Tuttugu maídagar

Þá eru 20 dagar liðnir af maímánuði 2019. Meðalhiti þeirra í Reykjavík er 7,1 stig, +1,6 stigum ofan meðallags áranna 1961-1990 en +1,0 ofan meðallags sömu daga síðustu tíu ára og í 7.hlýjasta sæti (af 19) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar 2008, meðalhiti þá +8,1 stig. Kaldastir voru dagarnir árið 2015, meðalhiti +3,7 stig. Á langa listanum er meðalhitinn í 28. sæti af 143. Hlýjast var 1960, meðalhiti +9,3 stig, en kaldast 1979, +0,5 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 20 daga maímánaðar nú 5,8 stig, +1,3 stigum ofan meðallags sömu daga 1961-1990, en +0,3 stigum ofan meðallags síðustu tíu ára.

Hiti er ofan meðallags á um 80 prósentum stöðva landsins. Hlýjast að tiltölu hefur verið á hálendinu vik +2,2 stig við Hágöngur. Kaldast að tiltölu hefur verið á Fagurhólsmýri, þar er hiti fyrstu 20 daga mánaðarins -0,8 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára.

Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 33,5 mm og er það í meðallagi. Á Akureyri er hefur úrkoma mælst aðeins 6,9 mm, langt innan meðallags - en þó ekki sérlega óvenjulegt - maí er oft þurr.

Sólskinsstundir hafa mælst 108,9 í Reykjavík, það er í tæpu meðallagi.

Meðalloftþrýstingur er enn með hærra móti, nú í 12.efsta sæti af 198.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 46
  • Sl. sólarhring: 334
  • Sl. viku: 2762
  • Frá upphafi: 2378338

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 2450
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband