur mælum - annar snýr þá til suðurs, en hinn til norðurs. Það hefur reyndar aldrei verið gert hér á landi. Þó mælarnir eigi ekkert að hafa breyst í meir en 100 ár er það samt þannig að svo virðist sem sá mælir sem notaður var fyrir 90 til 100 árum hafi ekki skyggt alveg jafnmikið á og sá sem nú er í notkun. 

Þannig er það að sjálfvirki mælirinn í Reykjavík geti mælt aðeins fleiri sólarstundir heldur en hinn þá daga sem sól er hæst á lofti í Reykjavík. 

Þetta var þannig í gær, gamli mælirinn mældi þá 16,2 stundir, en sá nýi 16,7. Það er líka dægurmet í þeirri mæliröð - og líka það mesta sem mælst hefur svo snemma vors. 

En lítum á mynd sem sýnir samanburð dægurmeta mæligerðanna tveggja. Mælingar þess sjálfvirka hafa staðið samfellt (næstum því) frá og með árinu 2006, en í hinni röðinni notum við mælingar allt aftur til 1911 - fyrstu 13 árin vantar að vísu dálítið í mælingarnar. 

w-blogg090520a

Rauða linan sýnir mesta sólskinsstundafjölda hvers almanaksdags eins og hann hefur mælst með gamla mælinum, en bláa þreparitið það mesta sem sjálfvirki mælirinn hefur skráð sömu daga. Við sjáum strax að sjálfvirka röðin er mun styttri en hin - allir almanaksdagar ársins hafa á 100 árum einhvern tíma verið sannir sólskinsdagar, en ekki á þeim stutta tíma sem sjálfvirki mælirinn hefur verið í notkun - það mun þó smám saman gerast. Með reiknikúnstum mætti e.t.v. giska á meðalskýjahulu með samanburði á þessum tveimur röðum. 

Það er líka eftirtektarvert að frá því um miðjan maí og fram yfir miðjan júlí eru allmargir dagar þar sem sjálfvirki mælirinn hefur mælt fleiri sólskinsstundir en nokkru sinni hafa mælst á gamla mælinn sama almanaksdag. Þetta er einmitt sá tími sem rætt var um hér að ofan - armar pappírssætisins skyggja á sólina þegar sólargangur er hvað lengstur. 

Nú styttist væntanlega í að gamla mælinum verði alveg lagt - ritstjóri hungurdiska er reyndar alveg á móti því - en verður væntanlega að beygja sig fyrir nýjum tímum rétt eins og elli kerlingu - og að því mun koma að pappír verður ófáanlegur í gamla mælinn. Vonandi verður mælingum þessum þó haldið áfram að minnsta kosti til næstu áramóta, en þá lýkur meðaltalstímabilinu 1991 til 2020. Ljóst er að mælingar nýja mælisins eru ekki alveg sambærilegar við þær gömlu. Eins og sjá má hér að ofan er líklegt að sólskinsstundir að sumarlagi verði ívið fleiri en áður á næstu árum - séu tölur nýja mælisins bornar saman við eldri tölur - án einhverra „leiðréttinga“. Veðurfræðingar framtíðarinnar munu þó varla falla í þá gildru - leiðréttingar verða gerðar - eins og þörf er á í öllum löngum mæliröðum hverju nafni sem þær nefnast. 


Að mestu framhjá - þó ekki alveg

Talvert kuldakast er í uppsiglingu við Norður-Grænland. Það á að skjóta sér til suðurs næstu daga en fer að mestu framhjá fyrir austan land. Ekki sleppum við þó alveg og sé eitthvað að marka spár má gera ráð fyrir töluverðu næturfrosti víða um land um helgina. 

w-blogg060520a

Hér er háloftastaðan eins og evrópureiknimiðstöðin telur hana verða síðdegis á föstudag (8.maí). Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar og má af þeim ráða vindátt og vindstyrk í rúmlega 5 km hæð yfir sjávarmáli. Litir sýna þykktina en hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs, því minni sem hún er því kaldara er loftið. 

Kuldinn er hér hvað mestur vestur af Jan Mayen, þykktin þar á að verða um 5000 metrar, en sjórinn, þó hann sé ekki sérlega hlýr, 1 til 2 stig á þeim slóðum, dregur samt úr kuldanum. Sólarhring síðar á kjarni kuldapollsins að vera kominn suður á 65 gráður norðlægrar breiddar - miðja vegu milli Íslands og Noregs - um 3 stigum hlýrri en á kortinu hér að ofan. Á sunnudag verður kjarni kuldans við Mæri í Noregi, og þykktin þá þá um 5140 metrar - og hefur hlýnað um 7 stig. 

Séu þessar spár réttar er líklegt að það snjói langt niður í byggðir í Noregi og vel niður í fjöll í Skotlandi. Norðmenn eru svosem ekki óvanir snjó í maí, ritstjórinn man töluverðan snjó í Bergen um miðjan maí þegar hann dvaldist við nám þar. Sá snjór stóð reyndar afskaplega stutt við. 

Þó meginkuldinn virðist fara framhjá Íslandi að þessu sinni má kannski muna að svona kuldapollar á ferð hallast oftast. Mestur kuldi í neðstu lögum lofthjúpsins er því vestar í þessum kuldapolli heldur en háloftakuldinn - að auki er meginhluti landsins enn snævi þakinn - þó autt sé í byggðum. Meðan varmi frá sjónum vinnur við að brjóta kulda í lofti á bak aftur allan sólarhringinn er því öðru vísi farið yfir landi. Sól og autt land sjá um að eyða honum að deginum - en nótt og snjór styðja við kuldann. Drjúgmikið næturfrost getur því orðið í kuldakasti sem þessu - þótt þykktin yfir landinu hafi oft orðið lægri í maí. Eitthvað tefur þetta gróður.

Þó þetta kuldakast verði vonandi ekki teljandi og gangi fljótt hjá er ekki mikil hlýindi að sjá í framhaldinu - vorið hefur sinn hæga gang. 


Enn af apríl

Aprílmánuður 2020 var hlýr í háloftunum yfir landinu - þrátt fyrir kuldalega byrjun.Hér að neðan má sjá meðalhæð 500 hPa-flatarins, þykktarinnar og þykktarvik í mánuðinum. 

w-blogg030520a

Jafnhæðarlínur eru heildregnar - við sjáum að veikur hæðarhryggur var yfir landinu. Daufar strikalínur sýna meðalþykktina - hún var 5322 metrar yfir miðju landinu, um 40 metrum meiri en að meðallagi 1981 til 2010. Hiti í neðri hluta veðrahvolfs því um 2 stigum ofan meðallags þessara ára. Meðalhiti í byggðum landsins í apríl var 2,8 stig og er það um +1,0 stigum ofan meðallags sömu ára. Háloftahlýindin hafa ekki notið sín til fulls (þau gera það sjaldan alveg). 

Eins og oft hefur verið minnst á á þessum vettvangi áður styttist í að meðaltalinu 1961 til 1990 verði lagt endanlega og nýtt tekið upp sem þá nær til áranna 1991 til 2020. Athyglisvert verður að bera þessi tvö tímabil saman. Við sjáum í mánaðauppgjörum norsku og dönsku veðurstofanna að þær eru þegar farnar að gera það hvað hita varðar og úrkomu líka (að hluta til). Svo vill til að mesta vetrarhlýnunarþrepið var stigið í þessum löndum rétt fyrir 1990, en ekki fyrr en rúmum áratug síðar hér á landi. Þannig er hlýnun milli aprílmánaða tímabilanna tveggja talsvert meiri í bæði Noregi og Danmörku heldur en hér (um +1,5 stig þar, en +0,8 stig hér). Tölur hér (fyrir byggðir landsins) eru nú +1,4 stig fyrir janúar, +1,2 stig fyrir febrúar, +1,0 stig fyrir mars og +0,8 stig fyrir apríl (eins og áður sagði). Ætli maíhlýnunin verði ekki um +0,6 stig. Þetta eru allt stórar tölur á 30 árum - en segja að sjálfsögðu ekkert um framtíðina. Við lítum vonandi betur á þær síðar. 

Bolli Pálmason bjó til kortið. 


Smávegis af apríl

Mjög kalt var í veðri framan af aprílmánuði og útlit var fyrir að hann yrði í hópi hinna köldustu á öldinni. Þó ekki sé beinlínis hægt að tala um hlýindi síðustu tíu dagana hafa þeir samt verið góðir og nægt til þess að koma hitanum upp í meðallag síðustu tíu ára á landsvísu og upp í 9. til 13. sæti (af 20) á aldarlista hinna mismunandi spásvæða. Hlýjast að tiltölu hefur verið á Norðausturlandi, þar er mánuðurinn í 9.hlýjasta sæti á öldinni, en kaldast að tiltölu hefur verið á Suðurlandi, þar er hann í 13.sæti. Til lengri tíma litið telst mánuðurinn í hlýja þriðjungi, á landsvísu í 33. hlýjasta sæti af 147. 

Úrkoma í Reykjavík mældist 74,6 mm - það er í ríflegu meðallagi. Á Akureyri mældist úrkoman 33,1 mm sem er líka rétt ofan meðallags. Þetta eru óstaðfestar tölur. 

Lengi vel var mjög sólarlítið í Reykjavík, en síðustu dagar hafa verið óvenjusólríkir. Endanleg summa liggur ekki fyrir, en gæti orðið í kringum 115 stundir. Það er nokkuð undir meðallagi. Fæstar sólskinsstundir sem við vitum um í apríl í Reykjavík mældust 1974, 57,2, en flestar 242,3 árið 2000. Í fyrra mældust sólskinsstundir í apríl 116,4 í Reykjavík. Á Akureyri eru sólskinsstundirnar á sjálfvirka mælinum nú orðnar rúmlega 180 - en við bíðum fram í næstu viku með uppgjör úr þeim hefðbundna. Líklega telst apríl sólríkur á Akureyri. 

Illviðrið snemma í mánuðinum er í flokki hinna verstu í apríl. Sennilega í hópi þeirra 10 verstu síðustu 100 árin.  


Öðruvísi mér áður brá

Undanfarna daga hafa fréttir borist um ísrek í Grænlandssundi og að ísinn hafi nálgast land. Þessar fréttir eru auðvitað réttar og alltaf ástæða til að vara sæfarendur við jökum. En sannleikurinn er samt sá að sérlega lítið er af ís á þessum slóðum. Það litla sem er er sundurtætt og nánast hvergi um samfelldan ís að ræða í sundinu. 

w-blogg300420a

Hér má sjá klippu úr modis-gervihnattamynd sem birtist á vef Veðurstofunnar í gær (29.apríl). Það er með ólíkindum hvað ísmagnið er rýrt miðað við árstíma, ef öllu væri safnað saman yrði úr örmjór straumur suðvestur sundið. 

Ísinn liggur í röstum - sem mótaðar eru af straumum og vindi - og iðuvarðveislu (engin miskunn þar). 

Öðruvísi mér áður brá. Athygli vekur að autt er með nánast allri Blosseville-strönd. Sjálfsagt gerist það alloft að vindur hreinsi ís þar frá á mjóu belti, en þetta er að jafnaði hvað óaðgengilegasta svæði á allri Grænlandsströnd sunnan 75. breiddarstigs. Ófær ís er oft á þessum slóðum allt sumarið. Gera má ráð fyrir því að forfeður okkar hafi einhvern tíma séð til strandar á þessum slóðum á sínum tíma og trúlega eitt og eitt skip á síðari öldum. Ströndin er kennd við franskmanninn Jules de Blosseville sem sá þar til strandar 1833, laskaði skipið - sneri til Íslands til viðgerðar. Þegar henni var lokið reyndi hann aftur - en til hans og áhafnar hans hefur ekki spurst síðan. Inúítar höfðu auðvitað farið þarna hjá, en Blossevilleströnd, frá Kangerlussuaqfirði (þar sem þeir höfðu talverða sumarútgerð á stundum) norður til Brewsterhöfða sunnan Scoresbysunds var rýr vegna ísa og illviðra. 

Frá erfiðri könnunarsögu Austur-Grænlands er sagt í góðri bók - titillinn er að vísu fádæma kauðalegur - (sjá mynd hér að neðan). 

Still000535

Á árum áður var sum sé nánast aldrei íslaust á þessum slóðum - jafnvel þó íslítið væri norðar. 

Satt best að segja er ritstjóri hungurdiska undrandi á þessari ísrýrð á þeim árstíma þegar ísmagn er venjulega í hámarki á þessum slóðum. Hefur þó gerst áður. Ekki hefur ritstjórinn neitt vit á lífkerfi hafísslóða - en ástand sem þetta hlýtur að reyna nokkuð á. 

En eins og sagði í upphafi er allaf rétt að gefa ísnum gaum - hann getur valdið hættu fyrir sæfarendur og svo er spurning um ísbirni á hrakningi. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg170925b
  • w-blogg170925a
  • w-blogg130925-ak-a
  • w-blogg130925a
  • w-blogg130925b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 38
  • Sl. sólarhring: 90
  • Sl. viku: 1673
  • Frá upphafi: 2499668

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 1522
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband