Veturinn tekur sér stöðu

Nú er rétt einu sinni að koma vetur og hlýtur að fara að kólna fyrir alvöru á norðurslóðum. Enda ber norðurhvelskort dagsins það með sér og rétt að fara að fylgjast með atburðum. Hér að neðan verða sýnd tvö kort sem föstum lesendum hungurdiska ættu að vera orðin kunnugleg. En nýjum lesendum og lausum er bent á fyrri fræðslu um þessi efni. Þar er einkum að telja pistil sem birtist fyrst 7. október 2010 en þar má finna viðhengi sem hollt er að lesa. Eitt fyrsta kortið í þessum stíl birtist aftur á móti 13. mars á þessu ári (2012) og þar má finna skýringar á litum og línum kortanna hér að neðan.

w-blogg191012a

Þetta er spá everópureiknimiðstöðvarinnar fyrir hádegi á morgun, föstudaginn 19. október. Svartar línur sýna hæð 500 hPa-flatarins í dekametrum. Þar sem þær eru þéttar er hvasst í háloftunum. Að vanda má sjá fölmargar lægðir en lítið er um hæðir. Þó er ein rétt norðan við Ísland (ekki merkt með H). Þessi hæð sér um það hæga og bjarta veður sem ríkir á landinu þessa dagana.

Litirnir tákna þykktina (fjarlægðina milli 1000 hPa og 500 hPa-flatanna). Hún sýnir meðalhita í neðri hluta veðrahvolfs. Því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. Mörkin milli gulu og grænu litanna eru sett við 546 dekametra (5460 metra). Þar eru í grófum dráttum mörk sumar- og vetrar. Grænu litirnir eru þrír og er skipt um lit við hverja 6 dekametra. Ísland er vel inni í græna svæðinu. Að sumarlagi færir veðurlag af þessu tagi okkur sólríka en svala daga - sólin sér þó um að halda síðdegishitanum býsna háum. En nú er því ekki að heilsa - lítið gagn að verða af sólinni sem lækkar óðfluga á lofti. Frost er því inn til landsins og býsna hart um nætur.

En hvað er að gerast? Síberíumegin við norðurskautið er öflugur kuldapollur. Sem stendur er hann nokkuð hringlaga sem þýðir að hann hreyfist ekki mikið. Ef hlýtt loft í formi hæðarhryggja sækir að honum getur hann aflagast og fer þá að verpa eggjum sem geta skotist í ýmsar áttir. Það á einmitt að gerast á sunnudag-mánudag. Yfir Baffinslandi er mun minna kerfi sem hreyfist í austur.

Á mánudaginn (kortið að neðan) hefur það stuggað burt hæðinni við Ísland.

w-blogg191012b

Þéttast þá bæði jafnhæðar- og jafnþykktarlínur norðan við land. Þéttist jafnhæðarlínurnar jafnmikið og jafnhæðarlínurnar vegast þær á og vindur nær ekki til jarðar. Þéttist jafnhæðarlínurnar meira heldur en jafnþykktarlínurnar gerir vestanátt hér á landi, en ef jafnhæðarlínurnar þéttast meir snýst vindur í neðstu lögum við og verður austan- eða norðaustanstæður.

Í bláa blettinum yfir Grænlandi norðaustanverðu er þykktin ekki nema 5040 metrar og hún er neðan við 5100 metra á stóru svæði. Þegar þykktin fer niður fyrir 5100 metra hér á landi er óhætt að segja að vetur sé skollinn á. Vonandi sleppum við enn um sinn. Þótt spennandi verði að sjá þetta lægðardrag fara hjá fellst aðalógnin þó í kuldanum við norðurskautið - en þar hefur kuldapollurinn aflagast og er orðinn að langri pulsu sem er að skiptast í tvennt. Þar má í fyrsta skipti á þessu hausti sjá í fjólubláa litinn - þykktina 4940 metra eða neðar. Vetur konungur mætir á svæðið gjörið þið svo vel.

Nú er þetta bara spá - og vel má vera að fjólublái liturinn bíði enn með að sýna sig í raunheimi. Undanfarna daga hafa spár verðið í miklu hringli með varpið og hvar eggið lendir. Þegar þetta er skrifað eigum við að sleppa naumlega - en Noregur og nágrenni verða fyrir höndinni köldu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Held að þetta verði annálaður harðinda og ísavetur svo enginn muni annað eins! 

Sigurður Þór Guðjónsson, 19.10.2012 kl. 22:19

2 identicon

Takk fyrir kortin og fróðleikinn. Gott að sjá frá þér þessa færslu.

Kveðja

Gunnar Sæmundsson (IP-tala skráð) 19.10.2012 kl. 23:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 32
  • Sl. sólarhring: 381
  • Sl. viku: 1857
  • Frá upphafi: 2350593

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 1660
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband