Enn eitt árið bætist við mæliraðir

Að venju bætist nú enn eitt árið við allar veðurraðir - mældar eða metnar, stuttar eða langar. Hungurdiskar munu af því tilefni birta á stangli eitthvað úr raðagarðinum. Hversu margt eða mikið það verður er óráðið.

Sú veðurröð sem oftast er sýnd er ársmeðalhitinn - ýmist fyrir einstakar stöðvar eða landsvæði. Við lítum á langa röð sem miðast við Reykjavík. Auk þess að nýnæmi er að nýliðnu ári, 2012 hefur einnig verið bætt við röðina í fortíðarendann - svona eins og samviska ritstjórans leyfir. Sjá má að nokkuð hefur fallið á hana því fyrsta árið sem minnst er á er 1780. Síðan gengur á með eyðum og skáldskap fram á þriðja áratug 19. aldar en raunverulegar athuganir eru til frá Reykjavík á árunum 1820 til 1854. Þá kemur aftur til kasta skáldskapargáfu ritstjórans - fram til 1866.

En lítum á myndina.

w-blogg040113

Tíminn er á lárétta ásnum, merktur á tuttugu ára bili. Lóðrétti ásinn sýnir ársmeðalhitann. Hann leikur á rétt rúmlega fjögurra stiga bili, milli tveggja og sex stiga. Rauða línan er reiknuð línuleg leitni, það er eins og aldrei fáist neitt út úr þeim reikningum nema hlýnun upp á 0,7° á öld. Hefji menn þá reikninga fyrir hundrað árum fæst að vísu út nokkru hærri tala og sú langhæsta sé aðeins miðað við síðustu 40 ár. Sýnist í fljótu bragði að slíkir reikningar gæfu um 4°C hlýnun á öld fram haldi sem verið hefur.

Menn geta valið sér viðmiðunartímabil eftir smekk eða sleppt því alveg - sem sennilega er hyggilegast. Ætti að sjást að „venjuleg náttúruleg“ hitasveifla er ríflega 1,5 stig hvort sem miðað er við ár eða áratugi eða tvöfalt það sem menn telja almennt viðurkennda hnattræna hlýnun á síðustu 100 árum. Erfitt er að meta hið hnattræna út frá Reykjavík einni saman.

Blái ferillinn á myndinni er settur inn til að draga fram aðalatriði í áratugasveiflunum en segir ekkert um framtíðina frekar en línulega leitnin.

Meðalhitinn á nýliðnu ári var 5,54°C í Reykjavík (tveir aukastafir eru fóður í metinginn en ekki til marks um nákvæmnina). Frá því að samfelldar mælingar hófust 1870 hafa aðeins 11 ár verið hlýrri. Þeirra hlýjast var 2003 en síðan 1941, 2010 og 1939. Sé tekið mark á tímanum á undan bætist aðeins eitt ár við, 1847 (ómarktækt hlýrra).

Eins og fjallað var um í pistli í gær fer mjög hlýtt loft yfir landið á morgun föstudag. Því miður mun varla fréttast af mesta hitanum niður á vorar jarðlægu slóðir - og komi eitthvað niður fari það í snjóbræðslu frekar en í að ýta hitamælum upp kvarðann. En - von er enn og rétt að muna að sjaldgæft er að hiti nái 10 stigum á Suður- og Vesturlandi í janúar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég myndi velja (cherrypikka) tímabilið 1813-1998 og skoða leitnina. Þá erum við búin að vinsa úr þetta stutta og óeðlilega hlýja tímabil sem er að setja veröldina á hliðina.

Gunnar Th. Gunnarsson, 4.1.2013 kl. 03:14

2 Smámynd: Höskuldur Búi Jónsson

Já það er kannski rétt Gunnar, hunsa bara undanfarinn áratug (rúmlega) og gleyma því bara að það sé að hlýna - þá kannski hverfur hlýnunin.

En nei, við skulum vera vísindalegir og þetta er ágæt mynd þó hún sé nokkuð staðbundin. Hún sýnir frekar ýkta útgáfu af hinni hnattrænu hlýnun, en sveiflurnar hér eru mun meiri en á hnattræna vísu. Þá sýnir hún einnig hvernig hin svokallaða Norðurskautsmögnun virkar hér á norðurslóðum..

Höskuldur Búi Jónsson, 4.1.2013 kl. 14:56

3 identicon

Nokkrar spurningar handa háæruverðugum presti veðurGuðanna: Á hve mörgum stöðum hefur verið mælt í Reykjavík fyrir opinberu reykjavíkurtöluna (á vedur.is segir að opinbera reykjavíkurveðurstöðin hafi mælt frá 1920, er það allt af Bústaðaveginum?), hversu mikið hafa mæliaðferðirnar breyst og er hægt að treysta þeim gömlu , hversu mikil áhrif hefur "urban heat island effect" haft á hitastig þessarar stækkandi borg okkar gegnum tíðina (+gróðurframvinda sem hefur lægt vindinn)

Ari (IP-tala skráð) 4.1.2013 kl. 15:31

4 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

 

 Ef einhver skyldi velkjast í vafa, þá er mér það ljóst eftir að búa á Patreksfirði í hálft ár að Reykjavík er höfuðstaður Suð-Vestfirða!

Ísafjörður er ekki eini bæjarkjarninn á Vestfjörðum! Patreksfjörður er hérna einnig...halló! Svo ég tali ekki um alla Vesturbyggð, sem dregur að sér mesta erlenda túristafjölda Vestfirða (Látrabjarg og Rauðasandur). Ísafjörður er í 3 og 4 sæti hjá útlendingum.

Hjá Vesturbyggð er Ísafjörður eins og Egilsstaðir, langt í burtu og Egilsstaðir meiga eiga það að allir vegir fyrir Austan liggja til Egilsstaða! Þannig er það EKKI á Vestfjörðum Ólafur Ragnar og Ólína Þorvarðard. .og fl.

Ísafjörður á sér þá skömm að hafa aðeins hugsað um sig og sína, á meðan þessi bær nýtur þess að það eru ekki malbikaðir vegir til Patreksfjarðar (halló Ísafjörður ?) þess að heimska landsmanna , eins og mín ,er að læra í bókum að þetta sé "höfuðstaður" Vestfjarða! (það er að segja Ísafjörður?)

 

Þá veit ég núna að Ísafjörður er eins og forseti Íslands, hugsar einungis um sjálfan sig og hefur tungutak Loka!

Minni á að snjóflóðahættan var lengi líka á Patreksfirði um áramótin.

Núna segjum við öll í kór í Vesturbyggð (1.300 manns eftir á stærð við Sjáland í DK)

 

Reykjavík, vor höfuðstaður og Ísafjörður alls ekki!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 4.1.2013 kl. 21:53

5 Smámynd: Trausti Jónsson

Gunnar, sykurmolaval þitt gefur leitni upp á 0,5 stig á öld séu þessi gögn notuð. Höskuldur, það er merkileg staðreynd að þar sem mögnunin á að verða mest verður jafnframt erfiðast að sýna fram á að hún sé að eiga sér stað eða hafi átt sér stað. Það er mun auðveldara þar sem hlýnun er minni. Ari, mælingar hafa verið gerðar á fjölmörgum stöðum í Reykjavík - myndin nær líka til langra tímabila þegar þar voru engar mælingar - hún er aðeins birt til gamans. Ekki hefur verið sýnt fram á þéttbýlisbólgu í hitaröðum fyrir Reykjavík - en vel má vera að hennar gæti lítillega. Anna, þótt ég sé almennt hrifinn af Vesturbyggð og nágrenni, landi þar og mannlífi átta ég mig ekki á því hvers vegna fjallað er um viðkvæm byggðamál í athugasemdum á hungurdiskum - en mér yfirsýnist sjálfsagt eitthvað. Sé svo biðst ég velvirðingar.

Trausti Jónsson, 5.1.2013 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 1377
  • Frá upphafi: 2350961

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1194
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband