Sumareinkunn Akureyrar 2019 (og fleira)

Í síđasta pistli litum viđ á „sumareinkunn“ Reykjavíkur. Nú lítum viđ til Akureyrar en ađ ţví loknu teljum viđ „sumardaga“ á báđum stöđum.

w-blogg020919a

Hér má sjá ađ sumariđ 2019 kemur heldur laklega út á Akureyri - eins og reyndar öll sumur frá 2015 ađ telja. Ástćđan er trúlega sú ađ úrkoma hefur af einhverjum ástćđum veriđ meiri á Akureyri hin síđari ár heldur en áđur - hugsanlega er ţađ raunverulegt, en hugsanlega hafa mćliađstćđur eitthvađ breyst. Úrkoman vegur mjög ţungt í einkunnagjöfinni. 

Ritstjóri hungurdiska hefur einnig taliđ „sumardaga“. Sumariđ er reyndar ekki búiđ og í september er ađ međaltali einn sumardagur í Reykjavík, en 4 til 5 á Akureyri - hafa veriđ flestir 12 í Reykjavík eftir 1. september, en 16 á Akureyri. Talningin nćr aftur til 1949.

w-blogg020919b

Í Reykjavík er heildarmyndin svipuđ og sumareinkunnin sýndi, sumardagar hafa veriđ mun fleiri á ţessari öld en venjan var á kalda tímabilinu nćst á undan, hálfgerđ eyđimörk frá og međ 1961 til og međ 1986, en frá og međ 2003. Síđan hafa ađeins komiđ tvö sumur í gömlum stíl, 2013 og 2018. 

w-blogg020919c

Ekki er alveg jafn gott samrćmi á milli sumardagafjölda og sumareinkunnar á Akureyri og eru síđustu sumur í góđu međallagi hvađ dagafjöldann varđar - nema ţá 2015. Sumariđ 2019 hefur alls ekki veriđ glórulaust viđ Eyjafjörđ á sama hátt og ţau hraksumur sem merkt eru sérstaklega á myndinni. Flestir voru sumardagarnir á Akureyri sumrin 1955 og 1976. Sumardagar eru fleiri á Akureyri á ţessari öld en var ađ jafnađi áđur - munurinn er bara ekki eins mikill og í Reykjavík. 

Ţetta sést vel á nćstu mynd.

w-blogg020919d

Hér má sjá 10-árakeđjur sumardagafjölda á stöđunum tveimur. Fjöldi ţeirra hefur nánast tvöfaldast í Reykjavík frá ţví sem áđur var venjulegt, en aukningin á Akureyri er „ađeins“ í kringum 30 prósent. Hlýindin sem ríkt hafa frá og međ 2003 ráđa hér mestu. Sumardagafjöldi hefur á ţessari öld veriđ svipađur og var ađ međaltali á Akureyri áđur fyrr - en fjöldinn á Akureyri hefur aukist nćgilega ţannig ađ enn er marktćkur munur á međalfjöldanum. 

Ţađ gerist ekki oft ađ sumardagar árs eru fleiri í Reykjavík heldur en á Akureyri, viđ getum taliđ ţau tilvik upp: 1950, 1958, 2011 og 2015. Sumardagar eru ţađ sem af er ţessu ári tveimur fleiri á Akureyri heldur en í Reykjavík, mestu munar um stöđuna í vor. Í apríl og maí voru 12 sumardagar á Akureyri, en ađeins 1 í Reykjavík, sá raunar í apríl, í eina skipti sem slíkt hefur gerst á ţví tímabili sem hér er til skođunar. 

Hvort ţetta gćđaástand varir er svo allt annađ mál og rétt ađ reikna ekki međ ađ svo verđi, en ţakka bara fyrir góđa tíđ svo lengi sem hún endist. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 43
  • Sl. sólarhring: 76
  • Sl. viku: 441
  • Frá upphafi: 2343354

Annađ

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 396
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband