Fárviðrið 18. febrúar 1959

Pistill þessi er sá síðasti í flokki þar sem fjallað er um fárviðri á Akureyri. Miðað er við að veðurathugun hafi getið um meir en 32,7 m/s 10-mínútna meðalvindhraða á stöðunum. Um slíkt eru aðeins þrjár heimildir á Akureyri. Við höfum áður fjallað um tvö þessara tilvika - en lítum nú á það þriðja, en það gekk yfir landið þann 17. og 18. febrúar 1959 - var verst fyrir norðan að morgni þess 18.

Slide1

Eins og sjá má af frétt Tímans gerði veðrið mikinn usla á Norðurlandi - en minnisstæðasti atburðurinn í þessu veðri var samt sjóslysið mikla þegar vitaskipið Hermóður fórst þá um nóttina fyrir Reykjanesi. 

Slide2

Þetta var alveg skelfileg vika og satt best að segja viknar ritstjóri hungurdiska enn þegar hann minnist hennar og þeirrar lömunar sem yfir þjóðina gekk. Nokkrum dögum áður fékkst staðfesting á því að togarinn Júlí hefði farist með öllum mönnum á Nýfundnalandsmiðum þann 8. febrúar og að Grænlandsfarið Hans Hedtoft væri einnig örugglega sokkið - og enginn af þeim 95 sem voru um borð hefði komist af. 

Lægðin sem olli þessu veðri var hluti af mikilli veðrasyrpu þessa gríðarumhleypingasama mánaðar.

Slide3

Aðdragandinn er svo sem kunnugur orðinn. Illviðrislægðin gengur til norðausturs á móts við vestanátt í háloftunum suður af Grænlandi. Það sem helst var óvenjulegt í þessu tilviki er hversu mikil lægðin var orðin strax fyrir sunnan Nýfundnaland. 

Slide4

Hún var heldur ekki eins hraðfara og ýmsar systur hennar. Hlýi geirinn afskaplega breiður - og hér er ekki neina sérstaka kreppu að sjá við lægðarmiðjuna um hádegi þann 17. febrúar. Hér gæti auðvitað verið um greiningarvanda að ræða - en niðurstaða líkansins um hámark illviðrisins þá um kvöldið, nóttina og morguninn eftir er nokkuð nærri lagi - þannig að líklega er greiningin hér að ofan nokkuð rétt - og þá háloftagreiningin hér að neðan líka.

Slide5

Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, þykkt sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs og sést umfang hlýja geirans vel - og „sumarhiti“ - guli liturinn nær langleiðina norður til Íslands. Kortið „ýkir“ kuldann yfir Grænlandi - það er enginn 1000 hPa-flötur yfir jöklinum vegna hæðar hans - líkanið veit það en til að gera kortið (og sjávarmálsþrýstikort og svo framvegis) fylla sýndargildi upp í eyðuna. - Það einkennir „kulda“ af þessu tagi að hann hreyfist ekkert - bara kemur og fer. Minna ber á þessum leiðinlega „sjúkdóm“ í framleiðsluvörum evrópureiknimiðstöðvarinnar. Hann truflar stundum sjónræna túlkun kortanna.  

Slide6

Klukkan 6 að morgni þess 18. var veðrið í hámarki vestanlands - og síðar um morguninn fyrir norðan og austan. 

Slide7

[Erfiður kafli sem hlaupa má yfir] Á háloftakortinu sést hvers eðlis veðrið var. Við sjáum hvernig köld stroka fer til austurs fyrir sunnan land (hvíta örin). Kaldast er við örina - en hlýrra bæði sunnan og norðan við hana. Úti af Vestfjörðum er hlýr blettur - þykktarhæð. Á erlendum málum er þetta fyrirbrigði nefnt „seclusion“ - eitthvað aflokað - og einkennir sumar illar lægðir. Við eigum ekki enn gott orð fyrir þetta á íslensku - en það dettur af himnum ofan einhvern daginn.

Fyrir sunnan örina á myndinni liggur halli jafnþykktar- og jafnhæðarlína að einhverju leyti samsíða - þar er vindur minni við jörð heldur en uppi - fyrir norðan örina vex þykkt með fallandi hæð vindur er meiri í neðri lögum heldur en uppi. Þykktarhæðin þrönga bætir í vindinn - sem er hér ærinn fyrir. 

Slide8

Hér má sjá Íslandskortið á hádegi - þá er vindur aðeins að byrja að ganga niður á Akureyri og nokkuð niðurgenginn vestanlands. Vestfirðir sluppu furðuvel.

Mikið tjón varð í þessu veðri. Hér er listi yfir það helsta. 

Vitaskipið Hermóður fórst með 12 manna áhöfn undan Höfnum. Miklar skemmdir urðu þá víða á húsum, bátum og öðrum mannvirkjum vegna hvassviðris. Þak tók af hluta íbúðarhúss á Sauðárkróki og járnplötur af mörgum húsum, þar varð einnig tjón í höfninni. Hluti hlöðuþaks fauk á bænum Reykjavöllum í Tungusveit. Fjárhús á bænum Kotá í útjaðri Akureyrar fauk og drápust 3 kindur, mikið af járni fauk af húsum á Akureyri og heil og hálf þök af húsum í byggingu, tré rifnuðu upp með rótum, m.a. mörg velvaxin í Gróðrarstöðinni, bátur fauk þar út á sjó og vegagerðarskúr fauk og skemmdi nokkra bíla. Jeppi fauk út af vegi í nágrenni Akureyrar og gjöreyðilagðist, lítil slys urðu á fólki.

Járnplötur fuku af allmörgum húsum á Húsavík og rúður brotnuðu, þar slösuðust tvær stúlkur er þær fuku um koll. Allmiklar skemmdir urðu á Árskógsströnd, þak tók af hlöðu á Stærra-Árskógi og braggi fauk í Hauganesi. Skemmdir urðu á verksmiðjunni á Hjalteyri og þar fuku skreiðarhjallar og fleira. Þak fauk af íbúðarhúsi á Búlandi í Arnarnesshreppi. Skemmdir urðu á þökum á Dalvík. Járnplötur fuku og rúður brotnuðu í Hrísey, sömuleiðis á Grenivík. Þak tók af hlöðu á Litla-Gerði þar í grennd. Hálft þak tók af íbúðarhúsi á Svalbarði á Svalbarðsströnd, þar í sveit varð víða foktjón. Allmiklar rafmagns- og símabilanir urðu í Eyjafirði.

Meir en helmingur þaks á íbúðarhúsi á Stöng í Mývatnssveit fauk og víðar fauk járn þar í sveit. Talsverðir heyskaðar urðu í Aðaldal og minniháttar tjón varð á nokkrum bæjum í Bárðardal. Minniháttar foktjón varð í Mýrdal og á Ströndum. Ekkert hafði verið flogið innanlands í 6 sólarhringa þegar hér var komið. 

Eins og áður er um getið var þessi febrúarmánuður sérlega illviðrasamur.

Slide9

Lárétti ásinn á myndinni sýnir daga febrúarmánaðar - frá þeim 9. og áfram. Lóðrétti ásinn til vinstri sýnir mun hæsta og lægsta þrýstings á landinu - mælikvarði á þrýstivind á hverjum tíma. Lóðrétti ásinn til hægri er þrýstikvarði.

Súlurnar sýna þrýstimuninn á 3 klukkustunda fresti - það er mikið fari hann yfir 20 hPa. Rauði, strikaði ferillinn sýnir lægsta þrýsting landsins á hverjum tíma. Frá 9. til 18. gengu 6 illviðri yfir landið, merkt með númerum á myndinni. Þar má einnig sjá ríkjandi vindátt í hverju veðri fyrir sig. 

Lægðirnar sem gengu yfir þann 14. og 15. voru gríðarkrappar - en hraðfara. Lægðin „okkar“ var hins vegar stór um sig - og veðrið byrjaði sem sunnanveður (hlýi geirinn), en snerist síðan í suðvestur og vestur. Þrýstimunur landsins var meiri en 20 hPa í nærri því sólarhring. 

Tjónlistinn hér að ofan hefur áður birst hér á hungurdiskum. Það var í pistli merktum 19. febrúar 2011 sem minnti á fleiri mannskaða- og tjónaveður sem bar upp á 18. febrúar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 151
  • Sl. viku: 1760
  • Frá upphafi: 2348638

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 1541
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband