Rauđ er sólin ...

Eina lag danska tónskáldsins Carl Nielsen sem komist hefur í íslenskar söngbćkur (heldur ritstjóri hungurdiska) er „Solen er saa rřd Mor“ viđ texta Harald Bergstedt - og birtist ţađ í „Nýju söngvasafni fyrir skóla og heimili“, ţar númer 137, og heitir „Rauđ er sólin mamma“. Textann ţýddi Margrét Jónsdóttir. Ekki sló ţađ í gegn hér á landi frekar en önnur smálög tónskáldsins mikla. En ţessi titill kom í hugann í kvöld ţegar sól var sérlega rauđ séđ frá ritstjórnarskrifstofum hungurdiska - ţrátt fyrir ađ lítiđ hafi boriđ á skýjum. Loft var sérlega móskulegt í dag og skorti nokkuđ á eđlilegan bláma himins. Mikiđ ryk hefur veriđ yfir landinu undanfarna daga í hvassri norđanáttinni - kannski hefur eitthvađ af ţví borist hátt í loft og snúiđ aftur - ekkert veit ritsjórinn um ţađ. En ţegar ţetta gerist getur veriđ fróđlegt ađ líta á vefsíđu (Copernicus) ţar sem nálgast má spár evrópureiknimiđstöđvarinnar um deyfi- (eđa lýsiţykkt) lofthjúpsins. Hún er mćlikvarđi á ţađ hversu mikiđ ljós sem í gegnum hann fer deyfist frá sól (eđa öđru). 

Myndin sýnir kort kvöldsins, gildir mánudag 19.ágúst kl.18.

w-blogg190819a

Hvíti liturinn táknar „hreint loft“, bláu litirnir eru vćg deyfing, en ţeir gulu og rauđu sýna svćđi ţar sem hún er mikil. Á vefsíđunni má líka finna kort ţar sem greint er á milli nokkurra gerđa ars eđa agnúđa ţess sem deyfingunni veldur. Helstu tegundir eru ryk, salt, lífefnaaska og súlföt. Viđ sjáum ađ deyfingargildi eru mjög há fyrir vestan og norđan Ísland. Sé tegund flett upp segir greiningin ađ ţetta sé hvorki salt né ryk, en deilist nokkuđ jafnt á brunaleifarnar og súlfötin. Höfum í huga ađ sú greining er ekki endilega rétt - ágiskun gervihnattamćlinga og líkans. 

Sé flett nokkra daga aftur í tímann - til ađ leita uppruna flekksins kemur ekkert í ljós - hann bara birtist ţarna á svipuđum slóđum í gćr eđa fyrradag. Kannski er ţetta „gamall“ reykur frá Síberíu eđa Alaska? Móđan sést allvel á gervihnattamyndum - einkum fyrir vestan land. Fróđlegt vćri ađ vita nákvćmlega hvađ er á ferđinni. Spyr sá sem ekki veit. 

Einhverjir gćtu rifjađ upp fornan pistil hungurdiska ţar sem skyggni, ryk og agnúđi koma viđ sögu. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • w-blogg200324b
  • w-blogg200324a
  • Slide10
  • Slide9
  • Slide8

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 45
  • Sl. sólarhring: 77
  • Sl. viku: 443
  • Frá upphafi: 2343356

Annađ

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 397
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband