Hugsað til ársins 1959

Tíðarfar á árinu 1959 var talið sæmilega hagstætt fyrir utan nokkrar erfiðar illviðrasyrpur. Sumarið var heldur óþurrkasamt. Janúar var kaldur. Þurrt og bjart veður og tíð hagstæð á Suður- og Vesturlandi, en var talin óhagstæð á Norður- og Austurlandi. Gæftir voru góðar. Febrúar var óhagstæður og sérlega illviðrasamur, mikil sjóslys urðu og víða skaðar til landsins. Hlýtt var í veðri. Talsverður snjór var fyrstu viku marsmánaðar en síðan var tíð mjög hagstæð, hlýtt var í veðri. Apríl var talinn fremur óhagstæður gróðri. Gæftir voru góðar og hiti nærri meðallagi. Góð tíð var í maí nema fyrstu vikuna, gróðri fór vel fram, gæftir voru góðar og hlýtt var í veðri. Mjög rysjótt og hretasamt var í júní fram undir þann 20., en þá batnaði tíð. Júlí var hæglátur, graspretta var góð, en þurrkar daufir. Í ágúst var tíð óhagstæð til heyskapar um mikinn hluta landsins. Hiti í meðallagi. Hlýtt var í september og tíð hagstæð norðaustanlands, en annars var óþurrkasamt. Október var óvenjuhlýr, Blóm sprungu út í görðum og ber voru víða óskemmd mestallan mánuðinn. Tíð talin mjög góð norðaustan- og austanlands, en úrkomusöm annars staðar. Gæftir voru stirðar. Tíð var óstöðug í nóvember, en fyrir utan illviðri i kringum þann 10. var hún samt talin hagstæð. Sama var með desember, þá var lengst af hagstæð tíð.

Hér að neðan er farið yfir helstu fregnir af veðri á árinu 1959. Aðalritheimildir er að finna timarit.is, en töluheimildir eru í gagnagrunni Veðurstofunnar. Þetta ár vísum við mest í Tímann, þar voru oftast greinargoðar fregnir af veðri og tjóni af þess völdum. Sömuleiðis er margt úr Veðráttunni, tímariti Veðurstofu Ísland. Pistlar sem vitnað er í eru margir styttir, stafssetning oftast færð til nútímahorfa, en orðfæri nær ekkert breytt. Vonandi að höfundar texta láti sér þetta lynda - og er þeim þökkuð eljan. 

Norðlæg átt var nær samfellt ríkjandi fyrstu þrjár vikur janúarmánaðar og rúmlega það. Mjög kalt var í veðri, samfelld bjartviðri sunnanlands, en éljagangur á Norður- og Austurlandi. Samfelld hríð var þar sum daga, sérstaklega undir þann 20. Gæftir voru taldar óvenjugóðar og róið var úr verstöðvum flesta daga. Þann 24. skipti snögglega um. Við tóku umhleypingar, þar sem skiptust á sunnanrigningar og útsynningshryðjur. Þann 2. janúar fauk lítið gróðurhús í norðanveðri í nágrenni Selfoss og þann 4. fórst lítil flugvél með fjórum ungum mönnum um borð í Grjótárdal við Vaðlaheiði. Truflanir voru tíðar á samgöngum nyrðra, en greiðfært syðra. Í Tímanum þann 9. janúar er frétt um ferð Öræfinga austur til Hafnar:

Öræfum í gær. — Á morgun verður farið héðan á bifreiðum til fiskkaupa í Höfn í Hornafirði og er það fyrsta kaupstaðarferð Öræfinga þangað á þessum vetri. Farartækjum er nú fært þessa torsóttu leið, vegna þess að ísalög eru hér mikil, og svo það, að Jökulsá á Breiðamerkursandi er það vatnslítil orðin vegna frostanna undanfarið, að hún dregur ekki lengur til sjávar og má fara yfir hana frammi við sjó.

Ísalög voru á Hvammsfirði. Tíminn segir frá 22. janúar:

Hvammsfjörður er lagður út í Röst. Hægt er að klöngrast yfir Bröttubrekku með ýtrustu varúð, en vegagerðin hefir skafið upp svellalögin á henni með jarðýtu á þriðjudögum. Samgöngur innan héraðs eru ágætar. Snjóföl er á jörðu og 14—15 stiga frost. Bændur gefa fulla gjöf.

Í sama blaði eru einnig fregnir af vatnsleysi vegna frosta í Borgarnesi. Hungurdiskar hafa áður fjallað um það mál í pistli og verður ekki endurtekið hér.

Þann 21. féll snjóflóð við Arnórsstaði á Jökuldal, 30 kindur drápust, en maður sem lenti í flóðinu bjargaðist. Tíminn segir af þessu atviki í frétt þann 25.janúar:

Gróf sig úr snjóflóði með fölskum tanngarði, sleit af sér stígvél og sokka. Bóndi á Jökuldal sýnir ótrúlegt þrek og karlmennsku. Á fimmtudaginn var Jón Þorkelsson, bóndi á Arnórsstöðum á Jökuldal staddur með fé sitt í svokallaðri Loðinshöfðagjótu undir samnefndum höfða. Steyptist þá snjóflóð úr höfðanum yfir bóndann og gróf hann og hund hans og 30 kindur í fönn. Þetta gerðist um klukkan þrjú og var Jón á leið með fjárhópinn að beitarhúsunum. Þegar Jón raknaði við gekk honum erfiðlega að losa sig. Snjórinn var fastur og erfitt um vik fyrir hann að grafa sig út. Tók hann þá út sér falskan tanngarð og gróf með honum uns hann var kominn uppúr snjólaginu sem var hálfur metri á þykkt. Jón kom heim klukkan langt gengin ellefu um kvöldið og reiknaðist honum svo til að hann hefði losnað úr fönninni klukkan tíu. Ekki vissi hann hvenær hann hafði raknað við og var því ekki fullljóst hvað hann var lengi að grafa sig út. Í fönninni hafði hann slitið af sér bæði stígvélin og tvenna sokka af öðrum fæti. Hann hafði fært bera fótinn i annan sokkanna, sem hann hafði á hinum fætinum og kom heim þannig til reika. Hann var þrekaður, ringlaður og með kuldabólgu, en hresstist brátt. Kindurnar fórust. Rakkinn sem var með Jóni, þegar hann lenti í snjóflóðinu, hafði grafið sig úr, en kindurnar 30 talsins. sem lentu i fönninni fórust allar. Þær voru eign Jóns.

Tíðarfar í janúar og febrúar var sérlega ólíkt. Kortin hér að neðan sýna hæð 500 hPa-flatarins og vik frá meðaltali.

Slide1

Norðvestlæg átt var ríkjandi í veðrahvolfi í janúar (norðan- og norðaustan við jörð). Mikil hæð sat yfir Grænlandi. Veður var stillt lengst af, bjartviðri mikil sunnanlands.

Slide2

Febrúar var hins vegar sérlega órólegur. Gríðarlegur vindstrengur bar hverja lægðina á fætur annarri yfir landið með tilheyrandi úrkomum og illviðrum. Sjór var mjög óstilltur. Eftir þetta varð talsverð breyting á veðurlagi, slæm útsynningsillviðri sem höfðu verið algeng næstu 10 árin á undan urðu nú sjaldséðari og hélst það ástand meira og minna allt til 1972. 

Undir lok janúar fóru vatnavextir að valda vandræðum. Tíminn segir frá þann 28. Fjallar fyrst um ísalög við Bíldudal. Við styttum nokkuð:

Bíldudal í gær: Mikill ís var kominn á höfnina, en losnaði frá á laugardag og dró bátana með legufærum með sér. Engar skemmdir urðu á bátunum og voru þeir sóttir út sama kvöld.

Hvítá, sem verið hefir í klakaböndum undanfarnar vikur, hefir nú rutt sig og flætt yfir bakka sína og þekur nú á þriðja þúsund hektara lands. Var það í fyrrinótt sem flóðið hófst og jókst það er á daginn leið. og jókst það er á daginn leið. Rennur hún nú yfir veginn hjá Skeggjastöðum á löngum kafla. Við Brúnastaði hefir áin lyft af sér íshellunni og eru bæirnir í hverfinu þar neðan við einangraðir. ... Austar í Flóanum hefir áin einnig rutt sig og stíflast og flæðir hún þar yfir bakka sina. Munu lönd Hjálmholts, Ölvaðsholts, Skeggjastaða. Brúnastaða og Miklaholtshellis vera að mestu undir vatni. Þó munu skemmdir á mannvirkjum ekki hafa orðið svo teljandi sé, nema girðingar hafa eyðilagst. ... Í Biskupstungum hefur undanfarna daga verið indælis veður og snjór er varla sjáanlegur. Má sem dæmi nefna um snjóleysið, að Sandfell, sem er fyrir ofan Geysi og annars er mjög snjóþungt, er nú algjörlega snjólaust, enda mun vera autt inn í innstu afrétt og sennilega fært inn í Hvítárnes.

Kirkjubæjarklaustri í gær. — Nokkur spjöll hafa orðið á vegum hér eystra í vatnavöxtum í hlákunni þessa daga. Geirlandsá flæddi mjög með jakaburði og gróf undan stöpli brúarinnar og er hún nú ófær nema gangandi fólki. Skaftá óx mjög, en gerði ekki skaða. Þá hljóp Skálm undan brúnni á veginum í Álftaveri og gróf sundur uppfyllingu við eystri brúarsporð, en bílar klöngrast þar yfir. Einnig hljóp Skógaá yfir veginn og skemmdi nokkuð.

Þann 28. ollu eldingar tjóni á símtækjum á Patreksfirði (Veðráttan). 

Sjóslysin miklu sem urðu um þetta leyti lögðust þungt á þjóðina. Þessi frétt var í Tímanum 1. febrúar:

Í gærmorgun varð það ljóst, að Grænlandsfarið Hans Hedtoft, sem rakst á ísjaka suður af Hvarfi á Grænlandi í fyrrakvöld [30.janúar], hafði farist með allri áhöfn og farþegum, alls 95 manns. Menn lifðu þó í veikri von fram eftir degi um að eitthvað mund i finnast, en sú von brást. Viðtæk leit skipa og flugvéla bar alls engan árangur. 

Hans Hedtoft var nýtt skip, í sinni fyrstu ferð, átti ekki að geta sokkið. Bjarghring skolaði síðla sumars eða um haustið á fjöru hér á landi - það var allt og sumt. 

Linnulítil hvassviðri gengu yfir mestallan febrúarmánuð. Tjón varð oft töluvert og stundum mikið. Hungurdiskar fjölluðu um illviðrið 18. febrúar (Hermóðsveðrið) í sérstökum pistli. Þar var einnig í stuttu máli gerð grein fyrir lægðaganginum. Verður það ekki endurtekið hér. Með Hermóði fórust 12 menn. Miklar ógæftir voru og komust bátar illa á sjó, þegar það var, varð oft tjón á veiðarfærum. Frá 8. til 18. gengu 6 illviðri yfir landið (þann 8., af suðri, 10., af suðvestri, 12. af suðaustri, 14. af vestri, 15. af suðri og suðvestri og þ. 18., af suðri, suðvestri og vestri). Lægðirnar sem ollu veðrunum þ. 14. og 15. voru sérlega krappar. 

Þann 4. febrúar brotnaði rúða í skólastofu á Akranesi í hvassviðri, þannig að lá við slysi.

Í blöðum eru nánast daglega smáfréttir af illviðrum, en tjón var oftast ekki mikið, en truflanir urðu á samgöngum, m.a. féll allt innanlandsflug niður í marga daga. Vísir segir frá þann 10.:

Í hvassviðrinu morgun í nótt og í morgun urðu einhverjar skemmdir á húsaþökum hér í bænum [Reykjavík] og bárust beiðnir til lögreglunnar um aðstoð. Meðal annars var lögreglunni skýrt frá því, að þak væri að fjúka af húsinu nr. 47 við Nesveg. Ennfremur að járnplötur væru að fjúka af húsi við Gnoðarvogsskóla. Ekki hafði frést af neinum óhöppum eða slysum í sambandi við þessi plötufok. 

Veðráttan segir af frekara tjóni í þessu veðri:

Tjón varð á húsum í Reykjavík, Akranesi og víðar vegna hvassviðris. Hluti af þaki sjómannaheimilisins á Siglufirði fauk, fleiri skemmdir urðu í bænum. Bátur fauk í Litlanesi á Ströndum og þar varð minniháttar tjón víðar. Skip slitnuðu upp á Skerjafirði og í Vogum. Maður fauk ofan af þaki á Kambi í Deildardal og slasaðist mikið.

Þann 11. segir Tíminn af illviðri á Nýfundnalandsmiðum:

Yfir helgina var mikið illveður á miðunum við Nýfundnaland, norðvestan stormur. Veðurhæðin var lengst af 10 til 12 vindstig, en á sunnudaginn [8.] náði veðurhæðin hámarki sínu. Frost munu ekki hafa verið ýkja mikil, en þó hefir verið þarna allt upp undir tíu stiga frost, þar sem veðurathugunarstöðvar við ströndina gáfu upp 18 til 20 stiga frost á þessum tíma. Veðri þessu olli djúp lægð suður af Grænlandi. Loftþyngdin í miðju lægðarinnar 935 millíbör. Í gær var veðrið að ganga niður og frost var 1 til 3 stig nokkru austan við veiðisvæði íslensku togaranna. Talið er að tveir Kanadískir togarar hafi farist um seinustu helgi við Nýfundnaland.

Sem kunnugt er fórst togarinn Júlí frá Hafnarfirði í þessu veðri og með honum 30 manna áhöfn. 

Vísir segir af hlákutíð norðaustanlands í pistli þann 12. (mikið stytt hér):

Hlýindi eru svo mikil í Bárðardal þessa daga að elstu menn muna naumast jafn hlýjan þorra. Allt til þessa hefur fé samt lítið verið beitt vegna þess hvað snjó hlóð niður í janúarmánuði. En nú er hann að mestu leystur.

Vísir birtir pistil 13. febrúar - og fjallar hann um veðurfarsbreytingar (við styttum hann mikið hér):

Veðurfarið víðsvegar um heim hefur farið hraðversnandi síðan stórveldin þrjú, Bandaríkin, Rússland og Bretland, hófu kjarnorkusprengjutilraunir sínar. Hvirfilbylir eru tíðari en fyrr. Einn gekk yfir Bretland nú nýlega. Skýföll, haglél og óhemju úrfellir eru tíðari, og sólar gætir minna en áður. Það verður ljóst af skýrslum um veðurfar, að veðurfar fer versnandi og er það andstætt því sem verið hefur siðast liðin 70 ár. Þetta er í stuttu máli álit hins kanadíska prófessors, Williams H. Parkers, sem er jarðfræðingur og sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum. ... Parker prófessor telur að ástæðan fyrir því að kjarnorkusprengingarnar hafa áhrif á veðurfarið sé að þær hafi áhrif á jónosferuna, yfirlög gufuhvolfs, en þar eiga óveður upptök sín. Ein sönnunin, sem hann telur sig styðjast við er sú, að radíósendingar truflist ávallt þegar sprengjutilraunirnar fari fram og sérstaklega hafi þetta komið glöggt í ljós þegar tilraunirnar voru gerðar á Kyrrahafinu og í Ástralíu. Þetta er talið stafa af rykinu, sem berst upp í jónosferuna, en það sýnir hins vegar að hún verður fyrir áhrifum. Þá bendir hann á þessu til áréttingar, að þegar eyjan Krakatá sprakk í loft upp 1883 og gosmökkurinn dreifðist um háloftin, svo að þess gætti á sólfari um alla jörð næstu ár, varð mikilla breytinga á veðurfari. Um nokkur ár spilltist sumarveðrátta víða um lönd eftir gosið. Þetta sýnir að miklar sprengingar hafa áhrif á hin ytri loftlög og þá einnig á veðurfarið. Veðurfræðingar voru á einu máli um það, að sprengigosið í Krakatá hafi spillt veðurfari víða um lönd á sínum tíma og því er það furðulegt, að þeir skuli ekki einnig viðurkenna að aðrar sprengingar, svo sem hinar öflugu vetnisorkusprengingar, geti haft sömu afleiðingar, er þó hér ekki einungis um gosryk að ræða heldur geislavirkt ryk og það er engum blöðum um það að fletta, að það berst upp i jónosferuna. Parker prófessor vill ekkert um það fullyrða, að veður muni halda áfram að versna vegna sprengjutilraunanna, en hann dregur ekki í efa, að hin miklu óveður víða um lönd undanfarið eigi rót sina að rekja til sprenginganna.

Kvartað undan tíðinni í pistli frá Eyrarbakka í Tímanum 12. febrúar:

Hálf þriðja vika hefir nú liðið án þess að bátarnir hafi komist á sjó. Áður en frátökin urðu var afli rýr, svo að atvinna hér hefir lítil sem engin verið. ... Í þessum illveðrum undanfarið hefur brim verið geysimikið og í fyrradag má segja að hér hafi verið foráttubrim, svo mikið að við lá að sjórinn gengi yfir bakkann svokallaðan eða varnargarðinn, sem gerður var hér frá Ölfusárósum austur eftir ströndinni til varnar sjónum. Þó flæddi sjórinn eitthvað inn úr hliðunum sums staðar, en ekki urðu nein spjöll af völdum brimsins. Þessi suðvestanátt, sem hér hefur verið að undanförnu, er langversta áttin um þessar slóðir, og hefur það komið fyrir í slíkum veðrum sem þessu, að sjórinn hefur flætt yfir bakkann og valdið spjöllum.

Næstu daga birtir Tíminn áfram fréttir af illviðrum: 

[13. febrúar] Um kl. hálfellefu í gærmorgun fauk kona á bifreið móts við húsgagnaverslun Guðmundar Guðmundssonar. Laust eftir klukkan þrjú varð sex ára drengur fyrir bifreið í Tjarnargötu, og var talið, að stormurinn hefði einnig átt sinn þátt í því. ... Lögreglunni bárust í gær kvartanir úi af járnplötufoki á fjórum til fimm stöðum. Ekki er kunnugt um að þessar fjúkandi járnplötur hafi valdið slysum.

Í gær [12.] var hávaðarok í Reykjavík, allt að 11 vindstig í verstu éljunum, og  lá innanlandsflug allt niðri. Ekki mun þó Reykjavíkurflugvöllur hafa verið lokaður, því að þar lenti ein vél um sjöleytið í gærkveldi, en ekki var flogið á innanlandsflugleiðum vegna þess hve veður var yfirleitt vindasamt um allt land. Tveim Loftleiðavélum var beint frá Reykjavíkurflugvelli og lentu þær í Keflavík sökum þess hve lendingarskilyrði eru þar öruggari í roki og flugbrautir lengri.

[14. febrúar] Sjóskemmdir í Grindavík. Héðan hefir ekki verið :róið í þrjár vikur svo heitið geti. enda hefir rennan verið ófær vegna foráttubrims, sem hér hefir verið og er enn. Er það ætlun sjómanna, að svona veður haldist hér fram undir mánaðamót. Í gærmorgun gærmorgun reyndi vélbáturinn Arnfirðingur að fara út úr rennunni, en varð að snúa til baka, þar sem hann tók niðri í rennunni á þeim stað. sem ekkí hafa grynningar áður. Benda, allar líkur til þess, að grjót hafa borist í rennuna i óveðrinu. en ekki hefir verið hægt að kanna. hve mikið það er, þar sem brimið er það sama og áður. Skrúfa Arnfirðings mun hafa skemmst en að öðru leyti er báturinn ólaskaður. Í briminu í fyrradag var barði bryggjan og bólverk allt á svarta kafi. Horfði um tíma uggvænlega með bátana tuttugu. sem hér liggja bundnir við bryggjuna, en ef eitthvað hefði orðið að festingum. hefði ekki verið að sökum að spyrja. Í þessu foráttubrimi barst grjót úr malarkambinum við rennuna bæði upp á bryggju svo og veginn og varð hann alófær, en jarðýtu varð að fá til að ryðja bryggjuna Brimið tók einnig vegg úr sjóhúsi sem stendur ofan við kambinn. Þennan dag var sunnan hvassviðri og stóð hann beint upp á víkina og var því mjög illur sjór hér. Enn er veltubrim úti og þýðingarlaust að fara á sjó, enda er veðurspáin enn óhagstæð. G.E.

Reykjavík. Í gærkveldi voru götur bæjarins flughálar vegna snjókomunnar, og urðu margir bifreiðaárekstrar, en enginn stórvægilegur. Flestar bifreiðarnar voru keðjulausar og því hættara við árekstrum, sem allir stöfuðu af hálkunni. Var lögreglan kölluð mjög oft út af þessum sökum.

Maður hætt kominn, er báti hvolfir. Við Eyjafjörð utanverðan var í fyrradag aftakaveður af suðaustri. Hlekktist báti einum á, er hann var að taka land við Hjalteyri. Nánari tildrög voru þau, að eftir að vélbátnum, sem róið er á, hafði verið lagt við ból undan þorpinu. var róið í land á skektu, og er hún var að lenda, reið ólag á hana með þeim afleiðingum að henni hvolfdi.

[15. febrúar] Í óveðrinu í fyrrinótt skemmdist ein af Dakota-flugvélum F.Í. í Vestmannaeyjum. Vélin fór í áætlunarflug til Eyja í fyrradag og tafðist þar vegna veðurs. Um nóttina skemmdist svo hæðar- og jafnvægisstýri vélarinnar, þar sem hún var á vellinum. Nú um helgina verða svo sendir viðgerðarmenn til Vestmannaeyja til að gera við flugvélina, því hún er ekki í flughæfu ástandi.

Vísir segir frá þann 17.febrúar: 

Á sunnudaginn 15. febrúar gekk fárviðri yfir Grímsey og komst veðurhæðin allt uppí 13 vindstig. Þetta var vestan veður og gekk særokið yfir alla eyna svo að dimmt varð sem í blindhríð. Ekki varð samt annað tjón á mannvirkjum á eynni af völdum veðursins en það, að þak fauk af votheysgryfju. Eyjarskeggjar óttuðust að bátar losnuðu upp af legunni í því líku ofsaveðri, en sem betur fór reyndist sá ótti ástæðulaus. Ofsarok hefir verið í Grímsey alla síðastliðna viku, en gæftaleysi um þriggja vikna skeið svo enginn bátur hefir komist til fiskjar.

Frá fréttaritara Vísis. — Blönduósi í gær. Það sviplega slys gerðist í gær [sunnudag 15. febrúar], hér í sýslunni að erlendur vinnumaður á Þingeyrum varð undir hestvagni í ofsaroki og beið þegar bana.

Óvenjumikið þrumuveður gekk yfir allt landið suðvestanvert snemma að morgni sunnudagsins 15. febrúar. Frá tjóni í Borgarnesi og nágrenni er sagt í áðurnefndum vatnsveitupistli, en tjón varð víðar. Tíminn segir frá þann 17.febrúar:

Frá fréttaritara Tímans á Hvolsvelli í gær. Nú með stuttu millibili hafa geisað stórviðri en ekki kunnugt um að þau hafi valdið verulegu tjóni, en rafmagnstruflanir hafa verið tíðar svo sem jafnan vill verða um þetta leyti árs, þegar suðvestan átt ríkir. Í gærmorgun frá því laust fyrir kl. 8 fram um hádegi var rafmagnslaust hér og straumur óstöðugur allan daginn. Fljótshlíðarlínan var alveg rafmagnslaus, þrátt fyrir sleitulausa vinnu rafmagnsmanna að viðgerðum.

Á áttunda tímanum í gærmorgun [sunnudaginn 15.] skipti skyndilega um vindátt, hafði verið suðaustan með geysilegri úrkomu en snerist til suðvesturs með slydduéljum og miklu hvassviðri. Þessum veðrabrigðum fylgdu miklar eldingar og þrumur. Voru ljósin tíð með tilheyrandi skruggum. Um kl. 8 laust eldingu niður í reykháf íbúðarhússins í Vindási í Hvolhreppi. Sprengdi eldingin gat á reykháfínn niðri í kjallara rétt við reykrörið, sem í hann lá frá miðstöðvarkatli. Heimilismaður á Vindási var við útiverk skammt frá bænum er þetta bar við og sá hann, er eldingunni laust niður, og segir hann að reyksúla mikil hafi gosið upp úr reykháfnum ... Hlaust ekki af annað tjón en fyrr segir nema olíukynditæki færðust nokkuð úr lagi. Jeppi sem stóð norðan hússins varð svartur af reyk.

Á níunda tímanum í gærmorgun laust einnig eldingu niður í gripahús á Stórólfshvoli og kurlbrotnuðu átta tvöfaldar rúður í mjólkurhúsi og fóðurgeymslu, sem áfast er við fjós. Glermulningurinn þyrlaðist upp um loft og veggi og þverpóstur í glugga brotnaði. Hurðir fyrir hesthúsi, sem er undir fjósinu, þeyttust upp móti veðri og vindi og kubbuðust læsingar sundur. Hlerar fyrir hlöðuinntaki, sem snýr í norður og var í skjóli. hrukku upp, og annar hlerinn barst tvö hundruð metra frá baggagati. Hlerar þessir höfðu þó verið negldir aftur með sex þumlunga nöglum. Hurðir hænsnahúss nokkurn spöl austan útihúsasamstæðunnar hrukku einnig upp af loftþrýstingnum. Guðjón Jónsson bóndi á Stórólfshvoli og kona hans voru við mjaltir í fjósinu, þegar þetta skeði. Heyrðu þau allt í einu yfirþyrmandi skarkala, og segist Guðjón ekki geta líkt ósköpunum sem á gengu við annað en sprengingu. Hefði verið því líkast sem sprengju hefði verið varpað að húsinu. Nokkurt umrót sást á hlaði austan mjólkurhússins. Í haughúsi undir fjósinu sást töluvert löng, hvít rispa í steinvegginn og virðist eldingin hafa komið þar á bygginguna. Jeppabifreið austan undir vegg mjólkurhússins sakaði ekki. Rafmagnslaust var á þessum slóðum, er þetta bar við. Nokkurt tjón varð á símalínum hér og hvar um sveitina um helgina og er unnið að viðgerðum. Að Velli í Hvolhreppi sprungu öll öryggi og víðar og hella á rafmagnseldavél eyðilagðist. PE.

Í þessu veðri sló niður eldingu milli bæjanna Svanavatns og Miðeyjar með þeim afleiðingum, að símaleiðslan brann algerlega í sundur að símatækinu á Svanavatni og í Miðey var eins og skotið hefði verið út úr skiptiborðinu, en þar er símstöð fyrir Austur-Landeyjarnar. Á Svanavatni hrundu perur úr ljósástæðum og rafmagnsöryggi öll eyðilögðust. Í sambandi við símstöðina í Miðey eru eldingarvarar eða öryggi fyrir símann í sérstakri töflu úti við. Öryggi þessi urðu sótsvört eftir að þessari eldingu sló niður og sagði bóndinn í Miðey, Haraldur Jónsson, er blaðið átti tal við hann, að ef þessi öryggi hefðu ekki komið til, hefði að líkindum kviknað í á Miðey. Þrumuveður þetta hélst í um það bil hálfa klukkustund.

Frá fréttaritara Tímans á Dalvik í gær. Í gærmorgun [sunnudaginn 15.] gerði hér aftakaveður af vestri með hláku. í þessu veðri urðu nokkrar skemmdir á bænum Þorsteinsstöðum í Svarfaðardal. Heyvagn, sem stóð í túninu, tókst á loft og fauk um 200 metra án þess að koma nokkurs staðar við og lenti síðan niður á þaki fjárhússins á Þorsteinsstöðum. Gekk vagninn í gegnum þekjuna, en við það komst vindurinn undir rjáfrið og feykti öðrum hluta þaksins burtu. Fé sakaði ekki. Auk þessa svipti stormurinn nokkrum þakplötum af hlöðunni, sem áföst er fjárhúsinu. Í dag gekk hér í norðvestan stórhríð. Vegir eru víðast hvar færir og vegurinn inn til Akureyrar er fær öltum bílum, en búast má við því, að færð spillist, ef þessu heldur áfram. PJ

Á föstudag [13.] flaug ein af Douglasvélum Flugfélagsins til Vestmannaeyja með farþega, en auk þess flutti flugvélin tvær smálestir af áfengi. Var áætlað að flugvélin færi til Reykjavíkur samdægurs, en þar sem afgreiðslu seinkaði svo og vegna þess að veður var orðið óhagstætt var ákveðið að flugvélin yrði um kyrrt. Um nóttina gerði aftaka veður í Vestmannaeyjum. Varð hún þá fyrir áföllum, þannig að hæðarstýri hennar og jafnvægisstýri löskuðust. Aðfaranótt sunnudagsins gerði aftaka veður en meira en nóttina á undan og þar sem flugvélin var á bersvæði var reynt að búa um hana sem best, binda hana niður mjög rammlega og ganga þannig frá henni, að ekkert gæti nú komið fyrir. En í þessu ofsaroki tókst flugvélin á loft og kastaðist tvær lengdir sínar og kom niður á vænginn og laskaðist mjög mikið og mun vera vafamál, hvort hægt verði að gera við hana. Flugvél þessi er eins og sagt er hér að undan af gerðinni Douglas DC3 og ber hún einkennisstafina TF ISB og nefnist Gunnfaxi.

Tíminn segir þann 19.febrúar frá miklum skriðuföllum á Bíldudal:

Geysilegt aurhlaup steypist yfir Bíldudal og í sjó fram. Aurfyllan 80-100 metra breið, þar sem hún kom fram - Skemmdir á húsum og vegum. Bíldudal í gær: — Hér hefir að undanförnu geisað látlaust vestan og suðvestan stórviðri með regni og hríð til skiptis tvisvar eða oftar á sólarhring. Í fyrradag snjóaði talsvert, en í gær [17.] brá til stórfelldrar rigningar og gerði asahláku. Skömmu eftir hádegi í gær féll vatns- og aurskriða úr svonefndu Búðagili, en meginhluti þorpsins stendur neðan við það gil. Skömmu síðar kom annað hlaup, en hvorugt þeirra var mjög stórt. Rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis hljóp geysimikil aurskriða fram úr gilinu. Fylgdi henni gífurlegt vatnsflóð. Skriðan stefndi fyrst á spennistöð frá Mjólkárvirkjun fyrir Bíldudal, sem er staðsett á skriðu beint fyrir neðan gilkjaftinn og virtist mönnum sem skriðan mundi steypast yfir spennistöðina. Áður en til þess kæmi klofnaði skriðan á hryggnum framan við gilið og braust vatnselgurinn fram úr auröldunni svo að nokkuð af aurnum varð eftir uppi í gilinu. Mjög mikill kraftur var í flóðinu. Aur og vatn streymdi niður í þorpið og yfir margar húsalóðir, aðallega á svæðinu frá svonefndum Kurfubletti til Valhallar, sem er utarlega í þorpinu. Er sums staðar ökkladjúpur og sums staðar hnédjúpur aur á lóðunum. Þá flæddi inn í sum húsanna, þar á meðal læknisbústaðinn, kennarabústaðinn, íbúðarhúsið Þórshamar og fleiri. Aurstraumur rann gegnum dyr frystihússins og flæddi þar um öll gólf, og sú grein hlaupsins, sem kom á læknisbústaðinn, umkringdi hann og náði flóðið upp á miðja hurð á neðri hæð. Tókst að varna því, að hurðin brotnaði. Þá brunaði flóðið áfram niður sundið og allt í sjó fram. Vogurinn, sem þorpið stendur við varð allur kolmórauður af moldinni. Allan daginn voru menn önnum kafnir við að reyna. að bægja vatnsflaumum frá húsunum. Flestar lóðir eru stórskemmdar og hafa eigendurnir orðið fyrir miklum sköðum, þar sem lóðirnar voru mjög vel ræktaðar Annað hlaup kom í svonefnt Gilsbakkagil, sem braust út úr farvegi sínum og flæddi yfir nærliggjandi tún og inn í íbúðarhúsið Sælund. Tókst með jarðýtu að beina vatnsflóðinu aftur í sinn gamla farveg, en flóðið hafði runnið yfir veginn og stórskemmt hann. Vegir í þorpinu eru flestir. stórspilltir. Ekki hefir komið annað eins hlaup úr Búðagili síðan 1920, en þá varð sambandslaust milli bæjarhluta nema á sjó vegna vatnsflaums, sem streymdi gegnum mitt þorpið.

Tíminn segir frá þann 20.febrúar:

Súgandafirði í gær. Vélbáturinn Freyja slitnaði upp frá hafnargarðinum klukkan sjö síðastliðinn laugardag [14. febrúar]. Bátinn rak inn og yfir fjörðinn og bar upp á sker í norðanverðum firðinum. Óskaplegt vestan hvassviðri með snjókomu gekk yfir þann dag. Báturinn fannst klukkan ellefu um kvöldið, en þá var byrjað að falla út og varð ekkert að gert. Á morgunflæðinu var báturinn dreginn út, og var Sæbjörg fengin til að draga hann til Ísafjarðar en þar var hann rannsakaður. Bátar hafa farið í 10 róðra í þess um mánuði og tapað miklu af línu allt upp i 100 lóðum í róðri, einn og sami bátur.

Eins og áður sagði má á hungurdiskum finna sérstakan pistil um Hermóðsveðrið þ.18. og tjón af þess völdum. Eftir það róaðist tíð nokkuð, umhleypingarnir urðu mun vægari. 

Tíminn segir 3. mars frá skyndilegu brimi í Þorlákshöfn þann 1. mars:

Þorlákshöfn í gær. Í gærkvöldi var verið að skipa salti upp úr Arnarfellinu, sem hér liggur. Fram eftir kvöldi var blæjalogn, en um klukkan ellefu gerði aflaka brim og gekk svo mikið yfir hafnargarðinn, að ekki var unnt að halda uppskipuninni áfram. Var þá gert nokkuð hlé á vinnunni. Þegar svo verkamennirnir gengu aftur niður hafnargarðinn, þegar slegið hafði nokkuð á brimið, reið brotsjór yfir garðinn og tók tvo menn út af garðinum. Gátu þeir bjargað sér upp í árabát, sem lá innan við garðinn. Varð þeim ekkert meint af.

Snemma í mars gerði talsvert hríðarveður um landið sunnan- og vestanvert. Djúp lægð var langt suður í hafi, en sendi rakt loft norður á bóginn til móts við suðvestanátt í háloftunum. Við slík skilyrði „sér“ úrkoman ekki hálendið - þótt norðaustanátt sé, hún er mynduð uppi í suðvestanátt ofan við. 

Tíminn segir af veðri í pistli þann 5.mars:

Borðeyri í gær [4. mars]. — Glórulaust norðan hríðarveður hefir staðið hér yfir í dag. Veðurhæð hefir verið mikil og skafhríð. Búast má við, að snjóinn hafi dregið saman í stórar fannir, en það kemur í ljós, þegar eitthvað lægir. Áætlunarferð Norðurleiðar er teppt við símstöðina í Hrútafirði á suðurleið. Holtavörðuheiði er með öllu ófær, en sæmileg færð mun hafa verið frá Varmahlíð í dag. Áætlunarferðin til Hólmavíkur kom að sunnan í gær og komst að Guðlaugsvík í Bæjarhreppi og fór ekki lengra. Ófært er úr Guðlaugsvík norður á bóginn. Búist er við að bifreiðin snúi við í Guðlaugsvík og suður en bifreið frá Hólmavík lagði af stað í áttina til Guðlaugsvíkur í dag, og er búist við, að hún komist eitthvað áleiðis og sæki póstinn. Þetta er mesta hríðarveður, sem komið hefir á þessum vetri. J.E.

Ófært vestur. Ólafsvíkurrútan var teppt á Vegamótum sunnan til á Snæfellsnesi í gær. Hríðarveður var á og sjö stiga frost. Fróðárheiði mun hafa verið alófær. Í gærdag um hádegi gerði blindhríð í Arnessýslu, svo að naumast var hægt að aka um götur Selfoss og ekki sást milli húsa um tíma. Fannfergi var ekki ýkja mikið, en hvasst var og fjúk fram eftir degi.

Tíminn 6.mars:

Stykkishólmi í gær [5.mars]. — Um hádegi í gær [4.mars] skall á norðan hvassviðri með afar mikilli snjókomu. Snjóaði látlaust þar til í morgun. Hafði þá sett niður óvenju mikinn snjó, eða meiri en hér hefir fallið í 10 ár a.m.k. Ekki var hægt að komast á bílum um götur í þorpinu í morgun. Vegurinn upp úr kauptúninu er algerlega lokaður og engin mjólk hefir borist hingað í dag. Slétt er út af lágum húsum og traðirnar á götunum eru jafnháar vörubílunum. Veður fór batnandi í dag, 6 stiga frost var hér í nótt og fram eftir degi.

Minniháttar fokskaðar urðu þann 10. (Reykjavík) og þann 19. fauk fiskhjallur í Grundarfirði og skemmdir urðu á fiski. (Veðráttan).

Tíminn segir af blíðutíð í pistli þann 25.mars:

Einmuna blíða er nú um allt land, sunnanátt dag eftir dag, hlýindi mikil og sólskin  töluvert. Það er engu líkara en vorið sé komið, enda var fyrsti dagur einmánaðar í gær. Snjór er varla til í byggð á öllu landinu, og þegar farið að grænka sunnan undir vegg.

Tíð var meinlítil í apríl, en ekki sérlega hagstæð gróðri þó. Svipað var fyrstu viku maí, en síðan gerði bestu tíð um tíma. Þann 24. maí fórst sjúkraflugvél við fjallið Sátu á Snæfellsnesi í þoku, þrír menn fórust.

Ingibjörg Guðmundsdóttir veðurathugunarmaður í Síðumúla í Borgarfirði lýsir apríl og maí 1959:

[Apríl] Aprílmánuður heilsaði með snjókomu og alhvítri jörð, lá sá snjór nokkuð frameftir mánuðinum. Yfirleitt var tíðin köld, þó inn á milli hlýir dagar. Jörðin er gróðurlaus, en alauð í byggð. Fjöllin hvít. Sauðfé hýst sem um vetur og gefið hey og matur.

[Maí] Fyrstu dagar mánaðarins voru frekar kaldir. Næturfrost voru aðfaranætur þess 1., 2., 3.,5., 6. og 9. Eftir það var aldrei frost, en hlý og inndæl tíð með nægjanlegri úrkomu fyrir gróðurinn. Jörðin grænkaði og grasið spratt með óvenju miklum hraða, svo nú segja bændurnir að út líti fyrir að sláttur geti hafist það fyrsta sem gerst hafi, ef ekki kólnar aftur. Kýr voru látnar út fyrst í dag (1.6.), sumstaðar fyrir nokkrum dögum.

Eftirminnilegan illviðrakafla gerði í júní. 

w-1959-sponn_a

Þrjár lægðir komu að landinu og ollu norðaustan- og norðanáhlaupum með kulda og jafnvel hríðarveðri. Myndin sýnir lægsta þrýsting á landinu á þriggja klukkustunda fresti 5. til 20. júní (rauður ferill, hægri kvarði) og þrýstispönn (mun á hæsta og lægsta þrýstingi hvers athugunartíma á landinu sömu daga, bláar súlur). Það er ekki algengt að þrýstispönn nái 20 hPa í júní. Kuldinn hófst reyndar áður. Fyrsta og þriðja lægðin urðu hvað afdrifaríkastar. Á veggjum í kennslustofum Menntaskólans á Akureyri voru (og eru e.t.v. enn) myndir sem teknar voru af útskriftarstúdentum 17. júní ár hvert. Þegar ritstjóri hungurdiska var við nám í skólanum höfðu allar myndirnar verið teknar í Lystigarðinum, allar nema ein. Það var sú frá 1959, tekin inni í leikfimihúsinu. Skar þetta sig mjög úr. Ófært veður var þennan dag, snjór á jörðu um morguninn, en síðan slabb. Hvasst var á Akureyri, ýmist rigning, slydda eða snjókoma. Davíð Pétursson á Grund í Skorradal hefur upplýst ritstjóra hungurdiska um að alhvítt hafi verið á Grund að morgni 17. júní. 

Þann 7. fauk lítil flugvél í Aðalvík og gereyðilagðist. Í fyrra hretinu fórust bæði kindur og hestar í Vindhælishreppi í Skagafirði. Í hretunum báðum drápust fuglar unnvörpum, víða varð alhvítt fyrir norðan og snjódýpt mældist mest 20 cm á Hólum í Hjaltadal þann 17.

Tíminn segir af illviðrum í pistli þann 11. júní:

Um síðastliðna helgi gerði vonskuveður með fannkomu um norðanvert og vestanvert landið. Vegir tepptust á heiðum og mikil ísing kom á rafmagnslínur. Varð Akureyri rafmagnslaus í einn sólarhring af þeim sökum. Þá urðu nokkur vanhöld á lömbum, en sauðburði er nú um það bil að ljúka. Blaðið hafði tal af nokkrum fréttariturum sínum í gær og viðhafði einn þeirra þau orð, að hér mundi vera um að ræða eitt hvert harðasta vorhret, sem hér hefði komið í langan tíma. Fréttaritari Tímans á Ísafirði símaði, að þar hefðu verið skaflar á götunum á sunnudag, en veðrið skall á aðfaranótt sunnudagsins [7.júní]. Vegurinn vestur yfir heiðar tepptist af snjó. Fréttaritari Tímans í Trékyllisvík símaði að 3. júní s.l. hefði kólnað og gengið í norðaustanátt með snjókomu og fennt niður að sjó. Á laugardag [6.] var svo komið blíðuveður og var lambfé þá sleppt, en á sunnudaginn [7.] var komin stórfelld slydduhríð. Á mánudag og mánudagsnótt [aðfaranótt 8.] var ofsaveður með mikilli fannkomu. Féð var komið víðsvegar enda sauðburðinum að ljúka. Var lambféð alls staðar í hættu og á mánudag Voru allir önnum kafnir við að koma því í hús og afdrep. Sums staðar fennti fé og lömb, en betur tókst um björgunarstarfið en búast hefði mátt við og hafa sumir bjargað öllu sínu en aðrir misst nokkur lömb. Snjókoman var það mikil þessi dægur að 10—20 cm jafnfallinn snjór var niður að sjó. Nú hefur hlýnað og nokkuð tekið upp á láglendi í dag og gær, samt er töluverður snjór enn á jörð.

Fréttaritari Tímans á Sauðárkróki símar: Hér gekk yfir norðan hvassviðri með talsverðri fannkomu, einkum í útsveitum Skagafjarðar. Á mánudagskvöldið [8.] var hvítt yfir allan Skagafjörð. Einhver lambskaði mun hafa orðið í útsveitum, en sauðburði var því nær lokið og tjónið því minna en ella. Heldur hefur dregið úr sprettu við þetta hret og má búast við, að sláttur hefjist seinna fyrir bragðið.

Fréttaritari Tímans á Siglufirði símar: Hér kom óhemju snjór í hretinu og var hann í hné á götunum. Siglufjarðarskarð varð ófært um miðjan dag á sunnudag, en nú er unnið að því með tveimur jarðýtum að ryðja veginn og mun það taka tvo daga. Veginn þarf að moka alveg inn að Hraunum í Fljótum. Nú er komin hiti og sólskin og verið er að moka göturnar í dag. Um hundrað manns í fjórum bifreiðum komust ekki til Siglufjarðar um helgina og var einn Fossanna. sem lá hér, sendur eftir því til Akureyrar á sunnudag.

Fréttaritari Tímans á Akureyri símar: Hér gerði mikið; hret um s.l. helgi, snjóaði og rigndi um allt Norðurland á sunnudag, en mjög misjafnlega. Í Bárðardal fennti fé. Mikill snjór féll á Árskógsströnd og Vaðlaheiði varð ófær. Varð þá rafmagns- og útvarpslaust á Akureyri meir en sólarhring. Bilunin stafaði af ísingu sem mældist 30 cm á strengjunum.

Síðasta hretið olli einna mestu tjóni. Það var verst á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, eitthvert versta veður sem vitað er um þann dag. 

Slide6

Kortið sýnir stöðuna í háloftunum þann 16. Dæmigert vorhret. Snarpt lægðardrag kemur úr norðvestri á leið til suðausturs. Lægð dýpkar fyrir norðan land og skellir síðan norðanstreng yfir landið. Þykktin fór niður í um 5200 metra en það er óvenjulágt á þessum tíma árs. 

Tíminn segir frá 19. júní:

Dalvík í gær: — Þrjú hret hafa komið hér á undanförnum hálfum mánuði með uppstyttu í einn til tvo daga á milli; í dag [18.] hætti að snjóa, en þá hafði hríðin staðið síðan á mánudag [15.]. Fram til dala er nú mikil fönn svo að jarðlaust er fyrir fé. Hafa menn staðið í ströngu við að bjarga í hús, en víða er fjár saknað og lítið vitað um afdrif þess. Í dag var mokað ofan af túnum Svarfdælinga til þess að kindurnar næðu í jörð.

Ólafsfirði, 18. júní. — Hér gekk yfir norðaustan veður s.l. þriðjudag [16.] með snjókomu og varð hvítt niður í byggð. Á miðvikudaginn gerði enn aftakaveður af norðri og lá við stórskemmdum á skipum og bátum í höfninni. Á þriðjudag komu síldarbátar héðan, sem farnir voru út, aftur inn, Einar Þveræingur, Þorleifur Rögnvaldsson. Út af Siglufirði sökk annar [nóta-] bátur Einars, en hann náðist upp aftur við illan leik. Nótin fór til botns en náðist upp, gauðrifin og stórskemmd. Öll síldarskipin sex að tölu voru hér í höfn á miðvikudag og lágu við hafnargarðinn, en auk þess lágu í höfninni um 20 smærri bátar. Hér var statt 1500—2000 lesta fisktökuskip frá Bilbao á Spáni. Kom það á mánudagskvöld til að taka þurrkaðan saltfisk, en ekki var unnt að skipa út í það á þriðjudag. Þegar veður versnaði var athugað um að sigla skipinu út, en skipstjóri taldi það erfitt, einkum vegna þess, að skipið var alveg tómt og skrúfan hálf úr sjó. Var því beðið átekta en fáa óraði fyrir þeim hamagangi, sem á skall, og menn muna varla eftir öðru eins á þessum árstíma. Um kl. sex á miðvikudag [17.] slitnaði skipið frá hafnargarðinum og rak upp í sandinn. Stendur það þar á réttum kili að kalla og mun talið lítt.eða ekki skemmt. Munu skipverjar reyna að ná því út með hjálp dráttarbáts. Þrír síldarbátar slitnuðu einnig frá garðinum, en í þeim voru menn. Stígandi fór beint upp í sandinn sunnan bátabryggjunnar og fór vel um hann, uns hann náðist út með eigin afli. Einar Þveræingur þrengdi sér upp í krókinn norðan bátabryggjunnar og slapp vel. Gunnólfur tók þann kost að halda út, þótt óárennilegt væri, enda er hann stærstur. — Braut þá yfir þveran fjörðinn. Komst hann inn undir Hrísey og lá þar af sér veðrið en kom heim í gær. Ein trilla sökk, en náðist upp lítt skemmd. Talið er að hefði lengingu bátabryggjunnar, sem nú stendur yfir, verið lokið, mundi þetta ekki hafa gerst. Mikill snjór kom í byggð, hvað þá á heiðum. Lágheiði er ófær. Fjáreigendur hafa verið að snúast við fé sitt og bjarga í hús eins og unnt var. Enn er mikill snjór frammi í sveitinni en götur hér í bænum orðnar auðar í dag.

Vísir segir frá 18.júní:

Í fyrradag [16. júní] gekk skyndilega til norðanáttar og gerði áhlaupsveður hið mesta um allt norðanvert landið með slydduhríð og síðar snjókomu. Sunnanlands varð líka bálviðri með 8—9 stiga vindhraða í gærmorgun, en úrkomulaust að mestu í byggð. Af þessum sökum var útihátíðahöldum víðsvegar um land aflýst í gær og í stað þess efnt til skemmtana innan húss. Samkvæmt upplýsingum frá fréttaritara Vísis á Siglufirði í morgun gerði ofsaveður með blindhríð þar í fyrrinótt, en þá var veður þar hægara, en éljadrög samt enn til fjalla og alhvít jörð hvert sem augum er litið. Siglufjarðarskarð lokaðist að nýju í fyrrakvöld. Var þá brostin á stórhríð í skarðinu og áætlunarbíll, sem var á leið frá Reykjavík sneri aftur á leið upp í skarðið og til Sauðárkróks. Þar bíða fjölmargir aðrir bílar byrjar áfram norður. Að því er fréttaritari Vísis á Siglufirði tjáði blaðinu í morgun er snjór kominn þar jafnmikill nú og hann var í fyrra hríðarveðrinu. Enn er hríð til fjalla og ekki viðlit að byrja mokstur að svo komnu máli. Við allar bryggjur á Siglufirði liggur fjöldi skipa, íslenskra og norskra, sem komin eru norður til síldveiða, en leituðu vars þegar veðrið brast á. Enn er haugasjór úti fyrir, nærri eins og í verstu vertíðarveðrum og ekki viðlit fyrir bátana að fara úr höfn. Sömu sögu er að segja frá Akureyri, þar bíður fjöldi báta, bæði heimabáta og aðkomuskipa í höfn eftir batnandi veðri. Í gær var þar hvítt milli fjalls og fjöru sem um hávetur. Hríðarslitringur hélt áfram í allan gærdag og í nótt, og í morgun er enn alhvít jörð um allan Eyjafjörð. Vitað er þegar um nokkurt tjón sem varð af völdum veðursins. Meðal annars safnaðist mikil ísing á símalínur, einkum í Hrútafirði. Síminn slitnaði og var símasamband rofið við Norðurland að meira eða minna leyti í gær. Samband var víðast hvar komið aftur á í morgun. Í Ólafsfirði var gífurlegt veður. Þar sleit upp erlent fiskitökuskip í höfninni og rak upp í fjöru hinumegin við bátalægið. Þar liggur það nú. Einnig mun trillubát hafa slitið þar upp og jafnvel fleiri báta.

Í sama blaði segir af atburðum við Sog, þar sem nú heitir Steingrímsstöð:

Veðurofsi í fyrrinótt [aðfaranótt 17.] braut varnargarð ofan jarðganganna og vatnið ruddist gegnum göngin. Það var í gærmorgun, að Þingvallavatn braut af sér allar hömlur, rauf varnargarðinn fyrir ofan jarðgöngin við Efra-Fall, ruddist gegnum þau og á stöðvarhús og önnur mannvirki fyrir neðan, og er ekki enn séð fyrir endann á því tjóni, sem þar verður. Í norðan-veðrinu í fyrrinótt og í gærmorgun ýfðist yfirborð Þingvallavatns ótrúlega mikið, og var öldugangur orðinn mikill snemma í gærmorgun. Vegna undanfarinna rigninga var orðið svo mikið í vatninu, að við lá að flæddi yfir stíflugarðinn, sem byggður hefur verið yfir ofan jarðgöngin. Þannig er um garðinn búið, að geysimikil hlíf úr þykku járni hefur verið rekin niður í hálfhring ofan við efri op jarðganganna. Innan við járnhlíf þessa var uppfylling — 3—4 metra breið, — úr möl og sandi, og var þar akfært bifreiðum og öðrum ökutækum. Til frekari hlífðar var settur ofan á járnhlífina um 2 metra hár veggur úr timbri, til að verjast öldugangi. Vegna hátíðahaldanna 17.júní voru flestir verkamenn og annað vinnufólk þegar farið frá vinnustað, og höfðu langflestir farið til Reykjavíkur til að taka þátt í hátíðahöldunum þar. Var því fátt manna þar eystra, þegar tekið var eftir því um sexleytið í gærmorgun, að öldugangurinn á vatninu var farinn að brjóta trégarðinn, sem var ofan á til varnar. Var fljótlega brugðið við, og allir menn, sem til náðist, settir í að  lagfæra skemmdirnar, en svo mikill var ofsinn í veðrinu, að við ekkert varð ráðið. Skipti það engum togum, að öldurnar sópuðu timbrinu á brott og brutust yfir járngarðinn, sem nú náði rétt yfir yfirborð vatnsins. Þar fyrir innan var óvarinn malarvegur, svo sem áður segir, og skall vatnið á honum og smá-skolaði honum í burtu. Var nú auðséð hvert stefndi, en varð ekki að gert vegna mannfæðar. Innan lítillar stundar var uppfyllingin horfin veg allrar veraldar, og allur þungi vatnsins lá á járngarðinum. Þá skeði það skyndilega, að vatnið sópaði á brott járnveggnum á stóru svæði, og ruddist með geysilegum gný ofan í jarðgöngin. Beint fyrir neðan göngin er hið nýja stöðvarhús, og ýmsar aðrar nýbyggingar. Vatnsflaumurinn ruddist með gífurlegu afli út úr göngunum- og skall beint á stöðvarhúsinu.

Tíminn segir enn af illviðrinu í pistli þann 20.júní:

Illviðrið, sem gekk yfir Norðurland um þjóðhátíðina, hefir án efa orðið eitt hið versta snemmsumarhret, sem sögur fara af. Hvaðanæva af Norðurlandi berast fréttir um tjón á búsmala af völdum óveðursins, og á einum bæ, Vindhæli á Skaga, er fullvíst, að um 100 fjár hefir drepist.

Og enn voru vandræði við Sogið, Tíminn segir frá 26.júní:

Laust eftir kl. hálf sjö í gærmorgun rofnaði nýi varnargarðurinn, sem unnið var við að fullgera við Efra Sog. Rofnaði garðurinn því sem næst fyrirvaralaust og beljar nú vatnið niður göngin líkt og áður. Á fyrstu tveimur tímunum eftir að varnargarðurinn rofnaði, lækkaði Þingvallavatn. Unnið hefur verið við grjótgarðinn nýja dag og nótt síðan ofviðrið braut stífluna 17. júní s.l. Á þriðjudag [23.] hafði tekist að hefta vatnsrennslið að mestu og í fyrrinótt var skarðið orðið aðeins um 10 metrar á breidd. Inn um þetta 10 metra skarð flæddi enn talsvert vatnsmagn. Hagaði svo til, að straumurinn skall á stálþili upprunalegu stíflunnar fyrir neðan grjótgarðinn, dofnaði þar og fór mestur hluti hans niður göngin. Milli grjótgarðsins og leifanna af stálþilinu myndaðist hins vegar hringiða og mun hún hafa grafið undan garðinum uns hann brast að vestan verðu um hálfsjöleytið í gærmorgun, eins og áður segir. Þegar garðurinn rofnaði voru menn að vinna á honum. Jarðýtunni, sem notuð var til þess að ryðja úr bílhlössunum hafði einhverra hluta vegna verið ekið afturábak á garðinum, og um tveimur mínútum síðar rofnaði hann. Gerðist þetta allt með svo skjótum hætti, að hreina tilviljun verður að telja, að manntjón hlaust ekki af. Við enda garðsins lá loftbor, og slanga frá honum að loftpressu í landi. Straumurinn hreif borinn með sér niður göngin, en slangan slitnaði þó ekki. Til marks um straumþungann, má geta þess aö menn reyndu að draga borinn upp úr göngunum, en tókst ekki. Var það ráð að síðustu tekið að skera á loftslönguna.

Tíminn segir frá úrhelli á Akureyri í pistli þann 3.júlí. Lítið af regni skilaði sér þó í mæli Veðurstofunnar við Lögreglustöðina við Smáragötu. Af textanum er illt að ráða hvort þetta hefur gerst 1. eða 2. júlí:

Frá fréttaritara Tímans á Akureyri í gær. Klukkan hálffjögur í gær bar við mjög óvenjulegan atburð hér í bænum. Þá kom svo skyndilegt og ofboðslegt skýfall, að menn muna varla annað eins. Veður var milt, þokuloft framan af degi en birti svo að sólar naut af og til. Allt í einu þyrmdi yfir, og vatnið steyptist úr loftinu eins og hellt væri úr fötu. Skall vatnið svo þungt á göturnar, að af myndaðist þungur og hár dynur. Vatnið fossaði fram af húsþökum, og eftir örskamma stund runnu lækir eftir götunum, svo að út úr göturennum flóði. Fólk sem var á gangi bjargaði sér sem skjótast í afdrep og horfði á ósköpin, en fólk, sem inni hafði verið, kom út í dyr og glugga undrun slegið. Að skammri stundu liðinni endaði demban með þéttu og hörðu hagléli, sem buldi á húsum og strætum. Ekki fylgdu þó þrumur eða eldingar, eins og menn bjuggust við. Og svo stytti upp eins skyndilega og demban hafði kornið, loft greiddist og sól skein í heiði eftir litla stund. En það var engu líkar en þetta syndaflóð væri sent Akureyringum einum, og þó fyrst og fremst þeim sem í miðbænum búa, og vita þeir þó ekki til að þeir séu syndugri en aðrir. Úti í Glerárþorpi komu aðeins nokkrir dropar úr lofti og menn sem voru að vinna rétt innan við bæinn urðu varla regns varir.

Nú bárust fregnir af vatnavöxtum á Mýrdalssandi. Urðu þær viðvarandi næstu mánuði, illa gekk að ráða við vatnsflauminn. Reyndar var það svo um margra ára skeið að fréttir voru sífellt að berast af vandræðum á þessum slóðum. Nú hafa menn að mestu gleymt því hversu erfitt var að leggja veg um sandinn. 

Tíminn segir frá 8.júlí:

Vatnavextir hafa verið miklir á Mýrdalssandi í vor og sumar. Síðastliðinn sunnudag braut vatnið allmikið skarð í varnargarð á sandinum, sem jafnframt er vegur um hann. Er nú öllum bifreiðum ófært um sandinn, og verður aðeins brotist á jarðýtu yfir tálmann. Er mikill vandi fyrir höndum, ef ekkert verður að gert, en allir flutningar stöðvast yfir sandinn. Hins vegar er erfitt viðfangs að bæta úr þessu, og var ekki ljóst í gær hversu mundi ganga að koma garðinum í samt lag. Blaðið hafði tal af vegamálastjóra í gærdag og spurði af atburðunum á Mýrdalssandi. Sagðist honum svo frá, að í allt fyrrasumar hefðu verið miklir vatnavextir á sandinum og hann ófær langtímum saman af þeim sökum. Féll þá vatnið fram undan miðjum jökli milli Hafurseyjar og Langaskers. Var þá hafist handa um að hlaða varnargarð þar á milli og unnið að því verki fram að jólum. Í apríl s.l. hófst svo aftur vinna við garðinn, og er hann nú orðinn um 5 km langur. Liggur þjóðvegurinn um sandinn á sjálfum garðinum. Í vor og sumar hefur enn verið mikill vatnagangur á sandinum, en nú hefur vatnið færst vestar. Fellur það undan jöklinum við svonefnda Moldheiði og kemur á garðinn austan við Hafursey, hjá Blautukvíslarbotnum, þar sem er forn farvegur í sandinn. Hefur hlaðið miklum sandi að garðinum undanfarið og á sunnudag braust vatnið yfir hann á 300 metra löngu svæði.

Fréttaritari Tímans í Vík í Mýrdal sagði svo frá að um helgina hefði rignt þar eystra nær linnulaust í tvo sólarhringa og hefði vatnagangur þá aukist mjög á Mýrdalssandi uns garðurinn brast eins þar sem allar samgöngur um sandinn stöðvast. Er voðinn sjálfur fyrir dyrum ef engin bót verður fljótlega á ráðin. Eins og stendur verður aðeins komist yfir skarðið á jarðýtu sem brýst yfir það með léttan flutning. Fréttaritarinn sagði að lokum að þessir atburðir væru ákaflega bagalegir eins og að líkum lætur, og fyrr segir. Á mánudag var jarðýta að verki við að draga nokkrar stórar bifreiðir yfir skarðið. Er verið var að draga 10 manna fólksbifreið, eign Brands Stefánssonar verkstjóra, brast dráttartaugin, og skipti það engum togum að bifreiðin grófst í sand, Og þar situr hún enn á kafi í sandinum og sér aðeins á þak henni. Er útilokað að ná bifreiðinni. upp fyrr en flóðinu lýkur.

Eitthvað virtist miða á sandinum undir miðjan mánuð, Tíminn 15.júlí:

Samgöngur eru nú aftur orðnar greiðar um Mýrdalssand eftir teppuna sem þar varð á dögunum, en hún stóð vikutíma. Búið er að fylla upp í skarðið í varnargarðinn og stöðugt unnið að því að styrkja hann. Mikið vatn liggur þó enn alls staðar á garðinum, en hann er rúmlega 5 kílómetra langur, og óttast menn að erfitt verði að halda aftur af því, ef vatnavextir aukast nokkuð. Garðurinn er allur gerður úr ægissandi, og vatnið ber stöðugt sand að honum og sígur svo í gegn smátt og smátt þegar yfirborð þess hækkar. Uggir menn að garðurinn geti brostið aftur þá og þegar og að erfitt verði að finna frambúðarlausn þessa máls. Ó.J.

Tíminn ræðir heyskaparhorfur 16.júlí:

Allt útlit er fyrir að í sumar ári vel til heyskapar víðast hvar á landinu. Undanfarið hafa fréttaritarar Tímans á Vesturlandi, Norðurlandi og Austurlandi, látið mjög vel af tíðarfarinu. Snemmsprottið varð í vor, þrátt fyrir kuldaköstin. Sláttur hófst því snemma og þurrkar hafa verið sæmilegir, svo oftast hefur verið hægt að taka in hey eftir hendinni. Sums staðar á Suðurlandi hefur heyskapurinn gengið erfiðlegar, en þó hvergi svo að til vandræða horfi.

Fé sem fennti í júníhretunum var að finnast fram eftir sumri, Tíminn segir 17.júlí:

Fosshóli í gær. Enn eru að birtast verksummerki hretanna, sem komu hér í vor, þegar fé fennti. Seinast í fyrradag fannst tvílemba ær stutt frá Ingjaldsstöðum. Mun hún hafa lent í fönn í seinasta hretinu. Lömbin voru sitt við hvora hlið hennar, þar sem hún hafði lagst til hinstu hvíldar. Þá fundust sex ær, sem hafði fennt í einum hóp í Hvítafelli á heiðinni, milli Laxárdals og Reykjadals.

Sumarið 1959 er almennt ekki talið í hópi hinna verstu rigningasumra, en þurrkar voru víða daufir og þegar upp er staðið eru þeir fáir sem tala vel um heyskapartíðina eða hrósa sumrinu. 

Tíminn segir frá 26.júlí:

Heyskapur hefur gengið allmisjafnlega á landinu í sumar. Sums staðar, einkum á Suðurlandi og Suðausturlandi. hefur verið svo óþurrkasamt, að nú horfir til vandræða, og taða er mjög farin að skemmast á túnum. Blaðið átti tal við nokkra fréttaritara sína í gær og fyrradag um heyskapinn og horfurnar víðs vegar um land. Fréttaritarinn í Gnúpverjahreppi sagði: Veður er ágætt flesta daga en mesta þurrkleysa. Síðan sláttur hófst má heita, að ekki hafi komið nema þrír þurrkdagar hér. Tún spretta úr sér og menn keppast við að fylla votheyshlöður sem jafnvel gengur erfiðlega vegna bleytunnar. Varla hefur tekið af steini langan tíma, oftast lognmolla, hiti og skúraleiðingar. Fréttaritarinn á Vatnleysu í Biskupstungum sagði: Óþurrkarnir eru orðnir býsna langvinnir. S.l. mánudag stytti upp og gerði þurrk, en aðeins einu sinni fyrr í þessum mánuði hefur gert þurrk, sem stóð tvo daga. Ekki rigndi mikið, en þokuloft og súld. Bændur deigir að slá meðan svona viðrar, vilja helst ekki verka vothey fyrr en í seinni slætti. Útjörð er ekki vel sprottin enn. Svipaða sögu og þetta mun að segja úr öðrum sveitum Árnessýslu og á öllu Suðurlandi, heyin liggja undir skemmdum og lítið búið að hirða af þurrheyi Fréttaritari blaðsins á Kirkjubæjarklaustri sagði, að þar hefðu óþurrkar gengið og væri útlitið heldur slæmt, þó hefði nokkuð náðst áður en versnaði. Sömu sögu er að segja úr Hornafirði og suðlægari fjörðum Austfjarða, t.d. hið versta ástand í Reyðarfirði.

Á Héraði er hins vegar aðra sögu að segja. Þar hafa verið góðir þurrkar síðustu viku og mikið verið hirt og þar fyrir norðan t.d. í Vopnafirði. Í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði hafa þurrkar verið daprari, en þó náðst nokkuð af heyi.

Aðal óþurrkasvæðið er þó á Suðurlandi og austur á sunnanverða Austfirði, og stirða heyskapartíð má telja í Borgarfirði og vestur á Snæfellsnes. Annars staðar góða nema helst á Mið-Norðurlandi.

Mestu hitar ársins urðu í síðustu viku júlímánaðar. Hæst fór hiti á Hallormsstað þann 27., 25,9 stig, og víða um land fór hiti yfir 20 stigin. Tíminn segir 28. júlí af ferðafólki á Norðurlandi og síðan frekari vandræðum á Mýrdalssandi:

Undanfarið hefur verið einmuna veðurblíða á Norðurlandi, logn sterkjuhiti og sólskin dag hvern. Hefur veðrið verið þannig í næstum hálfan mánuð. Þennan tíma hefur verið óvenjumikill straumur ferðamanna norður og á Akureyri varð nú um helgina varla þverfótað fyrir straumum aðkominna bifreiða ferðamanna.

Sú hætta er nú yfirvofandi að vegurinn yfir Mýrdalssand teppist á nýjan leik. Í fyrrinótt munaði minnstu, að vatn flæddi yfir flóðgarðinn og ryfi hann, og getur slíkt gerst á hverri stundu. Mikið vatn er í ánni, sem ber með sér mikinn sand, sem hleðst upp við stíflugarðinn. Flóðið liggur á stíflugarðinum á 5 kílómetra kafla.

Og enn var rætt um stöðuna á Mýrdalssandi í Tímanum 5.ágúst:

Vegurinn austur yfir Mýrdalssand er nú rofinn á þremur stöðum milli Hafurseyjar og  Langaskers og er alófær öllum bílum og grefur vatnsflaumurinn stöðugt undan garðinum og mun erfitt að gera við skemmdirnar, á meðan vatnsmagnið helst óbreytt.

Miklar rigningar gerði sunnan- og suðaustanlands í ágúst. Tíminn segir af vatnavöxtum í pistli 11.ágúst:

Á sunnudaginn [9. ágúst] kom yfir gífurlegt vatnsveður undir Eyjafjöllum. Stóð það í sólarhring, og kom mikill vöxtur í ár. Var vatnsflóð í gær að grafa sundur veginn skammt frá Moldnúpi, en síðdegis var flóðið í rénun. Holtsá braut skarð í varnargarð, svonefndan Holtsárgarð, sem er til hlífðar veginum skammt frá Moldnúpi. Ruddi flóðið um 80 metrum úr garðinum. Flæddi áin þar yfir veginn, og var á góðri leið að grafa hann í sundur. Nokkru austar braust Marbælisá út úr farvegi sínum og rann suður yfir Lambafellsengjar og austur með fram þjóðveginum. Olli flóðið í henni spjöllum á engjum og getur grafist í veginn og spillt honum. Kaldaklifsá hefur með framburði fyllt upp farveginn nokkru sunnan við brúna og rennur vestur yfir engjar, sem kallaðar eru Hörðuskáli og Bakkakot eftir býlum, sem þar voru einu sinni.

Fregnritari blaðsins í Austur-Eyjafjallasveit tjáði blaðinu síðdegis í gær, að flóðunum væri tekið að linna, enda fjaraði fljótt í ánum, er drægi úr rigningunni. Rigningin þennan sólarhring var var óhemjuleg, og taldi fregnritarinn, að ekki myndi viðlit að eiga við heyskap fyrr en vatn hefði fengið tíma til að síga úr jörðunni. Síðdegis í gær var komið skúraveður. Annars horfir mjög erfiðlega um heyskap þar eystra. Rosinn hefur staðið samfleytt í mánuð, aðeins tvisvar komið þurrkur í einn dag.

Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum lauk kl. 4 aðfaranótt sunnudags og hafði farið hið prýðilegasta fram. Laust eftir miðnætti á laugardag [8.] tók að rigna og slagveðursrigning var í Eyjum allan sunnudaginn. Var flugveður ekkert á sunnudag og ekki heldur í gær og er talið að um 800 manns hafi verið veðurtepptir í Eyjum á sunnudag.

Tíminn segir 13.ágúst frá þurrkdegi á Suðurlandi:

Í gær var brakandi þurrkur á Suðurlandsundirlendinu, og má telja þetta nokkur tíðindi, því að heyþurrkur hefur ekki komið á þessu svæði um langan tíma. Líklega er þetta fyrsti þurrkdagurinn á þremur vikum, sem eitthvað kveður að. Norðaustan stormflæsa var á, og sólin skein glatt. Búalið gladdist af hjarta við þessi umskipti, enda horfði víða til stórvandræða vegna óþurrkanna. Í gær mátti hvarvetna sjá fólk hamast við heyskapinn.

En þurrkinum fylgdi mikið hvassviðri í Staðarsveit - Tíminn segir frá þann 17. ágúst:

Frá fréttaritara Tímans í Staðarsveit 15. ágúst. Í gærmorgun birti hér í lofti eftir langvarandi þurrkleysur. Var góður þurrkur fram eftir degi og breiddu bændur mikið hey, en fyrir var mikið magn af nýslegnum heyjum. Er leið að kvöldi tók að hvessa af norðaustri, og varð fljótlega við ekkert ráðið. Hélst í nótt norðaustan ofsaveður, með þeim meiri, sem hér koma. Urðu miklir skaðar í sveitinni, hey sópuðust í burtu með öllu, svo hundruðum og jafnvel þúsundum kapla, bæði flatt og uppsett. Þak fauk af íbúðarhúsinu á Lýsuhóli, og einnig þak af fjósi á þeim bæ. Þá fauk þak af fjárhúsum á bænum Barðastöðum og fauk í sjó fram. Heyskaðinn er enn ekki fullkannaður, því hér er enn stórviðri. ÞG

Enn eru úrkomufréttir í Tímanum 25.ágúst:

Lokið var brúarsmíði yfir Blautukvísl á Mýrdalssandi núna fyrir helgina. Einnig var lokið því verki að hlaða grjóti að brúarstöplum og leggja veg að brúnni báðum megin. Í fyrradag var unnið að því að veita vatninu i farveg undir brúna. Fyrsta tilraunin til þess mistókst. Tókst að vísu að koma nokkru vatnsmagni til að renna þessa tilætluðu leið, en ekki leið á löngu, þar til vatnið hafði hlaðið undir sig framburði sínum og hætti að renna undir brúnni. Ástæðan mun vera sú, að vatninu hefur ekki verið grafinn nógu djúpur farvegur. Talið er, að árangur muni ekki nást nema fyrst sé grafinn töluvert djúpur farvegur, og helst grafið verulega niður fyrir vatnsborðið eins og það er í sandinum. Vatnið rennur nú vítt og breitt um sandinn, en unnið er af kappi að því að veita því undir brúna. Ef vel tekst til, er líklegt, að því verki verði lokið fyrir eða um næstu helgi, en annars er örðugt að ákveða, hversu langan tíma það kann að taka.

Óhemju rok og rigning brast á aðfaranótt laugardagsins [22.] og stóð fram undir kvöld á sunnudag. Varð þá þegar mjög mikið í öllum vötnum, og var svo enn í gær. Voru allar ár ófærar öllum farartækjum, og engum fært austur yfir Mýrdalssand nema fuglinum fljúgandi.

Dalvík í gærkveldi. — Sumarið hefur verið sérlega stirt og þó hefur tíðarfarið í ágúst tekið út yfir. Framan af í sumar voru alltaf heldur lélegir þurrkar, en síðasta hálfan mánuðinn hafa oft komið stórrigningar og síðustu nætur gránað í fjöll. Er nú víða þriggja vikna hey úti. Einstaka bóndi er ekki búinn að slá tún sín fyrra sinni alveg og þó nokkrir eiga töluvert úti a£ fyrri slætti. Menn hafa slegið seint svo að taðan er trénuð og úr sér sprottin. Grasið hefur verið geysimikið, svo að heyfengur er orðinn töluverður en ekki eins og skyldi.

Úrkomur héldu áfram, til skiptis í hinum ýmsu landshlutum. Norðurland slapp þó best. Eftir nokkuð kuldakast snemma í september hlýnaði og varð óvenjuhlýtt var um tíma og þó sérstaklega framan af október. 

Tíminn segir frá 30.ágúst:

Nokkra síðustu daga hefur verið brakandi þerrir á Norðurlandi, en áður höfðu verið samfelldir óþurrkar á fjórðu viku. Vindátin var suðlæg og vestlæg, og mjög hlýtt í veðri. Í gærmorgun klukkan hálf sjö var 14 stiga hiti á Akureyri, og mun hitinn hafa verið kominn undir 20 stig fyrir hádegið. Bændur hafa náð mjög miklum heyjum þessa daga, þrátt fyrir skúraleiðingar sums staðar frammi til dala. Á Austurlandi var sömuleiðis mjög góður þurrkur í gær, suðvestanátt og sólskin og 15—17 stiga hiti. Þá hafði ekki komið vorþurrkur í þrjár vikur, og eru mikil hey úti og víða farin að hrekjast. Þurfa menn tvo til þrjá þurrkdaga til að heyskapur komist í sæmilegt horf.

Tíminn segir 9.september frá skriðuföllum: 

Ísafirði 5.september. Hér hefur rignt síðan um miðjan dag í gær. Af því hafa gerst mikil skriðuföll. t.d. er Óshlíðarvegur alveg tepptur, þar sem margar skriður hafa á hann fallið. Nú er hér norðanveður með slyddu niður í byggð.

Tíminn segir frá hlýindum í pistli 17.september:

Mjög óvanalegt veður hefur verið á Norðurlandi undanfarna daga og einkum í gær, hiti mikill, móða í lofti og dimmt yfir. Mikil kyrrviðri eru nú um land allt og von til að þau haldist enn um skeið. Á Akureyri komst hitinn upp í 18 stig í gærdag, en bað er mjög óvenjulegt um þetta leyti árs. Alls staðar á Norðurland. var mikið mistur í lofti. Fréttaritari Tímans á Fosshóli í Suður-Þingeyjarsýslu lýsti veðrinu svo, að í suðri væri að sjá sem biksvaran öskubakka, og legði síðan mistri yfir landið með hægri sunnan golu. Menn voru þar í göngum og var hitinn svo mikill, að erfitt var að fást við féð.

Mikla rigningu gerði um allt sunnan- og austanvert landið seint í september. Sólarhringsúrkoman í Reykjavík að morgni 26. mældist 49,2 mm, það mesta sem vitað er um í septembermánuði. 

Tíminn segir af rigningum, flóðum og skriðuföllum í pistlum þann 27. og 29. september:

[27.] Mikil stórrigning gekk yfir Austurland í fyrradag og fyrri nótt og fylgdi allmikið hvassviðri sum staðar. Er þetta almesta vatnsveður sem komið hefur þar í sumar og haust. Nokkrar skemmdir urðu á vegum af völdum veðursins, stíflugarður skemmdist við Grímsárvirkjun og óttast er að eitthvað af kindum hafi flætt á Héraði. Rigningin stóð linnulaust allan föstudaginn og fram á laugardagsmorgun, en þá birti upp og gerði besta veður. Má telja að skemmdir af veðrinu hafi orðið furðu litlar, og er það eflaust því að þakka að ekki hafði rignt lengi og var jörð því þurr og drakk mikið í sig. Hins vegar getur kárnað gamanið ef stórrigningu gerir á nýjan leik ofan í þessa. Í veðrinu hlupu skríður á nokkrum stöðum og lokuðust vegir af þeim sökum. Í Oddskarði á Norðfjarðarvegi hlupu nokkrar smáskriður og sömuleiðis lokaðist vegurinn um Njarðvíkurskriður til Borgarfjarðar eystri. Strax í gærmorgun var hafist handa um að ryðja vegina, og munu þeir hafa opnast aftur í gærkvöldi. Þá lokaðist Fáskrúðsfjarðarvegur af skriðufalli og smáleg skriðuföll urðu á Fagradal. Báðir þessir vegir voru opnaðir aftur í gær. Í Eskifirði kom mikill vöxtur í Bleiksá og skemmdist brúin yfir ána. — Verður hún því lokuð uns sinn þar til viðgerð hefur faríð fram.

Kirkjubæjarklaustri í gær. Stórrigning var hér í gær og nótt eins og annars staðar sunnanlands. Í Skaftártungu hljóp skriða á föstudag úr Hemruhömrum og lokaðist vegurinn milli Flögu og Hemru. Skriða þessi var mjög stórgrýtt og ill viðfangs, en þó opnaðist vegurinn aftur í dag. Ekki er vitað að annað tjón hafi orðið í Skaftafellssýslu af völdum veðursins. Á Mýrdalssandi er allt með kyrrum kjörum og unnið áfram að viðgerð vegarins. Í dag er verið að bera grjót á stíflugarðinn, en búið er að loka skörðunum í hann. Vöxtur er hér í öllum vötnum svo mikill sem mest má verða, en úrkoman náði 43 mm í gær. Í dag rignir hér ennþá, gengur á með krapaskúrum. Veður er kalsalegt og hefur gránað í fjöll fram á brúnir. Gangnamenn leggja á afrétt í dag í þessu ófýsilega veðri. V.V.

[29.] Vegasambönd rofnuðu víða, t.d. leiðin til Norðfjarðar, Borgarfjarðar eystra og Breiðdals. Þar ruddi áin Jóka sér leið fram hjá brúnni og tók með sér veginn á kafla. Er þetta i fyrsta sinn, sem hún heldur ekki kyrru fyrir undir brúnni, síðan hún var byggð. Allar þessar leiðir hafa nú verið opnaðar til bráðabirgða, og til gamans má geta þess, að í gær var farið undir brúna á Jóku til þess að komast á vaðið.

Enn dró til tíðinda á Mýrdalssandi. Tíminn 9. og 10. október:

[9.] Feiknalegir vatnavextir hafa verið á Mýrdalssandi að undanförnu og gífurlegt vatnsmagn flæðir yfir sandinn. Mæðir vatnið mjög á varnargarðinum meðfram veginum yfir sandinn og flæðir á stöku stað yfir garðinn, en unnið er sleitulaust að því að styrkja hann. Þrjár ýtur vinna að því að ryðja að garðinum og allfjölmennur vinnuflokkur stendur í ströngu við að styrkja hann með sandpokum.

Ofsaveður var í Reykjavík í gær, suðaustan stormur og rigning. — Vatnið rann í lækjum eftir götunum, og menn voru ekki meira úti við en brýnasta nauðsyn krafði. Á sjötta tímanum stytti upp um hríð, en hvassviðri hélst. Veðurstofan gerði ráð fyrir framhaldi á svipuðu veðri næsta sólarhring. En ekki gengur eitt yfir alla, þótt skammt sé milli þeirra. Á Akranesi var að vísu rok, en engin rigning að ráði. Austanfjalls var slagveðurs rigning, á Hvolsvelli ekki meira en vant er, í Þykkvabænum skúraveður og sá til sólar á milli. Í Vík og á Mýrdalssandi var óhemju úrkoma, en engu meira en verið hefur í Kirkjubæjarklaustri. Á Eyrarbakka var svipuð úrkoma og verið hefur þar í haust, en ofsaveður í Vestmannaeyjum.

[10.] Eins og búist var blaðinu í gær brast varnargarðurinn á Mýrdalssandi snemma í fyrrinótt og vatnið vall fram sandinn. Er nú leiðin yfir Mýrdalssand ófær öllum bifreiðum í annað sinn á þessu ári. Vatnsflóð þetta er talið með eindæmum mikið, og varla slíks dæmi nema í Kötluhlaupum.

Slide9

Sérlega hlýtt var snemma í október. Kortið sýnir veðrið kl.15 þann 6. dag mánaðarins. Hiti víða á bilinu 14 til 16 stig. Hámarkshiti var 18,5 stig á Galtarvita þennan dag, en fór hæst í 20,9 stig austur á Seyðisfirði. 

Morgunblaðið segir 22.október frá úrhelli eystra:

Neskaupstað, 21. október. Úrhellisrigning olli talsverðu tjóni í dag. Vatnsból bæjarins skemmdust. Um klukkan 6 í morgun gerði mikla rigningu af suðaustri í Neskaupstað. Herti veðrið eftir því sem á morguninn leið og milli kl. 10-12 var eindæma úrhellisrigning. Eftir hádegið stytti upp og lægði. og síðdegis var komið besta veður. Vegna veðursins um morguninn var kennsla í barnaskólanum felld niður síðdegis. Í hlíðinni fyrir ofan bæinn eru margir lækir. Í rigningunni hlupu þeir allir, og friðsömustu smálækir veltust fram kolmórauðir. Fylltu þeir öll vatnsból vatnsveitu bæjarins af framburði, en vatnið í leiðslunum er kolmórautt í bili. Einkennilegt var að sjá, hvernig framburður lækjanna litaði fjörðinn. Um hádegi náði brúni liturinn út undir miðjan fjörð norðan megin. Einni til tveim stundum síðar var allur fjörðurinn brúnn að lit, en er líða tók á daginn var sjórinn orðinn tær norðan megin, en mórauður að sunnanverðu. En þá voru lækirnir fyrir ofan bæinn orðnir tærir að sjá. Nokkrir lækir hlupu yfir vegi og götur. Eitt ræsi fylltist og eyðilagðist, en með harðfylgi tókst að halda götunum færum fyrir bifreiðaumferð. En á tímabili var sums staðar ófært gangandi fólki vegna vatnsflaums. Má telja að við borð hafi legið að stórtjón yrði á húsum og mannvirkjum í bænum — og hefði það vafalaust orðið, ef stórrigningin hefði staðið öllu lengur. — Fréttaritari.

Reyðarfirði 21. október. — Úrhellisrigning og hvassviðri var hér í fyrrinótt fram undir morgun, en upp úr hádeginu fór að stytta upp. Miklir vatnavextir urðu í ám og lækjum, og skriðuhlaup urðu í Fagradal á veginn milli Reyðarfjarðar og Héraðs. Urðu allmiklar skemmdir á veginum. Búið er nú að opna veginn til bráðabirgða, en eftir er að ryðja hann og hreinsa til fulls. ... Í veðurham þessum og skriðuhlaupum slitnaði jarðsíminn og símasambandslaust varð milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða.

Tíminn 3.nóvember

Brúin yfir Blautukvísl hefur nú grafist að fullu í sand og sér hennar ekki stað lengur. Enda mun það síst að furða, þar sem talið er, að á 5 dögum hafi vatnselgurinn breikkað árfarveginn frá 40—50 metrum upp í ca. 350 metra, og hafi á sama tíma flutt fram um hálfa aðra milljón teningsmetra af sandi, svo síst er að undra, að eitthvað hverfi. Lítið vatn er í ánni þessa daga og því sæmilega fært um sandinn jeppum og stærri bílum. Vegamálastjóri tjáði blaðinu í gær, að ekki yrði reynt.og bæta neitt úr á Sandinum í haust, en sennilega yrði reynt að grafa brúna upp þegar fram liðu stundir.

Brimasamt var um mánaðamótin október/nóvember. Þann 31. október varð minniháttar tjón vegna brims í Sandgerði (Veðráttan). Aðfaranótt mánudagsins 2. nóvember fórust 8 hross í brimi í skerjum í Hjörseyjarsundi á Mýrum og skemmdir urðu sömu helgi á fiskverkunarstöðvum á Akranesi (Veðráttan). 

Tíð þótti lengst af nokkuð hagstæð í nóvember. Tvö slæm illviðri gerði þó í mánuðinum. Það fyrra náði til flestra hluta landsins dagana 8. til 10., en hið síðara, sem gerði í kringum þann 20. olli einkum vandræðum við norðurströndina sem og í Austur-Barðastrandarsýslu. Fyrra veðrið var af norðri. Um það fjallar Jón Eyþórsson nokkuð í grein í tímaritinu Veðrinu [Eftirmæli vetrar 1959/60 Veðrið 1., 1960, s.3-7]. Ljóst er að þetta kom veðurfræðingum nokkuð í opna skjöldu - ekki þó alveg. Jón segir frá skyndilegri dýpkun lægðarinnar og braut hennar. Að hans sögn féll miðjuþrýstingurinn örast um 18 hPa á 6 klukkustundum að kvöldi þess 7. Síðan segir hann m.a.:

Á laugardag 7. nóvember leit lengi vel út fyrir, að lægðin mundi fara norðaustur eftir Grænlandshafi og valda skammvinnu S- og SV-áhlaupi. Um kvöldið varð ljóst, að hún mundi fara yfir sunnanvert landið, og gerði veðurspáin þá ráð fyrir vaxandi N-átt og snjókomu um allt Norðurland. — Á sunnudagsmorgun var enn hægviðri norðan lands, en lægðin, 950 millibar, skammt frá Vestmannaeyjum. Var þá gert ráð fyrir N-hvassviðri eða stormi norðan lands, en veðrið skall þar á um miðjan dag og hélst óslitið fram á þriðjudag, einkum á Norðausturlandi.

w-1959-sponn_b

Línuritið sýnir lægsta loftþrýsting á 3 klukkustunda fresti dagana 5. til 23. nóvember 1959 (rauður ferill, hægri kvarði). Bláu súlurnar eru aftur á móti þrýstispönn yfir landið, mismunur hæsta og lægsta þrýstings á hverjum athugunartíma (vinstri kvarði). Veðrið 8. til 10. sker sig úr. Það skall mjög snögglega á. Lægðin dýpkaði afarhratt og var þar að auki á miklum hraða þegar hún kom upp undir suðurströndina aðfaranótt 8. Síðan var þrýstibratti mikill þann 21. og litlu minni dagana þar á eftir. Þrýstingur þá daga var ekki sérlega lágur, en lægð þrengdi sér til norðurs á móti öflugri hæð yfir Grænlandi. 

Slide11

Endurgreining japönsku veðurstofunnar sýnir stöðuna kl. 18 síðdegis þann 7. Lægðin er hér orðin dýpri heldur en veðurkort þess tíma sýndu, eða um 970 hPa. Morguninn eftir var þrýstingur í miðju hennar kominn í námunda við 950 hPa og var hún þá skammt suður af Vestmanneyjum. Hún hægði á sér og fór meðfram suðaustur- og austurströndinni. 

Slide12

Síðdegis daginn eftir (þann 8.) var lægðin skammt undan Norðausturlandi og gríðarlegt norðanveður á landinu, munur á lægsta og hæsta þrýstingi landsins meiri en 30 hPa. 

Við rekjum nú nokkrar blaðafréttir af veðrinu og tjóni í því. Tíminn segir frá 10.nóvember:

Eindæma snjó hefur kyngt niður fyrir norðan síðastliðna tvo sólarhringa. Á Akureyri var fannkyngið slíkt, að stóra bíla fennti í kaf á einni nóttu. Erfitt er að bera sig yfir, þegar svona er ástatt, enda þýðir lítið að ryðja snjó af vegum meðan hríðinni linnir ekki.

Ísafirði í gær. — Hér er grenjandi stórhríð og mikil ófærð í bænum og nágrenni hans. Fjöldi togara hefur leitað vars undir Grænuhlíð, aðallega íslenskir og þýskir. G.S.

Í gærmorgun varð það hörmulega slys á Hofsósi, að þrír sjómenn drukknuðu þar á legunni við að bjarga báti sínum undan sjóum. Blaðinu er ekki með öllu kunnugt um, hvernig slysið bar að höndum. Hvassviðri og stórhríð var á og töldu menn báta þá, sem lágu við festar á legunni, vera í hættu. Sjö menn brutust því fram í bátana, sem voru tveir. Skömmu síðar fórst annar þeirra með þremur mönnum, en fjórir menn eru enn í hinum bátnum og eru þar í lífshættu, þar sem mikil hætta er á, að báturinn slitni upp. Mennirnir fjórir hafa talsamband við land og eru sæmilega birgir af olíu, svo þeir geta keyrt vélina.

Aftakaveður gekk yfir landið í fyrrinótt og gær, og kvað mest að því á Norðurlandi.  Rafmagnsleysi fylgdi víða með þessu, svo sem í Þingeyjarsýslum og Eyjafirði, og var það mjög til baga, þar sem upphitun húsa er víða bundin rafmagni. Á Akureyri var kolvitlaust veður, svo að varla sá milli húsa. Fannkyngi var þar afskaplegt, svo að bílar voru horfnir i fönn. Sem dæmi má nefna, að framan við Flugfélagsafgreiðsluna stóð bíll nokkur, en í gær sá hans ekki stað fyrir fönn. Var talið, að um meterslag af snjó myndi liggja yfir honum. Þar var alveg rafmagnslaust frá því á sunnudagskvöld. Kennsla féll niður í skólum og allflest hús voru bæði myrkvuð og köld. Mörg hús eru hituð þar upp með rafmagni eða olíuhitun, sem tengd er við rafmagn, og sátu íbúar þeirra í algerum kulda. Matseld fór fram á prímusum og olíuvélum. Tveir staðir í bænum selja steinolíu og í gær voru svo langar biðraðir við þær, að annað eins hefur ekki sést þar í bæ.

Í veðri þessu varð togarinn Harðbakur fyrir svo miklum sjó í mynni Eyjafjarðar, að hann lagðist alveg á hliðina. Slys eða skemmdir urðu þó ekki, og er hann nú kominn til Akureyrar, þar sem hann landar 150 tonnum af fiski. Mjólk barst að vonum seint til Akureyrar vegna ófærðarinnar og þar við bættist, að svo iðulaus var stórhríðin, að ganga varð fyrir bílunum. Á Dalvík var varla meira en 200 metra skyggni, og þar var sama sagan með ljós og hita sem á Akureyri nema hvað ekki eru eins mörg hús þar háð rafmagni með upphitun.

Sjá má af fregnum Tímans 11.nóvember að ekki var ánægja með spár Veðurstofunnar:

Mjög ber á því, þegar rætt er við Norðlendinga, að þeim er síður en svo hlýtt til Veðurstofunnar. Hafa þeir jafnvel farið þess á leit, að fengin yrði veðurlýsing hennar fyrir síðustu helgi, svo og veðurkortin fyrir sama tíma. Veðurspáin var síður en svo slæm, svo menn voru alveg rólegir um fé sitt. En svo brast skyndilega yfir þetta ofsaveður, sem stóð hátt á annan sólarhring, og kom það svo skyndilega, að mjög óvíða varð því viðkomið að bjarga fé. En helgina áður var spáin óhagstæð. og ruku menn þá til og smöluðu fé sínu. Þá kom að vísu ekkert óveður, en segja má, að betra sé að fá illar fréttir, sem ekki rætast en góðar fréttir, sem reynast rangar.

Víða norðanlands er útlit fyrir, að fé kunni að hafa fennt, en ekki var hægt að leita þar fyrr en í gær, og jafnvel þá gekk leitin ekki greitt fyrir sig, því á flestum stöðum gekk á með éljum, þótt upp birti á milli. Of snemmt er að segja nokkuð um, hve margt kaun að hafa fennt eða hvar. Fréttaritari Tímans á Fjöllum fjáði blaðinu í gær, að í nágrenni hans hefði lítið fundist fennt enn sem komið er, þó hefðu 10 kindur fundist í fönn fram á Víðidal.

Á Ólafsfirði urðu miklar skemmdir á hafnarmannvirkjum í ofsaveðrinu, sem gengið hefur yfir norðanlands að undanförnu. Þegar blaðið frétti til síðast í gær, var enn ekki vitað um þær skemmdir til fulls, þar sem veðurofsinn var svo mikill, að ekki var hægt að athafna sig við höfnina. Þegar stórviðrið hófst, lágu 3 slórir línubátar á legunni. Einn þeirra var keyrður upp í sand, til þess að bjarga honum frá broti, en hinir voru hafðir í gangi og tókst þannig að bjarga þeim. Þó mun einn þessara báta hafa brotnað nokkuð að aftan, var það báturinn Þorleifur Rögnvaldsson. Að sjálfsögðu var ekki vitað hve miklar þær skemmdir kunna að vera, en talið sennilegt, að setja verði hann í slipp til viðgerðar. Þá sást úr landi, að brotnað höfðu stór skörð í skjólgarðinn, sem er úr þekkri járnbentri steinsteypu. Annað bilið er a.m.k. 9—10 metra breitt. Þá er nokkurn veginn fullvíst, að önnur tveggja bryggja þar fyrir innan hafi laskast eitthvað, þar sem úr henni hefur rekið á land. BS

Veðrið skánaði mjög á Akureyri í gær, þótt enn gerði bylgusur við og við. Þar ríkir enn rafmagnsleysi, svo sem annars staðar á svæði Laxárvirkjunarinnar. Steinolía er eina varan sem selst á Akureyri um þessar mundir. Helstu lífsþægindi á Akureyri um þessar mundir eru kertaljós, prímusar og olíuvélar, enda er svo komið, að steinolía má heita eina varan, sem nokkur sala er í um þessar mundir. Þær eru helstu fréttir af Laxárvirkjuninni, að krapið, sem stíflaði vatnsveituna, tók með auknu frosti að frjósa í stífluhellur. Unnið var að því að sprengja þær í gær, og stóðu vonir til þess, að hægt yrði að hleypa einhverjum straumi á í nótt. Erfiðlega gengur að koma mjólk til Akureyrar, enda er fannfergi geysimikið. Þó var búist við, að mestur hluti venjulegs mjólkurmagns myndi komast til Akureyrar í gærkvöldi. Bílarnir tveir, sem lögðu af stað til Akureyrar frá Dalvík í fyrradag, komust ekki nema að Fagraskógi. Þaðan báðu þeir um hjálp, og fóru tveir trukkar frá Dalvík á eftir þeim. Þeir komust þó heldur ekki lengra þann daginn, en í gær var tekið að flytja mjólkurbrúsana af mjólkurbílunum yfir á trukkana, og átti að koma til móts við þá frá Akureyri.

Húsavík, 10. nóvember — Veðrið hefur nú gengið mjög niður, þótt enn sé hríðarhreytingur. Samgöngur hafa engar verið við bæinn í dag, utan hvað einn snjóbíll fór á næstu bæi eftir mjólk, þannig að næg neyslumjólk hefur verið á Húsavík. Rafmagn er enn skammtað frá díselrafstöð fiskiðjuversins. Fé hefur fennt hér í sýslunni, en ekki er enn vitað hve mikið. Talið er fullvíst, að margt hafi fennt á Aðaldal, á einum bænum þar, Hraunsholti, vantar 48 kindur af 50. Mývetningar fóru i smalamennskur fram í Grafarlönd s.l. laugardag, og voru ekki komnir aftur í dag, en ekki er ástæða til að óttast um þá fyrir því.

Tíminn rekur frekari skemmdir í frétt 12. nóvember:

Miklar skemmdir. urðu á hafnarmannvirkjum á Siglufirði í veðrinu mikla, sem gekk yfir Norðurland á sunnudag og mánudag. Flóðvarnargarðurinn norðan Eyrarinnar gereyðilagðist, og nokkrar skemmdir urðu á öldubrjótnum. Fyrir nokkrum árum var gerð lagfæring á  flóðvarnargarðinum við norðanverða Siglufjarðarhöfn þ.e.a.s. stórgrýti var rutt í sjóinn fjær höfninni á móts við beygju, sem á garðinum er. Hlutverk þessarar grjóturðar var að draga úr brimi við sjálfan garðinn. En í veðurofsanum nú um daginn var svo mikið brim, að sjórinn tók grjót þetta og slöngvaði því yfir garðinn, svo að hann mölbrotnaði undan því. Annars staðar á garðinum, þar sem grjót var ekki fyrir utan, braut sjórinn stór skörð í hann. Einnig urðu skemmdir á sjálfum öldubrjótnum, austanvert við höfnina. Sprakk þar gólfið, svo að ekki er eftir nema járnbindingin. Garðurinn er þannig byggður, að ofan á grjóthleðslu var steypt járnbent plata, en hinum megin var járnþil og sandur settur á milli. Hefur brimið síðan smá jagast inn í sandinn, þar til hann sprengdi af sér steinplötuna. Þetta er þó ekki á stóru svæði. BJ

Árneshreppi, Ströndum, 11. nóvember. Hér gerði aftaka veður á mánudag og sunnudag [8.]. Í gær fóru menn til þess að athuga um fé, en það hefur víða farist hér um slóðir. Á Felli fóru 9 kindur í sjóinn, tvær á Krossanesi, og á Gjögri vantar 7 kindur. Af þeim hafa tvær fundist reknar í Veiðileysu. Hinar eru taldar hafa farið í sjóinn líka eða að þær hafi fennt. Annars er ekki talið sennilegt, að margt fé hafi fennt hér í byggðum. Með veðurofsanum gerði úrhellisísingu, svo snjó festi svo að segja hvergi. Hins vegar er talið mjög sennilegt, a3 það fé sem vantar, hafi farið í sjóinn. Þessa daga var aftaka brim og hauga sjór, með því allra versta, sem getur komið hér. Þó bjargaði mikið, að smástreymt var meðan á veðrinu stóð. Nú er hér batnandi veður sem víðast annars staðar.

Og enn bárust fregnir. Tíminn 14.nóvember:

Frá fréttaritara Tímans á Haganesvík. — Fárviðrið um helgina er eitt hið mesta sem sögur fara af hér um slóðir og má teljast vel sloppið að ekki urðu stórskaðar af völdum þessara náttúruhamfara. Á sunnudag og mánudag gekk hærra á land upp en orðið hefir um langt árabil. Skrifstofufólk hjá kaupfélaginu varð vitni að því á mánudaginn að hafaldan skall oft á húsinu sem stendur á sjávarkambi og voru það þung högg sem ægisdætur greiddu húsveggjunum í þetta sinn. Sandósbrú tók af og veginn alveg á 40—50 metra kafla. Á þriðjudag braut áin sér nýjan farveg til sjávar yfir þjóðveginn og eru því engir vegir færir til annarra byggða og Fljótin alveg vegasambandslaus. Ennfremur eru horfur á því, að til nýrra spjalla dragi á vegum, ef ekki er undinn bráður bugur að viðgerðum. Raflínu, sem lá á kambinum tók af í veðrinu og liggja staurar úr henni eins og hráviði á víð og dreif. Einnig bátar, sem ráku á land og fuku í fárviðrinu. Bændur vantar talsvert af fé, en þó horfur á að fjárskaðar hafi orðið minni en ætla mátti.

Eins og áður hefur verið frá skýrt, urðu mikil spjöll á hafnarmannvirkjum á Ólafsfirði í norðanveðrinu um helgina. Nú hefur veðrið gengið svo mikið niður, að hægt hefur verið að átta sig á skemmdum, sem orðið hafa. Tvö stór skörð hafa brotnað í skjólgarðinn, og er lengd þeirra til samans um 40 metrar. 13 metrar af því hafa fallið inn í höfnina, en hitt liggur á varnargarðinum. Innan varnargarðsins er trébryggja, og er brotið úr henni á móti skörðunum í varnargarðinn. Annað hvort hafa stykki úr garðinum kastast á hana, eða sjórinn hefur verið svona þungur inn um skörðin. Olíuleiðsla lá innan á garðinum, varin með steypu, og hafði sjór komist undir hana og slitið eins og tvinnaspotta. Lágu endar hennar út í sjó. Þetta er eitt almesta brim, sem komið hefur á Ólafsfirði um langan tíma. Til þess að gefa mönnum gleggri hugmynd um hamfarirnar, má geta þess, að veggurinn. sem úr brotnaði, er ca 60—70 cm þykkur neðst, og rækilega járnaður. Járnin hafa kubbast sundur, og stykkin eru mörg tonn á þyngd. 3 stórir línubátar lágu á legunni, þegar óveðrið hófst. Einum, þeirra, Stíganda, varð að hleypa upp í sand, og þar liggur hann enn, djúpt grafinn. Er óvíst, að hann komist á flot af eigin rammleik. Annar, Þorleifur Rögnvaldsson, varð fyrir skemmdum, svo búist var við, að hann myndi verða að fara í slipp. Hann er nú kominn til Akureyrar og skemmdirnar taldar minni en horfur voru á, svo að hægt verður að gera við hann án þess að taka hann í dráttarbraut.

Tíminn segir af síðara nóvemberillviðrinu í fréttum 24., 25. og 26. nóvember:

[24.] Tjaldanesi [Reykhólasveit], 23 nóvember. Síðastliðinn laugardag [21.nóvember] gerði ofsaveður hér í sveit og var stormur svo æðisgenginn að austan að elstu menn muna ekki annað eins. Allmikið tjón varð á húsum og mannvirkjum og einnig fauk hey svo að til skaða horfir. Á bænum Hvoli stendur nýbyggt hús. Þar fuku plötur af þaki og var ofsinn í veðrinu svo mikill að plöturnar slitnuðu upp úr nöglunum. Einnig urðu þar miklar skemmdir á fjárhúsum. Þá þak af húsi í Fremri-Brekku og í Furunesi fauk heygalti út í veður og vind og týndist þar 10 kinda fóður svo ekki sást tangur né tetur efir. Á bænum Máskeldu fauk og ónýtist svipað heymagn. Minniháttar skaðar urðu á allmörgum bæjum öðrum. Víða mölbrotnaði allt sem brotnað gat og svo var veðurhæðin mikil að varla var fært um bæjarsund. Fjárskaðar urðu einnig. Í Akureyjum átti bóndi geymt fé í eyju þar er Höfnin nefnist. Þar hefur sjaldan sem aldrei flætt fé. En nú brá svo við að fórust 14 kindur af 36 sem gengu þar í eynni. Hefur bóndinn orðið fyrir tilfinnanlegu tjóni. MÁ

[25.] Versta veður hefur verið undanfarna daga á Siglufirði, norðaustan rok, og olli það talsverðum skemmdum á mannvirkjum í kaupstaðnum og í nágrenni hans. Mestar urðu þó skemmdir á Hólsbúinu, sem er eign kaupstaðarins. Þar fauk gafl og hluti af þaki íbúðarhúss og lenti brakið á ljósastaur og mölbraut hann, svo ljóslaust varð á búinu i tæpa tvo sólarhringa á eftir. Þá var símalína slitnuð fyrir nokkru. Hús þetta var timburviðbygging við aðalhúsið, og hafði vinnulið búsins aðsetur sitt í þeirri byggingu. Varð það að sjálfsögðu að flýja húsið og fara niður í kaupstaðinn, en karlmenn fóru á málum og sinntu skepnum, og mjólkuðu við skin gaslukta og kerta, meðan á rafmagnsleysinu stóð. Niðri í kaupstaðnum urðu einnig margvísleg spjöll, rúður brotnuðu af og járnplötur reif af húsum. Skúr nokkur, sem stóð skammt frá ljósastöðinni gömlu, fauk eins og hann lagði sig, en hey, sem í honum var mun standa til þess að gera lítið skemmt eftir. Nú er komið skaplegra veður. BJ.

Ólafsfirði, 24. nóvember. Síðan á fimmtudag í síðustu viku hefur verið sífellt gæftaleysi hér, og á laugardaginn [21.] gerði mikið rok af norðaustri. Kom það sér heldur illa, þar sem ekki hefur unnist tími til þess að lagfæra skemmdirnar, sem urðu á hafnarmannvirkjunum í óveðrinu um aðra helgi í nóvember, svo að sjórinn gekk óbrotinn inn i höfnina. Allir stærri bátar forðuðu sér til Akureyrar og skemmdir urðu hér engar í rokinu. BS

[26.] Frá fréttaritara Tímans á Haganesvík. Í óveðrinu á dögunum skemmdist bryggjan á Haganesvík verulega. Gróf undan henni og við það brotnaði niður hluti bryggjunnar. Bryggjan er þó nothæf, en þörf er aðgerða á skemmdunum, þar sem hætta er á frekari spjöllum, ef ekki fer fram viðgerð. Í sambandi við óveðursfréttir frá Haganesvík í blaðinu á dögunum skal tekið fram, til að fyrirbyggja misskilning, að Sandósbrú stendur, en hins vegar rofnaði vegurinn á kafla austan brúarinnar. Raflínustaurar sem fuku, voru ekki með línu, heldur var hér um að ræða stafla af lausum staurum, sem lágu ónotaðir á sjávarkambinum.

Um mánaðamótin kom sérlega djúp lægð að landinu úr suðri. Vindur var ekki sérlega mikill, en stórstreymt var og sjávarstaða óvenjulega há. Varð minniháttar tjón af.

Slide15

Korið sýnir lægðina miklu þegar hún varð hvað dýpst. Endurgreiningin giskar á 933 hPa í miðju. Upp úr þessu fór hún að grynnast. Þrýstingur á Stórhöfða fór lægst niður í 941,1 hPa um kvöldið. Hvasst var við suðurströndina, 13 vindstig á Stórhöfða. Einnig varð hvasst á Austfjörðum, en minna varð úr annars staðar. 

Tíminn 4.desember:

Reykjavík. Undanfarna daga hefur verið óvenjumikið flóð í höfninni og orsakað flóð í kjöllurum húsa í miðbænum svo til vandræða horfir víða. Stórstreymt hefur verið en þar að auk hefur verið mögnuð vestanátt og hefur það aukið flóðið. Sjórinn gutlar upp á bryggjur í höfninni, og standa bryggjugólfin ekki nema 1/2 fet upp úr sjó. Hefur það orðið til óhagræðis við verbúðabryggjurnar, svo erfitt hefur reynst að losa fisk úr bátum. Hins vegar hefur það ekki komið að sök við hafskipabryggjumar og samkvæmt flóðatöflu mun flóðið réna í dag. Sjór hefur gengið upp úr göturæsum í Austurstræti en á mótum Austurstrætis og Pósthússtrætis, liggur gatan nokkuð lægra en yfirborð sjávar í höfninni. Þegar flóðið var mest, gekk það upp yfir gagnstéttarbrún á þessu götuhorni. Í Landsímahúsinu hefur flætt geysimikið vatnsmagn inn í kjallarann svo til vandræða horfir. Gengur sjórinn þar upp um brunn, sem notaður er fyrir niðurfall. Rafmagnsdælur eru í gangi dag og nótt til að dæla upp úr kjallaranum og varna þess að sjórinn nái vélum í vélasal hússins. Vélarnar standa þó á pöllum, því áður hefur flætt inn í húsið, og er talið að þær séu ekki í hættu. Ekki hefur um árabil verið vart svo gífurlegs flóðs í því húsi eins og reyndar annars staðar í miðbænum. Verið er að grafa fyrir stórhýsi við Austurstræti þar sem áður var bókabúð Sigfúsar Eymundssonar. Þar hefur sjór fossað inn viðstöðulaust. Sjónum hefur verið dælt upp á götuna og ennfremur inn í portið hjá BSR. Það óhapp gerðist, að reim, sem tengdi saman dæluna og aflvélina, slitnaði, og var dælan óvirk um nokkurn tíma. Fylltist þá húsgrunnurinn af sjó. Í Landsbankanum og Ingólfshvoli mun ástandið vera skaplegt, enda eru þar dælur í gangi að jafnaði. Þó hefur gólfið í Landsbankahúsinu blotnað og enn meira vatn hefur komist inn í kjallarann á Ingólfshvoli, enda er þar allmiklu dýpra. Ýmsum mun umhugað að vita um ástandið í lögreglukjallaranum en þar hefur enginn sjór komist inn, enda eru þar engin niðurföll. Salerni eru næstu hæð fyrir ofan og liggja skolpleiðslur þaðan beint niður í götuna.

Ísafirði, 3. des. — Þrjá undanfarna morgna hefur verið óvenju háflætt hér á Ísafirði, og hefur sjórinn gengið um það bil feti hærra en algengt er á stórstraumsflóði. Hefur flætt yfir vegi og bryggjur, en skaðar hafa ekki orðið vegna þess að veður hefur verið mjög gott, logn og blíða. Engin skýring er á þessum óvenju miklu flæðum, en þetta er algengt hér á þessum árstíma, þótt sjaldan eða aldrei hafi yfirborð sjávar gengið jafn hátt og nú. GS

Alþýðublaðið segir frá flóði eystra 5. desember:

Eskifirði, 4. des. Í fyrrinótt [aðfaranótt 3.desember] gerði hér almesta flóð, sem hér hefur gengið yfir um áratugi. Geisaði hér suðaustan stórviðri, stormur og rigning. Var þetta við stærsta strauminn og gekk sjórinn langt upp á land. Vegir og vegkantar eyðilögðust, aðallega á kafla fyrir botni fjarðarins. Ein bryggjan fór alveg í ofviðrinu. Sjór flæddi inn í kjallara húsa þeirra, sem liggja neðst í kauptúninu, og urðu talsverð spjöll af þeim sökum. Bátar lentu upp í fjöru, en ekki munu skemmdir hafa orðið á þeim, svo að neinu nemi.

Tíminn segir 15.desember frá sviptibyl á Norðurfirði þann 13. desember:

Bæ, Trékyllisvík 14. desember. Þrjá báta Kaupfélags Strandamanna rak upp í sviptibyl á Norðurfirði í gær. Var hér um að ræða tvo stóra uppskipunarbáta sem bundnir voru saman og vel gengið frá. Þá rak á sjó út en fundust aftur reknir í Norðurfirði, báðir illa brotnir. Þriðja bátinn, skektu, tók í loft upp og skall hann niður á húsþaki nokkurn spöl frá. Brotnaði báturinn í spón og einnig laskaðist þakið. Hvasst var af austnorðaustri þegar þetta gerðist rétt fyrir hádegi en þó voru engin aftök. Gerðist þetta svo skyndilega að menn fengu við ekkert ráðið, en í Norðurfirði er byljótt mjög. Er þessi bátamissir Norðurfirðingum mjög bagalegur þar sem hafskipabryggja er engin og skipa verður upp úr bátum. Hér vestra hefur verið einmuna tíð undanfarið, stillur miklar og auð jörð og hefur verið unnið að jarðabótum allt fram á síðustu helgi.

Þann 14. slitnuðu tvö síldartökuskip upp á Siglufirði - olli það nokkrum vandræðum. 

Tíð var annars meinlítil í desember, en kvartað var um hálku á götum og vegum. Þann 1. desember 1959 byrjaði Morgunblaðið að birta veðurkort nær daglega - teiknuð af veðurfræðingum á Veðurstofu Íslands. Var það afgerandi viðburður í lífi ritstjóra hungurdiska. 

Ingibjörg Guðmundsdóttir í Síðumúla í Borgarfirði lýsir desember:

Desembermánuður var yfirleitt mjög mildur og góður að veðurfari. Sauðfé var þá tekið inn rétt eftir mánaðamótin og hefir verið hýst síðan, en hagar hafa verið góðir og sparað mikið hey. Jólaveðrið var eftirminnilega gott og fagurt. Síðustu dagana snjóaði og er jörðin alhvít. Snjódýpt 15 sm á sléttri flöt. Mesta frost var í gær, á gamlársdag, 15,5 st. Um næturfrost er ekki vitað, því þó Veðurstofan hafi sent 3 lágm.mæla, eru þeir allir ónýtir. Hefir slíkt aldrei komið fyrir síðan ég byrjaði veðurathuganir.

Lýkur hér upprifjun hungurdiska á ýmsum veðuratburðum ársins 1959. Tölulegar upplýsingar margvíslegar má finna í viðhengi.  


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Des. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • w-blogg211224b
  • w-blogg211224
  • w-blogg121224
  • w-blogg111224a
  • w-blogg101224b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 19
  • Sl. sólarhring: 213
  • Sl. viku: 984
  • Frá upphafi: 2420868

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 863
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband