Hálfur maí

Hitinn í maí er aftur á uppleið. Meðaltal fyrstu 15 daganna í Reykjavík er nú 6,5 stig, +1,3 stigum ofan meðallags áranna 1961-90 og +0,5 ofan meðallags sömu daga síðustu tíu árin. Hitinn raðast í áttundahlýjasta sæti (af 19) á öldinni. Hlýjastir voru sömu dagar árið 2008, meðalhiti 8,3 stig, en kaldastir voru þeir 2015, meðalhiti 2,8 stig. Á langa listanum (143 ár) er hitinn í 43.sæti. Hlýjastir voru sömu dagar 1960, meðalhiti 9,4 stig, en kaldastir voru þeir 1979, meðalhiti aðeins +0,3 stig.

Á Akureyri er meðalhiti fyrstu 15 daga maímánaðar 4,7 stig. Það er +0,7 stigum ofan meðallags sömu daga 1961-1990, en -0,7 neðan meðalhita þeirra síðustu tíu árin.

Hiti er ofan meðallags síðustu tíu ára á tæplega helmingi veðurstöðva. Mest er jákvæða vikið á Keflavíkurflugvelli, +1,0 stig, en neikvæðast er vik á Gagnheiði, -1,8 stig.

Úrkoma hefur mælst 18,6 mm í Reykjavík og er það vel innan við meðallag, og á Akureyri hafa aðeins mælst 6,9 mm. Austur á Dalatanga er úrkoma það sem af er mánuði aðeins fjórðungur meðallags.

Sólskinsstundir hafa mælst 99,2 í Reykjavík og er það ekki fjarri meðallagi.

Fyrir nokkru var hér fjallað um hinn gríðarólíka loftþrýsting maímánaðar nú og í fyrra. Meðalþrýstingur til þessa í Reykjavík er nú 1023 hPa, sá 11. mesti í 198 ára sögu þrýstimælinga, en sömu daga í fyrra var hann aðeins 995 hPa, sá næstlægsti í sögunni. Ólíkt hafast þessir tveir mánuðir að. Maí í fyrra hafði úthald í lágþrýstingnum - spurning með þennan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sæll, Trausti. Frá því að ég var barn í sveit og veðurfréttirnar voru teknar tvisvar á dag hef ég haft áhuga á veðrinu. Ég hef haldið dagbók um veður og fleira í mörg ár og núna fer ég eftir því hvað síminn minn segir mér. Þetta er afbragðs sími en ég skil hann ekki alltaf. Núna segir hann t.d. að hitinn hér sé 12° sem mér finnst fremur ólíklegt. En það sem ég skil ekki hjá símanum er vindhraðinn. Núna er vindhraðinn ESE 14 km/hr. Hvað þýðir þetta?

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 16.5.2019 kl. 20:48

2 Smámynd: Birnuson

Sæll Benedikt. Hitinn sem erlendar veðurþjónustur gefa upp á Íslandi getur verið úr óvöktuðum og óáreiðanlegum mælum, jafnvel mælum sem einstaklingar hafa sett upp í garðinum hjá sér og tengt við netið. Þess vegna er ekki alltaf mikið að marka þær tölur.

Til þess að átta sig á vindhraðanum er hægt að nota reiknivélar sem finna má á netinu, t.d. þessa sem hefur líka gömlu Beaufort-vindstigin og segir okkur að 14 km/klst. samsvari 3,9 m/s eða 3 vindstigum:

https://www.wpc.ncep.noaa.gov/html/windspeed.shtml

Fyrir síma eru líka til sérstök öpp sem hægt er að nota í sama tilgangi. Leitaðu að wind speed converter.

Birnuson, 17.5.2019 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 318
  • Sl. sólarhring: 341
  • Sl. viku: 1892
  • Frá upphafi: 2350519

Annað

  • Innlit í dag: 240
  • Innlit sl. viku: 1689
  • Gestir í dag: 226
  • IP-tölur í dag: 226

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband