Færsluflokkur: Vísindi og fræði
19.10.2012 | 00:25
Veturinn tekur sér stöðu
Nú er rétt einu sinni að koma vetur og hlýtur að fara að kólna fyrir alvöru á norðurslóðum. Enda ber norðurhvelskort dagsins það með sér og rétt að fara að fylgjast með atburðum. Hér að neðan verða sýnd tvö kort sem föstum lesendum hungurdiska ættu að vera orðin kunnugleg. En nýjum lesendum og lausum er bent á fyrri fræðslu um þessi efni. Þar er einkum að telja pistil sem birtist fyrst 7. október 2010 en þar má finna viðhengi sem hollt er að lesa. Eitt fyrsta kortið í þessum stíl birtist aftur á móti 13. mars á þessu ári (2012) og þar má finna skýringar á litum og línum kortanna hér að neðan.
Þetta er spá everópureiknimiðstöðvarinnar fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 19. október. Svartar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins í dekametrum. Þar sem þær eru þéttar er hvasst í háloftunum. Að vanda má sjá fölmargar lægðir en lítið er um hæðir. Þó er ein rétt norðan við Ísland (ekki merkt með H). Þessi hæð sér um það hæga og bjarta veður sem ríkir á landinu þessa dagana.
Litirnir tákna þykktina (fjarlægðina milli 1000 hPa og 500 hPa-flatanna). Hún sýnir meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Mörkin milli gulu og grænu litanna eru sett við 546 dekametra (5460 metra). Þar eru í grófum dráttum mörk sumar- og vetrar. Grænu litirnir eru þrír og er skipt um lit við hverja 6 dekametra. Ísland er vel inni í græna svæðinu. Að sumarlagi færir veðurlag af þessu tagi okkur sólríka en svala daga - sólin sér þó um að halda síðdegishitanum býsna háum. En nú er því ekki að heilsa - lítið gagn að verða af sólinni sem lækkar óðfluga á lofti. Frost er því inn til landsins og býsna hart um nætur.
En hvað er að gerast? Síberíumegin við norðurskautið er öflugur kuldapollur. Sem stendur er hann nokkuð hringlaga sem þýðir að hann hreyfist ekki mikið. Ef hlýtt loft í formi hæðarhryggja sækir að honum getur hann aflagast og fer þá að verpa eggjum sem geta skotist í ýmsar áttir. Það á einmitt að gerast á sunnudag-mánudag. Yfir Baffinslandi er mun minna kerfi sem hreyfist í austur.
Á mánudaginn (kortið að neðan) hefur það stuggað burt hæðinni við Ísland.
Þéttast þá bæði jafnhæðar- og jafnþykktarlínur norðan við land. Þéttist jafnhæðarlínurnar jafnmikið og jafnhæðarlínurnar vegast þær á og vindur nær ekki til jarðar. Þéttist jafnhæðarlínurnar meira heldur en jafnþykktarlínurnar gerir vestanátt hér á landi, en ef jafnhæðarlínurnar þéttast meir snýst vindur í neðstu lögum við og verður austan- eða norðaustanstæður.
Í bláa blettinum yfir Grænlandi norðaustanverðu er þykktin ekki nema 5040 metrar og hún er neðan við 5100 metra á stóru svæði. Þegar þykktin fer niður fyrir 5100 metra hér á landi er óhætt að segja að vetur sé skollinn á. Vonandi sleppum við enn um sinn. Þótt spennandi verði að sjá þetta lægðardrag fara hjá fellst aðalógnin þó í kuldanum við norðurskautið - en þar hefur kuldapollurinn aflagast og er orðinn að langri pulsu sem er að skiptast í tvennt. Þar má í fyrsta skipti á þessu hausti sjá í fjólubláa litinn - þykktina 4940 metra eða neðar. Vetur konungur mætir á svæðið gjörið þið svo vel.
Nú er þetta bara spá - og vel má vera að fjólublái liturinn bíði enn með að sýna sig í raunheimi. Undanfarna daga hafa spár verðið í miklu hringli með varpið og hvar eggið lendir. Þegar þetta er skrifað eigum við að sleppa naumlega - en Noregur og nágrenni verða fyrir höndinni köldu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2012 | 00:21
Hitaheimsmetið afskrifað
Í dag tilkynnti alþjóðaveðurfræðistofnuninað hún hefði afskrifað heimsmet það í hita sem þvælst hefur fyrir síðan mæling þess fór fram, 13. september 1922. Talan var 58,0 stig og færð til bókar á veðurathugunarstöðinni í El Azizia í Lýbíu. Þetta met hefur ætíð þótt grunsamlegt og hafa athugasemdir fyrir löngu komið fram. Sérstök greinargerð mun birtast í mánaðarriti ameríska veðurfræðifélagsins (Bulletin of the American Meteorological Society) á næstunni, en nú þegar hefur niðurstaðan verið birt á netinu (rekja má sig að heildargreinargerðinni á pdf-sniði í gegnum tengilinn hér að ofan).
Alþjóðaveðurfræðistofnunin heldur úti sérstakri metanefnd sem fjallar um ábendingar um ný veðurheimsmet. Nefndin á þakkir skilið fyrir að hafa tekist að ljúka þessu erfiða verkefni. Þá er tilkynnt að núgildandi heimsmet sé 56,7 stig (134°F nákvæmni upp á eitt F-stig) sem kvu hafa mælst í Dauðadal í Kaliforníu 10. júlí 1913. Verst er að nefndin skuli ekki hafa haft dug í sér til að strika það út líka - því eftir því sem ritstjórinn hefur sannfrétt var mælirinn þar ekki í réttri hæð. Það er of mikil forgjöf í heimsmetabaráttunni - rétt eins og meðvindur í 100 metra hlaupi - en ekki orð um það meir.
11.9.2012 | 01:00
Fyrsti snjór haustsins á Akureyri og í Reykjavík (endurtekið efni)
Hungurdiskar eru enn í haustdvala sínum - ekkert lát á utanbloggheimastússi ritstjórans. Í tilefni af hríðinni fyrir norðan er þó rétt að rifja upp pistil frá því í fyrra um fyrsta snjó haustsins í Reykjavík og á Akureyri. Tengill á hann er hér (aldeilis munur að eiga lager):
Rifjum líka upp fréttir dagblaða og Veðráttunnar frá því 1971. Fjallað er um hríðarveður 26. og 27. ágúst:
Miklir skaðar urðu í norðanáhlaupi, einkum norðaustanlands. Rúmlega fjögur þúsund fjár mun hafa farist. Mest fjártjón varð í Vopnafirði. Slydduísing hlóðst á rafmagnsstaura og víða varð rafmagnslaust á Norðausturlandi. Fjallvegir urðu ófærir og ferðamenn lentu í hrakningum. Skriður féllu á vegi á Austurlandi. Snjó festi á sjö veðurstöðvum.
Eitthvað kunnuglegt? En harla óvenjulegt bæði nú og þá - því er ekki að neita.
29.8.2012 | 01:03
Nokkrar frostnætur í röð
Ísland er þrátt fyrir allt norðarlega á hnettinum þar sem sólarylur dagsins má sín oftast lítils fyrir útgeislun sem stendur linnulaust allan sólarhringinn. Geislunarbúskapurinn er þó með hvað mestum halla í heiðskíru veðri að næturlagi. Frostnætur geta komið einhvers staðar í byggðum landsins allt sumarið - á stangli þó í júlí og framan af ágúst.
Eftir 20. ágúst fer að horfa til verri vegar og frostnætur fara að koma í klösum. Sjaldan er þó frost á sömu veðurstöð marga daga í röð. Hversu langir geta slíkir klasar orðið í ágústmánuði - sé miðað við lægsta lágmarkshita á landinu öllu?
Ekki er mikið mjög mikið mál að leita frostaklasa og hitasyrpur uppi í athuganatöflu mannaðra stöðva á landinu, en hún nær eins og veðurnörd vita aftur til 1949. Strax kemur í ljós að þriggja til fimm daga klasar eru nokkrir fyrir 15. ágúst en aðeins einn sex daga klasi byrjar svo snemma. Hann hófst með 9. ágúst 1963 og stóð (auðvitað) til þess 14.
Árið 1973 kom 7 daga klasi sem hófst þann 16. og í ágúst 1964 kom 12 daga klasi sem byrjaði þann 18. Lengsti klasinn sem byrjaði í ágúst hófst þann 30. árið 1977 og stóð samfellt í tuttugu daga. Hversu lengi stendur syrpan sem nú er á fullu?
Í september tekur alvaran við.
27.8.2012 | 00:40
Óvenjumikið frost
Mikið frost mældist víða á aðfaranótt sunnudags (26. ágúst). Mest fór það í -5,3 stig á Brúsastöðum í Vatnsdal. Mun þetta vera mesta frost sem mælst hefur á landinu í ágúst síðan 1982 en þá fór frostið í -5,6 stig á Staðarhóli í Aðaldal aðfaranótt þess 28.
Það er sárasjaldan sem meira frost hefur mælst í ágústmánuði hér á landi. Opinbert lágmark er -7,5 stig en þau mældust í Sandbúðum á Sprengisandsleið í ágúst 1975. Byggðarmetið er -6,1 stig sett á Barkarstöðum í Miðfirði aðfaranótt 27. ágúst 1956.
Ágústnóttin kalda 1956 var sérlega köld um mestallt land - miklu kaldari víðast hvar, t.d. í Reykjavík. Nú er spurning hvað gerist næstu daga. Kuldinn sem nú er fyrir norðan land er sá mesti á norðurhveli öllu. Þykktin er ekki nema 5230 metrar í miðju kuldapollsins. Hann verður til leiðinda næstu daga og segir evrópureiknimiðstöðin að hann slái halanum inn á landið á þriðjudag/miðvikudag og að þykktin yfir Norðausturlandi fari þá niður fyrir 5260 metra. Það er þó ekki met. En spurning er hvort næturfrostið verður þá enn meira en þegar hefur orðið. Það fer mjög eftir vindi og skýjahulu.
Þetta er athyglisvert eftir öll hlýindin að undanförnu.
Hungurdiskar munu enn halda sér til hlés á næstunni en hafa ekki verið lagðir af. Ástæða hléa og hiksta eru auðvitað veraldlegar annir ritstjórans. Hann þarf stundum að stíga út úr skýi sínu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.8.2012 | 00:33
Tuttugustigasyrpunni lokið
Þar með lauk tuttugustigasyrpunni miklu. Hæsti hiti á landinu í dag (sunnudag) var 19,9 stig - á Brúsastöðum í Vatnsdal. Ekki munaði miklu - og vel er hugsanlegt að hiti merji 20 stigin á morgun og/eða á þriðjudag. En síðan minnka líkur á svo háum hita sé að marka spár. Syrpan varð 23 daga löng - glæsilegt met.
Fyrstu þrjár vikur þessa mánaðar eru býsna hlýjar - ekki langt í hlýjustu ágústmánuði allra tíma. En nú á að kólna. Að undanförnu hefur þykktin löngum verið um og yfir 5550 metrar - en fellur á næstu dögum niður fyrir 5400 og þá kólnar óhjákvæmilega.
Í dag var mikil hitabylgja á norðaustanverðu Grænlandi - þykktin yfir 5580 metrum - en hlýja oftið sópast burt til morguns og við tekur loft úr Norður-Íshafi.
Skammvinn hitabylgja er nú víða í Evrópu, frá Spáni til norðausturs um Þýskaland. Þar er þykktin yfir 5760 metrum - og telst það til fádæma á þeim slóðum. Veðurstofur á svæðinu hafa gefið út hitaaðvaranir. En norðan Miðjarðarhafs/Alpa stendur þetta ekki lengi.
Í dag - sunnudag eiga hungurdiskar tveggja ára afmæli, fyrsti pistill birtist þann 19. ágúst 2010. Í upphafi var ætlunin að reyna að halda úti því sem næst daglegum pistlaskrifum í tvö ár. Það hefur nú tekist - eða nærri því. Eiginleg pistlaskrif hófust þann 23. ágúst.
Þakka verður góðar undirtektir lesenda - sem vonandi hafa fengið eitthvað fyrir sinn snúð. Nú þornar um og uppskera getur orðið ójöfn eða dregist á langinn. En hver veit nema að frjósemistíð renni upp á ný og aftur verði reynt við því sem næst dagleg pistlaskrif. Birtist ný met af einhverju tagi - eða þá óvenjuathyglisverð veður má búast við umsögnum.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
19.8.2012 | 01:56
Fellibylur nærri Asóreyjum
Ekki er óalgengt að Asóreyjar verði fyrir leifum hitabeltisstorma og fellibylja en það er samt óvenjulegt að sjá þroskaðan fellibyl nálgast eyjarnar eins og nú. Sá nefnist Gordon og á sér einnig þá óvenjulegu sögu að hafa ekki breyst í fellibyl fyrr en komið var norður fyrir 30. breiddarstig - austan við miðju Atlantshafs á 42. gráðu vesturlengdar. Varla verður hann lengi á þessu þroskastigi - með auga og öllu sem fylgir heiðarlegum fellibyl.
Eins og spáin er í augnablikinu (laugardagskvöld 18. ágúst) á miðja kerfisins að fara til austnorðausturs skammt suður af Sao Miguel, stærstu eyju Asóreyjaklasans nálægt miðnætti á sunnudagskvöld. Portúgalska veðurstofan hefur dregið fram rauða litinn á meteoalarmsíðunnibæði fyrir vindhraða og sjávargang - og gulan fyrir þrumuveður á austureyjunum báðum, Sao Miguel og Santa Maria.
Gordon er nú furðuöflugur - bandaríska fellibyljamiðstöðin segir vindhraða 90 hnúta og að hviður séu um 110 hnútar. Þrýstingur í auganu er áætlaður 969 hPa.
Það er merkileg tilviljun að síðasti stafrófsstormur sem lenti á Asóreyjum með fellibylsstyrk hét líka Gordon. Það var árið 2006 - nöfnin endurtaka sig á 6 ára bili, nema að nöfn þeirra sem valda mestu tjóni eru ekki endurtekin.
Gervihnattarmyndin er frá kanadísku veðurstofunni (Environment Canada) og sýnir Gordon vel.
Kaldur sjór er á milli Gordons og vesturstrandar Portúgal. Auk þess eru rastir vestanvindabeltisins skammt norður undan. Tölvuspár reikna með því að þessi merkilegi fellibylur gufi upp strax á þriðjudag - hálfa leið á milli Asóreyja og Portúgals. Samkvæmt sömu spám á hann ekki að breyta neinu í þeim bylgjugangi sem okkur varðar.
Um Asóreyjar má lesa á Wikipediu og þar er einnig skrá yfir hitabeltisstorma sem gengið hafa yfir eyjarnar síðustu 40 ár eða svo - en ekkert um þá sagt. Fleiri ámóta vísanir má finna á netinu.
18.8.2012 | 01:46
Öfugsnúin lægð
Stöku sinnum fara lægðir hjá sem virðast alveg eðlilegar á gervihnattamyndum - en þegar til á að taka liggur engin þrýstilína utan um lægðarmiðju við sjávarmál. Undanfarinn sólarhring hefur lægð af þessu tagi farið til suðvesturs um Grænlandssund og síðan Grænlandshaf. Rétt er að vara við textanum hér að neðan - en gervihnattarmyndin er falleg.
Lítum fyrst á veðurkort evrópureiknimiðstöðvarinnar frá því kl. 15 í dag - föstudag.
Við giskum nánast í blindni á að lægðarmiðjan sé þar sem L-ið á myndinni er, úrkomubakkinn vestur af Breiðafirði eru þar sem ætti að búast við kuldaskilum lægðarinnar - og hitafar í kringum bakkann er eins og búast má við í eðlilegum kuldaskilum, kalda loftið er lægðarmiðjumegin bakkans en það hlýja austan við.
En engin þrýstilína liggur í kringum lægðarmiðjuna - og reyndar minna en það því norðaustanátt ríkir á öllu svæðinu kringum hana. Þetta virðist hálf ótrúlegt - en verður enn ótrúlegra þegar horft er á gervihnattamynd sem tekin er 7 klst síðar en kortið gildir.
Hér sést lægðarmiðjan vel - hún hefur hreyfst til suðvesturs frá miðjum degi - en var þá í raun vestar heldur en giskað var á hér að ofan. Við að líta á myndina virðist sem þetta sé lægð á hefðbundinni norðausturleið og úrkomubakkinn í þann mund að komast til landsins. Í raun og veru er hann á leið í þveröfuga átt - afturábak miðað við hefðbundna hreyfistefnu.
Hér væri freistandi að merkja hefðbundið kerfi með kulda-, hita- og samskilum inn á kortið - það gætu flest veðurnörd auðveldlega gert - en eru þá hitaskilin í venjubundinni stöðu kuldaskila? - Eru einhver kuldaskil?
Sé farið nánar í stöðuna kemur í ljós að raunveruleg lægð birtist ofan við 2 km hæð í kerfinu og magnast eftir því sem ofar dregur allt að veðrahvörfum - en það bjargar ekki skilaklúðrinu - ekki nema að við viðurkennum að kuldaskil geti hreyfst aftur á bak með hlýtt loft í framrás - en í því fellst ákveðin mótsögn - eða hvað?
Við ljúkum þessu með lausn núverandi heimsmeistara í skiladrætti - greiningu bresku veðurstofunnar kl. 18 sama dag.
Tvenn samskil ýmist á hreyfingu norður eða suður á móti hvorum öðrum - sundur eða saman?
17.8.2012 | 01:16
Syrpan hefur nú staðið í þrjár vikur
Tuttugustigasyrpan á landinu hefur nú (fimmtudaginn 16. ágúst) staðið í 21 dag - og er trúlega ekki lokið. Vafalaust er hér um met að ræða. Ef miðað er við mannaðar stöðvar eingöngu hefur syrpan reyndar slitnað tvisvar sinnum - en mönnuðum stöðvum hefur fækkað mjög á síðustu 8 árum og þekja þær ekki lengur landið allt.
Hiti hefur náð 20 stigum einhvers staðar á landinu 54 daga ársins 2012. Fjóra daga vantar enn til að jafna fjöldann á árinu 2010. Sé miðað við mannaðar stöðvar eingöngu vantar talsvert upp á að við náum metárunum 1991 og 1984 - en vegna fækkunar stöðva er samanburðurinn ósanngjarn. Almennar líkur á tuttugustigadegi hrapa mjög ört eftir miðjan ágúst og hafa þeir flestir orðið 11 talsins eftir 16. ágúst. Hvað verður í ár?
Í dag (16. ágúst) fór hiti í Reykjavík í fyrsta skipti yfir 20 stig á árinu. Eins og venjulega er hér átt við mönnuðu stöðina á Veðurstofutúni í þeim samanburði. Hún ber enn nafn Reykjavíkur þótt borgin nái auðvitað yfir miklu stærra svæði.
Það eru alltaf nokkur tíðindi þegar Reykjavíkurhitinn nær 20 stigum. Staðurinn er þannig í sveit settur - sjávarloft er oftast ríkjandi að deginum. Fyrir nokkrum dögum birtist á hungurdiskum mynd sem sýndi tíðni hámarkshita ársins á landinu. Við skulum líta á samsvarandi mynd fyrir Reykjavík, gögnin sem liggja til grundvallar ná aftur til 1920. Fyrir þann tíma var hámarkshiti lengst af ekki mældur í borginni - þótt gagn megi hafa af hitamælingum kl. 15. Þær eru oftast ekki fjarri hámarkinu.
Lóðrétti ásinn sýnir tíðni í prósentum en sá lárétti sýnir hitabil, þannig að talan 20 stendur fyrir 20,0°C til 20,9°C o.s.frv.
Algengast er að árshámarkshitinn sé 18,0 til 18,9°C og litlu sjaldnar einu stigi hærri. Bilið frá 17 og til og með 20 á hvorki meira né minna en 72 prósent áranna. Mjög sjaldgæft er að hiti nái ekki 16 stigum (um 3%). Tuttugu stiga hita er náð í um 30 prósent tilvika, en við 21 stig sýnist vera hálfgerður múr því hitinn hefur farið svo hátt aðeins sjöunda hvert ár frá 1920 að telja.
Nú hefur árshámarkið náð 20 stigum sex ár í röð. Það hefur ekki gerst áður, en lengsti tíminn án 20 stiga er hið fræga bil, 1961 til 1975 - sextán ár liðu þá á milli júlí 1960 og sama mánaðar 1976 - án tuttugu stiga. Reyndar munaði einu sinni 0,1 stigi þegar hitinn fór í 19,9 stig 1969.
Á tímabilinu 1931 til 1960 var árshámarkshitinn í Reykjavík 13 sinnum 20 stig eða meira, á árunum 1961 til 1990 gerðist það hins vegar aðeins í þremur árum að hæsta hámark náði markinu. Aumastur var árshámarkshitinn 1921, aðeins 14,6 stig.
Í Reykjavík hefur hiti aðeins þrisvar mælst 20 stig eða meiri eftir 16. ágúst sé miðað við tímabilið frá 1920 að telja. Það var 18. ágúst 1941, 31. ágúst 1939 og 3. september 1939. Hvenær fáum við aftur 20 stig í Reykjavík í september?
Meðalhiti fyrstu 16 daga ágústmánaðar er auðvitað mjög hár - þurrkur telst sömuleiðis óvenjulegur víða um land. Engin úrkoma hefur t.d. mælst á Akureyri það sem af er mánuðinum.
Lesendum er sérstaklega bent á pistil nimbusar um Reykjavíkurhitann í dag.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.8.2012 | 01:26
Merki þess að sumri hallar
Erfitt er að negla niður hvaða dag sumri fer að halla. Svartsýnismenn segja það auðvitað vera strax eftir sumarsólstöður - og er nokkuð til í því. Hiti nær þó ekki hámarki fyrr en síðar. Hámarki meðalhitans er náð ekki löngu eftir sólstöður þar sem land er þurrt og langt frá sjó en yfirleitt er hlýjast á landinu á tímabilinu frá því um 20. júlí til 10. ágúst. Sjórinn í kringum landið hlýnar yfirleitt fram í ágúst.
Loftþrýstingur nær hámarki í maí og lækkar síðan allt sumarið - en tekur dálitla dýfu í lok ágúst - um höfuðdaginn. Um svipað leyti færast illviðri í aukana og frostnætur fara að gera vart við sig inn til landsins.
Silfurskýin sem sjást hér á landi frá 25. júlí og fram í miðjan ágúst hverfa þá snögglega - eða hafa gert það hingað til.
En athyglisverð breyting verður á hitafari í kringum landið. Hitinn fyrir sunnan land hörfar lítið síðari hluta ágústmánaðar en norðurundan fer hann að lækka - að meðaltali nokkuð snögglega. Þetta sést vel á mynd sem hefur reyndar birst í einhverju formi á hungurdiskum áður - en við rifjum hana upp hér að neðan.
Myndin tekur yfir eitt ár og eru mánaðanöfnin sett við 15. hvers mánaðar. Á lóðrétta kvarðanum eru tölur sem vísa til þykktarmunar á milli 70°N og 60°N. Fastir lesendur vita að þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem munur er á henni því meiri er hitabrattinn á milli mælipunkta. Við skulum ekki velta vöngum yfir einingunum en hitamunur á milli breiddarbauganna tveggja reiknast minnstur 13. ágúst. Miðað er við tímabilið 1971 til 2000. Trúlega hliðrast lágmarkið eitthvað til á milli tímabila.
Við sjáum að þykktarbrattinn er þrisvar sinnum meiri á vetrum heldur en á sumri. Sérstaka athygli vekur á myndinni hversu snögglega hann vex síðari hluta ágústmánaðar og tvöfaldast hann þá á einum mánuði. Sumarástandi vestanvindabeltisins er þar með lokið og haustið fer að sækja að.
Það er auðvitað misjafnt hvernig þetta gerist frá ári til árs, framsókn kuldans úr norðri er langt í frá samfelld - hvorki í tíma né rúmi.
En við sitjum alla vega í hlýindum í nokkra daga í viðbót og rétt að njóta þeirra meðan þau gefast.
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 6
- Sl. sólarhring: 329
- Sl. viku: 1663
- Frá upphafi: 2482886
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 1501
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010