Býsna kalt - en vonandi ekki svo hvasst

Næstu daga er spáð allmiklu kuldakasti. Þykktin yfir Suðurlandi á að fara niður í 5080 metra á fimmtudag (11. apríl) eða aðfaranótt föstudags og enn neðar fer hún fyrir norðan, jafnvel niður i 5000 metra. Þetta eru vetrartölur. En þegar þetta er skrifað er bara mánudagur og það er oft þannig að sjórinn er drýgri við upphitun heldur en líkön gera ráð fyrir svo marga daga fram í tímann. En verði hlýrra en líkön gera ráð fyrir má gjarnan einnig gera ráð fyrir því að greiðsla í formi meiri úrkomu eða hvassari vinds verði að koma í stað kuldabroddsins sem sleppt er.

Enda deila líkön um þetta atriði - nær snjókomulægð sér á strik undan Suðvesturlandi eða ekki - eða grefur hún um sig annars staðar?

Á miðvikudaginn gerir evrópureiknimiðstöðin ráð fyrir slíkri lægð ekki langt suðaustur af Vestmannaeyjum eins og sjá má á 925 hPa-kortinu hér að neðan.

w-blogg090413a

Jafnhæðarlínur eru heilstrikaðar, vind og stefnu hans má ráða af vindörvunum, en litafletir sýna hitann. Kortið batnar talsvert við stækkun. Við sjáum vel mikinn hitabratta yfir landinu og í námunda við það. Þegar þetta er skrifað gerir reiknimiðstöðin ráð fyrir því að lægðin litla hörfi frekar til suðurs og komi ekki aftur upp að landinu fyrr en á laugardag - þá nærri uppétin af mikilli lægð suður í hafi. Sú lægð á þá að fara niður í 942 hPa. Þetta er svo lág tala í apríl að full ástæða er til að efast um að spáin rætist. En maður veit aldrei.

Á þriðjudag, 9. apríl er 50 ára afmæli upphafs páskahretsins mikla 1963. Eins og minnst var á í pistli í gær er ættarsvipur með stöðunni nú og þá. Í bæði skiptin veldur lægðardrag sem kemur yfir Grænland úr norðvestri norðankasti. Er þessi samlega - sama almanaksdag - fyrst og fremst merki um það hversu algeng staða sem þessi er. Af því að þetta veðurkerfi - norðvestandragið - sést mjög illa á hefðbundnum veðurkortum fyrr en veðrið er rúmlega skollið á er þess nærri því aldrei getið í almennum veðurfréttum t.d. í sjónvarpi. Það skellur bara á eitthvað norðanveður af tilefnislitlu.

Flestum er auðvitað alveg nákvæmlega sama hvað veldur - bara að norðanáttinni sé rétt spáð. Ritstjórinn ber fulla virðingu fyrir þessu viðhorfi - en finnst sagan samt auðlærðari ef upplýsingar um veðurkerfi fylgja.

En í viðhengjum eru upplýsingabrot um páskahretið 1963. Textaskjalið inniheldur lista um meðal-, hámarks- og lágmarkshita á landinu fram eftir apríl 1963 auk meðalvindhraða. Snerpa veðursins sést vel í þessum lista. Annað pdf-skjalið sýnir Íslandskort frá kl. 9 til 21 þann 9. apríl. Þar geta vanir menn fylgst með veðrinu á 3 klukkustunda fresti og þeir elstu rifjað upp hvar þeir voru þennan dag. Hitt pdf-skjalið sýnir aftur á móti hvernig amerísku endurgreiningarnar tvær taka á veðrinu í 500 og 1000 hPa klukkan 18 þennan dag.

Hvorug greiningin nær veðrinu alveg, sú sem er í hærri upplausn (merkt ncep) nær háloftaástandinu mun betur, en 20. aldargreiningin er nokkuð langt frá sanni í háloftum. Í 1000 hPa liggur sannleikurinn einhvers staðar milli greininganna tveggja. Báðar ná þær þó þeim gríðarlega vindstreng sem fylgdi veðrinu - og vindátt er ekki fjarri lagi.

Vonandi að einhverjir hafi gaman af.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þakka þetta og allan annan fróðleik, sem þú hefur nært okkur á fróðleiksfúsa lesendur þín. Eins og ég hef víst áður getið um, verður þetta hret í dymbilvikunni 1963 manni minnisstætt meðan önd blaktir í nösum. Var þá búsettur á Hólmavík á Ströndum norður. Við fórum félagar saman í mat um tólfleytið í sunnan golu, léttskýjuðu og +11 °C hita, en til vinnu aftur um kl. 12:45 í norðan stormi og-7°C frosti. Ansi mikil sveifla á ekki lengri tíma. Bátar voru á sjó bæði frá Hólmavík og Drangsnesi en ekki urðu slys í þessum tveimur þorpum, þótt nærri lægi. Búnaður minni báta á þessum árum var ansi takmarkaður miðað við það sem tíðkast nú til dags. Lélegar miðbylgjutalstöðvar í þeim stærstu, sem hætti til að bila í veðrum sem þessum vegna gerðar loftnetanna og engin leiðsögutækni til staðar nema kompásinn og úrið!

Þorkell Guðbrandsson (IP-tala skráð) 9.4.2013 kl. 11:27

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Þetta voru sannarlega eftirmennilegir páskar með þessu mikla hreti með mannskaða og í ofanálag fórst svo flugvélin Hrímfaxi við Ósló með 12 manns, þar á meðal Önnu Borg leikkonu. En mikið væri nú gaman ef sauðsvartur almúginn gæti líka komist í þessi Íslandskort, sér og öðrum að meinalausu

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.4.2013 kl. 19:48

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Flugvélin fórst á páskadag.

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.4.2013 kl. 19:49

4 identicon

Var ekki einmitt þetta páskahret sem markaði upphafið að 30 ára kuldaskeiði sem lauk 1995?

Hermundur Sigurdsson (IP-tala skráð) 9.4.2013 kl. 20:55

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Þorkell. Ég var sjálfur áður en þetta var byrjaður að fylgjast nokkuð grannt með veðri - eins og hægt var á þeim tíma. Tveggja daga spár voru þá nýmæli - að spá lengra var einfaldlega ómögulegt. Í tveggja daga spánni fyrir þennan dag var gert ráð fyrir því að vindur snerist til norðurs - en ekki var hægt að vita hvers eðlis norðanáttin yrði. Sigurður - kannski einhver stjórnmálaflokkanna vilji taka að sér að útvega fé og forgang til að gera kortin aðgengileg utan Veðurstofunnar? Öðru eins er nú lofað. Jú, Hermundur, það má með vissum rétti tala um þetta hret sem upphaf kuldaskeiðsins - en veturinn á eftir varð þó einn hinn allra hlýjasti sem vitað er um hér á landi. En sumir segja að gamla hlýskeiðið hafi sýnt sjúkdómsmerki strax 20 árum fyrr og það féll nærri því um koll á árunum 1949 til 1952. Lufsaðist þó upp aftur - en sýndi veikleikamerki bæði 1961 og 1962. - En það sást engan veginn þá - það sést ekki nema í baksýnisspeglinum. - Rétt eins og flestir pólítískir atburðir.

Trausti Jónsson, 10.4.2013 kl. 00:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 370
  • Sl. viku: 1584
  • Frá upphafi: 2350211

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1457
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband