Fyrstu 10 dagar ágústmánaðar

Fyrstu tíu dagar ágústmánaðar hafa verið svalir víðast hvar á landinu. Meðalhiti í Reykjavík er 10,2 stig, -1,4 stigum neðan meðallags sömu daga áranna 1991-2020 og -1,3 neðan meðallags síðustu tíu ára. Þetta er kaldasta ágústbyrjun á þessari öld. Hlýjast var sömu daga 2003, meðalhiti 13,5 stig. Á langa listanum er hitinn í 115. sæti (af 150). Hlýjast var 2003, en kaldast 1912. Meðalhiti þá var aðeins 6,4 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú 10,6 stig, -0,8 stigum neðan meðallags 1991 til 2020 og -0,4 neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Hita er nokkuð misskipt á landinu. Þetta er kaldasta ágústbyrjun aldarinnar við Faxaflóa og á Suðurlandi, en að tiltölu hefur þetta verið 8. hlýjasta ágústbyrjun á Austfjörðum (af 22). Þar hefur hiti verið yfir meðallagi.
 
Neikvætt hitavik er mest í Bláfjallaskála, -2,0 stig og -1,7 á Setri og Skálafelli. Hlýjast, að tiltölu, hefur verið í Neskaupstað, hiti hefur verið þar +1,1 stigi ofan meðallags.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 13,5 mm, um 20 prósent neðan meðallags sömu daga. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 9 mm og er það lítillega undir meðallagi.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 44,7 í Reykjavík, 9 færri en að meðallagi og hafa 50 sinnum verið færri en nú á þeim rúmu 100 árum sem mælt hefur verið. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 34,3, 13 stundum færri en í meðalári.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 11.8.2022 kl. 14:40

2 identicon

Enn syrtir í álinn fyrir hamfarahlýnunarsinnana! Sumarið með þeim kaldari á þessari öld og ágúst sá allra kaldasti það sem af er hér í borg óttans. 
Og ekki batnar það! Aðfararnótt mánudagins er spáð 1-5 stiga hita (Veðurstofan) og sú norska spáir frosti í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins.
Kartöflubændur fyrir austan fjall lifa í voninni eftir þetta kalda sumar en óttast næturfrost. Verður ótti þeirra að veruleika og engar innlendar kartöflur í haust? Já sú hnattræna lætur ekki að sér hæða!!

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 11.8.2022 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 424
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband