Sumardagafjöldi 2016

Ritstjórinn telur nú sumardaga ársins 2016 í Reykjavík og á Akureyri - rétt eins og gert hefur verið áður. Þeir sem vilja forvitnast um skilgreiningar verða að leita í gömlum pistlum - en hér eru niðurstöður - og samanburður - á myndum.

Fyrst Reykjavík.

Sumardagar 1949 til 2016 Reykjavík

Sumardagarnir 2016 reynast vera 35 í Reykjavík - það er hátt í þrefalt meðaltal áranna 1961 til 1990 (grá strikalína sem nær þvert yfir línuritið), og einum degi fleira en meðalsumardagafjöldi á þessari öld (2001 til 2015). Þetta verður að teljast mjög viðunandi - alla vega langt yfir almennri flatneskju kalda tímabilsins sem miðaldra og eldri lesendur muna svo vel. - En auðvitað líka nokkru færri en í mestu öndvegissumrum árabilsins 2003 til 2012.

Fyrsti sumardagurinn (í þessum skilningi) kom strax 3. júní. Þeir urðu þó ekki nema fimm í júní. Júlísumardagarnir voru 17 - og í ágúst voru þeir 13. Sumardagalíkur eru ekki miklar í Reykjavík í september - en koma þó stöku sinnum - ef - þá gjarnan fleiri en einn.

Á Akureyri eru sumardagarnir líka mjög nærri meðaltali aldarinnar, tveimur færri reyndar en það meðaltal segir til um.

Sumardagar 1949 til 2016 Akureyri

Sumardagarnir á Akureyri teljast 43 fram til þessa í ár. Meðaltalið 1961 til 1990 er 35, en meðaltal þessarar aldar 45. Sumarið í fyrra (2015) leit sérlega illa út þegar ritstjóri hungurdiska birti talninguna þá í byrjun september, en september halaði sumarið af botninum - úr neðsta sæti upp í það þriðja neðsta eins og sjá má á þessari mynd.

Sumardagarnir urðu 5 í maí í ár á Akureyri, júní var bestur og skilaði 17 dögum, júlí 10 og ágúst 13. Hugsanlega verður lokatalan hærri því að meðaltali koma 5 sumardagar á Akureyri eftir 1. september. - Annars er aldrei á vísan að róa, það hefur gerst 6 sinnum að enginn sumardagur hefur skilað sér í september á Akureyri.

Lesendur ættu að hafa í huga að sumrinu er formlega ekki lokið og eru að venju beðnir um að taka talninguna ekki alvarlega - hún er leikur.

Ritstjórinn mun á næstunni líka reikna sumarvísitölur ársins 2016 rétt eins og síðustu ár. Hvað skyldi koma út úr þeim reikningum?

Tengill á pistil þar sem finna má sumardagaskilgreininguna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • w-blogg231124-kosningaspa-ec b
  • w-blogg23124-kosningaspa-ec a
  • w-blogg211124a
  • w-blogg181124a
  • w-blogg151124c

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 151
  • Sl. sólarhring: 179
  • Sl. viku: 2473
  • Frá upphafi: 2413907

Annað

  • Innlit í dag: 139
  • Innlit sl. viku: 2280
  • Gestir í dag: 132
  • IP-tölur í dag: 131

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband