19.8.2019 | 16:29
Hungurdiskar í 9 ár - ritstjórnarþankar
Í dag er blogg hungurdiska 9 ára, hófst með stuttri færslu 19.ágúst árið 2010. Pistlarnir eru nú orðnir 2500 - margir mjög langir, sumir líka mjög efnismiklir en aðrir óttaleg froða. Ekki kom ritstjóranum til hugar að úthaldið yrði þessu líkt - en rétt að nota tækifærið til að þakka bæði tryggum lesendum og þeim sem aðeins líta stöku sinnum við fyrir góðan stuðning allan þennan tíma. Þó nær allur texti hafi verið ritaður utan hefðbundins vinnutíma þakkar ritsjórinn Veðurstofunni fyrir margt viðvik, gögn og aðstöðu - ómetanlegt allt satt best að segja.
Þó hér sé nú saman kominn meiri fróðleikur um veðurfar á Íslandi (og veðurfræði almennt á íslensku) heldur en annars staðar liggja fjölmargir þættir enn óbættir hjá garði og mjög margt er enn í fórum ritstjórans - óskrifað - eða ekki tekið saman. Sömuleiðis þarfnast nokkur hluti (ekki þó stór) pistlasafnsins endurnýjunar vegna nýrri atburða. Fátt er þó beinlínis úrelt.
Stærsta verkefnið sem liggur á borði ritstjórans er áframhald samantektar veðurannála tímabilsins 1749 til 1924. - Sumir kunna að spyrja hvers vegna þetta tímabil er valið. Ástæðan er sú að veðurlýsingar áranna 1925 til 2005 liggja fyrir í tímariti Veðurstofunnar, Veðráttunni, aðgengilegar á timarit.is. Árið 1749 markar hins vegar upphaf veðurmælinga hér á landi. Ágætt rit Þorvaldar Thoroddsen Árferði á Íslandi í þúsund ár endaði árið 1900 þannig að slæm eyða var á milli ritanna tveggja [1901 til 1924] og mikil nauðsyn að brúa hana. Við athugun kom líka í ljós að við höfum nú aðgang að ýmsum upplýsingum, sérstaklega mælingum, sem Þorvaldur hafði ekki, þannig að full ástæða er til að taka þær saman á einhvern hátt. Hins vegar hefur ekki mikið bæst við af rituðum upplýsingum eða slíku frá því fyrir 1749. Hvort ritstjóri hungurdiska mun þegar þar að kemur reyna við það tímabil líka verður bara að koma í ljós. Þó allvel hafi miðað við ritun þessa nýja annáls er mikil vinna óunnin. Hungurdiskaannállinn nær þó nú til áranna 1749-1751, 1763, 1805 til 1814, 1820-1827, 1833, 1839, 1876-1877 og 1881-1924, alls 68 ár af þeim 176 sem í undirbúningi eru, 9 umfram þriðjung, en vantar 20 upp á helming. Ljóst að verkefnið mun taka nokkur ár til viðbótar.
Fjöldi annarra sæmilega skilgreindra verkefna bíða, auk þeirra sem alltaf koma upp á líðandi stund. Eitt er það mál sem veldur ritstjóranum nokkrum vandræðum, mikilvægt er það svo ekki sé meira sagt. Hér er auðvitað átt við loftslagsmálið svonefnda. Því miður er orðið furðuerfitt að tjá sig um það án þess að verða fyrir stórkostlegu gargi og áreiti beggja fylkinga, annarrar eða beggja samtímis. Eins gott að opna ekki þá ormagryfju hér. Þetta er mjög bagalegt ástand, niðurdrepandi fyrir alla frjóa umræðu og auk mjög heftandi fyrir loftslagsvísindamann eins og ritstjóri hungurdiska gefur sig út fyrir að vera. Áttar hann sig betur og betur á að svonefnd sjálfsritskoðun er raunverulegt vandamál og það sem verra er að hún leggst smám saman á ósjálfráða taugakerfið þannig að sá sem þjáður er af henni gerir sér ekki grein fyrir því.
Vonandi hefur ritsjórinn þrek til þess að halda áfram og fer t.d. að verða tími til kominn að fjalla aðeins um þurrkana sem farnir eru að valda ákveðnum vandræðum um landið sunnan- og vestanvert um þessar mundir. Kannski tóm verði til að fjalla eitthvað um þá áður en þeim linnir skyndilega? Þangað til geta áhugasamir rifjað um gamlan pistil sem ritstjórinn skrifaði á vef Veðurstofunnar fyrir nákvæmlega 10 árum [upp á dag] (þegar líka var þurrt).
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.3.): 5
- Sl. sólarhring: 105
- Sl. viku: 1339
- Frá upphafi: 2455665
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 1199
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.