Nćtursvali

Hitinn er fljótur ađ falla á nóttunni í heiđskíru veđri - sérstaklega yfir ţurru landi. Frost er allalgengt viđ jörđ í júlímánuđi - jafnvel um landiđ sunnanvert, en ekki á hitamćlum í stađalhćđ, 2 metra frá jörđ. Frost hefur ţannig aldrei mćlst í hitamćlaskýli í Reykjavík í júlí. Lćgsti lágmarkshiti sem viđ vitum um í júlí á veđurstöđinni í Reykjavík er 1,4 stig - sem mćldust viđ flugvöllinn ađfaranótt ţess 25. áriđ 1963. Viđ vitum hins vegar af frosti í júlí í nágrenninu, ţann 18.júlí 1983 mćldist frostiđ -1,7 stig á Hólmi fyrir ofan Reykjavík, og -0,3 stig á Korpu ţann 25.júlí 2009. Síđastiđna nótt fór frostiđ -2,1 stig á stöđ Vegagerđarinnar viđ Sandskeiđ, ţađ er ţá nýtt lágmarksmet fyrir höfuđborgarsvćđiđ í júlí. Sandskeiđsstöđin hefur veriđ á ţessum stađ frá 2012 - hún hitti nćturnar köldu áriđ 2009 ekki (ţegar kaldast varđ á Korpu). 

En eins og áđur sagđi getur orđiđ mun kaldara niđur viđ jörđ. Lćgsta lágmarks viđ jörđ sem viđ vitum um í Reykjavík er -5,9 stig, 8.júlí 1985 og -10,8 stig viđ Korpu 25,júlí 2009. Nćturfrostin seint í júlí 2009 voru mjög óvenjuleg og ollu miklu tjóni víđa í garđlöndum. 

w-blogg200720a

Kortiđ sýnir hćđ 500 hPa-flatarins (heildregnar línur) og ţykktina (litir) ţann 25.júlí 2009. Ţetta er mjög óvenjuleg stađa. Ţađ er rétt sárasjaldan ađ blái ţykktarliturinn (<5280 metrar) nćr inn á land í júlímánuđi - eins og hér, ávísun á nćturfrost mjög víđa. 

Ţó met hafi veriđ sett á Sandskeiđi hafa júlílágmarksmet ekki falliđ víđa ţessa dagana - ekkert á viđ ţađ sem gerđist 2009. [Féllu reyndar fáein norđaustanlands fyrstu daga mánađarins]. En ţessum köldu nóttum er ekki lokiđ. Viđ erum enn inni í kalda loftinu og verđum ţađ víst nćstu daga - ef trúa má spám. Met gćtu ţví enn falliđ - og gera ţađ sjálfsagt á fjölmörgum stöđvum. 

Viđ getum (kannski til samanburđar viđ kortiđ hér ađ ofan) litiđ á spákort evrópureiknimiđstöđvarinnar sem gildir á fimmtudaginn (23.júlí).

w-blogg200720b

Kuldapollurinn er mjög gerđarlegur - kannski leynist örlítill blár blettur ţarna einhvers stađar rétt austur af Scoresbysundi. Ţykktin yfir Suđvesturlandi nálgast ţó gula litinn - fulltrúa sumarsins - en er ekki nema um 5340 metrar á útnesjum norđaustanlands. Reynslan sýnir ađ nćturfrostahćtta vex mjög fari ţykktin niđur fyrir 5340 metra - sé veđur jafnframt bjart og vindur hćgur. 

Hér má í framhjáhlaupi líka minnast á ađ í illviđrinu um helgina féllu líka nokkur vindhrađamet á stöđvunum. Finna má lista yfir ný met (á stöđvum sem athugađ hafa í 10 ár eđa lengur) í viđhenginu.

Međalhiti fyrstu 20 daga mánađarins er 10,7 stig í Reykjavík, -0,7 stigum neđan međallags áranna 1991 til 2020 og -0,9 stigum neđan međallags sömu daga síđustu tíu árin. Hitinn rađast ţví í 17.hlýjasta sćti (af 20) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar áriđ 2009, međalhiti ţá var 13,5 stig, en kaldastir voru ţeir ári 2018, međalhiti 9,9 stig. Á langa listanum er hitinn í 78.sćti (af 146). Á honum er 2009 líka í hlýjasta sćtinu, en kaldastir voru ţessir dagar áriđ 1885, međalhiti 8,2 stig.

Á Akureyri er međalhiti dagana 20 nú 10,3 stig, -0,6 stigum neđan međallags bćđi 1991 til 2020 og síđustu tíu ára.

Ađ tiltölu hefur veriđ hlýjast á Suđausturlandi, hiti ţar er í 5.hlýjasta sćti aldarinnar, en kaldast hefur veriđ á Norđurlandi eystra, ţar er hitinn í 18.hlýjasta sćtinu.

Á einstökum veđurstöđvum er jákvćtt vik mest á Skarđsfjöruvita, +0,8 stig miđađ viđ síđustu tíu ár, en kaldast ađ tiltölu hefur veriđ í Oddskarđi, ţar er hiti -1,3 stig undir međallagi.

Úrkoma hefur mćlst 41,4 mm í Reykjavík og er ţađ í ríflegu međallagi. Á Akureyri hefur úrkoman mćlst 30,4 mm og er ţađ nokkuđ yfir međallagi.

Sólskinsstundir hafa mćlst 125,9 ţađ sem af er mánuđi í Reykjavík og er ţađ í rétt rúmu međallagi.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 25
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 516
  • Frá upphafi: 2343278

Annađ

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 468
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband