Alþjóðasumarið 2022

Við lítum hér á meðalhita í byggðum landsins mánuðina júní til ágúst 2022, það er sumartímabil Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar. Veðurstofan telur september hins vegar með sumrinu. Meðalhiti þess er 9,5 stig. Það er 0,4 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára og 0,2 stigum neðan meðallags 1991 til 2020. 

w-blogg310822a

Á línuritinu má sjá meðalhita aftur til 1823, en við tökum lítið mark á fyrstu 50 árunum. Þó er ábyggilega rétt að heldur hlýrra var fyrir 1860 heldur en næstu áratugi þar á eftir. Súlurnar á myndinni sýna hita einstakra alþjóðasumra, en breiðari línur eru 10-ára keðjumeðaltöl. Eftir sumarkuldana á síðari hluta 19. aldar hlýnaði talsvert um 1890 og svo aftur og meira um og eftir 1925. Sumarhlýindi náðu hámarki á fjórða áratugnum en fór síðan kólnandi, sérstaklega kalt var fram yfir 1985, en þá fór að hlýna. Fyrst hægt en síðan meira. Hámarki náðu hlýindin nýju fyrir 10 til 15 árum. 

Árið í ár sker sig ekki sérstaklega úr, það er hlýrra heldur en flest sumur áranna 1961 til 2002. Meðaltal síðustu 10 sumra er hærra heldur en öll tíu ára meðaltöl á fyrra hlýskeiði (hvað sem síðar verður). Sumarið í fyrra (2021) var sérlega hlýtt, +1,0 stigi hlýrra heldur en næstu tíu sumur á undan. Við sjáum í raun ekkert lát á sumarhlýindum - þó ekki hafi bætt í þau undanfarin 15 ár. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 411
  • Sl. sólarhring: 425
  • Sl. viku: 1727
  • Frá upphafi: 2350196

Annað

  • Innlit í dag: 371
  • Innlit sl. viku: 1574
  • Gestir í dag: 361
  • IP-tölur í dag: 349

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband