Slatti af mánađarhitametum fallin

Jú, hluti af hlýja loftinu sem fariđ hefur yfir landiđ í dag (föstudaginn 4. janúar) hefur blandast niđur í kaldara loft nćr jörđu ţannig ađ hitamet hafa falliđ. Nimbus hefur ţegar gert grein fyrir  ţeim safaríkustu á bloggsíđu sinni og er ekki ástćđa til ađ endurtaka ţađ hér. Merkilegast er auđvitađ nýtt hitamet janúarmánađar í Reykjavík - ef ţađ stenst skođun (vonandi gerir ţađ ţađ). [Í algjöru framhjáhlaupi skal ţess getiđ ađ nýtt úrkomumet í Reykjavík frá ţví í síđustu viku stendur nú í sikti aftökusveitar - sem hefur ţó enn ekki hleypt af].

Ţađ sem hér fer á eftir hljómar nokkuđ framandlega fyrir flesta lesendur en ćtti ađ skiljast viđ rólegan lestur - nördin drekka aftur á móti nánast hvađ sem er. Viđ lítum stuttlega á hvernig dćgurhitamet Reykjavíkur og landsins alls fyrstu hundrađ daga almanaksársins dreifast í tíma. Áreiđanleg hámarkshitaröđ Reykjavíkur nćr ekki lengra aftur en til 1920 (og smásuđ í dagsetningum auk tvöfaldra hámarka truflar ađeins). En fariđ hefur veriđ yfir eldri mćlingar og ţar eru hámörk sem ekki er hćgt ađ víkja sér undan.

Fyrir landiđ allt verđur ađ hafa í huga ađ stöđvum sem mćla hámarkshita hefur fjölgađ gríđarlega á síđari árum og líkur á ţví ađ skammvinn, stađbundin hitaskot af fjöllum hitti veđurstöđ fyrir eru nú mun meiri en áđur. Nú koma myndirnar.

w-blogg050113a

Lárétti ársins sýnir fyrstu 100 daga ársins (hlaupársdagur talinn međ), en sá lóđrétti sýnir ártöl. Af súlunum má lesa hversu gamalt met viđkomandi dags er. Ţađ skiptir engu ađ erfitt er ađ lesa smáatriđi myndarinnar. Ađalatriđiđ er hins vegar sú stađreynd ađ metin koma í nokkrum hrinum (séđ frá lóđrétta ásnum). Til hćgđarauka hafa tvćr grćnar strikalínur veriđ settar inn á myndina. Sú efri markar nokkurn veginn upphaf núverandi hlýindaskeiđs sem búiđ er ađ hreinsa upp 35 daga - rúmlega ţriđjung ţeirra. Tímabiliđ 1926 til 1950 á enn 39 dćgurmet, tvö eru enn eldri - frá 1913 e.t.v. ţarf ađ athuga ţau nánar. Tímabiliđ 1951 til 1965 á 17, ţar af á 1964 eitt átta daga. Veturinn sá ómar enn í endurminningu eldri veđurnörda. Áriđ 2004 gerir jafnvel og 2006 einum betur. Kalda tímabiliđ 1966 til 1996 á ađeins 7 daga á lífi í Reykjavík.

En síđan eru ţađ landsmetin á sama veg.

w-blogg050113b

Hér má sjá ađ ađeins örfáir dagar lifa frá ţví fyrir 1950 - ađeins tólf. Ţar af eru fjórir frá ţví fyrir 1920. Hugsanlegt er ađ fleiri dagar rísi upp frá dauđum viđ nánari lestur veđurskýrslna tímabilsins. Núverandi hlýindaskeiđ hefur hirt rétt rúman helming daganna (52). Kuldaskeiđiđ stendur sig allvel - ţá gerđi nokkrar góđar en skammvinnar vetrarhitabylgjur um landiđ norđaustan- og austanvert, t.d. á janúar 1992 átta metdaga á landsvísu.

Hitabylgjan í dag (föstudaginn 4. janúar 2012) hefur ţegar stoliđ degi á Reykjavíkurlistanum og breytt myndinni lítillega. Ritstjóranum sýnist ađ eldra met ţessa dags hafi veriđ sett 1941. Landsmet 4. janúar er hins vegar frá 2006 ţegar hitinn fór í 15,4 stig á Seyđisfirđi. Dalatangi á dćgurmet 5. janúar 15,7 stig. Ţađ er fjörutíu ára gamalt, frá 1973 (ósköp er tíminn fljótur ađ líđa).


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurđur Ţór Guđjónsson

Ekki kemur ţađ á óvart ţó úrkomumetiđ í Reykjavík verđi afskrifađ. Og reyndar ekki heldur hitametiđ ţví sjálfvirku stöđvarnar voru fremur slappar. En ţađ er ţá helvíti hart ađ Veđurstofan skuli ekki geta mćlt rétt met eđa skráđ ţau rétt ć ofan í ć! Hvađ áreiđanleika hámarkshita í Reykjavik fyrir 1920 varđar hlýtur ţađ sama ţá ađ gilda um lágmarkshita og fara ţá ansi mörg kuldamet fyrir lítiđ, t.d. 1918. Mín tilfinning er sú, án minnstu ábyrgđar, ađ gömlu metin séu svo sem ekki minna áreiđanleg en dagasuđiđ í nútímanum og árans tvöföldu hámörkin, ađ ekki sé minnst á ţau ár löngu eftir 1920 ţegar hámörk sem komu á vssum tíma dagsins voru einfaldlega ekki mćld.     

Sigurđur Ţór Guđjónsson, 5.1.2013 kl. 12:44

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 1377
  • Frá upphafi: 2350961

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1194
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband