Strókrit - strókspár

Lítum nú á dćmi um svonefnt strókrit. Evrópureiknimiđstöđin gerir tvisvar á sólarhring 51 spá um veđur hálfan mánuđ fram í tímann. Ţar er fyrst ađ telja „háupplausnarspá“ sem kölluđ er - ţađ er flaggskip líkansins - reyndar látiđ nćgja ađ birta niđurstöđur hennar „nema“ tíu daga fram í tímann, en síđan 50 ađrar sem látnar eru renna um tölvuna í íviđ minni upplausn, í 49 ţeirra hefur lítilsháttar veriđ átt viđ byrjunarstöđuna - t.d. á svćđum ţar sem óvissa er fyrir hendi um ţađ hver hún er - en ein fćr ađ renna í friđi án nokkurra breytinga og er á ensku nefnd „control run“ - ekki gott ađ ţýđa ţađ hugtak - „stýrispá“ finnst ritstjóra hungurdiska ekki alveg rétt - hann kysi frekar „viđmiđ“ eđa eitthvađ ţannig. Kannski rétta orđiđ sé einhvers stađar ađ finna.

Strókrit (nefnast „plume“ á ensku) sýna hita, úrkomu eđa hvađeina úr öllum ţessum fjölda spáa saman. Oft sést ţá vel hvernig spár dreifast eftir ţví sem lengra líđur á spátímabiliđ. Viđ lítum hér á eitt dćmi um slíka spá - ekki vegna ţess ađ eitthvađ sérlega merkilegt sé ađ sjá, heldur sem dćmi um eitthvađ sem veđurfrćđingar horfa gjarnan á - alla vega sumir.

w-blogg071118a

Hér má sjá spár reiknimiđstöđvarinnar um hćđ 500 hPa-flatarins yfir Reykjavík nćstu tíu daga, frá 7. til 17. nóvember. Heildregna gula línan sýnir „viđmiđunarspána“, strikađa gula línan sýnir „háupplausnarspána“, en rauđleitar strikalínur hinar spárnar 49. Lóđrétti ásinn sýnir hćđ 500 hPa-flatarins í dekametrum (1 dam = 10 metrar). Bláum borđum er síđan bćtt viđ - til ţess ađ viđ sjáum betur hvernig spárnar dreifast. Flöturinn á ađ hćkka lítillega fram á komandi nótt, lćkka síđan - en hćkka svo aftur um og upp úr helgi.

Fyrstu dagana er greinilegt ađ spárnar eru nokkuđ sammála - ţćr liggja í einum hnapp - og virđast gera ţađ fyrstu 6 dagana eđa svo. Virđast segjum viđ, ţví ađ í raun er ţónokkur munur á ţeim spám sem sýna hćst og lćgst hćđargildi - ţađ er nefnilega hinn gríđarlegi munur sem verđur á spánum í lok tímabilsins sem rćđur kvarđanum. Vćru spárnar meira sammála til enda - sýndust ţćr verđa fyrr ósammála (svo einkennilega sem ţađ kann ađ hljóma). Ţetta ósamkomulag í lokin gerir ţađ líka ađ okkur sýnist sem sveiflur séu mjög litlar í hćđ 500 hPa-flatarins nćstu vikuna. Af öđrum heimildum má ráđa ađ austlćgar áttir verđi ráđandi í háloftum yfir landinu - og ţegar ţćr ríkja eru sveiflur í hćđ 500 hPa-flatarins yfirleitt heldur minni en í vestlćgu áttunum. 

En óvissa í líkani er ekki endilega nákvćmlega ţađ sama og óvissa í raunveruleikanum. Má vera ađ óvissan sé annađ hvort meiri eđa minni í öđrum líkönum en ţessu - en hin endanlega „niđurstađa“ lofthjúpsins svo eitthvađ allt annađ. Samanburđur hefur ţó sýnt ađ hvađ varđar ađra ţćtti en úrkomu sé réttast ađ taka mest mark á „háupplausnarspánni“ - ţar til hún fer ađ víkja mjög frá međaltali hinna - eftir ţađ sé međaltaliđ skást (ađ međaltali) - ţó vitlaust sé. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a
  • w-blogg110424b
  • w-blogg110424b

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 1780
  • Frá upphafi: 2347514

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1533
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband