Næstúrkomusamast

Árið 2022 er enn með í „úrkomusamkeppninni“ í Reykjavík, fyrstu sjö mánuðirnir eru þeir næstúrkomusömustu frá upphafi samfelldra mælinga 1920. Í hungurdiskapistli sem birtist 13.apríl birtist samanburðarmynd. Ritstjórinn hefur nú uppfært hana til og með 1. ágúst.

w-blogg030822a

Myndin sýnir uppsafnaða úrkomu í Reykjavík eftir því sem á árið líður. Lárétti ásinn sýnir mánuði ársins en sá lóðrétti úrkomuna. Myndin skýrist sé hún stækkuð, en enn skýrara eintak fylgir í viðhengi (pdf-skrá). Árið í ár (2022) er blámerkt - sá ferill endar 1. ágúst. Úrkoma ársins 1921 hefur aftur haft yfirhöndina síðan 10. apríl. Nú munar um 40 mm á úrkomu 2022 (720,1 mm) og 1921 (760,4 mm). Neðsti ferillinn sýnir meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Úrkoman nú er um 60 prósent meiri en hún var að meðaltali orðin 1. ágúst á þessu tímabili. 

Nú er spurning hvenær farið verður fram úr ársmeðaltalinu (875,9 mm). Árið 1925 náði þeirri tölu fyrst ára (sjá myndina að ofan). Þá hafði meðalúrkoma heils árs fallið frá áramótum til 24. september. Árið 1921 kom aðeins fáeinum dögum á eftir, 29. september, 1887 er í þriðja sæti, 2. október (ekki á myndinni) og 1989 í því fjórða 5. október. Úrkomumagnið 1925 hafði farið fram úr 1921 þann 13. september og hélt forystunni til 15. október. Á myndinni má sjá að 2018 fylgdi úrkomumestu árunum til að byrja með, en fór síðan að dragast aftur úr í apríl, en bætti það síðan upp með mikilli úrkomu framan af sumri - ferillinn er þá talsvert brattari heldur en hinir ferlarnir og komst að lokum í flokk fáeinna ára með úrkomu meiri en 1000 mm í Reykjavík. Náði þó ekki 2007 sem enn er úrkomumesta ár aldarinnar.

Það er 1921 sem er síðan úrkomumesta ár sem við vitum um í Reykjavík - hreinsaði af sér alla keppinauta og fór í 1291,1 mm. Mjög mikið rigndi síðari hluta árs árið 2007 (ekki á myndinni), nægilega mikið til að koma því ári í annað sæti, 1125,4 mm, en samt langt á eftir 1921. Verði úrkoma í Reykjavík síðustu fimm mánuði ársins í meðallagi verður árið það úrkomusamasta á öldinni (fer rétt fram úr 2007), en haldi úrkoman áfram að vera að jafnaði 60 prósent umfram meðallag yrði metið frá 1921 slegið. 

Mesta úrkoma sem við vitum um síðustu fimm mánuði ársins í Reykjavík er 744,1 mm. Það var árið 2007, árið 2016 er í öðru sæti, langt á eftir, með 573,7 mm. Síðustu fimm mánuðir ársins voru þurrastir árið 1960, úrkoma þá mældist aðeins 196,8 mm. 

Ómögulegt er um að segja hvernig þessi keppni endar nú, en mörgum mun nú finnast að vestanáttarsyrpan sem staðið hefur linnulítið frá áramótum (og reyndar í september og nóvember á síðasta ári líka) hljóti að fara að linast - en svona syrpur hafa raunar oft orðið enn lengri. 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 77
  • Sl. sólarhring: 406
  • Sl. viku: 1902
  • Frá upphafi: 2350638

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 1702
  • Gestir í dag: 74
  • IP-tölur í dag: 74

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband