Haustlægð?

Hugtakið „haustlægð“ virðist farið að skjóta rótum í málinu - og sennilega lítið við því að segja. Ritstjóra hungurdiska virðist það samt nokkuð frjálslega notað - án þess hann hafi hugmynd um það hvernig öguð og nákvæm notkun eigi að vera - og víst er að ekki hefur hann neitt boðvald í þeim efnum. Svo frjálslega virðist vera farið með hugtakið að það nær nú yfir allan strekking og rigningu sem á sér stað á þeim tíma árs þegar rökkva fer á kvöldin - nú jafnvel hvassviðri og rigningu á miðju sumri - hefur meira að segja sést í júní - áður en sumrið er eiginlega byrjað. En ekki tjáir að kveina yfir því.

Haustið er sennilega fyrr á ferðinni á síðari árum í huga fólks heldur en var áður fyrr - breyttir þjóðfélagshættir ráða þar sjálfsagt mestu. Síðari hluti sumarsins hefur hlýnað - eins og flestir aðrir tímar ársins, en breytingar hafa hins vegar ekki orðið á vendipunktum veðrakerfisins - hiti fer óhjákvæmilega að falla frá og með 10.ágúst eða þar um bil (nokkur áraskipti að sjálfsögðu), vestanvindar veðrahvolfsins eru sem fyrr í lágmarki um 10.ágúst - en aukast að styrk eftir það - og austanvindur dettur niður í heiðhvolfinu upp úr 20.ágúst. Og sólstöður og jafndægur eru auðvitað allaf (nánast) á sama tíma (almanakið er þannig gert - útbúið hefur verið hlaupárakerfi sem sér um að sólstöður reki ekki út og suður um almanaksárið). 

Að sögn kom „haustlægð“ að landinu í dag - ekki var samt sérlega hvasst - meðalvindhraði sólarhringsins ekki nema 5,3 m/s - minna en marga aðra daga í mánuðinum og hæsta klukkustundargildi 8,1 m/s. Og ekki var einhver kuldagjóstur á ferð - síður en svo - þó hæsta hámark dagsins á landinu væri hið næstlægsta í mánuðinum hingað til. Að einu leyti má þó e.t.v. tala um haustboða - lægðin var dýpri en algengt er yfir hásumarið og þrýstifall (milli sólarhringa) sömuleiðis í meira lagi - bæði atriði þó langt frá ágústmetum. Þrýstifallið var rúm 25 hPa milli sólarhringa - gerist ekki nema á um 10 ára fresti í ágúst að þrýstingur breytist svo ört. 

Þegar þetta er ritað er lægsta þrýstingi sem fylgir lægðinni (á veðurstöð) sennilega ekki náð, en spár gera ráð fyrir því að hann fari niður í um 976-978 hPa á morgun (mánudag). Það gerist að meðaltali á um 10 ára fresti að þrýstingur fari niður í 976 hPa eða neðar í ágúst. Sennilega er tíðnin þó aðeins meiri vegna þess að á fyrri tíð voru athuganir mun gisnari bæði í tíma og rúmi heldur en nú er og líkur á að missa af mjög lágum gildum voru því mun meiri á árum áður. 

Munur á hæsta og lægsta þrýstingi á landinu (á sama tíma) segir talsvert um vindhraða. Mesti munur (þrýstispönn) í lægðinni í dag var tæp 18 hPa. Það er nokkuð drjúgt, en samt talsvert algengara heldur sú tíðni sem nefnd var að ofan (þrýstifall og lágþrýstingur).

Hvort við getum minnst á haust í sambandi við hita lægðarloftsins vitum við ekki enn. Dæmi eru um að nokkuð kalt norðanloft hafi fylgt í kjölfar ámóta lægða - jafnvel svo að eitthvað sem við getum kallað raunverulegt haust hafi tekið við. 

Við skulum nota tækifærið og líta á nokkrar (sjaldséðar) metatölur ágústmánaðar. Tölurnar verðs læsilegri séu þær stækkaðar (eins og hefðbundnar myndir). 

w-blogg260819a

Við sjáum að sjaldgæft er að þrýstingur fari neðar en 970 hPa í ágúst. Á listum yfir storma skorar 27.ágúst 1933 mjög hátt. Þá gekk mikið landsynningsveður yfir landið með töluverðu foktjóni. Í lægðinni 1927 voru leifar fellibyls sunnan úr höfum. 

w-blogg260819b

Veðrið í ágúst 1971 var raunverulegt haustveður með fannkomu fjársköðum og ísingu á rafmagns- og símalínum norðaustanlands. Lægðin sem olli veðrinu 1955 var kannski enn dýpri en sú 1927 - en var farin að grynnast nokkuð þegar hún gekk yfir landið. Hún olli heyfoki og hárri sjávarstöðu. Nokkuð foktjón varð í veðrinu 2008 - það var slæmur landsynningshvellur. Veðrið 1950 er það sama og olli skriðuföllunum mannskæðu á Seyðisfirði. Veðrið 1974 olli líka skriðum eystra - og ófærð á fjallvegum - kannski alvöru haustveður og fylgdi kuldi í kjölfar þess. Veðrið 1988 olli miklum skriðuföllum í Ólafsfirði og á Stöndum. Eftirminnilegt varð einnig landsynningsveðrið 1977 - haust fylgdi strax á eftir. Þetta var fyrsta illviðri sem ritstjóri hungurdiska kom eitthvað nærri sem vaktarveðurfræðingur - reyndar á svokölluðum æfingavöktum. Mikill kuldi fylgdi veðrinu 1964 - ökklasnjór sagður á Siglufirði. Og veðrið 2014 muna e.t.v. sumir sem leifar fellibylsins Christobal - mikið úrhelli fylgdi þeim. 

w-blogg260819c

Hér má sjá mörg sömu veður og á fyrri listum - en önnur voru fremur meinlítil eins og veðrið í dag - sum þau elstu þekkjum við ekki nógu vel, t.d. það sem trónir efst á listanum. Það féll nokkuð í skugga enn verri veðra mánuði síðar. 

w-blogg260819d

Við höfum minnst á sumar þessara dagsetninga hér að ofan - ekki þó 1969 - þá varð nokkuð foktjón - einkum fyrir norðan, en segir líka í annálum: „Markatafla á Laugardalsvelli fauk meðan á leik ÍBV og Búlgarsks knattspyrnuliðs fór fram í 8 til 9 vindstigum“. Kannski einhverjir eldri knattspyrnuunnendur muni þetta? Veðrið 1952 var slæmt hret með hríð á heiðum og 1968 féllu skriður eystra. 

Kannski hefur ritstjórinn einhvern tíma þrek til að lýsa einhverju þessara veðra betur - það væri ástæða til. Við sjáum þegar að þau falla í nokkra flokka - sum minna með sanni á haust, en önnur eru frekar sumarslæmska. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svona aðeins til að svarar þér Trausti um að það hafi ekki verið neitt "sérlega hvast" með þessari "haustlægð", má benda á að meðalvindurinn á Hólmsheiði fór í stormstyrk á milli kl. 15 og 16 í gær, eða í 20 m/s (og hviður í 26 m/s). Yfirleitt stormar nú ekki fyrr en í október/nóvember á þessu svæði þannig að þetta hvassviðri kemur óvenjusnemma og alveg óhætt að tala um fyrstu haustlægðina að mínu mati.

Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 26.8.2019 kl. 06:04

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Það er rétt að vindur fór í 20 m/s á Hólmsheiði í gær, í fjórða sinn í ágúst síðan byrjað var að mæla á stöðinni, en það hefur tvisvar gerst í júlí á sama tíma - þetta er eitthvað sem gerist af og til á sumrin þar efra og þannig séð varla hausttíðindaefni. Langhvassast varð í ágúst 2008 þegar vindur á Hólmsheiði fór í 25,8 m/s. Mest í júlí er 23,5 (2011) - sum sé meira en var nú - sjálfsagt hafa einhverjir minnst á haust þá . En - til að teljast stormur þarf vindur að komast yfir 20 m/s, 20,0 er strangt tekið ekki nóg - í þeim skilningi komst vindur ekki í storm á Hólmsheiði í gær - en við skulum ekki staldra við þá smámunasemi. Stormur mældist aðeins á tveimur veðurstöðvum í byggð í gær - þannig hefur staðan verið 8 sinnum í þessum mánuði. Meðalvinhdraði á landsvítu hefur 8 sinnum verið meiri í mánuðinum heldur en í gær. Dagurinn í gær því ekkert sérstakur hvað hvassviðri varðar. - En veðrið var óneitanlega leiðinlegt í 3 til 4 klukkustundir - úrhellisrigning og allhvass vindur.

Trausti Jónsson, 26.8.2019 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 89
  • Sl. sólarhring: 404
  • Sl. viku: 1914
  • Frá upphafi: 2350650

Annað

  • Innlit í dag: 86
  • Innlit sl. viku: 1714
  • Gestir í dag: 86
  • IP-tölur í dag: 86

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband