Miklar hitasveiflur

Með góðum hlýindaspretti í lokin tókst nýliðnum nóvember að sleikja sig upp að meðallagi síðustu tíu nóvembermánaða og hiti mánaðarins var sæmilega yfir meðallaginu 1961 til 1990. En býsna kalt var um tíma.

Ekkert lát er á stórum hitasveiflum. Í dag (sunnudaginn 1. desember) komst hiti í tveggja stafa tölur á Norðaustur- og Austurlandi þótt ekki hafi orðið alveg jafnhlýtt og varð mest í liðinni viku. En nú kólnar. Þótt tölvuspár hafi tilhneigingu til að gera of mikið úr skammvinnum kuldaköstum er samt trúlegt að mjög kalt verði hér á landi um og eftir miðja viku.

Ástæður þess að 5 til 10 daga spár gera gjarnan ráð fyrir meiri kulda heldur en verður liggja ekki alveg á lausu en trúlega hefur það með samskipti lofts og sjávar að gera. Undanfarna daga hafa reiknimiðstöðvar boðið upp á lægri þykkt en 4920 metra yfir landinu norðaustanverðu á fimmtudag/föstudag. Hvort svo verður kemur í ljós. Í dag var þykktin yfir landinu austanverðu vel yfir 5400 metrum. Sé að marka spána á neðri hluti veðrahvolfs yfir landinu að kólna um meir en 25 stig.

Hér er spákort sem gildir kl. 18 næstkomandi fimmtudag (5. desember).

w-blogg021213a

Jafnþykktarlínur eru heildregnar. Þykktin yfir Norðausturlandi er minni en 4940 metrar og um 5000 metrar yfir Faxaflóa. Litafletirnir sýna hita í 850 hPa fletinum, í um 1300 metra hæð yfir sjávarmáli. Ef vel er að gáð má sjá töluna -23 stig yfir Vatnajökli norðanverðum - þar sem norðanáttin er að lyfta sér yfir jökulinn. Hver hitinn verður við jörð skal ósagt látið - það fer eftir vindhraða og útgeislunaraðstæðum. Svo auðvitað því hvort þessi veðrahvolfsspá rætist.

Það versta við svo lága þykkt er ekki endilega kuldinn sem slíkur heldur sú ólga sem verður í samskiptum lofts og sjávar í nágrenni landsins og gerir allar spár ótryggari en venjulega. - En taka skal fram að enn eru reiknimiðstöðvar á því að þetta gangi rólega fyrir sig.

Svo eru það lok kastsins. Evrópureiknimiðstöðin skellir á það strax á laugardag og á sunnudagskvöld á kortið að líta út eins og sjá má hér að neðan.

w-blogg021213b

Ótrúleg breyting það - hér er þykktin yfir Norðausturlandi komin upp í 5520 metra - hækkun um nærri 600 metra á þremur dögum og hæsti 850 hPa hitinn yfir landinu á að hafa hækkað um 31 stig. Fyrst 25 stiga kólnun á fjórum dögum og síðan 30 stiga hlýnun á þremur. Ætli eitthvað bregðist ekki í þessu? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Nú þegar aðeins einn mánuður er eftir af árinu, er það hið þriðja kaldasta á öldinni.

Ekki ætla desember að byrja vel svo búast má við að árið fari enn neðar í röðinni.

Ætli harðindatíminn frá 1965-97 sé að koma aftur??

Torfi Kristján Stefánsson, 2.12.2013 kl. 18:10

2 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Hvað ertu að meina með að desember byrjar ekki vel Torfi? Sýnist ætla bara vera 3ja daga kuldakast á öllu landinu, og svo hlýindi strax aftur sunnanlands.

Pálmi Freyr Óskarsson, 3.12.2013 kl. 01:04

3 identicon

Við skulum vona að það sé rétt hjá þér Vestmannaeyingur, eða þannig. Reyndar finnst mér stillur og frost skárri en rok og rigning, svo ég veit ekki hvort ég fagni umhleypingunum eins og svo margir hitatöluáhangendur í veðurfræði gera.

Hitt er ljóst að kundinn framundan (næstu tvo til þrjá daga) er óvenju mikill miðað við hvað maður á að venjast hér á Reykjavíkursvæðinu (eða um 10 stig).

Þá er athyglisvert að árið í ár ætlar að þróast eins og árið 1965. Fyrstu tveir mánuðirnir mjög hlýir en svo kólnaði jafnt og þétt. Þetta var upphafið á kuldatímabili sem stóð í yfir 30 ár eða til ársins 1996!

Skyldi það vera að gerast aftur?

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 3.12.2013 kl. 08:33

4 identicon

Ég hef löngum verið talinn svartsýnn maður hvað hita/kulda varðar en Haraldur Ólafsson veðurfræðingur slær mér gjörsamlega við. Hann var rétt í þessu (þriðjudagskvöld) að spá um 25 stiga frosti um allt land bæði á fimmtudag og föstudag. Reyndar er hann þekktur fyrir það að gera frekar of mikið en of lítið úr hlutunum, svo sem hvað vind varðar, regn (grenjandi rigning er uppáhaldsorðið hans) og núna hitastig.

Sem betur fer er hann þó einn um þessa spá en frost allt að 18 stigum er þó talsvert mikið eins og spáð er á vedur.is.

Það gæti þurft ansi mikil hlýindi í næstu viku til að vinna upp þennan kulda, hvað þá er spá Haralds rætist.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 3.12.2013 kl. 19:46

5 identicon

Here we demonstrate that the North Atlantic Oscillation (NAO) isimplicated as a useful predictor of NHT multidecadalvariability. Observational analysis shows that the NAO leadsboth the detrended NHT and oceanic Atlantic MultidecadalOscillation (AMO) by 15–20 years. Theoretical analysisilluminates that the NAO precedes NHT multidecadalvariability through its delayed effect on the AMO due to thelarge thermal inertia associated with slow oceanic processes.An NAO-based linear model is therefore established to predictthe NHT, which gives an excellent hindcast for NHT in1971–2011 with the recent flat trend well predicted. NHT in2012–2027 is predicted to fall slightly over the next decades,due to the recent NAO decadal weakening that temporarily

offsets the anthropogenically induced warming. 

http://onlinelibrary.wiley.com/doi/10.1002/2013GL057877/abstract

Hólmsteinn Jónasson (IP-tala skráð) 4.12.2013 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 202
  • Sl. sólarhring: 339
  • Sl. viku: 2027
  • Frá upphafi: 2350763

Annað

  • Innlit í dag: 185
  • Innlit sl. viku: 1813
  • Gestir í dag: 181
  • IP-tölur í dag: 181

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband