Smávegis af apríl

Mjög kalt var í veðri framan af aprílmánuði og útlit var fyrir að hann yrði í hópi hinna köldustu á öldinni. Þó ekki sé beinlínis hægt að tala um hlýindi síðustu tíu dagana hafa þeir samt verið góðir og nægt til þess að koma hitanum upp í meðallag síðustu tíu ára á landsvísu og upp í 9. til 13. sæti (af 20) á aldarlista hinna mismunandi spásvæða. Hlýjast að tiltölu hefur verið á Norðausturlandi, þar er mánuðurinn í 9.hlýjasta sæti á öldinni, en kaldast að tiltölu hefur verið á Suðurlandi, þar er hann í 13.sæti. Til lengri tíma litið telst mánuðurinn í hlýja þriðjungi, á landsvísu í 33. hlýjasta sæti af 147. 

Úrkoma í Reykjavík mældist 74,6 mm - það er í ríflegu meðallagi. Á Akureyri mældist úrkoman 33,1 mm sem er líka rétt ofan meðallags. Þetta eru óstaðfestar tölur. 

Lengi vel var mjög sólarlítið í Reykjavík, en síðustu dagar hafa verið óvenjusólríkir. Endanleg summa liggur ekki fyrir, en gæti orðið í kringum 115 stundir. Það er nokkuð undir meðallagi. Fæstar sólskinsstundir sem við vitum um í apríl í Reykjavík mældust 1974, 57,2, en flestar 242,3 árið 2000. Í fyrra mældust sólskinsstundir í apríl 116,4 í Reykjavík. Á Akureyri eru sólskinsstundirnar á sjálfvirka mælinum nú orðnar rúmlega 180 - en við bíðum fram í næstu viku með uppgjör úr þeim hefðbundna. Líklega telst apríl sólríkur á Akureyri. 

Illviðrið snemma í mánuðinum er í flokki hinna verstu í apríl. Sennilega í hópi þeirra 10 verstu síðustu 100 árin.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Vegna síðustu seningar)... Af völdum lægða trúi ég;hlýtur að hafa birst á Rúv. Þetta er nú talsvert  víðáttu mikið svæði og samkvæmt þesu illviðri sem ég upplifði í apríl fylgir því engin hlýindi. datt í hug fyrirbrigði sem kallast "svikalogn" gæti spurt Goggle en það kemur skýrara frá þér,ef þú nennir.  

Helga Kristjánsdóttir, 1.5.2020 kl. 06:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 426
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband