Smávegis af illviđri - og sólarleysi

Vindur í illviđri gćrdagsins (ţ.28.september) komst yfir 20 m/s á 28 prósentum veđurstöđva í byggđ. Veđriđ í síđustu viku náđi hins vegar 34 prósentum. Međalvindhrađi á öllum stöđvum í byggđ var 9,8 m/s, en var 8,8 m/s í veđrinu í síđustu viku (ţetta eru bráđabirgđatölur). Ársmet vindhrađa (10-mínútna međaltal) var slegiđ í Botni í Súgandafirđi, ţar er sjaldan hvasst. Vindur fór ţar í 22,6 m/s, en hviđa í 39,7 m/s, vindátt var af vestnorđvestri (310 gráđur). Ekki hefur veriđ athugađ ţar nema í 9 ár. Septembermet voru slegin á fáeinum stöđvum ţar sem athugađ hefur veriđ í meir en 20 ár. Ţar má nefna Bolungarvík, Súđavík, Hólasand, Möđrudalsörćfi, Víkurskarđ, Steingrímsfjarđarheiđi, Kleifaheiđi, Ennisháls og Fróđárheiđi. Viđ rifjum upp ađ septembermet voru einnig sett í síđustu viku, en ţá fyrst og fremst um landiđ sunnanvert. Veđur sem ţessi eru ekki algeng í september, en margir muna ţó vel hretin miklu ţann 10.september 2012 og 15. september 2013. Sömuleiđis gerđi ámóta hret ţann 21. september 2003 og (heldur minna) 9. september 1999. Slćm norđanhret má einnig finna rétt handan mánađamótanna, t.d. ţann 4. og 5. október 2004.

Kuldinn síđustu daga hefur dregiđ međalhita mánađarins mjög niđur og er hann sitt hvoru megin međallags aldarinnar - svalari ađ tiltölu vestanlands heldur en fyrir austan. Úrkoma er rífleg víđast hvar. Sólarleysi er óvenjulegt í Reykjavík. Ţetta verđur ţar trúlega einn af fimm sólarlausustu septembermánuđum síđustu 100 ára - sem stendur eru fjórir mánuđir neđar á listanum (2 dagar eftir). Ţetta eru 1912, 1921, 1943 og 1996. Sá síđasttaldi átti góđan endasprett - sem er erfitt ađ eiga viđ. September 1943 verđur neđar en september nú - mćlingarnar í september 1921 eru nćr örugglega gallađar - og teljast ţví ekki međ í keppninni. Ţćr virđast hins vegar í lagi 1912 - og sólskinsstundafjöldi í ţeim mánuđi minni en nú. Sumariđ í í heild er sólarrýrt í Reykjavík, raunar ţađ sólarrýrasta í meir en 100 ár. Ţađ eru ađeins 1913 og 1914 sem eru svipuđ. Ţetta er líka í fyrsta skipti sem sólskinsstundir vorsins (mánuđirnir tveir, apríl og maí) eru fleiri heldur en sumarsins (mánuđirnir fjórir, júní til september). Afskaplega óvenjulegt svo ekki sé meira sagt.

Ţađ var í september 1963 sem ritstjóri hungurdiska fyrst heyrđi orđiđ „haustkálfur“ notađ um hret snemma hausts. Mjög slćmt hríđarkast gerđi ţá í göngum og réttum í kringum jafndćgrin. Sögđu menn ţađ bođa góđan vetur - sumir til jóla - en ađrir allan veturinn. Svo fór ađ veđurlag varđ heldur hryssingslegt áfram allt fram til jólaföstu, en síđan tók viđ einn sá besti og blíđasti vetur sem ritstjórinn hefur enn lifađ. Ţótti honum sem mark vćri kannski takandi á haustkálfatalinu. En síđan eru liđin mörg haust og ekki ćtíđ á spár af ţessu tagi ađ treysta. 

w-blogg290921v-a

Hér eru til gamans tvćr blađaúrklippur af timarit.is. Sú eldri úr sunnudagsblađi Vísis 1937 ţar sem minnst er á haustkálfatrúna, en hin úr löngum pistli Gísla Sigurđssonar í Lesbók Morgunblađsins í október 1969. Ţar fjallar hann um ýmislegt tengt rigningasumrinu mikla 1969 sem - eins og hér hefur veriđ minnst á - endađi međ hríđarbyl í Reykjavík og víđar um land síđustu dagana í september. - Texti myndarinnar verđur lćsilegri sé hún stćkkuđ.  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Árnason

Ţú nefnir ekki hríđarskotiđ 1968. Lentum ţá í miklum hremmingum norđan Hofsjökuls á leiđ í Laugafell.

"Mbl,   1. okt. 1968. (  fyrsti haustsnjórinn féll um helgina )

Blönduósi, 30. sept. EFTIR langvarandi góđviđri brast á norđan óveđur um miđjan dag á laugardag. Skipti ţá engum togum ađ jörđ varđ grá niđur ađ sjó. Vindur var hvass af norđaustri og stórsjór. Í allan gćrdag var hiđ versta veđur í norđur hluta sýslunnar, en betra frammi í dölunum, ađ minnsta kosti fyrri hluta dagsins. Um tvö leytiđ kom bíll ađ sunnan til Blönduóss. Hann fékk sćmilegt veđur og fćri, nema síđasta spölinn. Eftir ţađ voru bílar ađ koma hingađ langt fram á kvöld og höfđu allir tafizt mikiđ vegna vatnsviđris, hríđar og hálku.

Haukur Árnason, 30.9.2021 kl. 13:17

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Var reyndar búinn ađ nefna hríđina 1968 í öđru samhengi - enda lenti ég í henni sjálfur - ţurfti eimnitt ađ gista á Blönduósi á leiđ norđur. 

Trausti Jónsson, 30.9.2021 kl. 15:00

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 364
  • Sl. viku: 1837
  • Frá upphafi: 2350573

Annađ

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1640
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband