Kaldir dagar

Kalt loft úr norðri kemur nú suður yfir landið og virðist einna kaldast eiga að vera á fimmtudag og föstudag. Hér verður ekki reynt að ráða í það hversu kalt mun verða - en við lítum á þykktarspá sem gildir um hádegi á fimmtudag.

w-blogg041213a 

Heildregnar línur sýna þykktina og eru merktar í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Litafletir sýna hita í 850 hPa (ansi kuldalegt).

Það er 4940 metra jafnþykktarlínan sem snertir norðausturhornið. Stöðvar á útnesjum og eyjum verjast kuldanum best - en samt er þar nokkuð gott samband á milli hita og þykktar. Sjávarylurinn tryggir góða blöndun og fréttir berast greiðlega á milli stöðvar og loftsins ofan við. Við fylgjumst því með hitanum á Stórhöfða, í Surtsey, Grímsey og Papey í þessu kuldakasti. Skyldu falla dægur- eða mánaðarmet á þessum stöðum? Ef það gerist ekki nær þetta kuldakast varla máli.

Sama má segja um stöðvarnar fáu á fjallstindum, Skálafell, Þverfjall og Gagnheiði. Falla met þar? Gerist það ekki nær þetta kuldakast ekki heldur máli.

Stöðvar á sléttlendi norðanlands og sunnan sem og á hálendinu missa hins vegar oft tengslin við það sem ofar er. Mun verra samband er þar á milli þykktar og hita heldur en á áðurnefndu stöðvunum. Auðvitað eru kuldar samt líklegri inn til landsins við litla þykkt en mikla. En - þar getur líka orðið mjög kalt þótt þykktin sé ekki svo lítil - séu geislunaraðstæður þannig. Í björtu veðri tapast tengsl á milli hita á láglendi og í háloftum mjög fljótt. Met á innsveitastöðvum eru því ekki eins marktæk um hvort eitthvað óvenjulegt er á seyði í háloftunum eða ekki.

Dægurmet eru stöðugt að falla - við fáum því hrinu nýrra lágmarkshitameta - en vafasamara er með mánaðarmetin - hvað þá ársmet.

En munum að hungurdiskar gera ekki spár.

Nú er mjög illskeytt lægð að myndast við Suður-Grænland - hún á að æða til austurs á morgun (miðvikudag) og á fimmtudag. Við sleppum líklega alveg - hugsanlega sjáum við til blikubakkans í norðurjaðri lægðarinnar. En kortið sýnir stöðuna kl. 18 á miðvikudag (ekki sami tími og á kortinu að ofan).

w-blogg041213b

Lægðin er hér suður af landinu og fer ört dýpkandi. Hún á að fara rétt norðan Skotlands og síðan til austsuðausturs við suðurodda Noregs. Skotar, Danir og Þjóðverjar (og e.t.v. fleiri) búa sig undir það versta. Þó er enn mikil óvissa um hvernig fer - kannski fer spáin í vaskinn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Það er varað við stormi hérna í Danmörku á Fimmtudaginn og fram á Föstudag. Þeir spá reyndar 20 m/s þar sem ég á heima, en það er nógu slæmt. Sérstaklega þar sem ekki er búið að gera við allar þær skemmdir sem urðu í síðasta stormi hérna í Danmörku.

Jón Frímann Jónsson, 4.12.2013 kl. 05:35

2 Smámynd: Torfi Kristján Stefánsson

Veðurfræðingurinn á RÚV er enn í miklum ham þó heldur hafi sljákkað í honum eftir -25 gráðu spána í gærkvöldi.

Nú verður aðeins -7 til -15 stig á landinu, sem hann kallar reynar fimbulkulda.

Reyndar gat hann ekki slitið sig alveg frá spánni í gær og skellti sér í -17 til -23 gráðurnar einhvern tímann á fimmtudag/föstudag!

Svo er að bara að sjá hvort þetta rætist!

Torfi Kristján Stefánsson, 4.12.2013 kl. 19:43

3 identicon

Snjó kyngir niður í USA. Idaho, Wyoming, Minnesota, Oregon, Nevada, Montana, Norður Dakota, Utah and norður Arizona á kafi: http://usnews.nbcnews.com/_news/2013/12/03/21734950-arctic-invasion-brutal-weather-system-threatens-most-of-us-with-snow-ice-wind?lite

Hitastig í USA 30 - 40°F fyrir neðan meðallag: https://twitter.com/RyanMaue/status/408285227803373568/photo/1

Hættulegust vetrarmánuðir á síðustu 100 árum í uppsiglingu í USA: http://www.weatheraction.com/displayarticle.asp?a=606&c=5

Versti vetrarstormur í áratugi í uppsiglingu í Þýskalandi: http://www.spiegel.de/international/germany/germans-prepare-for-violent-storm-on-thursday-a-937226.html

En þetta er sjálfsagt allt hluti af óðahlýnunni!

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 5.12.2013 kl. 16:59

4 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Það er greinilega kominn vetur á Norðurhveli jarðar - einhverjir greinilega að missa sig yfir því að vetri fylgi vetrarveður með lægðum og snjókomu (að venju). Á meðan þá er meðalhitastig jarðar nærri sögulegu hámarki, samkvæmt NOAA NCDC þá eru fyrstu 10 mánuðir ársins þeir 7. heitustu fyrir tímabilið frá upphafi mælinga - sjá t.d. Global Analysis - October 2013. Jájá, hvað um einhverjar leiðinda staðreyndir...það er leiðinlegt að spá í svoleiðis á köldum vetrardögum - dómsdagsspár um hnattræna kólnun - það er málið í huga sumra ;)

Sveinn Atli Gunnarsson, 5.12.2013 kl. 17:50

5 identicon

"Jájá, hvað um einhverjar leiðinda staðreyndir"(sic):

> Global cooling? New evidence suggests climate change may be on hold: http://www.syracuse.com/news/index.ssf/2013/09/global_cooling_new_evidence_suggests_climate_change_may_be_on_hold.html

> Climate Expert Warns of Impending Global Cooling Crisis:

http://freebeacon.com/climate-expert-warns-of-impending-global-cooling-crisis/

> Planet Is Going Through Global 'Cooling' Now, Say Scientists:

http://www.malaysiandigest.com/frontpage/29-4-tile/479039-planet-is-going-through-global-cooling-now-say-scientists.html

> Climate Theories Crumble as Data and Experts Suggest Global Cooling:

http://www.thenewamerican.com/tech/environment/item/16372-climate-theories-crumble-as-data-and-experts-suggest-global-cooling

> The Ice Age Cometh: Scientists increasingly moving to global cooling consensus:

http://www.sott.net/article/269538-Scientists-increasingly-moving-to-global-cooling-consensus

> Multiple lines of evidence suggest global cooling:

http://dailycaller.com/2013/11/13/multiple-lines-of-evidence-suggest-global-cooling/

> Global Cooling is Here - Evidence for Predicting Global Cooling for the Next Three Decades:

http://www.globalresearch.ca/global-cooling-is-here

> AVERY: Dreading the inevitable global cooling:

http://www.washingtontimes.com/news/2013/dec/1/avery-dreading-the-inevitable-global-cooling/

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 5.12.2013 kl. 18:29

6 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Jæja Hilmar bara í essinu sínu núna í kuldakastinu. Hvað með hina hliðina Hilmar, t.d. miklu hýindin í Austfjörðum um daginn?

Pálmi Freyr Óskarsson, 5.12.2013 kl. 22:12

7 Smámynd: Sveinn Atli Gunnarsson

Pálmi - ekki skemma þetta hjá honum með einhverjum leiðinda staðreyndum - kuldinn hríslast um öll skilningarvit Hilmars nú um stundir.

En allaveg þá má lesa þessa skemmtilegu mýtu af loftslag.is, Það er kalt á Klonke Dinke og því er engin hnattræn hlýnun - svona umræða virðist dúkka upp á ári hverju og því gott að eiga svona mýtur á lager ;)

Sveinn Atli Gunnarsson, 6.12.2013 kl. 00:01

8 Smámynd: Trausti Jónsson

Já, piltar, þetta er alvörukuldakast. Og líka alvöruillviðri í Norður-Evrópu. Hvað næst?

Trausti Jónsson, 6.12.2013 kl. 01:30

9 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Hef á tilfinningunni að í vetur munu falla 4 þúsund kuldamet af öllu tagi.

Sigurður Þór Guðjónsson, 7.12.2013 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 227
  • Sl. viku: 1930
  • Frá upphafi: 2350799

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 1724
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband