Fyrstu 20 dagar nóvembermánaðar

Meðalhiti fyrstu 20 daga nóvembermánaðar er +2,5 stig í Reykjavík, -0,1 stigi neðan meðallags sömu daga árin 1991 til 2020, og -0,6 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára - og í 13.hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar 2011, meðalhiti þá 6,7 stig, en kaldastir voru þeir 2017, meðalhiti +0,8 stig. Á langa listanum er hiti nú í 53.sæti af 147. Hlýjast var 1945, meðalhiti +8,0 stig, en kaldast 1880, meðalhiti -2,9 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga mánaðarins 1,6 stig, +0,6 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020 og +0,3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Enn er hlýjast að tiltölu á Austfjörðum, þar er hiti í 8.hlýjasta sæti aldarinnar, en kaldast er við Faxaflóa, meðalhiti í 13.sæti á öldinni. Á einstökum veðurstöðvum er jákvæða vikið miðað við síðustu tíu ár mest á Teigarhorni, +1,0 stig, en neikvætt vik er mest á Þingvöllum, -1,4 stig.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 44,2 mm og er það um þriðjungur neðan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 32,4 mm og er það líka um tveir þriðju hlutar meðalúrkomu sömu daga.

Sólskinsstundir hafa mælst 36 í Reykjavík og er það lítillega ofan meðallags.

Þess má geta að lágmarkshiti þann 18. og 19. var á fáeinum stöðvum sá lægsti á árinu til þessa. Þar á meðal á Keflavíkurflugvelli (-8,5 stig) og í Reykjavík (-10,0 stig). Hiti í gamla mæliskýlinu í Reykjavík fór niður í -9,2 stig nú. - Mánaðarlágmörk (fyrir nóvember) voru líka slegin út á fáeinum stöðvum - en þó aðeins 3 sem athugað hafa í meir en 8 ár, Reynisfjalli (-9,4), Árnesi (-18,5) og Sámsstöðum (-12,0). Helst er óvenjulegt að loft yfir landinu var ekki tiltakanlega kalt - þó kalt væri í byggðum - ekki nema um -5 stiga frost í um 1500 metra hæð yfir Keflavík - og að tiltölu enn hlýrra ofar, þykktin um 5300 metrar sem „ætti“ að samsvara um +3 stiga hita við jörð. - Svona geta hitahvörf stundum verið - þau áttu sinn þátt í mengunartoppnum í Reykjavík fyrr í vikunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 345
  • Sl. sólarhring: 356
  • Sl. viku: 1919
  • Frá upphafi: 2350546

Annað

  • Innlit í dag: 262
  • Innlit sl. viku: 1711
  • Gestir í dag: 248
  • IP-tölur í dag: 247

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband