4.12.2020 | 02:42
Enn af nóvember
Nóvember í ár var ólíkur almanaksbróður sínum í fyrra - og mjög ólíkur nýliðnum október líka. Rósemdarsvipur var yfir þeim mánuðum. Nú voru bæði vestlægar og suðlægar áttir öllu stríðari heldur en að meðaltali - þó ekki til neinna vandræða.
Kortið sýnir meðalhæð 500 hPa-flatarins í nóvember (heildregnar línur), en einnig hæðarvikin. Jákvæð vik eru rauðbrún, en þau neikvæðu blá. Af vikunum ráðum við að suðvestanáttin var talsvert sterkari en hún er yfirleitt í nóvember. Svona vægt einkenni þess aem við máttum búa við í fyrravetur, frá desember og áfram.
Samt hefur veðrið verið nokkuð gott í haust - til þessa - frekar lítið um að vera en fáeinir öflugir vestanáttardagar - tvö illviðri setja svip sinn á heildarvik mánaðarins. Ritstjóri hungurdiska var satt best að segja fremur hissa þegar hann sá þetta uppgjör - tíð hefði átt að vera verri um landið sunnan- og vestanvert í nóvember en hún var.
Þegar vestanáttin er sterk - og hæðarvik jákvæð yfir Evrópu er hlýtt þar um slóðir - enda óvenjuleg hlýindi þar á ferð að þessu sinni. Aftur á móti var nóvember heldur kaldur við Vestur-Grænland og Baffinslandi - ekki þó eins kaldur og staðan gæti gefið til kynna. Við á milli þessara tveggja póla.
Þakka BP að vanda fyrir kortagerðina.
3.12.2020 | 21:07
Af árinu 1858
Árið 1858 þótti heldur óhagstætt, sérstaklega vorið og hluti haustsins. Sumarið var votviðrasamt og erfitt nyrðra, sennilega skárra syðra. Fjárkláðinn var erfiður. Ársmeðalhiti var þó ekki langt frá langtímameðaltölum, 3,3 stig í Stykkishólmi, nákvæmlega í meðallagi næstu tíu ára á undan. Mælt var í Reykjavík allt árið og meðalhiti þar 4,6 stig. Áætlaður meðalhiti á Akureyri er 2,3 stig. Fremur hlýtt var í febrúar og nóvember, hiti nærri meðallagi í janúar, ágúst og desember, en kalt í öðrum mánuðum, maí kaldastur að tiltölu. Þá gerði afarslæmt hret sem náði hámarki um og eftir miðjan mánuð. Varla er hægt að trúa hitamælingum frá Ofanleiti í Vestmannaeyjum þennan mánuð, en þær segja frost hafa verið þar í morgunsárið dag eftir dag á þessum tíma - en mikið var kveinað undan þessu hreti á öllu landinu, sagt hið versta á þessum tíma í áratugi.
Í Stykkishólmi voru mjög kaldir dagar 14 (sjá viðhengi), 21.maí kaldastur að tiltölu.
Úrkoma í Stykkishólmi mældist 810 mm, vel ofan meðallags. Mjög úrkomusamt var í janúar og ágúst, en þurrt í nóvember.
Loftþrýstingur var sérlega lágur í september og desember, en fremur hár í nóvember og mars. Lægsti þrýstingur ársins mældist í Stykkishólmi 9.janúar, 948,9 hPa, en hæstur á sama stað 17.október, 1034,4 hPa. Þrýstifar var órólegt í október - en aftur á móti rólegt í nóvember.
Fjárskaðahríðin mikla í október (sjá nánar í pistlum hér að neðan) virðist vera minnisstæðasti veðurviðburður ársins. Mikil hláka kom í kjölfarið og fylgdu henni skriðuföll nyrðra.
Hér að neðan má finna helstu heimildir um veðurfar ársins. Nokkuð af veðurskýrslum og dagbókum er enn óyfirfarið. Að vanda er stafsetning að mestu færð til nútímavenju. Fleiri slysa er getið í heimildum heldur en nefnd eru hér að neðan. Óljóst er hver þeirra tengdust veðri og dagsetningar vantar.
Brandsstaðaannáll [vetur]:
Þíðviðri og milt veður hélst til þrettánda. Þá gjörði storku og hagleysi fyrir fé. Gengu svo köföld og smáblotar til þorra. Um Pálsmessu hláka góð, en 5 daga fyrir kyndilmessu harka mikil, svo mildara, en 4. febr. hríð ytra og enn kafaldasamt í miðþorra 9. febr. Aftur þítt og góðviðri stöðugt til miðgóu, 6.-9 mars norðanhríð allmikil og harðviðri; eftir það fjúkasamt með hægu frosti og aftur viku fyrir páska hríð og harka á eftir.
Norðri segir 31.janúar
Lítið frést með þeim fáu sem komið hafa og fréttirnar þær sem eru heldur bágar, nema hvað tíðarfarið snertir, sem hefur víðast hvar á landi verið hið æskilegasta það sem af er vetri, þó höfum vér fréttir að hart og illviðrasamt hefur verið úti í Siglufirði og þeim héruðum, er þar næst liggja, enda er þar vetrarríki mikið venjulega.
Þjóðólfur segir 27.mars:
Næstliðna Kyndilmessu (2.febrúar) fórst hákarlaskip vestur í Bolungarvík með 6 mönnum og týndust þeir allir. [Þann 14.mars] varð úti í Borgarfirði, i leið frá Reykholtsdal að heimili sínu Stafholtsey, maður á besta aldri, Jón Sveinsson að nafni. Hafís. Í bréfi úr Húnavatnssýslu, 16.[mars] segir: Hafísinn er farinn að nálgast".
Í viðaukablaði Þjóðólfs 22.maí er dálítil grein um loftvogir og mikilvægi þeirra eftir Jón Hjaltalín (við sleppum auglýsingunni í lokin). Höfundur tekur nokkuð stórt upp í sig:
Um Loftþyngdarmæli eða veðurvita, til að sjá fyrir veður og til að varna slysförum í sjóferðum. Þegar mannskaðar verða í veiðistöðum hér á landi, þá kemur það oftast af því, að menn eigi hafa getað séð fyrir háskaleg og voveifleg veður, er oft detta á upp úr logni eða hægveðursmollum og þoku. Slík veður má oftast eða nærfellt alltént sjá fyrir á loftþyngdarmælinum, ef menn þekkja reglurnar fyrir brúkun hans, en þær eru eigi örðugri en svo, að hver eftirtektasamur og greindur maður hæglega gæti numið þær, og þarf eigi meira en stutta æfingu til að komast niður í þeim. Ég þykist sannfærður um, að það væri hin þarfasta eign fyrir hverja veiðistöðu, að eiga sér loftþyngdarmæli með uppskrifuðum eða prentuðum reglum fyrir brúkun hans, og með því hann er þarflegur öllum formönnum, þá finnst mér, að formennirnir í hverri veiðistöðu ætti að skjóta saman, til að kaupa sér þetta þarflega verkfæri, og koma sér svo saman um, að hafa það á einhverjum þeim stað, þar allir gæti haft gagn af því. Ég þykist sannfærður um, að kostnaðurinn fyrir hverja veiðistöðu yrði sáralítill, jafnvel þó menn í hverri veiðistöðu hefði eina tvo slíka loftþyngdarmælira, þar nú má fá þá góða og áreiðanlega í Kaupmannahöfn, fyrir 8 eða 10 rdl. Hver sá, sem vanur er loftþyngdarmælinum, getur af honum séð, hvernig breytingin verði á veðrinu, einkum hvað storma og hægviðri snertir, og mætti þetta oft verða að miklu gagni fyrir sjómenn, sem með þessum hætti oft geta séð stórviðri fyrir, löngu áður þau á detta, og þar að auki fengið hugmynd um hvað lengi óveðrið mundi vara. ... Reykjavík, 22. febrúar 1858. Jón Hjaltalín.
Séra Þorleifur í Hvammi segir í lok mars: Hér hafa verið, einstakir veðurblíðudagar með köflum, svo heimilisnjóli var hér í einstöku stað farinn að votta sig til útsprungu, snjóar og svell að kalla þrotnir í byggðinni, en í endirinn á þessum mánuði sést breytingin. og í lok apríl: Í þessum mánuði voru öll svell leyst og skaflar hér heima, en allt aftur svellrunnið í enda þessa mánaðar.
Brandsstaðaannáll [vor]:
Eftir páska, 4. apríl, stillt og gott vorveður og auð jörð, því aldrei gjörði fannir miklar og hross höfðu sífellt snöp til sveita, en ei til heiða og hálsa. Á sumarmálum var grænkað í hlaðvarpa. 27. apríl skipti um með snjógangi og frostum, þó aftur þíðviðri 6.-12. maí, en gróður sást þó ei utan lítið móti sólu í halllendi. Þaðan fram yfir hvítasunnu [23.maí] stöðug harka og landnorðanstormur, þó lengst auð jörð.
Norðri segir frá 31.maí. Athyglisverð er spurningin í lokin. Hún bendir til þess að höfundi hafi ekki þótt nýliðnir vetur harðir.
Af hákarlaveiðunum hér við Eyjafjörð höfum vér þær fréttir, að þær ganga í ár allmisjafnt, en þó flestum allvel. Hefur einkum gæftaleysi og ís tálmað veiðinni en oftast verið nógur hákarl fyrir þegar gefið hefir til að liggja Þó að veturinn hafi hér um Norðurland verið ágæta góður, þá hafa þó kuldarnir og hretin í vor orðið mönnum svo heyfrek, að fjöldi manna er hér heylaus, enda er það mjög haft á orði, að heyin þau í fyrra hafi reynst mjög létt og ódrjúg til gjafa. Hvernig mundi oss ganga Íslendingum, ef vér fengjum mjög harðan vetur?
Þjóðólfur segir 5.júní:
Allstaðar að fréttast þungar afleiðingar þessa einstaklega kalda og gróðurlausa vors; og vart mun jafn illt vor hafa gengið hér yfir land síðan 1835; fjárhöld víða ill bæði sunnan- og norðanlands, en betri fyrir vestan, og fellir nokkur sumstaðar, einkum á gemlingum, kveður talsvert að því í sumum sveitum i Skaftafells-, Mýra- og Rangárvallasýslu; hrossafellir talsverður í Rangárvallasýslu í þeim sveitunum sem votlendar eru, en ekki þar sem þurrlent er, t.d. á Landinu og Rangárvöllum. Víða hafa þrotið hey handa kúm í téðum sýslum, einnig í Flóanum, þar sem þó sauðféð var fellt að mestu í haust, og þær víða orðnar nytlausar og skemmdar.
Á Hvanneyri við Siglufjörð er getið um hafís: 8.mars: Rak inn hafísjaka fáeina. 10. mars: Mikill hafís úti fyrir. 2. apríl: Fullt af hafís. 31.maí: Hafís úti fyrir allan þennan og næstliðinn mánuð.
Brandsstaðaannáll [sumar]:
Eftir hátíð 26. maí batnaði veður, en þó var kalsasamt fram yfir fardaga, en úr því góð tíð og gróður, nokkuð útsynningasamt. Nægur gróður á fráfærum, sem voru 27. júní. Aldrei stórrignt nema 18. júní. Gott og nokkuð skúrasamt um lestatíma. Varð mikill grasvöxtur. Sláttur byrjaði í miðjum júlí. Þann 17. var þerrir góður, en úr því þokur og votviðri, þó flæsa nokkur 22.-24. júlí, svo þurrka mátti að mestu það til var, en síðan stöðug votviðri, þó ei stórrigning utan 5. ágúst, en aldrei regnlaus dagur og án sudda til 13. ágúst. Var þá óvíða taða innkomin og hjá flestum ónýting orðin meiri og minni. Kom þá viku þurrviðri og nægur þerrir að hirða það laust var orðið. Aftur kom rigningarkafli 19.-27. ágúst og ennþá vikutíma að mestu þurrt og flæsudagar hér til dalanna. Þriðji rigningakaflinn byrjaði 5. sept. Þann 13. rigndi ákaflega, svo mjög flóði um jörð. 16.-20. sept. flæsudagar, svo nokkrir hirtu hey, en göngurnar tálmuðu flestum austan Blöndu. Gengu nú enn rigningar 21. sept, og 27. fannkoma, er að nokkru tók upp neðra og í lágsveitum, svo 29. hirtu festir hey sín, en hjá öllum á hálendi og til afdala varð hey úti meira og minna. Töðufall varð í mesta máta, en almennt skemmdist hún mjög frá mjólkurgæðum. Heyskapur á þurrlendi varð mikill, því gras spratt fram í miðjan ágúst, en fáir fengu óskemmt hey, en mörgum vannst illa að verki, varð mjög tafsamt og almennt urðu miklar slægjur eftir. ...
Þann 4.júlí segir athugunarmaður á Hvanneyri í Siglufirði að gengið hafi í snjóhríð með kvöldinu.
Norðri segir þann 31.júlí:
Síðan að batna tóku vorharðindin var tíðarfarið lengi hér hið æskilegasta, svo að grasvöxtur á túnum var hér norðanlands víðast hvar orðinn í góðu meðallagi frá sláttarbyrjun. En þurrkar hafa enn ekki verið góðir á töðum manna, því nú í seinni hluta júlímánaðar hafa suma daga verið miklar rigningar með kulda og snjó ofan í mið fjöll. Hákarlaaflinn hefur hér verið góður að öllu samtöldu, en misjafnt hefur hann gefist eins og að undanförnu. Fiskiafli hefur verið nokkur hér út á Eyjafirði, en þó með minna móti, en hér inni einlægt mjög lítið um afla. Hvalreka höfum vér enga frétt þó að vorið væri svo ísamikið nema ef telja skyldi tvítugan hval sem rak á Langanesströndum.
Norðri segir 15.september:
Heyskapartíðin hefur verið hin örðugasta allstaðar þar sem vér höfum til spurt sökum rigninga og óstöðugleika á þurrki, svo að töður allar hafa víða ekki náðst inn fyrr en seinast í ágústmánuði, og allvíða mjög skemmdar.
Þjóðólfur segir af fjárkaupaferðum sunnanmanna í pistli þann 11.október:
Hreppamönnum og Skeiðamönnum, er fóru norður yfir fjöll til fjárkaupa, eins og fyrr er getið, gekk ferðin vel og greiðlega. og náðu aftur heimabyggðum með féð áður en hann skall á með þetta mikla gaddíhlaup er nú er búið að standa á aðra viku, með kafaldsbyljum á fjöllum.
Í Þjóðólfi 29.mars 1859 má lesa skýrslu um fjárkaup Skeiðamanna í Skagafirði 1858. Þar segir m.a.:
Þann 25. september lögðum við af stað heimleiðis úr Skagafirði; en þó þá væri kominn talsverð ófærð af snjó þar fremst í byggðinni og við alla leið á fjöllunum fengum frost og snjógang, gekk okkur þó svo vel, að við þann 30.s.m. náðum til byggða í Árnessýslu.
Brandsstaðaannáll [haust og vetur til áramóta]:
Til allra útkjálka varð hey skemmt og ónýtt allmikið. Líka varð það undir snjó, því 30. sept. kom vikuhríð með ofsaveðri lengst og stórfenni ásamt hörku, svo haglítið varð og lömb tekin á gjöf, en lítið varð af því til framdala, því daglega var beitt fé og krafsjörð var góð. Haustverk stönsuðu og kýr alteknar inn 27. sept. Sjórinn varaði, utan í vestursýslunni, hvar hann lítill kom, þar til 18. okt., að smáþiðnaði með suðvestanátt, en blautlent þótti þá yfir jörð að fara. Ekki tók upp til heiða og liðu hross víða hungur og sjálfheldu, því ófærur voru kvikar undir fönninni. Góðviðrið varaði viku, en 24. okt. kom enn hríðarkast. 29.-31. hláka mikil og féllu víða skriður. Þiðnaði þá að mestu jörð og snjór af fjöllum. Þó varð gaddur og svellalög eftir á lágheiðum. Í nóvember stillt og frostalítið, oftar þurrviðri. Með desember fjúkasamt, en frostlítið. 8. des. kom aftur góðviðri stöðugt og smáþíður. 20.-23. des. landnorðan mjög hvasst og hríð ytra, en frostlítið, svo um jólin gott veður og auð jörð.
Norðri segir af illri tíð þann 31.október:
Bágt var vorið hið næstliðna, og bág var heyskapartíðin, en þó tók út yfir, þegar hausta tók. Í enda septembermánaðar tók veðri hér um svæði að bregða; komu þá um mánaðamótin fjarskamiklar hríðar og fannfergjur, og urðu víða stórskaðar á sauðfénaði manna, því hinar seinni göngur voru ekki afstaðnar þegar ótíðin byrjaði, og flest fé laust eins og vant er að vera um þann tíma árs. Víða fennti fé, einkum um Þingeyjarsýslu t.a m. í Höfðahverfi og Bárðardal og við Mývatn, en þó urðu þessir fjárskaðar hvergi eins stórkostlegir og í Múlasýslum, enda voru veðrin hvergi eins grimm og þar eftir því sem sem vér höfum til spurt. Þegar póstur fór af stað að austan varð hann samferða þeim er ráku úrtíningsfé frá Héraði upp úr Reyðarfirði, Gjörði þá snjóhríðina svo grimma og ófærð svo mikla, að rekstrarmenn máttu ganga þar frá 15 hestum og 500 fjár og komust með illan leik aftur til byggða. Hefur það fé að líkindum allt tapast, og sumir hestarnir voru dauðir, þegar seinustu fréttir bárust, en nokkrum varð náð. Mikinn fjölda fjár hefur og fennt víða þar á uppsveitum. Í Fjörðum eystra var og hin mesta óáran; þau litlu hey er náðst höfðu, voru svo mygluð og hrakin, að engu voru nýt, og víða var enn hey úti undir snjó. Sumstaðar brunnu töður, sem rífa varð inn hálfþurrar, til stórskemmda. ótíðin í haust bannaði mönnum og allvíða að fækka fé sínu með því að láta það í kaupstað, því enginn gat komist yfir jörðina sökum ófærðar og illviðra, og sumir Bárðdælingar, sem komnir voru með skurðarfé inn í Fnjóskadal og ætluðu hingað í sláturtíðinni, urðu að skera það niður þar í dalnum, því þeir komust hvorki fram né aftur með það. Eftir miðju þessa mánaðar tók veðráttan smátt og smátt að breytast til batnaðar, og nú um mánaðamótin komu asahlákur og hvass og hlýr sunnanþeyr. Tók hér upp mestallan snjó í byggð en fjarskalegur vöxtur hljóp í ár og læki, og urðu víða mikil skriðuföll, eins og mest verður á vordag. Hér á Brekku í Kaupangssveit hljóp skriða á tún, og tók þar hús, sem fimmtán lömb voru í, og heyið allt með, og gjörði þar að auki stórskemmdir á túni og engjum.
Þann 20.febrúar 1859 segir Norðri nánar frá hausthretinu eystra:
Haustáfellið 1858 eins og það var víðast í Fljótsdalshéraði og norðurfjörðunum. Mánudaginn [27.september] næstan fyrir Mikaelsmessu gjörði á hafaustan bleytusnjóveður og kom æði lausafönn á fjöll. Næsta dag var bjartviðri en heiðríkjan mjög hvít eða gulleit. Á Mikaelsmessu [29.september] var nöpur kuldagola á hafaustan. En nóttina eftir brast á hið mesta fárviðri, með bleytusnjáfalli og svo miklu hvassviðri á norðaustan, að menn muna hér varla jafnhvasst veður af þeirri átt. Hélst þetta veður og dró sjaldan úr 6 daga, og var aldrei fært á fjöllum og oftast illfært bæja á milli. Sjöunda daginn var hið versta dimmviðri á norðan með þvílíkri veðurhæð og snjókonu að slíkt kemur sjaldan á vetri. Eftir þetta vægði veðrunum og voru þó oftast vond alla næstu viku.
Það var tvennt í þessu áfelli sem gjörði það mikilfenglegra en önnur, er menn muna hér svo snemma á hausti, veðurhæðin og hversu það var langvinnt og hvíldarlaust. Sjávargangur varð meiri í þessum veðrum en menn muna áður, þar sem stormur stóð á land; og svo mikil fannfergja kom á fjöllin, að sjaldan hefur sést meira eftir meðalvetur, en í byggðum skelfdi af öllu og þykkur snjór víðast á sléttu. Allar skepnur voru teknar í hús, hestar og sauðfé í sumum sveitum það sem bjargað varð. Þó gjörði eigi jarðbönn nema sumstaðar; því framan af veðrunum var krapaveður svo lamdi af þúfum á láglendi, einkum nærri sjó þar sem veður stóð af hafi. En þegar frysti, reif af hæðum þar sem eigi var brætt yfir.
Í þessu grimma áfelli urðu stórkostlegir fjárskaðar í sumum sveitum og allstaðar nokkrir. Var sumt féð eftir í fjöllunum, því óvíða var búið að ganga nema eina göngu og víða með óreglu, en flest fennti þó í byggð. Hefi ég sannfrétt af skýrslum merkra manna, að í sumum sveitum fórust frá 5900 fjár, t.a.m. í Eiðaþinghá hér um bil 500, í Vallahrepp 750, í Fellum 900. Og annarstaðar vantaði og fennti frá 2 hundruðum til 500. Sumir bændur misstu yfir 100 fjár og sumstaðar fennti hesta til dauðs. Þegar áfellið dundi á, áttu sumir úti heyleifar, því oft hafði verið bágt með þurrka áður, margir áttu ókastað ofan á seinustu hey og ógjört utan að sumum, en fjárhús lágu niðri óbyggð, og gat enginn starfað neitt að mannvirkjum sínum fyrr en batinn kom eftir veturnætur. Fáir voru farnir í kaupstað, þegar veðrin byrjuðu, og sluppu fæstir heim undan þeim. Hinir, sem veðrin duttu á, urðu að sitja í kaupstöðum eða kringum þá nærri hálfan mánuð eða lengur; því engum var fært á fjöll. Á Seyðisfirði tepptust 30 kaupstaðarmanna með 109 hesta nærri hálfan mánuð, og brutust seinast með hestana berbakaða yfir fjallið og mátti þó heita ófært. Varð síðan aldrei komið hesti í kaupstað fyrr en hjarnaði eftir veturnætur og ónýttist mestöll haustverslun, en búendur stóðu margir í voða af kornmatarleysi.
Fyrir þessa miklu fjárskaða og vandræðin að koma nokkurri kind eða vöru í kaupstað, en skuldir almennt heimtaðar, varð enginn kostur að safna töluverðri hjálp handa Húnvetningum þetta sinn [væntanlega vegna fjárkláðans þar] þó að búendur hefðu besta vilja, gátu þeir engan veginn látið af hendi rakna nema lítið, ellegar ekkert. Skrifað á Austurlandi 20. desember 1858. S.G. [Líklega Sigurður Gunnarsson á Hallormsstað].
Neðanmáls segir SG: Annað óvanalega mikið áfelli kom hér í vor eð var. Það byrjaði nóttina eftir uppstigningardag [13.maí] og hélst fram yfir hvítasunnu [23.maí] með mikilli snjókomu, ísingaraustri og hafstormum, svo hestar og gamlir sauðir urðu jafnan að vera í húsum. Svarf þetta áfelli mjög að öllum skepnum. En það lagðist undarlega misjafnt í, varð lítið inn til dala, nema harðviðri, og snjórinn líka minni út við sjóinn, því þar át heldur af.
Norðri segir 24.desember frá miklum skriðuhlaupum í Kolbeinsdal í Skagafirði:
Það var að morgni hins 31. október 1858, sem var annar sunnudagur í vetri þá miklu asahlákuna gjörði hér, sem fyrst vann þar á snjókyngjuna, er hlóð niður í byrjun mánaðarins, að bóndinn Jóhann Hallsson á Skriðulandi í Kolbeinsdal kom út, ný staðinn af rekkju; sá hann þá fyrst, að stór skriða tók sig upp í fjallinu langt fyrir norðan bæinn og stefndi á nokkur hross hans; hörfuðu þá sum þeirra undan, en tvö stóðu kyrr, og klauf skriðan sig þar, svo þau sakaði ekki; hljóp hann þegar á stað og hlaut að vaða yfir forarflóa, þar grundirnar sökum skriðuhlaupanna, voru orðnar ófærar, náði hann þessum tveimur hrossum, og að vörmu spori fylltist eyðan, þar sem þau staðið höfðu; reið hann þegar heimleiðis með hin tömdu, en þá féll stór skriða norðan til á túnið. Þegar heim kom, rak hann ærnar út úr fjárhúsunum suður á vallarhornið neðsta, sem varðist um daginn skriðunum. Í sama bili tók sig upp afarmikil skriða sunnan bæjarins, stefndi hún nálægt þremur hrossum sem þar voru; flýtti hann sér þangað og rak hrossin frá; en í sama vetfangi náði rennslið úr skriðunni hælunum á fararskjóta hans; sneri hann þá aftur til bæjarins; hljóp þá fram skriða, sem stefndi á sjálfan bæinn, voru þá börnin og fólkið klætt, og komið út úr bænum suður fyrir hlaðið; færði hann það allt í fjárhús suður og niður á vallargarðinn. Þessi skriða tók helftina af ærhúsaheyinu, skyldi eftir tvö stór björg í tóftinni og hið þriðja í tóftardyrunum, og hratt heyinu sem eftir var ásamt veggnum fram á húsin. Sama skriðan klauf sig um fjósið, sleit upp tvær hurðir og hálffyllti það með aur og leðju, svo með öllu var óaðgengilegt, að ná þaðan nautgripunum. Bóndinn hafði nú snúið inn í bæinn, að ná mjólk handa börnum sínum, því enginn hafði nokkurs neytt; en þegar hann var á leiðinni aftur til hússins, sem fólkið var flúið í, sá hann hvar einhver hin stærsta skriðan tók sig upp í fjallinu, og stefndi á það húsið og fleiri hús er stóðu á túninu; kallaði hann þá, að menn skyldu forða sér lengra suður á grundina, er þó ekki hefði komið að haldi, ef skriðan hefði haldið áfram stefnu sinni; tók hún fyrst tvö hús, sem ofar stóðu með heyinu og 45 sauðkindum sem inni voru, og tvö hesthús með heyinu, sem við þau var, en hallaði sér síðan til norðurs og náði sjálfum bænum; umturnaði hún í einu vetfangi baðstofu nýbyggðri, smiðju sem stóð langt frá, búri, eldhúsi og bæjargöngum; sneri þá Jóhann aftur heimleiðis, og sá þá, að fyrir neðan stóran kálgarð er stóð fram undan bænum, flutu nokkur sængurföt sem hann náði. Fólkið hafði nú leitað sér skýlis sunnan- og norðanvert við grundirnar í litlu grjótbyrgi því bæði var stormur og rigning. Bóndinn fór nú þegar að ná hestum, sem hann var búinn að tína saman, og reyna Kolbeinsdalsá, sem nú var í svo ægilegum vexti, að engum mundi hafa til hugar komið yfir hana að fara, nema í ítrustu dauðans neyð sem hér var þá á ferðum; gat hann náð reiðtygjum úr útiskemmu, sem uppi stóð að hálfu leyti, og tók nú að flytja fólkið yfir ána (er var 11 að öllu með honum sjálfum, þar af 8 börn yngri og eldri), sem með guðs hjálp lukkaðist, þó ólíklegt væri fyrir manna sjónum. Geta má þess, að fyrir því að skriðurnar hlupu beggja megin bæjarins, var ekki hælis að leita þeim megin í dalnum; en á Fjalli sem er næsti bær hinu megin, (hvar manneskjur þær sem fyrst komust yfir ána höfðu leitað sér hælis), tóku skriður að hlaupa fram, þegar áleið daginn, og um kvöldið hljóp ein þeirra, býsna breið ofan á túnið milli fjóss og bæjar, svo konan þar flúði um aftaninn með 5 yngstu börnin að Brekkukoti í Hjaltadal en bóndinn hafðist við heima með elsta sveininn; hér voru því engin önnur úrræði fyrir Jóhann, en að leita Hjaltadalsins og komst hann með allar manneskjurnar lífs og heilar að Víðirnesi sama kvöldið, en þá var Víðirnessáin ófær, svo ekki varð komist til Hóla. Daginn eftir fór Jóhann ásamt fleirum mönnum yfir til Skriðulands að leita nautgripanna; fjósið stóð að sönnu, en næstum því grafið í aurbleytu svo brjóta varð stafninn, til þess gripunum yrði náð; stóðu kýrnar 4 talsins í kvið í aurbleytunni náðust samt óskemmdar ásamt tveimur vetrungs-kvígum og nauti, sem þá höfðu hvorki fengið fóður né vatn í þrjú mál, en það hafði hlíft töðuheyinu, að það var fyrir ofan, svo skriðan hafði þar klofist. Þannig týndist með öllu matur sá, sem í búrinu var, ásamt öllum búsgögnum; úr eldhúsinu fundust að sönnu tveir pottar, en skinn, 2 kistur og með þeim það sem til var af grjónum, rúg, kaffi, sykri o.fl. týndist gjörsamlega, með smiðjunni fórust reipi og reiðskapur allur, orf, ljáir, hrífur, hestajárn, kláfar, krókar og ýmislegt annað, auk áður talinna húsa, svo skaði sá allur sem varð, bæði á dauðu og lifandi nemur ærið miklu, ef metinn yrði, þó þyngst fyrir fjölskyldumann að sviptast hagkvæmu jarðnæði og standa uppi húsvilltur, hver eftirköst, jafnvel húsbruni ekki hefur, nema í bráð. Þessi atburður er ritaður eftir frásögn Jóhanns sjálfs og konu hans, samt margra sjónarvitna, sem bæði störfuðu að leitinni í skriðunum, samt hey- og nautgripaflutningi til Hóla, hvar hjónin ásamt flestum börnunum og barnfóstrunni munu njóta skýlis í vetur. Staddur á Hólum 29.[nóvember] 1858. Th. Thómasson.
Síðan að vér gátum seinast um tíðarfar, hefur það enn mátt heita gott einlægt, þó að jarðskarpt hafi verið í sumum sveitum á jólaföstunni.
Þjóðólfur segir óvenjuleg tíðindi í frétt 15.janúar 1859:
Um miðja jólaföstu, þegar landsynnings- og skrugguveðrin gengu hér syðra, sló eldingum niður hér og hvar austur um Landeyjar, er getið um að skemmdir hafi orðið af á húsum á Kálfstöðum; tveir menn voru þar á ferð austan yfir Affall, milli Skipagerðis og Arnarhóls í Útlandeyjum, er mælt að þriðji maðurinn hafi ætlað að slást í ferð með þeim þann dag, en farist fyrir; eldingin laust þessa tvo menn svo, þar sem þeir voru þarna á reið, að annar maðurinn beið bana þegar í stað, það var Þorsteinn bóndi Ólafsson á Steinmóðarbæ, ungur og efnilegur maður, og báðir hestarnir, en hinn maðurinn féll í rot og meiddist, en er þó nú sagður kominn á skrið, og talið að hann muni verða jafngóður.
Norðri segir af slysförum í pistli 27.desember (lítillega stytt hér):
Fimmtudaginn þann 18.[desember] reri skip til fiskjar frá Reykjum á Reykjaströnd; á því voru 5 menn, formaður hét Gísli Andrésson, bóndi á Reykjum, ... Þessir menn voru komnir fram á sjó fyrir dag, hvessti þá bráðum veðrið á austanlandnorðan, svo þegar varð bráða-rok, sneru þeir þá aftur, og ætluðu að sigla sniðhallt undan inn fyrir svo kallaðan Reykjadisk, og í sína réttu lending, en þar eð útsýni var óglöggt, urðu þeir of norðarlega og nærri Stólnum, ætluðu því að nauðbeita innmeð; skipaði formaður að taka til ára, og róa inn fyrir Diskinn, var þá Jóhannes settur til að passa seglið, sem þó var álitinn lítill sjómaður, og þá annars hugar af hræðslu. Hélt hann nú af öllum mætti í seglið, án þess að slaka til eftir þörfum. Hvolfdi þá undir þeim skipinu og komust þrír strax á kjöl, formaður, Jón og Björn, tók þá Jón og Björn af kjölnum aftur, en Björn var syndur. Greip hann því til sunds og komst nauðuglega til lands, vegna brims og stórsjóa. Frá skipinu og til lands er mælt að væri hér um bil 100 faðmar. Þegar nú Björn var kominn í land, sá hann að formaður var enn á kjölnum, fór hann þá af skinnklæðum sínum, sem mjög voru full af sjó, og ætlaði að leggja til sunds fram að skipinu, og reyna að bjarga formanni sínum, en í því bili kom kvika á skipið og sleit formanninn af kjölnum, og kom hann ei upp síðan. Það er mælt, að við þetta manntjón hafi 12 börn orðið föðurlaus.
Norðri segir enn af slysförum í frétt þann 31.desember:
Á Berufjarðarströnd austur fórst bátur með 2 bændum og nokkru seinna annar bátur í Hamarsfirði þar sunnar með 4 karlmönnum og einni konu. Þessir bændur voru: Sigurður Markússon frá Melrakkanesi, Hávarður Guðmundsson á Þvottá, og 2 bændur sunnan úr Lóni. Alls hafa farist í sjó eystra næstliðið sumar og haust 23 menn, og er það mikill hnekkir; þar sem fólksfæðin er svo mikil.
Norðri sagði 20.febrúar 1859 nánar frá fleiri slysum eystra á árinu 1858:
[Þann 1. september] fóru 2 bændur frá Steinaborg á Berufjarðarströnd yfir á Djúpavogsverslunarstað, Guðmundur Ásmundsson og Oddur Jónsson; sneru þeir svo heimleiðis aftur og sigldu snarpan austanvind allt þar til þeir voru komnir meir en miðfjarbar; herti þá svo veðrið að með öllu varð ófært, og sáu menn það seinast til, að báturinn sökk undir seglunum; höfðu þeir til varúðar hlaðið bátinn með grjóti. Bændur þessir voru ungir menn og efnilegir, vel stilltir, mestu dugnaðar- - og greiðamenn, var því að þeim mikill söknuður. Öndverðlega á næstliðnu sumri lagði út frá Djúpavog þiljuskip, Lúðvík að nafni, og ætlaði til hákarlaveiða ásamt 2 öðrum þiljuskipum. Skömmu þar eftir skellti á ofsa austanveðri, hrakti þá annað skipið til Vestmanneyja, en hitt náði höfn í Papós í Lóni, en til Lúðvíks hefur ekki frést síðan, og mun það mega telja víst, að hann hafi farist. Á skipi þessu voru 6 menn, allir ungir og efnilegir, ...
Þjóðólfur segir 29.mars 1859 frá slysförum seint á árinu 1858:
[Þann 23.desember] varð maður úti fyrir utan Haugstaði á Jökuldal í Norður-Múlasýslu, hann var úr Hróarstungu. Annar maður varð úti í Austfjörðum um sama leyti eða nokkru fyrr. Um jólin varð maður úti í Hallormsstaðaheiði, úr Skógum. Nýársnótt drukknaði maður í Lagarfljóti niðrum ís, Hann var frá Eiðum. Kona á Axarfjarbarheiði fór að gæta fjár, er hana lengdi eftir vinnukonu sinni er hún hafði sent til fjárins, það var skömmu fyrir jólin; konan varð úti og fannst síðan örend skammt frá fjárhúsunum, bóndinn var ekki heima, en sagan segir að að hann hafi komið heim um kvöldið, þetta hið sama, mjög drukkinn, og því hafi eigi orðið úr að fara að gæta konunnar.
Norðri ritaði eftirmæli ársins 1858 og birti þann 20.febrúar 1859:
Eftirmæli ársins 1858. Árið 1858 er nú um garð gengið, og þó að engar stórsóttir hafi gengið á því, og engin aftaks harðindi verið, þá megum vér Íslendingar eflaust telja það með hinum lakari árum að mörgu leyti, og það hefur orðið alþýðu manna og mörgum öðrum ærið þungt og notalítið. Veturinn frá nýári var reyndar í betra lagi, en vorið hið versta og grimmasta, er vér og margir aðrir munum allt fram yfir miðju júnímánaðar. Umskiptin sem þá urðu og staklegt blíðviðri í þrjár vikur gjörðu nú samt það að verkum að grasvöxtur varð nógur og enda sem í betri árum víðast hvar. En þá varð líka heyskapartíminn svo afleitlega bágur sökum óþurrka, að töður náðust sumstaðar ekki fyrr en í lok ágústmánaðar og víðast hvar svo hraktar, að þær voru lítill og lélegur vetrarforði, og sumstaðar brunnu þær til stórskemmda. Eins gekk útheysskapurinn, að heyið hraktist til skemmda og lá víða undir snjó þegar haustáfellið byrjaði. Þetta áfelli, sem var jafneinstakt í sinni röð, eins og vorharðindin og sumaróþurrkarnir, byrjaði um mánaðamótin september og október og varaði langt fram í októbermánuð. Gjörði þetta áfelli því meiri skaða sem fé var víða enn óhýst og seinni göngur ekki afstaðnar. Fennti því fjölda fjár einkum í Þingeyjar- og Múlasýslum, og hross jafnvel sumstaðar hér norðan- og austanlands, og þegar að hlánaði, varð leysingin svo ógurleg, að varla eru dæmi til, að þvílíkir skaðar hafi orðið af skriðuhlaupum í nokkrum vorleysingum, og höfum vér tilfært einstök dæmi um það í blaði voru. þá að því veturinn hefði verið hinn besti flaut það af vorharðindunum, að fénaður gekk illa undan og að margir komust í heyþrot; líka féll sumstaðar hið sjúka fé sunnanlands í vorhörkunum; og allt fé varð næsta rýrt til frálags að haustinu, og mjög mörlaust, en hrakningar á því í haust um og eftir göngur fjarskalegir, svo enn minni arður varð sökum þess af fé því er slátrað var, og lífsfé allt hrakið, illa búið undir vetur, fóður ónóg og stórskemmd, mygluð og varla neinni skepnu gefandi. Málnyta bænda var í sumar rýr sökum rigninganna og kúabúin ónýt í vetur vegna skemmda á töðum.
Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um veður og tíðarfar ársins 1858. Þakka Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir innslátt texta úr Brandsstaðaannál. Fáeinar tölur eru í viðhenginu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.12.2020 | 17:57
Kuldavísar
Nú er upplagt að koma að smáatriði um öfgar í hitafari (þó við verðum svosem ekki mjög mikið vör við slíkt nú). Evrópureiknimiðstöðin gefur tvisvar á dag út öfgavísa svonefnda - fyrir hita, úrkomu og vind (og e.t.v. eitthvað fleira). Við höfum fjallað um þá áður hér á hungurdiskum og endurtökum ekki - nema að tvær mismunandi gerðir vísa eru birtar, það sem við höfum hér annars vegar kallað útgildavísi og hins vegar halavísi. Sá síðarnefndi er sérlega gagnlegur þegar fengist er við úrkomu.
Myndin hér að neðan sýnir þessa vísa fyrir hita, sú fyrri sýnir daginn í dag (fimmtudag 3.desember), en hin á við laugardag 5.desember.
Heildregnu línurnar sýna halavísinn (við skiptum okkur ekki af honum hér) - en litirnir sýna útgildavísinn. Dekkri fjólublái liturinn sýnir óvenjulegan kulda - miðað er við um 20 ára tíma - og hálfan mánuð á þessum tíma árs. Við sjáum að kuldinn í dag er ekkert óvenjulegur yfir landinu - en er það yfir sjónum vestan við land.
Síðari myndin á við laugardag.
Hér vantar dekkri fjólubláa litinn að vísu alveg (kuldinn ekki eins óvenjulegur) - en nú er kaldast að tiltölu yfir landinu (nema á bletti í Rangárvallasýslu).
Aðalatriðið er hér að átta sig á því að til þess að óvenjukalt geti orðið yfir sjó þarf mikið og samfellt aðstreymi af köldu lofti. Sjórinn er fljótur að hita upp loft sem liggur nokkurn veginn kyrrt yfir honum - alla vega nægilega mikið til þess að komast út úr öllu mjög óvenjulegu. - En það er samt hlýrra yfir sjónum heldur en yfir landi - líka á fyrra kortinu. Á landi hagar þannig til að ekki er aðeins kalt á þessum árstíma þegar kalt loft streymir að - landið getur sjálft búið til kulda í hægviðri - sé veður bjart. Kaldir dagar eru því miklu fleiri yfir landi heldur en yfir sjó á þessum árstíma - kuldinn í dag er þess vegna alls ekki óvenjulegur yfir landinu - eins og fyrra kortið sýnir greinilega. Hann er það hins vegar yfir sjónum.
Á laugardaginn á vindur að hafa gengið niður - þá fær kalda loftið (sem kom reyndar að norðan) að kólna frekar yfir landinu - og fjólublár litur útgildavísisins kemst að. Sjórinn hefur hins vegar séð til þess að koma hitanum upp í eitthvað venjulegra heldur en er í dag - og mjög hefur dregið úr því sem í dag er óvenjulegt.
Þessir útgildavísar (allir saman) eru ákaflega gagnlegir, en það þarf aðeins að hugsa sig um til að hafa af þeim full not.
Hvers vegna er ekki blár litur yfir Rangárvallasýslu neðanverðri á kortinu sem gildir á laugardaginn? Það er líklega vegna þess að þar er spáð skýjuðu veðri - og jafnvel úrkomu. Skýin slá á kólnun af völdum útgeislunar - og auk þess blæs vindur e.t.v. af hafi á þessum slóðum. Þetta er þó smáatriði í spánni - og mjög óvíst sem slíkt.
1.12.2020 | 23:57
Svellkalt heimskautaloft
Ekki er annað að sjá en að kalt loft úr norðri muni nú flæða suður yfir landið næstu daga - og það með nokkrum látum. Einhverjir hríðarsinnaðir kunna að gleðjast - en við hin erum hin fúlustu.
Þetta er alvöru vetrarloft - eins og venjulega á korti sem þessu eru jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins heildregnar, en þykktin er sýnd í lit. Hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs.
Við sjáum af kvarðanum (sem verður skýrari sé kortið stækkað) - eða með því að telja litina - að það er 5040 metra jafnþykktarlínan sem liggur um Vestfirði - alvöruvetrarstaða, hiti er um tíu stigum neðan meðallags í neðri hluta veðrahvolfs - þó langt frá metum. Spár hafa undanfarna daga heldur linast á kuldanum - eins og oft er.
Þar sem hvassviðri (eða þaðan af meir) fylgir er hætt við álagi á upphitun í óþéttum húsum (og jafnvel þéttum líka). Fyrir mannfólkið eru þó aðrir kælingarþættir hættulegri heldur en svokölluð vindkæling - en látum vera að þusa um það hér - förum að öllu með gát.
Af legu hæðarlínanna ráðum við að vindur er líka norðlægur í miðju veðrahvolfi - en ekki sérlega hvass þar (talsvert bil er á milli hæðarlína yfir landinu). Jafnþykktarlínurnar eru hins vegar mjög þéttar (stutt er á milli lita) - þykktarbrattinn er mikill. Hann eykur hér við norðanáttina - sem er mun öflugri neðar. Eftirtektarsömustu lesendur taka eftir því að vestan við þykktardragið (jú, það eru til þykktardrög líkt og lægðardrög) er þessu öfugt farið. Þykktarbratti upphafur háloftavindinn að mestu. Þess vegna lægir væntanlega þegar þykktardragið fer austur af - hæðarhryggurinn (og þykktarhryggurinn sem honum fylgir ýtir ás mesta kuldans austur fyrir land). Að sögn reiknimiðstöðva á það að gerast á föstudaginn - þá fer að lægja - þó ekkert hlýni í mannabyggðum þar til síðar.
Sem stendur eru reiknimiðstöðvar svo helst á því í framhaldinu taki við fremur rólegur kafli - ekki hlýr - en ekki svo kaldur heldur og það sem meira máli skiptir er að helst er gert ráð fyrir tiltölulega rólegu veðri - hvað sem svo rætist úr því - þó spár séu orðnar ótrúlega góðar eru þær stundum líka alveg ótrúlega vitlausar. En það er samt (langoftast) skynsamlegri vitleysa heldur en sú sem maður býr til sjálfur.
30.11.2020 | 23:44
Nóvemberhiti á landsvísu
Að vanda látum við Veðurstofuna um uppgjör mánaðarins en getum þess hér að mánuðurinn var á landsvísu nærri meðallagi síðustu tíu ára (-0,1 stigi undir því) og líka nærri meðallagi áranna 1991 til 2020.
Súlurnar á myndinni sýna meðalhita einstakra nóvembermánaða í byggðum landsins aftur til 1874 - fyrir þann tíma (gráa svæðið) voru veðurstöðvar fullfáar til að meðaltalið geti talist áreiðanlegt. Nóvember nú var örlítið hlýrri heldur en sá í fyrra (að vísu var þá töluverður munur milli landshluta - meiri en nú). Varla er hægt að segja að kaldur nóvember hafi komið síðan 1996 - en þá fór reyndar mjög vel með veður lengst af og kuldinn fór framhjá mörgum. Það átti hins vegar ekki við um marga kalda nóvembermánuði tímabilsins frá 1963 og 20 árin rúm þar á eftir. Var það tímabil mikil viðbrigði eftir mikil hausthlýindi árin þar á undan. Ritstjórann rámar í tal um slík viðbrigði haustið 1963 - en veturinn þar á eftir varð hins vegar afbrigðilega hlýr hér á landi.
Við skulum líka líta á alþjóðahaustið - sem við getum kallað svo. Það eru mánuðirnir september til nóvember saman, haust Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Veðurstofan telur september hins vegar með sumrinu í uppgjörum sínum - eins og er að flestu leyti skynsamlegt.
Það er sama - meðalhiti alþjóðahaustsins er svipaður og hann hefur oftast verið síðustu árin og talsvert hlýrri en var flest haust á 7. og 8. áratugnum - en skortir nokkuð á að vera jafnhlýtt og 2016 og nokkur haust í kringum 1960 og á fimmta áratugnum. Hlýjast var haustin 1941, 1959, 1945 og 2016, en á þessari öld var kaldast 2005, en á öllu tímabilinu var það 1917. Tímabilaskiptingin vekur athygli sem fyrr. Hausthiti segir harla lítið (ekki neitt) um vetrarhitann.
24.11.2020 | 23:38
Af árinu 1857
Ekki var mikið ritað um veður í fréttablöð á árinu 1857 - þrátt fyrir illviðri af ýmsu tagi og skaða af þeirra völdum, en því meira um fjárkláðann - þó umfjöllun um hann væri rétt að komast á skrið. En tíð var nokkuð breytileg, í heildina séð má þó segja að ræst hafi furðanlega úr. Meðalhiti í Stykkishólmi var 3,4 stig (sama og 1994), og í meðallagi næstu tíu ára á undan. Í Reykjavík er meðalhiti áætlaður 4,2 stig og 2,7 stig á Akureyri. Óvenjukalt var í janúar og einnig var kalt í febrúar, apríl, júlí og desember. September var hins vegar óvenjuhlýr, og einnig var hlýtt í maí, ágúst og nóvember.
Mjög kaldir dagar voru 15 í Stykkishólmi, nokkuð dreifðir um árið (sjá viðhengi), einna kaldast að tiltölu var í skæðu hreti sem gerði um páskana [þeir voru 12.apríl]. Tveir dagar voru mjög hlýir í Hólminum, 21.september og 10. nóvember.
Úrkoma í Stykkishólmi mældist 810 mm, febrúar og síðustu þrír mánuðir ársins voru úrkomusamir en fremur þurrt var í maí og í júní líka - en í síðarnefnda mánuðinum féll stór hluti heildarúrkomu mánaðarins á einum degi (mældist að morgni þess 17.).
Veðurlag var órólegt um veturinn, fram í miðjan mars. Þrýstingur var óvenjulágur í febrúar og sömuleiðis í júlí. Róleg tíð var hins vegar lengst af í maí og júní. Lægsti þrýstingur ársins mældist í Stykkishólmi 26.febrúar, 955,7 hPa, en hæstur á sama stað 24.janúar, 1038,5 hPa. Hafís var lengi að flækjast við Norðurland.
Á árinu urðu mjög umtöluð slys af völdum veðurs, tveggja veðra var lengi minnst. Hið fyrra varð í mars, þegar menn á leið í ver lentu í hrakningum og urðu nokkrir úti á Mosfellsheiði. Nokkuð greinargóð lýsing á því er hér að neðan. Hitt var mikið útsunnaveður 27.nóvember þegar tvö millilandaskip, póstskipið Sjölöven og Drei Annas, fórust við Mýrar og á Snæfellsnesi. Þó greint sé frá þeim í fréttablöðum er samt mesta furða hvað litlar lýsingar er þar að finna. Í Lesbók Morgunblaðsins 27.mars 1949 er fróðleg samantekt á atvikum, eftir Árna Óla, hinn kunna fróðleiksþul [timarit.is], nokkuð ítarlegri en sú sem hér er að neðan. Nefnist samantekt Árna Fjórir kaupmenn farast. Ættu áhugamenn um slysfarir ekki að láta hana fram hjá sér fara.
Hér að neðan má finna helstu heimildir um veðurfar ársins. Nokkuð af veðurskýrslum og dagbókum er enn óyfirfarið. Að vanda er stafsetning að mestu færð til nútímavenju. Fleiri slysa er getið í heimildum heldur en nefnd eru hér að neðan. Óljóst er hver þeirra tengdust veðri og dagsetningar vantar.
Brandsstaðaannáll [vetur]:
Í janúar sunnan og austanátt, frostalítið, smáblotar og oftar fjársnöp á láglendi, þar til 22. janúar að norðanhríð og fönn gjörði langvinnt jarðleysi. Þó voru ei öll hross inntekinn fyrr en um miðþorra. Í febrúar hríðarbyljir af öllum áttum og miklar fannir. Blotar juku svellgaddinn, er ávallt sletti í. 1. mars mikið hvasst með þíðu, svo margir hlutu heyskaða. Tók þá upp í lágsveitum. Aftur mikill hríðarkafli, svo bágt var að hirða um skepnur. Fylltust gil og fram af brekkum venju framar. Hafís kom með þorra. Hann var laus fyrir, á sífelldu reki.
Þjóðólfur segir frá þann 24.janúar:
Það virðist nú sem alvarlegar vetrarhörkur séu komnar, hvað lengi sem þær haldast, því stöðug bylja- og blotaveður á mis, með allmikilli fannkomu hafa nú gengið hér sunnanlands síðan um byrjun þessa mánaðar og mun hér sunnanfjalls vera víðast mjög hagskart orðið ef ekki haglaust. Nóttina milli 13. og 14.[janúar] gjörði hér syðra eitt hið mesta ofsaveður af austri-landsuðri, en ekki hafa spurst af því önnur tjón, en að fáeinir hjallar fuku hér um koll.
Norðri segir frá í pistli þann 5.febrúar:
Veðráttan hefur frá byrjun jólaföstu verið fremur hörð og frostamikil, þó hefur kuldinn orðið mestur hér norðanlands 2025° Reaumur [25 til 31°C], en minni á Austurlandi. Jarðir hafa næstum því einlægt verið nokkrar, en oft ekki gefið að beita fénaði út sökum illviðra. Selaafli hefur verið nokkur hér á Eyjafirði í vetur. Ekki höfum vér spurt, að neinir hafi farið í hákarlalegu hér nyrðra sökum gæftaleysis, nema Fljótamenn skutust út snemma í janúar, og fengu 12 kúta mest, en 4 minnst. ... Hafís liggur nú fyrir Norðurlandi, einkum austur um frá Sléttu til Austfjarða. Til Austfjarða kom hann þriðja í jólum, og hefur hann aldrei komið þar svo snemma í manna minnum.
Þjóðólfur segir fréttir í pistli þann 27.febrúar:
Einstök harðindi, fannfergi og jarðbönn eru sögð allstaðar að vestan, eins og hér sunnanlands, en góð tíð í Norðurlandi til þessa. Fjárkláðans verður nú hvergi vart fyrir vestan eður norðan Hvítá í Borgarfirði, en aftur megn bráðasótt í fé í Suðurmúla- og Austurskaftafellssýslu, í Strandasýslu og sumstaðar í Dalasýslu. Góður fiskiafli í kringum Ísafjarðardjúp síðan um nýár, en fiskilaust enn hér syðra.
Þjóðólfur segir stuttlega frá þann 9.mars:
Hin sömu harðindi og harðveður ganga hér enn; að hlákunni í fyrri viku varð lítill bati; - víða urðu mjög heyskaðar í ofsasunnanveðrinu 2. [mars] og víða hér syðra fuku þá um koll hjallar og tók upp skip og brotnuðu í spón.
[Þann 29.febrúar] varð úti í byl stúlka frá Neðstabæ í Norðurárdal í Húnavatnsýslu. Um mánaðamótin janúarfebrúar urðu og úti yfir fé 2 menn austur á Síðu, Stefán bóndi Þórarinsson á Núpum, ungur maður og röskur, og vinnumaður annars bóndans í Mörtungu. 6.[febrúar] lagði undan Dyrhólaey í Mýrdal skip með 18 manns, og einum kvenmanni að auk, til Vestmanneyja, það voru allt sjóróðramenn; formaðurinn var Helgi Eiríksson frá Ketilsstöðum i Mýrdal, ungur maður og röskur, og hinn mesti fullhugi; þann dag ofanverðan var þar austari landsynnings átt og hagstæð til Eyjanna, en hljóp í útsuður um kveldið með byl; hafa skipverjar að öllum líkindum misst sjónar á Eyjunum og þá borið ekki alllítið vestar áður en hann gekk til, því daginn eftir fannst skipið rekið mölbrotið fyrir Landeyjasandi, árar allar (11) er á voru og færur; voru allar líkur til, að skipið hefði farist mjög nærri landi, og máski inn í brimboðum.
Þjóðólfur segir í viðaukablaði 9.mars:
[Þann 26.febrúar] fórst róðrarskip, sexmannafar, frá Gufuskálum í Garði, og á því 8 manns, 5 þar innlendir og 3 útlendir, einn þeirra unglingspiltur héðan úr Reykjavík. 7.[mars] lögðu 14 sjóróðramenn vestur yfir Mosfellsheiði, náðu 8 þeirra byggð morguninn eftir, flestir aðframkomnir, en 6 urðu úti.
Norðri segir af illviðrum í pistli þann 16.mars:
Nóttina fyrir annan dag þessa mánaðar kom hér eitthvert hið mesta stórveður, sem verið hefur hér norðanlands, og hefur það gjört víða stórskaða, og að líkindum miklu víðar en vér höfum til spurt. Kirkjan á Upsum í Svarfaðardal fauk af grundvellinum og brotnaði til stórskemmda. Á Karlsá í sömu sveit reif bæjardyraloft, og sópaði burtu flestu fémætu er bóndinn átti þar, mat og vöru. Á mörgum stöðum hafa menn misst hey, og það svo stóru nemur. Mest brögð hafa orðið að þessu vestur í Húnavatnssýslu, því þar er mælt að á 2 bæjum í Svínavatnshrepp hafi tapast um 100 hestar af heyi á hvorum bænum, og í landsynningi nóttina milli 13. og 14. hafi Jósep Skaptason héraðslæknir á Hnausum misst 80 til 100 hesta af heyi. Seinast í febrúar brann allur bærinn á Núpdalstungu í Miðfirði en ekki er oss skrifað neitt greinilegt um það. Ekki höfum vér til spurt að mikið hafi tapast af bátum, en þó nokkrir. Nóttina fyrir þann 10. kom hér næstum því eins mikið ofviðri aftur, en ekki ætlum vér að það hafi gjört jafnmikið tjón sem hið fyrra. Úr Svarfaðardal hefur og frést að hrútar hafi kafnað inni í húsi og 40 fjár í einum stað í Húnavatnssýslu, og hlýtur slíkt að vera að kenna hirðuleysi manna, annaðhvort af því, að ekki hefur verið mokað frá húsunum, eða af því að menn hafa vanhirt að líta eftir fjárhúsunum í ofviðrinu. Slíkt ætti að kenna mönnum varúðarsemi framvegis.
Þjóðólfur segir enn af slysförum þann 11.apríl:
Eftir nákvæmari fregnum og skýrslum er síðar hafa borist, skal hér leiðrétta það að Stefán bóndi Þórarinsson frá Núpum varð úti 22.janúar, ekki yfir fé, heldur var hann að fylgja unglingum vestur yfir Hverfisvötnin, og sama daginn varð úti sauðamaðurinn frá Mörtungu á Síðu, sem fyrr er getið, Páll Bjarnason að nafni. Hinn sama dag, eður nóttina þar á eftir, varð og úti yfir fé sauðamaður frá Þvottá í Múlasýslu og þrír menn fyrir norðan: bóndi úr Þistilfirði, vinnumaður frá Fossvöllum á Jökulsdal og annar frá Rafnkelsstöðum í Fljótsdal; þannig hafa þessa dagana, 22.23. janúar orðið úti alls 6 manns og er þó ekki til spurt úr Fjörðunum" í Múlasýslunum. Þessa hina sömu nótt féll snjóflóð yfir bæinn að Hlíð í Lóni (Austurskaftafellssýslu) og brotnaði niður undan því eldhúsið; bóndinn Jón Markússon, var þar þá staddur og vinnukona, var hann að baka sig yfir eldinum og maka með áburði við meinsemd einni, en í því bili brotnaði niður eldhúsið undan snjóflóðinu, og hafði þau bæði undir og ofan á eldinn, og lágu þau þar og gátu enga björg veitt sér, þangað til veðrinu slotaði og menn urðu til kallaðir að bjarga þeim; stúlkuna sakaði lítið, en bóndi var svo skemmdur af bruna að hann var talinn af. Í öndverðum febrúar varð maður úti á leið frá Skagaströnd, hann var drukkinn. ... 9. desember [1856] gekk unglingsmaður, Jóhann Friðrik Ólafsson á Neðri-Glerá í Eyjafirði, að heiman með byssu á rjúpnaveiðar; hann hefir ekki fundist síðan, og var talið víst, að hann mundi hafa farist með snjóflóði í gljúfrum þeim sem Glerá fellur eftir.
Þjóðólfur segir nánar af frægum marshrakningum á Mosfellsheiði í pistli 18.apríl:
Skýrsla um hrakning og harðar farir hinna 14 sjóróðrarmanna er lögðu vestur á Mosfellsheiði [laugardaginn 6. mars] (Skrásett af séra M[agnúsi]. Grímssyni í Mosfelli.) Lögðu allir þessir 14 menn saman á heiðina, og fóru frá Kárastöðum í Þingvallasveit um dagmál, í logni og sokkabandsdjúpri lausamjöll. Héldu þeir síðan áfram, og voru vissir um að vera óvilltir út að Þrívörðum, Úr því kom í Vilborgarkeldu, fengu þeir lága-skafrenning vel ratljósan, en skall á með þreifandi byl á norðan, eða útnorðan, við Þrívörður. Ætluðu þeir þá að hitta sæluhúsið, en gátu ekki. Vissu þeir nú ekki hvar þeir voru, en héldu þó áfram nokkuð, og ætluðu sig komna suður undir Gullbringur. En af því þeir voru þá orðnir villtir og þreyttir, staðnæmdust þeir þar á flatri fönn, skjóllausri, og héldu þá vera um nón. Með ófærðinni tafði það ferð þeirra á heiðinni, að sumir fóru svo fljótt að gefast upp; Guðmundur Pálsson á Hjálmstöðum gafst fyrst upp, þegar fyrir utan Moldbrekku, af máttleysi og fótakulda. Var þá enginn svo fær að geta borið bagga hans að neinum mun, nema Sveinn, sem bar hann mikið af leið. Hinir voru þá og að smá gefast upp; urðu við það biðir á og dvalir, sem mest ollu því, að þeir týndu áttunum og villtust. Þegar um kyrrt var sest, stóðu þeir fyrst lengi, og væntu að lygna mundi veðrið og batna, en þegar það varð ekki, fóru flestir til og grófu sig niður í fönnina, og og skýldu að sér með farangrinum. Um dagsetursbil um kvöldið héldu þeir, að Þorsteinn frá Kervatnsstöðum mundi hafa dáið í fönninni af kulda og þreytu.
Flestir munu hafa sofnað um nóttina, en þó ekki allir; Guðmundur sofnaði aldrei og Pétur varla neitt. Að áliðinni nóttu var farið að reka þá á fætur, sem i fönninni lágu, og gekk Pétur best fram í, að grafa þá upp, sem mest voru fenntir, og dýpst lágu, og ekki voru sjálfbjarga. Kól hann þá og skemmdist á höndum, og allir þeir sem að þessu voru með honum. Þegar allir voru komnir upp úr fönninni, nema Þorsteinn, gátu þeir staðið með veikan mátt sumir, og fóru þá að detta niður, og urðu ekki reistir upp. Voru þeir ferskari þá lengi að stumra yfir hinum, sem ekki gátu bjargað sér, þangað til loks að 9 tóku sig til að fara á stað og leita byggða, en vera ekki lengur yfir hinum 5, er þeir sáu þá ekkert lífsmark með sumum þeirra. Þeir, sem hér urðu eftir við farangurinn voru: Þorsteinn, Egill, Ísak, Jón og Þiðrik. Eftir að þeir höfðu lengi gengið eitthvað áfram í villunni, dó Guðmundur frá Múla í höndunum á þeim. Varð þá enn staða og töf, er þeir Pétur voru að stumra yfir honum og reyna að koma honum með sér áleiðis. Því tóku sig 5 frá, og komust við veikan mátt ofan að Gullbringum til Jóhannesar Jónssonar Lúnd. Var þá enginn þeirra svo fær, að geta staðið upp hjálparlaust, þegar þeir duttu. Jóhannes tók þeim, sem föng voru á. Þegar hann frétti hvað um var, hljóp hann þegar, er hann hafti hjálpað þessum 5 úr fötum, móti þeim 3, sem á eftir voru: Pétri, Einari i og Gísla á Snorrastöðum. Gekk hann þá í braut þessara 5 inn á Geldingatjarnarhæðir, og tafðist honum að finna mennina bæði sökum kafalds, og þess, að þeir voru komnir í aðra átt en hann vænti, eftir brautinni. Loks kom hann auga á þá niður með Geldingatjarnarlæk. Stefndu þeir þá suður beint um austurhalann á Grímmannsfelli. Voru þeir þá mjög af sér komnir, er Jóhannes kom til þeirra, og varð hann að ganga undir Pétri heim til sín. Af þeim 8, sem til Jóhannesar komust var Pétur lakast á sig kominn, hann var rænulaus þegar í bæinn kom og þekkti þá ekki lagsmenn sína. Hjálpaði Jóhannes nú þessum úr fötunum, og setti þá niður í vatn og snjó að þörfum, og veitti þeim allan beina, sem hann gat. Að því búnu fór hann þegar ofan til bæja, að fá menn og hesta, sem þurfti. Um eða undir hálfbirtu á sunnudagsmorguninn lögðu mennirnir á stað þaðan, sem þeir lágu um nóttina.
Klukkan nálægt 6 komust þeir 5 til Jóhannesar, en kl. hér um bil 10 hinir 3, sem hann sótti, að, því er hann segir sjálfur, en um hádegi kom hann ofan að Mosfelli. Allan þann tíma, sem mennirnir voru á heiðinni, frá Þrívörðum, var hörku kafaldsbylur með brunafrosti og ofsalegum vindi. Á laugardaginn sá lengi fram eftir öðru hverju til sólar, og til dags sást á sunnudagsmorguninn, þegar dagur var nokkuð hátt á loft kominn, en batnaði það að ratljóst varð á heiðinni fram úr dagmálunum. Síðan batnaði veðrið alltaf, og gjörð gott veður, nærri kafaldslaust og lygnt, fram úr hádeginu. Undir miðmunda á sunnudaginn voru 8 manns neðan úr Mosfellsdalnum komnir með Jóhannesi upp í Gullbringur með 7 hesta og þurr klæði til að sækja mennina, er þar voru. Voru þá þegar fluttir þaðan 6. Sveinn og Gísli voru langminnst kaldir; Sveinn varla neitt, Gísli helst á kinn og eyra. Bjarni og Guðmundur þóttu ekki flutningsfærir, og voru kyrrir um nóttina í Gullbringum. A mánudaginn voru þeir fluttir niður í byggð.
Séra M. Grímsson skýrir því næst frá því í niðurlagi skýrslunnar, að 3 Mosfellsdalsmanna hafi þegar á sunnudaginn verið sendir með duglega hesta frá Gullbringum til að finna hina látnu og farangurinn, að þeir hafi brátt fundið lík Guðmundar frá Múla skammt eitt frá Smalaskála hinum eystri, þvínæst hafi þeir fundið Ísak nokkru norðar, með mjög litlu lífsmarki; fluttu þeir hann strax að Stardal, því þangað var skemmst, en hann dó á leiðinni og varð ekki lífgaður; því næst sneru þeir 3 byggðarmenn aftur upp í heiðina, og fundu þá farangurinn og hina fjóra mennina sunnan til við Leirvogsvatn í Lómatjarnarlæk. Höfðu þeir lagst rétt í lækinn. Jón frá Ketilvöllum var þá enn með lífsmarki, og fluttu þeir hann að Stardal, en hann dó á leiðinni og varð ekki lífgaður". Séra M. G. skýrir loks frá hversu allar tilraunir hafi verið viðhafðar, eftir réttum læknareglum til að meðhöndla líkin og reyna að kveikja aftur líf með þeim, og frá greftrun þeirra.
Brandsstaðaannáll [vor]:
Með jafndægrum kom snöp og stilltist veður til þess á skírdagskvöld 9. apríl, að mikla norðanhríð gjörði. Báða páskadaga mesta hvassviðri og fannkoma, en reif vel. Við sjó á útkjálkum var frostlítið og veður minna, en harka og sorti var hér fremra. Fór þá að bera á heyleysi, 18.-19. apríl kom norðaustan-þíðvindur, svo alveg tók upp. Með sumri hagstæður bati. Með maí kom gróður í túni. Vorið var hretalaust.
Norðri segir af illri tíð í pistli þann 20.apríl:
Úr öllum áttum eru bágar fréttir úr héruðum sökum hey- og bjargarleysis. Um miðja góuna [undir miðjan mars] kom góður bati, og voru síðan blíðviðri hér nyrðra og eystra fram að skírdegi [9.apríl], en síðan hafa hér gengið hörð veður, einkum báða páskadagana [12. og 13.apríl], nú í 10 daga, og mun víða yfrið lítið um jörð. Hafís er kominn hér inn á Eyjafjörð, og hákarlamenn er út voru komnir fyrir hátíðina í legur hafa einnig orðið varir við töluverðan ís í hafinu. Víða hér um Eyjafjörð og Skagafjörð eru menn komnir í heyskort svo að til vandræða horfir, og að austan höfum vér frétt hið sama, og oss er skrifað að fé hafi verið farið að falla sunnan til í Múlasýslum við sjóarsíðuna þegar póstur fór. Fimmtudaginn næstan fyrir þorra [22.janúar] var mannskaðaveður mikið fyrir austan, urðu 3 menn úti, og fjárskaðar miklir urðu þar víða. Á Þvottá í Álftafirði fórust nærfellt 100 fjár, og rak það fé á sjó; á Þverhamri í Breiðdal týndist 40 fjár, og víða annarstaðar urðu fjárskaðar miklir. Af Suðurlandi hefur líka frést að mjög hörð tíð hafi gengið og fiskileysi framan af vetri, og var orðið hið mesta harðæri af bjargarskorti um Suðurnes.
Á Hvanneyri í Siglufirði segir af hafís í apríl: 14. Hafís inni og útifyrir, 15. Meiri hafís, 16. Hafþök af ís, 17. til 21. Sami hafís, 22. Rak ísinn út, 25. Rak aftur ís inn.
Norðri segir þann 4.maí:
Hér er nú allt þakið ís úti fyrir Eyjafirði, svo að skip þau sem ætluðu út til hákarlaveiða hafa orðið að koma inn aftur.
Þjóðólfur segir frá tíð og slysförum í maípistlum:
[2.] Að vestan og norðan hafa nýfallið ferðir hingað, og voru þar hin mestu harðindi og jarðleysur víðast hvar allt fram til miðs [apríl], og horfði heldur til fellis sakir heyskorts, sem von er, eftir jafnlangan gjafatíma, um 20 vikur eða meira; fyrir norðan land voru hafþök af Grænlandsís; en ekkí vildi vestanmaðurinn segja hann kominn inn á Breiðafjörð, eins og skipherra einn fullyrti er sigldi þar um og kom hér í þessari viku. 23. [apríl] strandaði i Grindavik, frönsk fiskiskúta, la jeuni Delphine" (hinn ungi höfrungur) að nafni; allir skipverjarnir, 14 að tölu, komust af; talsvert af salti var á skipinu, nokkur fiskur, og matvæli; var það allt selt á uppboðsþingi í gær. Hér syðra hefir alla þessa viku verið mjög fiskilítið, nema skást á Akranesi. Í gær og fyrradag fiskaðist hér á lóð.
[9.] Úr öllum áttum fréttist, að kastið um páskana [12.apríl] hafi orðið eitt hið harðasta íhlaup og leitt hér og hvar með sér fjárfelli hjá ýmsum; allt hið innra af Eyjafirði, þ.e. Akureyrarhöfnina, lagði með helluís, svo, að ekki var aðeins gengur ísinn úr landi út í skipin sem lágu þar fyrir akkerum, heldur var ekið í land vörunum úr þeim á ísnum. Harðindi og hagleysur voru víða á Norðurlandi fram til loka [apríl], og horfði til fénaðarfellis, ef ekki kæmi bráður bati, einkum hér og hvar í Skagafirði. Í Skaftafellssýslu, Skaftártungu og Síðu, hafa og gengið hinar mestu vetrarhörkur, og fénaður farinn að falla þar hjá einstöku búendum. Nóttina milli 23.-24.[apríl] strandaði skip frá Horsens á Jótlandi austur í Meðallandi; það var sama skipið og hingað kom með kornfarm í fyrra; nú var það einnig fermt kornmat og annarri vöru, og ætlaði hingað. Hina sömu nótt strandaði og skip í Vestmannaeyjum frá Björgvin i Noregi, hið sama og hér kom i fyrra, og með hinum sama skipherra, Lind; það var að sögn, fermt timbri o.fl. Af báðum þeirra skipum komust allir skipverjarnir lífs af.
[16.] Skipskaði. Aðfaranóttina 7.[maí] fórst bátur héðan í beitifjöruferð, nálægt Kjalarnesi, með 4 manns, einum var bjargað af kjöl; annar bátur sökk hina sömu nótt, einnig í beitifjöruferð; af þeim báti varð öllum bjargað; Þorkell Árnason (frá Brautarholti) á Bala bjargaði af báðum.
Brandsstaðaannáll [sumar]:
Um fardaga norðanátt með breiskjum miklum og náttfrosti, svo gras skemmdist á túnum og bliknaði mög. Maðkur var líka til meins á grasvexti. Í fardögum var geldfé rekið á heiðar. Eftir 10. júní kom hlý og góð veðurátt. Fór þá grasvexti vel fram og var sláttur byrjaður 13. júlí og voru ræktartún þá vel sprottin. Þann 19. skipti um til votviðra, svo ei var þurrkað um 13 daga. Hröktust þá töður hjá allmörgum, helst þar seint var tekið til. 2. ágúst góður þerrir, sem öllum gat komið að notum, en ekki þurfti að skemmast utan 2 daga slægja, ef vel var með farið. Eftir 6. ágúst var rekju- og rigningasamt, (s195) en skarpur þerrir þess á milli, besta nýting fyrir göngurnar og gras dofnaði seint. Heyskapur var í meira lagi, en töðubrestur þó á hörðum túnum fyrir sólbruna og kvartað yfir rýrum heyskap í Vindhælishrepp. Sunnan-og vestanlands varð almennt ónýting.
Þann 8. júní snjóaði niður í byggð á Hvanneyri í Siglufirði og aftur þann 25.júlí, þá var hiti þar 0°R um miðjan dag. Sama júlídag var norðan krapahríð í Laufási (að sögn séra Björns).
Norðri segir af tíð og veiði þann 13.júní:
Um veðráttufarið hér norðanlands í vor viljum vér geta þess, að af því bráðlega batnaði úr sumarmálum varð hér að ætlun vorri enginn fellir, þó víða væru menn farnir að koma fé niður í fóður, og vér ætlum, að fé hafi víðast hvar gengið allvel undan hér nyrðra. Vorkuldar hafa verið hér miklir, eins og von er, því ísinn lá hér svo lengi við land, og dagana í þessari viku 8., 9. og 10. júní var hér grimmdarkuldi, og snjóaði ofan undir Eyjafjörð, og þumlungsþykkan ís lagði á vatn er inni stóð í keri hér á Akureyri. Í Húnavatnssýslu hefur vorkuldinn verið enn meiri en hér norðar, enda hefur íshroði verið inn á Húnaflóa allt til þessa. Hér í Eyjafjarðarsýslu og austur um hefur ísinn ekki fært mönnum nema kulda og tálmað mjög útferðum hákarlamanna, en í Húnavatnssýslu hafa náðst miklir hvalir. Þeir faktorarnir á Hólanesi, og Skagaströnd Holm og Knudsen ásamt öðrum fleirum mönnum á 5 bátum drápu 3 hvali í Vík á milli kaupstaðanna og reru þá síðan í land. Þessir hvalir voru frá 30 til 60 álna að stærð. Aðra 3 drápu sveitarmenn þar nokkru utar í Harastaðavík í Spákonufellslandi, og er sá reki kirkjueign; vér höfum heyrt að þeir hafi verið álíka að stærð. Jón bóndi í Stöpum, klausturlandseti lagði einn hval til bana og náði honum; hann var 3040 álna. Enn rak hval á Bakkakotslandi í Skagafjarðarsýslu, er oss hefur verið sagt, að væri Miklabæjarkirkjueign, Rúmar 20 hnísur voru reknar á land í Víkum á Skaga.
Norðri segir stuttlega 15.júlí:
Veðráttan er hér einlægt hin besta fyrir grasvöxtinn og víðast hvar lítur allvel út með hann; en fremur er tíðin einlægt köld og fáir sólskinsdagar hafa verið hér í sumar.
Þjóðólfur segir 14.september:
[Þann 20.apríl] fórst flutningabátur með 4 mönnum á Hvammsfirði vestra, og týndust allir mennirnir; formaðurinn hét Páll Jónasson, ungur maður og efnilegur. Í öndverðum júlímánuði týndist bátur með 2 mönnum suður í Garði.
Brandsstaðaannáll [haust og vetur til áramóta]:
Haustið var mikið gott með þíðum og góðviðrum, svo haustverk lukkuðust vel, utan landnorðan-veðurofsa og hríð gjörði ytra 2.-6. okt., þá fjártaka og kauptíð stóð hæst. 30.-31. okt. gjörði skarpa hríð og fönn ytra og í Skagafirði. Fórst þá um 20 fjár á Völlum og Vallholti í Vötnin. Í nóvember 4.-21. sífelld hláka og blíðviðri og þó ei rigning að mun utan þann 11. og 27. ofsaveður með slettingskafaldi af vestri. Þá fórst póstskipið og kaupskip Bierings með 4 höndlurum á, vestur á Mýrum og Snæfellsnesi. Þann 3. des. skipti um. Gjörði þá vikuhríð á vestan og fannlög mikil móti austri, en móti vestri reif vel, en þó hláku gjörði 12.-13. des., tók þar ei upp, heldur hleypti í gadd. Var ei teljandi fjárbeit á vestri síðu dalanna, en autt varð á lágsveitum. Blotasamt var um jólin og alltaf frostalítið, smáfjúkasamt og góð tíð eftir áður nefnda hláku. (s196) ... Höfðaverslun hlaut mikinn skaða. Stórt skip þangað sent fórst, líklega norðan land í hafís í páskaofviðrinu. (s203)
Norðri segir af tíð þann 10.október:
Veðuráttan hefur verið hér norðanlands hin besta og hagstæðasta seinni part sumarsins, og hefur því nýting orðið góð, þó að heyföngin séu sumstaðar lítil. Nú um mánaðarmótin er veðri brugðið, snjóveður og rigningar skiptast á.
Norðri lofar tíð í pistli þann 17.nóvember:
Veðuráttan er hér norðanlands einlægt enn hin besta, alautt í sveit og litlir snjódílar hæst í fjöllum nú í miðjum nóvembermánuði, og einkum hefur núna seinustu dagana verið hlýr sunnanvindur eins og á sumardag, þá stundum með regni. Hitinn varð einn daginn 12 mælistig.
Seint í nóvember gerði mikið útsunnanveður. Fréttir af sjósköðum í því voru lengi að berast. Þjóðólfur segir fyrst frá þann 19.desember:
Eftir embættisbréfi sýslumannsins í Mýrasýslu, hr. B. Thorarensens, er sendiboði færði hingað til bæjarfógetans 15.[desember], hefir síðan um jólaföstukomu, 29.[nóvember], verið að smáreka á land, á Álftanesfjörur á Mýrum, ýmislegt af kaupskipi, bæði af sjálfum skipsskrokknum, reiða, farmi, farangri skipverja o.fl, þar á meðal einnig dagbók eins skipverjanna og önnur skjöl; á Ásreka í Melasveit bar líka upp nálægt 10.11. [nóvember] mikinn skipsfleka af aftari hluta kaupskips, tólgartunnur o.fl. Af öllu þessu, en þó einkum af skjölum þeim er fundist hafa rekin, þykir mega ganga að því vakandi og vísu, að mest eða allt þetta strand sé af jagtskipinu Drei Annas skipherra Hans Lundt, er lagði héðan af stað að morgni 26.[nóvember] ... ; átti kaupmaður konsúll M.W. Biering það skip og farminn, og sigldi hann nú sjálfur með því héðan, ásamt konu sinni, og 2 elstu börnunum, James og Valgerði. Virðist allt lúta að því, að skipið hafi enn verið hérna megin Fuglaskerjanna, þegar þetta fádæma ofveður skall á af útsuðri (hér um bil SSV á kompási"), nóttina milli 26. og 27.[nóvember], er hélst fram undir miðaftan á föstudaginn 27., og var svo ofsamikið, að vart neinu hafskipi var siglandi heldur varð að láta reka undan, hvað sem við tók, hafi svo skip þetta borið upp á skerin fyrir framan Mýrarnar austanverðar og molast þar í spón.
Þjóðólfur heldur svo áfram þann 9.janúar 1858:
Bæði með þeim sem fóru héðan upp á Mýrar til þess að vera við uppboðið á skipstrandinu af Drei Annas", farmi þess skips o.fl. af því er rekið var, en komu aftur rétt fyrir jólin, og eins í bréfi einu með sömu ferðum, bárust fréttir um enn einn skiptapann, undir Lónbjargi á Snæfellsnesi sunnanverðu, er hafi átt að bera að undir eða um lok nóvember; bréfið, er segir greinilegast frá, hefir ritað 22. desember Þórður bóndi Benediktsson á Ánastöðum á Mýrum, skilvís maður að allra rómi, hann kveðst hafa komið vestan frá Búðum kvöldinu fyrir, skýrir síðan frá skipstrandinu, sjálfsagt með þeim atvikum er honum hafa verið sögð þar vestra, að reiði, segl, möstrin í brotum, nokkuð af tólg og mikið af eir utan af skipinu sé rekið upp á Malarrifi og Stapanum, á rifinu hafi og rekið upp 3 hesta strax á laugardaginn eftir veðrið", (að líkindum ofsaveðrið föstudaginn 27. nóvember) og að héraðsmenn sé að síga fyrir nefnt bjarg (Lónbjarg) en hafi litlu getað náð. Svo sem nú þetta, sem sagt er rekið, bendir auðsjáanlega til, að ef hér á sér skiptapi stað, þá hefir það verið skip á útsiglingu héðan frá landi, svo liggja og óneitanlega helst til of miklar sönnur að því, að sé viðburðurinn sannur, þá sé ekki ástæðulaust að óttast, að þetta kunni að vera póstskipið Sölöven, er lagði út héðan nokkru fyrir dagmál 26. nóvember, og hefir því að öllum líkindum einnig hreppt hérna megin Fuglaskerjanna hið óviðráðanlega ofsaveður af útsuðri er skall á nóttina eftir. Aftur þykir draga nokkuð úr líkum þessum, það tvennt, bæði að það er fullyrt, að bréf er bárust austur á Mýranar vestan úr Staðarsveit og frá Búðum um sama leyti, geta að engu þessa skiptapa undir Lónbjargi né neins verulegs strands þar vestra, og í annan stað helst hér syðra stöðugt það rykti, sem búið var reyndar að heyrast áður en fréttist um ófarir þeirra Bierings, að í Grindavík hafi sést til skips á útsiglingu, mjög djúpt fyrir, á 3. degi eftir veðrið; og ef svo var, þá gat þetta vart annað skip verið en póstskipið. Nú er búið að senda héðan mann gagngjört vestur, til að fá fulla vissu í þessu efni.
Og enn eru fréttir af sama máli í Þjóðólfi þann 23.janúar 1858:
Vér gátum þess í síðasta blaði, að maður hefði verið sendur héðan vestur til þess að fá vissu um, hvort það væri póstskipið Sölöven, sem týnst hefði nálægt Lónbjargi. Maður þessi kom aftur hingað 19.[janúar], og hafði það tafið ferð hans, auk ófærðar og umhleypinga, að hann fór vestur í Stykkishólm á fund sýslumannsins; en fregnirnar er hann nú færir eru litlar aðrar en full staðfesting þess er fyrr var frétt: að skip hafi farist 27. nóvember nálægt Lónbjargi á Snæfellsnesi, því sama daginn, um sólarlag, varð vart við reka af skiptapa, á Malarrifi, að 3 hesta móalótta hafi rekið á land daginn eftir, ýmislegt af reiða, seglum, eir utan af skipi, smáfleka, o.fl., að mikið sé rekið af ull og af tólg nálega 4 skpd., nokkuð af kjöti, smápakkveti er menn hér bera kennsl á og vita að voru send með póstskipinu héðan, stúfar af karlmannafatnaði, einkum nærfatnaði, með ýmsum fangamörkum, t.d. S.B. o.fl., brot af fjöl með litskornum stöfunum SÖLÖ en þó numið neðan af öllum stöfunum svo að ekki sést t.a.m. glöggt allt ellið"; þetta er og samkvæmt bréfi sýslumannsins í Snæfellsnessýslu til bæjarfógetans í Reykjavík, dags. 5. [janúar], er barst hingað 15. næst á eftir. Allt lýtur þannig því miður að því, að þetta sé póstskipið Sölöven", skipstjóri H. Stilhoff, er hafi borið þar upp að björgunum og molast í spón í ofsaveðrinu 27.nóvember, daginn eftir að það sigldi út héðan; það var með eirhúð utan, fermt með ull, tólg og saltkjöt þegar það nú fór héðan, og hafði innanborðs meðal annars 4 hesta móalótta.
Með póstskipinu sigldu héðan úr staðnum kaupmennirnir Ditlew Thomsen og Jón Markússon og Snæbjörn Benedictsen (Snæbjörnsson) er fyrr var verslunarstjóri hér hjá kaupmanni Havsteen. Engir mennirnir voru reknir upp, hvorki af þessu skipi né af Drei Annas", þegar síðast spurðist. ... Það virðist ekki tilefnislaust út af þessu, að vekja athygli að því, hvað hið opinbera eða embættismennirnir sem hlut eiga að máli, hafa verið afskipta- og aðgjörðahægir í þessu efni, en þótt hér væri að ræða um póstskipið er á að ganga milli Danmerkur og Íslands. [Síðan eru sýslumaður og fleiri gagnrýndir harðlega fyrir seinagang].
Þann 16.mars 1858 segir Þjóðólfur af náttúruviðburði sem átti sér stað 3.desember. Nú er talið fullvíst að um snjóflóð hafi verið að ræða:
Sjaldgæfur náttúruviðburður; (aðsent frá prófasti hr. Ó. Sívertsen í Flatey). Þann 3. desember 1857 í hálfbirtu um morguninn, sást svart ský yfir fjallsgnípunni er skagar lengst í sjó fram fyrir sunnan Patreksfjörð; heyrðist þá líka hastarlegur hvinur í fjallshyrnunni fyrir ofan og utan bæinn að Kollsvík og í sama vetfangi skall bylur á bænum sem braut hann þegar niður, og þrúgaði baðstofunni svo niður og braut, að af viðum í henni fannst ei eftir nokkur spýta einni alin lengri. Ein gift kona og eitt barn dóu strax undir rústunum, en 3 af heimilisfólkinu, sem náðust brátt á eftir, sköðuðust og og lágu síðan veikir. Eitt barn náðist á 4. annað á 6.dægri seinna, bæði lifandi og ósködduð, nema annað kalið á hendinni. Allt innanbæjar, áhöld, verkfæri, kistur, matvæli, rúmföt, bækur, skemmdust og ónýttust með öllu. Hálft hey, sem stóð við bæinn þverkubbaðist sundur sem hnífskorið væri, og í rústunum var allt í samblandaðri hrúgu, snjórinn, heyið, viðarbrotin, moldirnar og grjótið. Fjósið, hlaða og öll önnur útihús stóðu ósködduð. Þenna dag tjáist að í Kollsvík hafi verið allgott veður bæði fyrir og eftir; en hér í Flatey var austan stórviðri og kafald.
Þjóðólfur segir frá 27.mars 1858:
Skömmu fyrir næstliðin jól fóru tvær mæðgur, vestur í Bolungarvík, þar í annan bæ, er að Skálavík heitir, og er háls í milli, en á heimleiðinni datt kafaldsbylur á, á hálsinum svo þær gátu ekki hitt bæinn, urðu því úti og fundust skammt þar frá, báðar örendar.
Þann 22.desember getur Þorleifur í Hvammi jarðskjálfta.
Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um veður og tíðarfar ársins 1857. Þakka Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir innslátt texta úr Brandsstaðaannál. Fáeinar tölur eru í viðhenginu.
Vísindi og fræði | Breytt 25.11.2020 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2020 | 00:24
Veturinn nálgast
Ýmislegt bendir nú til þess að veturinn fari að láta hringla í höftunum (hvað sem það orðalag nú þýðir). Við erum svosem orðin vön allskonar ferða- og athafnahöftum af öðrum ástæðum þannig að varla skiptir máli þó eitthvað bætist við (svo um muni). En möguleiki er líka á því að hann (hver er þessi hann? spurði drengurinn í þjóðsögunni) haldi áfram að fara vel með - og ekkert verði úr neinu - nema skrölthljóðum í fjarska.
Á miðvikudaginn nálgast lægð úr vestri - að sögn með sunnanhvassviðri og rigningu í byggð en þá foráttuveðri á fjöllum. Síðan er gert ráð fyrir snörpum útsynningi - kannski þeim fyrsta með alvöruvetrarbragði á þessu hausti - og þar með hefur veturinn haldið innreið sína.
Kortið sýnir stöðuna í 500 hPa-fletinum á fimmtudag 25.nóvember(spá evrópureiknimiðstöðvarinnar). Þá er allmikill háloftastrengur yfir landinu - við ráðum styrk og stefnu af legu jafnhæðarlína. Þykkt er sýnd í lit. Hún mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Henni er spáð rétt innan við 5200 metra yfir landinu (reyndar er þar blettur með minni þykkt en 5160 metrum - en hann stafar væntanlega af þvinguðu uppstreymi þegar loftið þarf yfir landið). Þessi þykkt bendir til þess að hiti verði í kringum frostmark og því verður éljagangur fremur en skúraveður. Hvasst í éljum og ófært veður víða á fjöllum (rætist spáin).
Hér á eftir er erfiðari umfjöllun - einkum ætluð nördunum - aðrir geta lokið lestrinum hér og nú.
Við skulum líka taka eftir smáatriðum í þessari stöðu. Örin sýnir ás köldu framrásarinnar sem kemur til landsins frá Kanada - fer sunnan við Grænland. Báðu megin er hlýrra loft. Þetta þýðir að þykktarsviðið er flatt við landið (þykktardrag). Það þýðir að háloftavindur á greiðari leið niður í átt til jarðar heldur en algengast er (sérstaklega vestan við þykktardragið). Hes háloftarastarinnar teygir sig neðar en oftast er.
Svo gengur vindur niður - en kalda loftið vestan Grænlands er komið á hreyfingu og við vitum lítið um það enn hvað það síðan gerir. Margar eru spárnar auðvitað - og fullstór hluti þeirra er í dag með einhver áframhaldandi leiðindi. Sjálfsagt er rétt að búa sig undir slíkt - en vona hið besta. - Það hefur farið vel með hingað til og lítið orðið úr veðurógnunum í haust. Kannski er þetta bara einhver tímabundinn sperringur?
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2020 | 20:18
Af árinu 1856
Árið 1856 var óvenjulegt og talið sérlega hagstætt. Lítið var um illviðri. Janúar og desember voru óvenjukaldir, en marsmánuður sá langhlýjasti á 19.öld, í Stykkishólmi varð mars 1929 ívið hlýrri - og 1964 svipaður. Þessi hlýindi mundu menn svo lengi sem þeir lifðu. Einnig var óvenjuhlýtt í október og hlýtt var einnig í apríl og ágúst. Júlí og nóvember voru fremur kaldir. Vorið olli nokkrum vonbrigðum því það var fremur þurrt og næðingasamt - en samt gerði ekki verulega illskeytt hret. Ársmeðalhiti í Stykkishólmi var 4,0 stig, 0,6 stigum ofan meðalhita næstu tíu ára á undan. Áætlaður ársmeðalhiti í Reykjavík er 4,5 stig, og 2,8 stig á Akureyri.
Eins og áður sagði var kalt í janúar og desember, 10 kaldir dagar í Stykkishólmi í fyrrnefnda mánuðinum og fjórir í desember. Tveir dagar í október voru óvenjuhlýir.
Úrkomumælingar hófust í Stykkishólmi í september. Óvenjuúrkomusamt var í október - mikill sunnanáttamánuður.
Þrýstifar var óvenjulegt á árinu 1856 - við sjáum af myndinni að árstíðasveiflu gætti lítt. Þrýstiórói var líka með minna móti. Munur á hæsta og lægsta þrýstingi sem mældist á landinu á árinu hefur aldrei orðið minni (höfum þó í huga að mælingar voru mun færri en nú er og því erfitt um raunhæfan samanburð). Hæsti þrýstingur ársins mældist í Stykkishólmi þann 2.mars, 1032,8 hPa og hefur aðeins einu sinni síðan verið lægri (1863). Lægstur mældist þrýstingurinn í Stykkishólmi 969,5 hPa, 31.mars. Lægsti þrýstingur ársins hefur aðeins einu sinni verið hærri en þetta á landinu í heild. Það var 1829 - en þá var aðeins ein mæling á dag gerð á landinu.
Hér að neðan má finna helstu heimildir um veðurfar ársins. Nokkuð af veðurskýrslum og dagbókum er enn óyfirfarið. Að vanda er stafsetning að mestu færð til nútímavenju. Fleiri slysa er getið í heimildum heldur en nefnd eru hér að neðan. Óljóst er hver þeirra tengdust veðri og dagsetningar vantar. Í blöðum var minna rætt um veður en stundum áður. Líklega má skrifa ástæður þess á hina góðu og hagstæðu tíð.
Brandsstaðaannáll [vetur]:
Fyrri part janúar stillt sunnan- og austanátt, snjólítið og frosthægt, síðari part sterk frost og fraus mjög fyrir litla bæjarlæki og gjörðist mikil óhægð þar af. Með febrúar frostaminna, lengst góðviðri, snjólítið. Storka var á jörð um 2 vikur, jarðlaust fyrir fé á snögglendi, alls staðar hrossajörð, aldrei hríð að mun. 21. febr. kom besta vorblíða með stilltri þíðu. 28.-29. varð stórflóð í vatnsföllum með ruðningi til stórskemmda, er gekk hærra en vanalega. Hlákan varði til miðgóu, svo góðviðri og næturfrost, svo varla komu skarir að ám og vegir voru þurrir á páskum í góulok.
Þann 14.janúar segir athugunarmaður á Siglufirði að hafís komi inn á Fjörðinn.
Þorleifur í Hvammi segir í veðurskýrslu sinni í lok febrúar: Nú er þelaleyst jörð og hvervetna öríst, nema í giljum og stórum fjallaskurðum, en svell sjást í einstaka stað á mýrum. Þann 17.mars segir hann: Stöðugt eins og best á vordögum, sjólæða, þoka.
Þjóðólfur segir frá þann 16.febrúar:
Bæði að norðan og vestan er að frétta hina sömu veðurblíðu sem hér; og þó að töluverðum snjó kyngdi niður víða til fjalla á öndverðum þorranum, hér sunnan fjalls gætti þess mjög lítið, en um Biskupstungur og Hreppana varð snjókoman til megnrar ófærðar og lá við hagleysum, ... Hafís kom inn með Hornströndum og inn með Húnaflóa þegar fyrir jól; hann var heldur í rénun um 10.[janúar], hið eystra um flóann, en lá þá enn milli Bjarnarnes- og Vatnsnestáar, sem frost á fjörðum, og allir firðir fullir norður með Ströndum; síðan um jól hafa Strandamenn aflað hákarl til góðra muna upp um ísinn, og voru komnar 3 og 4 lýsistunnur til hlutar af þessum afla hjá hinum heppnustu. Aflalaust að kalla hér syðra, það sem af er þessum mánuði, nema í Garði og Leiru; hafa Seltirningar róið þangað og sótt fiskhleðslur.
Norðri segir af ferðum pósta í pistli þann 28.febrúar:
Níels póstur Sigurðsson kom til Akureyrar 30. [janúar]. Hafði hann farið frá Eskjufirði 14. s.m. og þá um nóttina legið úti hérna megin Eskjufjarðarheiðar. Hér og hvar á leiðinni að austan, hafði hann verið hríðtepptur og víða fengið illa færð og hörð veður. Hann sagði að tíðarfarið eystra og nyrðra, hefði verið líkt og hér síðan að spilltist eftir nýárið, og sumstaðar hagskart vegna áfreða. Í næstliðnum janúarmánuði rak hér hafíshroða inn á fjörð allt að Oddeyri, náðust þá 19 hnísur í vök undan Dálkstöðum á Svalbarðsströnd. Það er mál manna, að þá hafi og komið talsvert af fiski, en sem vegna íssins ekki varð sætt. Norðanpósturinn byrjaði héðan ferð sína suður til Reykjavíkur 8.[febrúar], en 3 dögum síðar eða 11.[febrúar] kom Benjamín aukapóstur að sunnan hingað, og hafði farið úr Reykjavík 27. janúar Talsverður snjór hafði verið kominn syðra og á leiðinni norður hingað, en þó víða gott til haga. Kvillasamt hafði verið syðra og fólk legið.
Norðri segir fréttir þann 15.mars:
Fréttir innlendar eru engar aðrar en öndvegistíðin sama og áður er getið. Nú er sagt íslaust hér norðan fyrir landi. Á þorranum höfðu 2 bjarndýr tekið land á Sléttu, og urðu þar bæði unnin, en þó náðist ekki nema annað, því hitt lagði frá landi, en komst skammt og sökk. ... Síðla í janúar hafði aldraður bóndi að nafni Jón Magnússon frá Ísólfsstöðum á Tjörnesi orðið þar úti, og fannst fyrir skemmstu kominn langt afvega til heiðar. ... Nokkru síðar varð og maður úti í hríðarbyl á Axarfjarðarheiði, og hét sá Einar og átti heima á Sjávarlandi í Þistilsfirði.
Þjóðólfur segir af skiptöpum og öðrum slysförum þann 29.mars:
Nálægt Fagurey fyrir vestan varð bátstjón 2. jan. (eða febrúar); voru 3 menn á bát að flytja sig til Jökulferðar, drukknaði einn, en hinum var bjargað. 31.janúar varð úti á Fróðárheiði fyrir vestan ungur maður frá Búðum, að nafni Bjarni Bjarnason, talinn einhver hinn mesti frískleikamaður"; aðrir skrifa: að þessa slysför víst megi eigna ofnautn brennivíns". 17.[febrúar] fórst bátur með 2 mönnum frá Hvassahrauni á Vatnsleysuströnd og drukknuðu báðir; þeir fóru norður yfir að sækja færur sínar í Garðahverfi, en drukknuðu heim í leið. 24.[febrúar] um kvöldið var bóndinn Otti Gíslason í Hrísakoti í Kjós á heimleið til sín hann hafði um morguninn brugðið sér bæjarleið erinda sinna, en daginn eftir fannst hann örendur milli bæja í Brynjudalnum; veður var þar hvasst og úrkoma mikil, en maðurinn heldur óhraustur; hann var álitinn einhver efnilegasti bóndinn þar í sveit, ráðdeildar- og atorkumaður, og á besta aldri".
Enn segir Norðri fréttir þann 31.mars:
Hinn 21.[mars] kom Vigfús póstur Gíslason að sunnan aftur til Akureyrar; hafði hann lagt af stað úr Reykjavík 8.[mars]. Að sunnan og vestan fréttist sama árgæskan á landi, sem hér hefur verið frá í febrúar allt fram á þenna dag. ... Slysfarir: 10.[mars] fórust 2 menn af byttu vestanvert við Tjörnes í Þingeyjarsýslu, og er hald manna, að þeir muni hafa kollsiglt sig. Um sömu mundir hvolfdi bát með 4 mönnum í lendingu á Ísafirði, og fórust þeir allir. Annar bátur var þar á leið í fiskiróður með 6 mönnum, og sigldu þeir sig um, 4 komust á kjöl og varð bjargað, en 2 drukknuðu. Rétt áður en pósturinn fór að sunnan höfðu 2 menn drukknað af báti suður á Vatnsleysuströnd.
Norðri segir af árgæsku þann 16.apríl:
[Þann 10.apríl] kom austanpósturinn hingað, og sama dag sendimaður sunnan úr Borgarfirði, og er allstaðar að, að frétta sömu veðurblíðuna og hér hefur verið. Farið er að sjá í jörð og víða byrjuð vinna á túnum, að húsabyggingum, jarð- og garðyrkju.
Þjóðólfur segir af öndvegistíð - en óþrifum í fénaði í pistli þann 19.apríl:
Hér hjá oss helst stöðugt þessi einstakasta veðurblíða yfir allt landið, og það er annálavert, að meir en 30 manns úr ýmsum héruðum Norðurlands, Bárðardal, Eyjafirði og Skagafirði, skuli nú á góunni hafa farið hina stystu sumarvegi suður yfir þver fjöll, Vatnahjalla- eður Eyfirðingaveg og Kjalveg, suður til Hreppa og Biskupstungna til hundakaupa. Hundafárið var, þegar síðast spurðist, farið að ganga austur um sveitir, og komið austur til Rangárvalla. Þrátt fyrir þessa einmuna tíð, þá eru fjárhöld ill fyrir austan fjall og víða um Borgarfjörð, einkum um Eystri-Biskupstungur, Hreppa, Skeið, Hvolhrepp og Landeyjar; einkum þrífast gemsar sárilla og drepast úr svo nefndri skitupest" og ormum, er finnast bæði í innyflum og lungnapípum þá kindin er dauð; nokkrir bændur eystra kvað þegar hafa misst meir en helming gemsa sinna á þenna hátt. ... [Þann 7.mars] fórst bátur með 4 mönnum í lendingu, á Sandeyri á Snæfjallaströnd, og drukknuðu allir mennirnir. Sagt er að skömmu siðar hafi báti borist á úr Bolungarvík, og farist 2 menn af, en 4 verið bjargað.
Norðri segir frá þann 30.apríl:
Þann 21.[apríl] fréttist hingað að sunnan og vestan, að þar væri sama árgæskan sem hér nyrðra og eystra, enda munu þess fá dæmi síðan er land þetta byggðist, að jafngóðviðrasamur vetur hafi komið sem hinn næstliðni, að undanskildum kaflanum frá nýári til miðs febrúar sem var býsna harður og hretið í næstliðinni viku sem sumstaðar varð stórkostlegt, Skepnuhöld eru allstaðar góð í tilliti til heybirgðanna, en aftur ekki óvíða, helst vestra, kvartað yfir vanþrifum og veiki í fé, helst lömbum, og 1 bóndi fyrir sunnan, er sagt að hafi misst 80 af 90 lömbum hann setti á í haust. Á Suðurlandi höfðu hlutir af fiski verið orðnir í meðallagi, undir Jökli 5 hundr. hlutir á páskum, og við Ísafjarðardjúp fiskhlutir 100 rd. virði. ... Allt að þessu í vor, hefur hér verið gæftalítið, og ekki nema einstakir aflað vel hákarlinn. Nokkrir hafa farið héðan að norðan úr Bárðardal yfir Sprengisand, úr Eyjafirði Eyfirðingaveg, og úr Skagafirði Kjalveg suður í Árnes- og Rangárvallasýslur til hundakaupa næstliðinn mars og apríl, og er án efa sjaldgæft um þann tíma yfir slík firnindi og jökla, sem eru 45 þingmannaleiðir byggða á millum, auk þess sem stór vatnsföll eru á leiðinni.
Brandsstaðaannáll [vor]:
Fyrir sumar grænkuðu tún, svo þá var mátulega búið að breiða þau. Þar á móti var þá sumstaðar óborið á þau ytra. Sóley sá ég (s191) fyrst 6. apríl. Lítið föl gjörði þriðjudag síðasta í vetri og 5. maí, en ei oftar á þessu stillta vori, en lengi voru þurrviðri og næturfrost oft til sólstaða og fór gróðri seint fram. Flæði vantaði nú af ám og lækjum og orsakaði grasbrest á mörgu góðu flæðiengi.
Norðri segir tíðar-, afla- og slysafréttir í maí:
[16.] Í dag (9.maí) eru öll hákarlaskip sögð komin heim fyrir hátíðina [hvítasunna 11.maí], og tjáist að sumir hafi aflað vel í seinustu legunni 2052 kúta í hlut, aftur nokkrir minna, og fáeinir sárlítið Hafís tjáist töluverður djúpt norðan fyrir landinu, og sum skipin höfðu ekki frið fyrir honum í legunni og 2 eða 3 urðu að höggva á stjórafæri sin, og skilja þau eftir með akkerum í botninum. ... 5.[maí] var hákarlaskip eitt frá Haganesi í Fljótum meðal annarra á uppsigling úr legu. Landnorðan veður var með snjókomu, svo varla sá út fyrir keipana. Vissu þá skipverjar ekki fyrri til en komnir voru uppundir svonefndan Svarthöfða fram af Siglunesi, og enda of grunnt. Stórsjór var og albrima. Formaðurinn hlaut að bera um, en í því sló veðrið sigluásnum á hann svo fleygðist langt á sjó út og varð ómögulega bjargað, drukknaði því þegar.
[31.] Veðuráttufarið hefur allan þenna mánuð, verið hér nyrðra úrkomulítið og kalt, og oft frost á nóttunni, svo gróður, að tiltölu við hvað hann byrjaði snemma, tekið litlum framförum. Hákarlsaflinn hefir enn í vor verið mjög misfenginn. Ógæftirnar og hafísinn, sem enn er hér norðan lands, hafa töluvert hamlað aflabrögðunum. Nýskeð er fiskur kominn aftur hér út í firðinum.
Brandsstaðaannáll [sumar]:
Eftir fráfærur hitar sterkir og stundum hélufall, er spillti grasvexti. Sláttur byrjaði 10.-12. júlí. Fengust rekjur og þerrir, mikil taða og hey af flæði, sem notuð varð. Grasbrestur varð á vanaslægjum þurrlendum, en sina var víða í slægjum og þar spratt vel. Alla hundadaga eða 29 daga rigndi ekkert í miðsveitum og gekk seint á harðlendar slægjur. Heyskapur varð mikill á flóum og fjallaslægjum. Sláttartími hinn lengsti og kaupafólksfjöldi kom nú hinn mesti, svo sumt sneri aftur. Hirðing á heyi varð góð, en snemma dofnaði jörð. 16.-18. sept kom mikið hret og föl réttardag, 24. september.
Athugunarmaður á Hvanneyri í Siglufirði segir að ökklasnjór hafi fallið þar 17.september.
Norðri segir í júlíblaði - án dagsetningar:
Veðráttan það sem af er sumrinu hefur allstaðar, sem ég hefi til spurt hér á Norðurlandi, verið fremur köld, og hefur það eflaust að nokkru leyti valdið, að ís hefur einlægt legið hér í norðurhöfunum ekki langt undan landi. Grasvöxtur er því ekki meir en í meðallagi á túnum, og úthagi með snöggasta móti, einkum í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum, svo að ekki lítur vel út með heyskapinn, en það bætir úr, að bæði voru víðast hvar miklar heyfyrningar, og svo getur úthagi enn batnað mikið, ef vel viðrar. Fiskiaflinn hefur verið í besta lagi víða hér nyrðra, þó að ég hafi ekki heyrt enn um hlutahæð.
Norðri segir í ágústblaði - án dagsetningar - ræðir heyskap og kornrækt:
Sumartíðin hefur það sem af er slætti verið hin ágætasta um allt Norður- og Austurland. Tún hafa verið sprottin í góðu meðallagi í Húnavatnssýslu, en í minna meðallagi í öllum hinum sýslunum, og vatnsveitingar á tún hafa víða brugðist sökum þess að vatnið fékkst ekki nóg vegna vorkulda og þurrka, þannig skorti 100 hesta töðu eftir meðalári á Arnheiðarstaðatún í Fljótsdal, er sjaldan er vant að bregðast; en aftur á mót hefur nýting á töðum manna verið hin besta. Engjar eru allstaðar sársnöggvar, og það eins í hinum mestu heyskaparsveitum, t.a.m. Eiða- og Hjaltastaðaþinghám í Múlasýslum og hér í Eyjafirði. Bestur hefur úthagi verið á Jökuldal eystra og í Bárðardal, þar sem vér höfum séð. Ekki höfum vér enn fengið neinar skýrslur um hvernig jarðyrkjutilraunir hafa gefist hér á Norðurlandi, en allmiklar eru þær nú orðnar víða hvar í samanburði við það sem áður hefur verið, og víða höfum vér séð hafragras mikið og fagurt, og eru þeir blettir fagrastir hér nyrðra og eystra í þessu grasleysisári; þó ætlum vér, að þeir verði óvíða fullvaxnir, en hafragrasið er þó hið ágætasta fóður, og þó það launi ef til vill ekki enn alla fyrirhöfn og kostnað, sem fyrir því er haft, þá er þar þó mjór mikils vísir, og vér erum þess fulltrúa, að ekkert efli svo fljótt og vel grasvöxtinn eins og að plægja og sá; því þó að hinar útlendu korntegundir geti ef til vill ekki orðið fullþroska hjá oss, þá getur þó ekki hjá því farið, að það flýti mjög fyrir því að rækta jörðina til grasvaxtar.
Norðri segir í ódagsettu septemberblaði:
Veðráttan hefur verið hin besta og hagstæðasta um allan sláttinn þangað til mitt í þessum mánuði. Rétt við byrjun gangnanna gjörði hið mesta áfelli, svo að það snjóaði niður að sjó og hin mesta fannfergja kom á fjöllin, og það jafnvel svo, að geldfé var á sumum stöðum dregið úr snjó, og munu því heimtur víðast hvar ekki góðar, hvort sem seinna bætist úr því. Sökum þess að grasvöxtur var svo sárlítill, voru menn enn við heyskap þegar ótíðin byrjaði, og allmargir eiga því enn hey úti, og er hætt við að það nýtist lítt.
Þjóðólfur segir af strandi í pistli þann 27.september:
[Þ. 2.september] sleit upp á legunni í Keflavík jagtskip er kaupmaður P. Duus átti og nýkomið var þá frá Kaupmannahöfn og Noregi með korn, timbur og aðrar nauðsynjar, og var litlu sem engu búið að ná upp úr því áður; skipverjum varð öllum bjargað, en skipið sjálft mölbrotnaði og allur farmurinn fór í sjóinn, en rak upp, og var hvorttveggja selt á uppboðsþingi.
Þjóðólfur birti þann 1.nóvember bréf dagsett í Árnessýslu 1.október:
Nú eru heyannir á enda kljáðar þetta sinn; hér í Árnessýslu sem annarstaðar, hefir sú tíð verið mjög blíð og veðurátt hagstæð; grasbrestur var að vísu á sumum stöðum, helst á þurrlendum mýrarreytings-jörðum, enda brugðust líka einstöku góðengi, t.d. Bræðratunguey, sem er orðlagt slægjupláss; engu að síður má þó fullyrða, að heyafli er yfir hér um að tala í betra lagi að kostum og vöxtum.
Brandsstaðaannáll [haust - og vetur til áramóta]:
Haustið var gott og þíðusamt. Síðast í október þíða mikil og jöklaleysing og 5 vikna tíma fyrir 20. nóv. snjólaust góðviðri, þó stundum rosasamt. Skipti þá um með austanfönn og sterkum frostum á eftir. Með desember ísingarbloti, er gjörði jarðlítið. Jólafasta hörð með köföldum, hörkum og áhlaupshríðum. Varð lítið notuð beit þann mánuð. Hross tekin af heiðum vegna snjóþyngsla. (s192)
Norðri segir í ódagsettu októberblaði:
Síðan í miðjum septembermánuði, er hretið gjörði um gangnaleytið, hefur allt hingað til (í lok októbermánaðar) haldist hin blíðasta sumartíð, svo að vér munum ekki annað eins veður hér á Íslandi nokkurn tíma um sama leyti.
Norðri segir í ódagsettu nóvemberblaði:
Veðráttan hefur enn verið hin besta til þessa tíma (26. nóvember), og það er ekki nema rúm vika síðan snjór kom á jörð. Að vestan er oss skrifað, að sumartíðin hafi verið hin besta, grasvöxtur góður á túnum, en lakari á engjum, nýting hin besta. Hákarlsafli rétt góður á þiljuskipum.
Þjóðólfur ritar yfirlit um árið 1856 í pistli þann 20.desember (segir þá árið á enda):
Árið 1856 er nú þegar á enda, og þarf varla meira en miðlungs til þess að sjá, að það er og mun verða í flestu tilliti eitt hið minnisstæðasta ár þeim fulltíða Íslendingum sem nú eru uppi, og þó, að því sem enn er fram komið, ekki minnisstætt að öðru en stakri árgæsku og svo að segja allskonar hagsældum þegar á allt er litið. Hvorutveggju vetrarkaflana, einkum þann frá nýári til vordaga, og jafnvel eins hinn frá haustnóttum víst fram til loka [nóvember], viðraði svo um allt land, að varla hét að nokkur vissi að vetur væri; og fæstir núlifandi menn ætlum vér muni það vor er hafi sýnt jafnt yfir allt land jafnfæran og fríðan útifénað undan vetri eins og vorið er leið; það var almennt álitið, að geldsauðir hefðu tekið að slást við um sumarmál, og jafnvel á einmánuði; að vísu var vorið sjálft ekki að því skapi blítt eða gróðursamt sem veturinn var staklega mildur; það var jafnvel fremur en í meðallagi kalt og næðingasamt og þurrt í Múlasýslunum og staklega gróðurlítið, en þó að sumarið gæfist og í þeim sýslum með þurrasta, kalsamesta og gróðurminnsta slag fram yfir messur, og þó að grasvöxtur yrði yfir höfuð að tala vart meiri en í meðallagi á túnum og valllendi, en mýrlendi með sneggsta slag víðast, þá bætti úr því hin einstaklega góða nýting heyjanna, svo að segja yfir allt land, svo að heyföng urðu ekki aðeins í fullkomnu meðallagi að vöxtum víðast hvar heldur og svo vel verkuð að varla munu í annan tíma hafa verið betri hey í görðum hjá almenningi; meginhluti vestari Skaftafellssýslu, einkum Síðan og Skaftártungan, varð furðulega afskiptur í þeim efnum þar kvoluðust töður mjög svo og hröktust sakir stöðugs þerrileysis, og þessa verst útheyin; en yfir höfuð að tala viðraðist gjörvallt sumarið einstaklega blíðlega og hagstætt til allra athafna og bjargræðisútvega; næstliðið haust má og kalla með hinum betri haustum, en þótt það væri fremur rigningasamt.
Þann 24.nóvember sá athugunarmaður á Hvanneyri í Siglufirði hafís í fjarska.
Lýkur hér að sinni umfjöllun hungurdiska um veður og tíðarfar ársins 1856. Þakka Sigurði Þór Guðjónssyni fyrir innslátt texta úr Brandsstaðaannál. Fáeinar tölur eru í viðhenginu.
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2020 | 03:21
Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar
Meðalhiti fyrstu 20 daga nóvembermánaðar er +2,5 stig í Reykjavík, -0,1 stigi neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020, og -0,6 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára - og í 13.hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar 2011, meðalhiti þá 6,7 stig, en kaldastir voru þeir 2017, meðalhiti +0,8 stig. Á langa listanum er hiti nú í 53.sæti af 147. Hlýjast var 1945, meðalhiti +8,0 stig, en kaldast 1880, meðalhiti -2,9 stig.
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga mánaðarins 1,6 stig, +0,6 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020 og +0,3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.
Enn er hlýjast að tiltölu á Austfjörðum, þar er hiti í 8.hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast er við Faxaflóa, meðalhiti í 13.sæti á öldinni. Á einstökum veðurstöðvum er jákvæða vikið miðað við síðustu tíu ár mest á Teigarhorni, +1,0 stig, en neikvætt vik er mest á Þingvöllum, -1,4 stig.
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 44,2 mm og er það um þriðjungur neðan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 32,4 mm og er það líka um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu sömu daga.
Sólskinsstundir hafa mælst 36 í Reykjavík og er það lítillega ofan meðallags.
Þess má geta að lágmarkshiti þann 18. og 19. var á fáeinum stöðvum sá lægsti á árinu til þessa. Þar á meðal á Keflavíkurflugvelli (-8,5 stig) og í Reykjavík (-10,0 stig). Hiti í gamla mæliskýlinu í Reykjavík fór niður í -9,2 stig nú. - Mánaðarlágmörk (fyrir nóvember) voru líka slegin út á fáeinum stöðvum - en þó aðeins 3 sem athugað hafa í meir en 8 ár, Reynisfjalli (-9,4), Árnesi (-18,5) og Sámsstöðum (-12,0). Helst er óvenjulegt að loft yfir landinu var ekki tiltakanlega kalt - þó kalt væri í byggðum - ekki nema um -5 stiga frost í um 1500 metra hæð yfir Keflavík - og að tiltölu enn hlýrra ofar, þykktin um 5300 metrar sem ætti að samsvara um +3 stiga hita við jörð. - Svona geta hitahvörf stundum verið - þau áttu sinn þátt í mengunartoppnum í Reykjavík fyrr í vikunni.
19.11.2020 | 20:26
Enn fer vel með (í aðalatriðum)
Það hefur farið vel með veður nú í haust - ekki mikið um illviðri og lengst af hefur verið fremur hlýtt - þó kulda hafi brugðið fyrir dag og dag. Nokkrar öflugar lægðir eiga þó leið hjá, t.d. sú sem fer til norðausturs fyrir suðaustan og austan land á morgun (föstudag). Flestir landshlutar virðast þó eiga að sleppa furðuvel við áhrif hennar - þó hvessir sumstaðar fyrir austan - og kannski snjóar nyrðra. Eins og venjulega látum við Veðurstofuna um spár og hvetjum lesendur til að fylgjast með þeim.
Veturinn á norðurhveli hefur samt sinn gang - hefur lagst nokkuð á hluta Norður-Ameríku en lítið látið á sér kræla í Evrópu og meginhluta Asíu.
Kortið sýnir háloftastöðuna eins og evrópureiknimiðstöðin spáir henni síðdegis á laugardag (21.nóvember). Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar, af þeim ráðum við vindstefnu og styrk í miðju veðrahvolfi, en þykkt er sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs. Mörkin á milli grænu og bláu litanna er við 5280 metra, sem er mjög nærri meðallagi nóvembermánaðar hér á landi.
Það eru þrír mjög kaldir blettir á kortinu - vetrarkuldapollar. Einn yfir heimskautasvæðum Kanada - við höfum hér á blogginu til hægðarauka kallað hann Stóra-Bola. Hann fitnar nú hægt og bítandi - en er ekki búinn að ná fullum vetrarþroska. Hann mun á næstunni leika sér við annan poll - þann sem er nærri norðurskautinu. Við gefum báðum gaum. Þriðji kuldapollurinn er yfir Austur-Síberíu - rétt að ná sér á strik.
Föstudagslægðin okkar er hér komin austur fyrir land - og veikur háloftahryggur vestur af landinu. Af einhverjum ástæðum hafa veikir hryggir sem þessi verið nokkuð viðloðandi á okkar slóðum að undanförnu - risið strax upp aftur ef að þeim hefur verið sótt og þeir bældir niður. Slík staða er í rauninni hagstæð - alla vega meðan kuldi hefur ekki náð að byggjast upp að ráði í norðurhöfum. Framtíðarspár eru heldur á því að þetta ástand haldi áfram - þó út af bregði dag og dag þegar lægðir fara hjá - aðallega fyrir sunnan land. En auðvitað kemur að því að kuldapollarnir taka sig saman í andlitinu og fara að angra okkur - eða það er vaninn.
Vísindi og fræði | Breytt 20.11.2020 kl. 01:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 25
- Sl. sólarhring: 278
- Sl. viku: 1743
- Frá upphafi: 2499520
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 1593
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- September 2025
- Ágúst 2025
- Júlí 2025
- Júní 2025
- Maí 2025
- Apríl 2025
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010