Fyrstu 10 dagar aprílmánaðar

Vel hefur farið með veður fyrstu tíu daga aprílmánaðar. Þeir hafa þó verið fremur svalir (á mælikvarða síðustu ára). Meðalhiti í Reykjavík er 1,6 stig, -1,0 stig neðan meðallags sömu daga 1991 til 2020 og -1,2 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Hitinn raðast í 15. hlýjasta sæti (af 22) á öldinni. Hlýjastir voru þessir sömu dagar 2014, meðalhiti þá 6,0 stig, en kaldastir voru þeir í fyrra, meðalhiti -0,9 stig. Á langa listanum raðast hitinn nú í 85. sæti (af 150). Hlýjast var 1926, meðalhiti þá 6,6 stig, en kaldast 1886, meðalhiti -4,4 stig.
 
Á Akureyri er meðalhiti daganna tíu -0,3 stig, -1,5 neðan meðallags 1991 til 2020 og -1,4 stig neðan meðallags síðustu tíu ára.
 
Einna kaldast hefur verið á Austfjörðum, þar er hitinn í 19. hlýjasta sæti (fjórðakaldasta) á öldinni, en annars raðast hitinn á spásvæðunum í 14. til 17. sæti. Hiti er neðan meðallags síðustu tíu ára á öllum stöðvum, minnst á Reykjanesbraut, -0,5 stig, en mest á Vatnsskarði eystra, -2,7 stig.
 
Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 49,8 mm, um tvöföld meðalúrkoma (mest féll hún á einum sólarhring), en 11,0 mm á Akureyri og er það nærri meðallagi.
 
Sólskinsstundir hafa mælst 56,8 í Reykjavík. Það er í rétt rúmu meðallagi, en 21,4 stundir á Akureyri og er það nokkuð neðan meðallags.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 268
  • Sl. viku: 1631
  • Frá upphafi: 2349591

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 1478
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband