Kuldapollurinn að komast framhjá

Nú er kuldapollurinn snarpi (Snarpur 2.) að komast vestur af landinu og hiti kominn í frostmark við norðausturströndina. Hvassviðri heldur þó áfram mestallan föstudaginn. Næsti kuldapollur á að vera fyrir norðan land á sunnudag. Hann er býsna snarpur (Snarpur 3.) en þó mildari en sá í dag að því leyti að hann á ekki að draga til sín eins hlýtt loft að austan en býr þess í stað sennilega til litlar pólarlægðir (skárra orð finnst ekki enn) einhvers staðar yfir sjónum í kringum landið.

Fyrirstöðuhæðin sem hefur setið að veðrinu hér að undanförnu hefur nú hörfað til vesturs og hlýtt loft er því langt undan. Spurning hvernig má bjarga því. Kannski við fáum nú 1 til 3 vikna kafla með norðurslóðaveðri. Um norðurslóðaveður er lítið sem ekkert fjallað í kennslubókum - skrýtið? Kannski ekki svo mjög því nær allar bækurnar eru skrifaðar í Ameríku eða suður í Evrópu nærri atgangssvæði heimskautarastarinnar. Hún kemur að vísu líka við sögu hér á landi sem og fyrirstöðuhæðir sem tengdar eru kryppum hennar og ráðið hafa ríkjum hér um langt skeið (óvenjulangt).

Eru það ekki helst fornar veðurspárleiðbeiningabækur ameríska hersins sem helst hafa gefið norðurslóðaveðri gaum? Það er þó e.t.v. misminni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Er ekki orðið fyrir "pólarlægðir" bara Heimskautalægðir?  Ég man annars eftir fyrirbrigðum á austur Grænlandi, sem minna svolítið á þennan atgang hér. (ég er á Siglufirði) en það eru sterkir og snarpir stormar ofan af jökli, sem kallast Piteraq (Williwaw minnir mig í kanada) Þeir standa stutt en eru svo sterkir og kaldir að ekki er vært úti fyrir nokkurn mann. Sleðahundarnir láta þó skafa yfir sig. Byrgja verður alla glugga og festa allt lauslegt. Viðvörunarflautur hljóma áður en þetta skellur á.  Á þetta eitthvað skylt við það? 

Þarna eru líka sterkir og hlýjari stormar af hafi, oft með úrkomu, sem kallast að mig minnir nuggaiaq. (hef bara heyrt orðið en ekki séð það skrifað).

Jón Steinar Ragnarsson, 7.1.2011 kl. 08:20

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Í óspurðum fréttum af Siggló, þá virðist ekki fylgja mikil úrkoma með þessu hér eins og á Akureyri.  Það eru bara snarpar, þéttar og kaldar hviður með einhverjum minniháttar skafrenningi. Oft verið mikið snjóþyngra hér í svona veðrum. Menn eru aðallega að hafa áhyggjur af flóðum hér á eyrinni þar sem sjávarhæð er há og öldur miklar útifyrir. Þetta virðist þó ætla að sleppa til í þetta sinn. Her stendur eyrin svo lágt að við ákveðin skilyrði þá flýtur yfir hana og allt fer á hvínandi kaf með tilheyrandi skaða. Gerðist síðast að hausti fyrir um 2 árum.  Skilyrðin þurfa að vera nokkuð nákvæm til að þetta hendi og segja menn að þetta sé eitthvað sem búast megi við á 8-10 ára fresti. Rétt vindátt og mikill vindhraði, óvenju há ölduhæðutanvið og stórstreymt.  Þá bunkast sjórinn inn í fjörðinn og nær ekki að ræsa sig út fyrir næstu bylgju af hafi.  Þetta er ansi merkilegt að sjá.  Sjávarborðið hækkar hratt svo flýtur yfir bryggjur og flæðir inn á eyrina en lækkar svo jafn hratt aftur með reglulegu millibili. Líklega er munurinn á sjávarhæð á annan meter á milli þessara bylgja. Maður sér rétt í stýrishúsin á smábátum við bryggjuna en svo rísa þeir svo hátt að þeir ætla upp á bryggjurnar. Þessar bylgjur rísa á innan við 1/2 mínútu, standa stutt og hníga svo jafn hratt.

Jón Steinar Ragnarsson, 7.1.2011 kl. 08:35

3 Smámynd: Trausti Jónsson

Þakka þér fyrir Jón Steinar. Pólarlægðir má kalla hvort sem er því nafni eða nafninu heimskautalægðir - en hvorugt þykir mér sérlega gott. Piteraq er allt annað fyrirbrigði - fallvindur ofan af Grænlandsjökli. Williwaw er sama - eða svipaðs eðlis - fallvindur. Reyndar eru fallvindar fleiri en einnar tegundar en látum það liggja á milli hluta.

Trausti Jónsson, 7.1.2011 kl. 18:54

4 Smámynd: Trausti Jónsson

Siglufjörður hefur mjög oft orðið fyrir tjóni í brimi af hafi - sérstaklega meðan varnir voru litlar og mikill þrýstingur atvinnulífs á eyrinni.

Trausti Jónsson, 7.1.2011 kl. 18:57

5 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Verða þá ekki íslenskir veðurfræðingar að bæta snarlega úr þessu skrifleysi um norðurslóðaveður fyrir íslenska lesendur?

Sigurður Þór Guðjónsson, 8.1.2011 kl. 09:25

6 Smámynd: Trausti Jónsson

Þeir ættu kannski að gera það.

Trausti Jónsson, 8.1.2011 kl. 15:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 75
  • Sl. sólarhring: 89
  • Sl. viku: 1997
  • Frá upphafi: 2350866

Annað

  • Innlit í dag: 64
  • Innlit sl. viku: 1781
  • Gestir í dag: 61
  • IP-tölur í dag: 60

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband