Af sumri

Í kvöld (fimmtudag 30.september) lýkur veđurstofusumrinu. Ţađ nćr sem kunnugt er til mánađanna júní til september. Byrjađi og endađi kuldalega, var sérlega sólarlítiđ suđvestanlands en sólríkt á Norđur- og Austurlandi. Í hátt í ţrjá mánuđi var hiti í hćstu hćđum á Norđaustur- og Austurlandi. Líka var nokkuđ hlýtt suđvestanlands, en sólarleysi ţótti spilla fyrir. Lengi vel var ţurrt á landinu, furđuţurrt á Suđvesturlandi - en ađ lokum fór ađ rigna verulega ţar um slóđir og loksins líka fyrir norđan og austan. 

w-blogg300921a

Myndin sýnir reiknađan međalhita í byggđum landsins. Fyrstu 50 árin má telja afskaplega ágiskanakennd, en síđan vex áreiđanleiki međaltalsins smám saman. Á ţessu tímabili hafs sumur ađ međaltali hlýnađ um 0,8 stig á öld - en slík leitni hverfur nokkuđ í stórar fjöláratugasveiflur. Sumur hafa á ţessari öld veriđ um 1,2 stigum hlýrri heldur en á tuttuguáratímabilinu 1966 til 1985. Köld sumur á ţessari öld eru ámóta ađ hitafari og ţau hlýju voru á kalda skeiđinu. Fyrir ţann tíma höfđu sumur fariđ kólnandi í 20 ár - nćrri ţví eins mikiđ og síđar hlýnađi. En nýliđiđ sumar (2021) er ţó í hópi ţeirra 10 hlýjustu á tímabilinu öllu. Hvađ skyldi svo gerast nćstu 50 árin? Ekki ţarf ađ kólna mikiđ til ţess ađ yngri kynslóđinni ţyki öll sumur köld. Langtímaleitnin getur líka haldiđ sínu striki - eđa bćtt í. 

w-blogg300921b

Nćsta mynd sýnir hundrađ sumur í Reykjavík. Sólskinsstundafjöldi er markađur á lárétta ásinn, en hiti á ţann lóđrétta. Viđ sjáum ekkert samband á milli ţessara tveggja veđurţátta. Hvor um sig veit lítiđ af hinum. Lengst niđri til vinstri er óţverrasumariđ 1983 - bćđi skítkalt og sólarlaust, almennt talinn botninn í sumargćđum. Ţar ađ auki var oft hvassviđrasamt. Nýliđiđ sumar 2021 keppir viđ 1983 í sólarleysi, ekki marktćkur munur, en talan í ár sem virđist ćtla ađ verđa 414,9 stundir er sjónarmun lćgri heldur en sólarsumma sumarsins 1983, hún var 415,7 stundir. Viđ eigum reyndar tvö eldri sumur á lager međ enn fćrri stundum, 1913 og 1914, fyrra sumariđ frćgt ađ endemum fyrir rigningar og illviđri, hiđ síđara verst framan af. Sólskinsstundamćlingar voru gerđar á Vífilsstöđum ţessi sumur - varla ţó ástćđa til ađ gera ráđ fyrir teljandi mun.

Sumariđ í sumar, 2021, fellur í flokk fremur hlýrra (ekki mjög hlýrra ţó) sólarleysissumra. Rigningasumrin frćgu, 1955 og 1947 eru ekki mjög langt undan. Efst til hćgri eru sólrík og hlý sumur. Ţar er 2019 - (sem allir muna - er ţađ ekki?) og mörg önnur á ţessari öld. Síđasti fjórđungurinn er síđan ţau sumur sem eru bćđi sólrík og köld. Dćmi um slíkt er 1924 og 1929 - harla fáir sem muna slíkt - og ţeim fer meira ađ segja ört fćkkandi sem muna sumariđ 1952 - ritstjóri hungurdiska ţekkir ţađ ađeins af afspurn (skítasumar eystra), en man ágćtlega bćđi 1974 og 1985. Ţau síđastnefndu fengu ólíka einkunn. Vel er talađ um sumariđ 1974 um mestallt land og ég held ađ 1985 hafi ţótt nokkuđ gott í Reykjavík (eftir međ ólíkindum langa syrpu af hraksumrum nćst á undan). Ţađ sumar var hins vegar ekki hagstćtt eystra. 

Ţann 2.október 2019 birtist hér á hungurdiskum pistill međ yfirskriftinni „Sumarsól á Austurlandi“. Sólskinsstundafjöldi hefur ekki veriđ mćldur eystra nú um langa hríđ en í pistlinum var gerđ tilraun til ađ giska á hver hann hefđi veriđ. Hér ađ neđan er gerđ tilraun til ađ bćta tveimur sumrum viđ. Ađferđin sem notuđ er er auđvitađ vafasöm og eins og ađrar slíkar finnur hún trauđla ystu mörk - allflestar einfaldar tölfrćđiađferđir bćla breytileika (nema gerđar séu sérstakar ráđstafanir til ađ halda honum). Lesa má um ađferđina í pistlinum frá 2019 og hún ekki frekar skýrđ eđa varin hér. 

w-blogg300921c

Hér er giskađ á ađ sumariđ 2021 sé í hópi ţeirra sólríkustu - ámóta og 2012 og 2004. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 160
  • Sl. viku: 1751
  • Frá upphafi: 2348629

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1532
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband