Gleðilegt sumar

Vetrarmisseri íslenska tímatalsins er nú liðið, það var hlýtt, meðalhiti í Reykjavík var 2,4 stig, um 1,4 stigum ofan meðallags vetra síðustu 70 ára og 0,6 stigum ofan meðallags síðustu tíu vetra. Hitavik eru svipuð á Akureyri.

w-250419a

Hlýindin sjást vel á mynd, ekki nema þrír vetur á tímabilinu hlýrri (1964, 2003 og 2017). Ef við lítum enn lengra aftur í tímann bætast þrír við (1929, 1942 og 1946) - og svo einn á 19. öld (1847). Það vekur athygli á myndinni að enginn vetur hefur verið neðan meðallags áranna á myndinni síðan 2001 (svarta þverstrikið) og vetrarmeðalhiti í Reykjavík ekki verið neðan frostmarks síðan 1995. Spurning hvað þessi hlýindi endast - trúlega ekki endalaust þó. Kaldur vetur hlýtur að sýna sig um síðir. Hlýindaskeiðið sem náði hámarki á árunum 1927 til 1946 var ekki „jafnhreint“ og það sem við höfum nú verið að upplifa. Vetrarhiti var t.d. neðan frostmarks bæði 1931 og 1937 (auk svo 1951 og nokkurra ára á kuldaskeiðinu). 

Úrkoma í Reykjavík var tæplega 40 mm umfram meðallag síðustu tíu ára í vetur, en um 30 mm á Akureyri. 

Ritstjóri hungurdiska óskar lesendum og öðrum velunnurum gleðilegs sumars. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Gleðilegt sumar Trausti. Þakka fyrir allar veðurlýsingar og skýrslur yfir árin. Veður er svo stór partur af lífinu hér og hefir alltaf verið. Dæmi en amma konu minnar var frá Stykkishólmi en þar var til siðs að halda veðurdagbækur sem hún gerði allt sitt líf þótt hún hafi búið í Reykjavík.Sendu frænda þínum Kela kveðju en hann bauð mér oft á Gæs með sér upp á Mýrar. Ég sá þig fyrst í höllinni ykkar á höfðanum en þá varst þú ný orðið veðurfræðingur. Kveðja Valdimar.

Valdimar Samúelsson, 25.4.2019 kl. 08:07

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gleðilegt sumar Trausti og þakka fyrir skemmtilega og fræðandi pistla. Fóstri minn bankaði daglega í barómetið,fallandi veitti það ekki á gott minnir mig.

Helga Kristjánsdóttir, 26.4.2019 kl. 04:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 130
  • Sl. sólarhring: 403
  • Sl. viku: 1955
  • Frá upphafi: 2350691

Annað

  • Innlit í dag: 124
  • Innlit sl. viku: 1752
  • Gestir í dag: 124
  • IP-tölur í dag: 124

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband