Sumardagafjöldi 2022

Þá er komið að árlegri sumardagatalningu hungurdiska (þó sumarið sé ekki alveg búið). Skilgreiningu á hungurdiskasumardegi má finna í pistli [20.júní 2013] - (nokkuð frjálslegt - ekki satt - enda er þetta bara leikur). 

Almannarómur hefur nokkuð kvartað undan skorti á hlýjum dögum - nokkuð til í því ef við tökum mark á talningunni.

sumardagafjoldi_2022-rvk

Tólf dagar er talan í Reykjavík, þar af þrír í maí, fimm í júní, aðeins einn í júlí og svo þrír í ágúst. Að meðaltali bætist einn við í september. Að sumardagur sé aðeins einn í júlí hefur ekki gerst síðan 1989, en svo nokkrum sinnum áður. Árið 1983 taldist enginn sumardagur í júlí og aðeins einn allt sumarið. 

Sumardagafjöldinn í ár, tólf, er svipaður og algengt var á unglingsárum ritstjóra hungurdiska og fram á fyrstu ár hans á Veðurstofunni. Honum hefur því í sumar fundist hann eiginlega „kominn heim“ - harla ánægður. Yngra fólk, sérstaklega það sem er undir fertugu og þaðan af yngra man auðvitað miklu betri sumur. Meðalfjöldi þessarar aldar er þannig 31 og meðaltal allra 74 áranna sem hér er litið til er 20. Á öldinni keppir sumrið nú við 2013 og 2018 í sumardagarýrð, enn einum degi rýrari en þessi sumur, en ekki er ólíklegt að september hali inn einhverja daga, þarf tvo til að vera ekki á botninum. Sumardagar hafa flestir orðið 11 í september, það var 1958 - ef það gerðist nú færi fjöldinn upp í 23, yfir langa meðaltalið. Einn sumardagur finnst í október, 1958 líka. 

Ritstjórinn notar sömu skilgreiningu fyrir Akureyri líka. Það er e.t.v. vafasamt, en allt í lagi sé um leik að ræða. Gallinn er helst sá að þar finnst einn „sumardagur“ í desember og einn í mars - heldur vafasamt. En það spillir samt ekki heildartölum að ráði.

sumardagafjoldi_2022-ak

Hér tökum við eftir því að ekki er jafn mikill munur á meðaltölunum tveimur og í Reykjavík, en að meðaltali hafa sumardagar á Akureyri þó verið 7 fleiri á ári á þessari öld heldur en að meðaltali allt tímabilið. Það sem virðist hafa gerst er að rýrum sumrum hefur fækkað, en bestu sumrin eru svipuð, þar til í fyrra að segja (2021). Það sumar nánast sprengdi kvarðann sem hér er notaður, 80 sumardagar, 16 fleiri en flestir höfðu orðið áður. 

Í ár eru sumardagar á Akureyri orðnir 36 þegar þetta er skrifað (1. september), 11 færri en að meðaltali það sem af er þessari öld. En að meðaltali eru 5 sumardagar ókomnir á Akureyri 1. september. Því er ekki ótrúlegt að einhverjir bætist við. Flestir urðu sumardagarnir í september á Akureyri árið 1996, 16 talsins - og 14 í september 1958 þegar þeir urðu flestir í Reykjavík. 

Síðan er „sumareinkunn“ hungurdiska - ritstjórinn reiknar hana eftir að Veðurstofan hefur reiknað meðalhita, úrkomusummu og talið úrkomudaga og sólskinsstundir bæði í Reykjavík og á Akureyri. Ekki er fullvíst að hún segi nákvæmlega sömu sögu (en það kemur í ljós). 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Hefði verið gaman að sjá aftur til 1920. Er það ekki til ?

Haukur Árnason, 1.9.2022 kl. 23:29

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Þessi talning er aðeins til aftur til 1949 (það væri hægt að kreista út lengra aftur - en það krefst töluverðrar vinnu). Sumareinkunnin sem ég birti vonandi á morgun eða laugardaginn nær hins vegar aftur til 1921. Þessum tveimur vísitölum ber ekki alltaf saman. 

Trausti Jónsson, 1.9.2022 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • w-blogg300325a
  • w-2008-hitabylgja-rvk-linurit
  • Slide13
  • w-2008-hitabylgja-rvk-linurit
  • tx rvk 300708 arason i08m afrit

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.3.): 84
  • Sl. sólarhring: 357
  • Sl. viku: 1616
  • Frá upphafi: 2457171

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 1478
  • Gestir í dag: 69
  • IP-tölur í dag: 68

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband