Smávegis af hlýindunum

Eins og áður er fram komið á þessum vettvangi hefur verið óvenjuhlýtt á landinu síðustu vikuna. Að tiltölu varð hlýjast í gær (fimmtudag). Þá var sett landsdægurhitamet á Bláfeldi í Staðarsveit, hámarkshitinn þar mældist 20,0 stig. Eldra met dagsins var orðið mjög gamalt, 19,3 stig sem mældust á Akureyri 1898. Reyndar lá þessi dagur vel við höggi hvað landsdægurmet varðar því met daganna á undan og eftir eru bæði yfir 20 stigum. Nú eru aðeins tveir septemberdagar eftir með landsdægurhámarksmet undir 20 stigum. Það er sá 18, hæsta tala hans til þessa er 19,8 stig sem mældust í Ásbyrgi fyrir tveimur árum og sá 30., hæsta tala hans eru 19,6 stig sem mældust í Skaftafelli árið 2011. 

Í gær (fimmtudag) varð hlýjast að tiltölu um landið suðvestanvert. Á Þingvöllum var sólarhringsmeðalhitinn 8,0 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára og 7,0 stigum ofan þess í Reykjavík. Eins og undanfarna daga féll aragrúi staðbundinna dægurmeta víðs vegar um landið. 

Hámarkshiti í Reykjavík fór í 18,5 stig. Það er hæsti hiti sem mælst hefur í höfuðborginni svo seint að sumri. Við þurfum að bakka til 11.september til að finna jafnháan hita. Hann mældist 1968, daginn áður 10.september 1968 var hámarkið einnig 18,5 stig. Muna sumir þá góðu daga enn í dag. Til að finna hærri hita þarf að fara aftur til 3.september, 20,1 stig sem mældust 1939. Um þá hitabylgju var fjallað hér á hungurdiskum snemma í þessum mánuði. Dægurmet féll líka í Reykjavík í dag (föstudag), þegar þetta er skrifað hafði hitinn farið í 16,3 stig, bætir gamla metið frá 1958 um 1,9 stig. Í mikilli hlýindasyrpu í september 1958 mældist hámarkshiti þann 30. 16,9 stig. 

Meðalhiti fellur mjög í september. Sú spurning vaknar því hvort 18,5 stig þann 26. sé „betri árangur“ heldur en 20,1 stig þann 3. Við getum velt vöngum yfir því með því að líta á vik frá meðallagi. Við skulum þó ekki miða við hámarkshitann í þeim samanburði, heldur sólarhringsmeðalhitann. Sólarhringsmeðalhitinn í Reykjavík í gær var 15,0 stig. Það er auðvitað einstakt á þessum tíma árs og er þriðjihæsti sólarhringshiti nokkru sinni í september öllum. Dagarnir 3. og 2. september 1939 voru lítillega hlýrri, og 1.september sama ár jafnhlýr.  

Hér verður ekki miðað við síðustu 10 ár heldur meðaltal 80 ára (1931-2010). Það meðaltal er ekki eins órólegt frá degi til dags eins og þau sem miða við styttri tíma, t.d. 10 ár. Hitavik dagsins í gær er 8,0 stig í Reykjavík á þeim kvarða. Það er mun meira en við vitum um aðra daga í september, næstmest var það þann 28. árið 1958, 7,0 stig. 

En breytileiki hitans fer vaxandi þegar líður á september. Almennar líkur á stórum vikum eru því heldur meiri í síðari hluta mánaðarins heldur en í fyrri hlutanum. Við getum því einnig litið á staðalvik sólarhringsmeðalhitans sem samkeppnisviðmið. Þá lendir dagurinn í gær (fimmtudagur 26.) í öðru sæti, staðalvik hans er 3,1 stig. Það er 3.september 1939 sem er í fyrsta sætinu, 3,2 staðalvik ofan meðallags. Munurinn er sannarlega ómarktækur. 

Líkurnar á hita sem þessum eru auðvitað ekki miklar. Sama var sagt um hitana í apríllok í vor. Þá mældist hiti hærri í Reykjavík heldur en nokkru sinni í þeim mánuði - hafði sum sé aldrei mælst hærri svo snemma vors. Það er merkilegt að fá met af þessu tagi í báðu megin sumars sama árið - og þar að auki á sama sumri hæsta mánaðarmeðalhita nokkru sinni hér í Reykjavík (það var í júlí eins og flestir ættu að muna). 

Lengi framan af var þessi mánuður í hópi þeirra köldustu á öldinni (ekki þó eins kaldur væri miðað við lengri tíma). Hann hefur síðustu vikuna hækkað mjög á samanburðarlistum og er nú á landsvísu kominn upp fyrir meðallag. Í Reykjavík er hann í sjöttahlýjasta sæti á öldinni - og gæti enn lent ofar, meðalhiti það sem af er er 9,8 stig - mánaðarmet er þó algjörlega utan seilingar úr því sem komið er. Rétt hugsanlegt er að meðalhiti mánaðarins nái 10 stigum - það hefur aðeins gerst 6 sinnum áður í Reykjavík, síðast 2010. Líklega verða næstu nætur þó talsvert kaldari en þær síðustu átta, þannig að ekki er útséð með lokatöluna.

Ellefustigasumar virðist hins vegar vera staðreynd - þau eru ekki mörg í gegnum tíðina í Reykjavík. Sólskinsstundafjöldi í september í Reykjavík hangir í meðallagi - en þó er ljóst að sumarið verður í hópi þeirra sólríkustu.

September hefur verið sérlega úrkomusamur um landið vestanvert, í Reykjavik er úrkoman í 6.sæti frá upphafi mælinga og á allmörgum stöðvum hefur hún mælst sú mesta sem vitað er um í september. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhallur Pálsson

Ég bíð eftir því að sjá hver meðalhiti septembermánaðar verður á Egilsstaðaflugvelli, en það er sú veðurstöð sem ég fylgist mest með.
Úr því að apríl þetta árið var mun hlýrri en maí kæmi mér ekki á óvart þó september verði hlýrri en ágúst !
Það er engu líkara en einhver sé að rugla röðinni á blöðunum í almanakinu.

Þórhallur Pálsson, 27.9.2019 kl. 16:24

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Meðalhitinn á Egilssstöðum stendur nú í 8,6 stigum, þannig að smávegis vantar upp á meðaltal ágústmánaðar þessa árs (9,0 stig). Eins og spáin er núna er ekki líklegt að af því verði. Það hefur gerst fjórum sinnum að september hefur verið hlýrri en ágúst á Egilsstöðum (frá 1955), 1958, 1996, 2014 og 2017. 

Trausti Jónsson, 27.9.2019 kl. 16:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5
  • Slide4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 40
  • Sl. sólarhring: 136
  • Sl. viku: 1664
  • Frá upphafi: 2349624

Annað

  • Innlit í dag: 35
  • Innlit sl. viku: 1506
  • Gestir í dag: 35
  • IP-tölur í dag: 34

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband