Fyrstu 20 dagar júlímánaðar

Enn eru litlar breytingar á veðurlagi og tölur fyrstu 20 daga júlímánaðar því svipaðar að eðli og verið hefur nú um langa hríð. Meðalhiti í Reykjavík þessa 20 daga er 9,9 stig. Það er -0,6 stigum neðan meðallags áranna 1961-1990, en -2,0 neðan meðallags sömu daga síðustu tíu ára. Hitinn er í neðsta sæti á öldinni, þó ómarktækt neðar en var 2013. Á langa listanum er hitinn í 121. til 122. sæti af 144. Hlýjastir voru fyrstu 20 dagar mánaðarins árið 2009, meðalhiti var þá 13,5 stig, en kaldastir voru þeir 1885, meðalhiti 8,2 stig.

Á Akureyri stendur meðalhitinn nú í 11,2 stigum, +0,8 stigum ofan meðallags 1961-1990, en +0,3 ofan meðallags síðustu tíu ára. Hiti er almennt ofan meðallags um landið austanvert, mesta jákvæða vikið er nú á Vatnsskarði eystra, +2,2 stig, en mest er neikvæða vikið á Hraunsmúla í Staðarsveit, -2,3 stig og -2,2 á Bláfeldi.

Úrkoma hefur mælst 43,3 mm í Reykjavík, um fimmtung ofan meðallags. Á Akureyri hefur úrkoma það sem af er mánuði mælst 37,1 mm og vantar ekki mikið upp á tvöfalda meðalúrkomu.

Fáar sólskinsstundir hafa mælst í Reykjavík, aðeins 56,0 - um og innan við helmingur meðallags, í 100. sæti af 108 á samanburðarlista. Sólskinsstundir fyrstu 20 daga júlímánaðar voru flestar 1957, 201,4, en fæstar 1921, 28,6 - og 28,7 sömu daga 1926.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 436
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband