Einkunn sumarsins 2016 í Reykjavík

Ritstjóri hungurdiska hefur nú reiknađ sumareinkunn Reykjavíkur á sama hátt og undanfarin ár. Leggja verđur áherslu á ađ hér er um leik ađ rćđa en ekki endanlegan dóm, enda smekkur misjafn. Ađferđinni er lauslega lýst í viđhengi, ţar er einnig listi um einkunn einstakra mánađa og ára.

Sumariđ 2016 kemur mjög vel út í Reykjavík - eins og sjá má á línuritinu.

Sumareinkunn í Reykjavík 1923 til 2016

Lárétti ásinn sýnir tíma - sá lóđrétti sumareinkunn. Hćsta mögulega einkunn er 48, en sú lćgsta núll. Sumariđ 2009 fćr hćstu einkunnina, 41, en sumrin 1928 og 1931 fylgja fast á eftir. Öll sumur áranna 2007 til 2012 eru međ meira en 35 í einkunn. Ţetta tímabil er einstakt. Sumariđ 1983 er á botninum.

Mikil umskipti urđu 2013. Ţá kom hraklegasta sumar í Reykjavík í 20 ár. Sumariđ 2014 ţótti einnig fá heldur laka einkunn - ţó náđi hún međallagi áranna 1961 til 1990 (20).

En sumariđ í sumar er međ 33 í einkunn - hefđi talist međ bestu sumrum á kalda skeiđinu 1965 til 1995 - og í góđum hóp á hlýskeiđi fyrr á öldinni - en jafnast ekki alveg á viđ öndvegissumrin 2007 til 2012.

Rauđi ferillinn sýnir 10-ára međaltöl og tímabilaskiptingin kemur vel fram.


Nördin huga ađ viđhenginu.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ekki minnist ég ţessarar sérstöku frammistöđu veđurguđanna sumariđ 2009.Ekki ađ ég efist um réttmćti einkunnarinnar,en yfir mér grúfđu dimm ský upplausnar lýđrćđis míns ástfólgna Íslands,sá ekki til sólar lengi vel.

Helga Kristjánsdóttir, 4.9.2016 kl. 02:39

2 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ţetta er örugglega ekki fjarri lagi ţó sumariđ 2016 hafi komiđ ađeins betur út samkvćmt minni ađferđarfrćđi. Mér skilst ađ ţú takir vindinn ekki međ reikninginn en samkvćmt Veđurstofuathugunum var sumariđ júní-ágúst ţađ hćgviđrasamasta hingađ til (örlítiđ hćgara en 2012). Vaxandi Reykjavíkurskógur á sjálfsagt ţarna einhvern ţátt.

Emil Hannes Valgeirsson, 4.9.2016 kl. 12:51

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Ţađ er rétt Helga ađ ákveđin sálarský grúfđu yfir sumariđ 2009 - en veđriđ var sérlega gott engu ađ síđur. Emil: Vindur er ekki tekinn međ - ástćđan eru ţćr miklu breytingar sem orđiđ hafa á síđustu áratugum - bćđi vegna aukins gróđurs í námunda viđ reit Veđurstofunnar - (og almennt) og fjölmörg skipti á vindhrađamćlum í áranna rás - sem ekki hefur veriđ leiđrétt fyrir - en ţađ var ađallega sólarleysi í júní sem dró sumariđ niđur í einkunn - júní fékk ţannig ađeins 6 stig af 16 mögulegum - en ágúst 14. Geri fljótlega grein fyrir vindhrađa sumarsins á landsvísu. 

Trausti Jónsson, 4.9.2016 kl. 13:21

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 15
  • Sl. sólarhring: 436
  • Sl. viku: 2731
  • Frá upphafi: 2378307

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 2420
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband