Tuttugu febrúardagar

Meðalhiti fyrstu 20 daga febrúarmánaðar í Reykjavík er +1,0 stig. Það er +0,3 stigum ofan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og +0,2 ofan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 14.hlýjasta sæti (af 23) á öldinni. Þessir sömu dagar voru kaldastir 2002, meðalhiti þá -2,3 stig, en hlýjastir voru þeir 2017, meðalhiti +4,1 stig. Á langa listanum raðast hitinn í 50. sæti af 151. Hlýjast var 1965, meðalhiti +4,8 stig, en kaldast 1892, meðalhiti -4,8 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti nú +1,2 stig, +1,8 stigum ofan meðallags 1991 til 2020 og +2,0 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.
 
Tiltölulega hlýjast hefur verið á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðausturlandi og á Miðhálendinu. Þar er mánuðurinn það sem af er sá 7. hlýjasti á öldinni. Kaldast að tiltölu hefur verið á Suðausturlandi þar sem hitinn er í 14. hlýjasta sæti.
 
Miðað við síðustu tíu ár hefur verið hlýjast á Sauðárkróksflugvelli. Þar er hiti +2,6 stig ofan meðallags, en kaldast hefur verið við Skarðsfjöruvita þar sem hiti er -0,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 128,6 mm, sú mesta sömu almanaksdaga á öldinni, en sú áttunda mesta frá upphafi mælinga. Síðast mældist úrkoma meiri í Reykjavík þessa sömu daga árið 1994. Á Akureyri hefur úrkoman mælst 37,0 mm og er það í meðallagi.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 22,9 í Reykjavík, 15 færri en að meðaltali. Á Akureyri hafa sólskinsstundirnar mælst 28,3.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 362
  • Sl. viku: 1831
  • Frá upphafi: 2350567

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1634
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband