Norðurhvelsórói

Eins og minnst var á á þessum vettvangi fyrir nokkrum dögum eru háloftakerfi nú að hnikast til - en langt í frá ljóst hvert stefnir því mikill órói er víða á norðurhveli.

w-blogg110618a

Kortið sýnir stöðuna eins og evrópureiknimiðstöðin gerir ráð fyrir að hún verði síðdegis á miðvikudag 13.júní. Jafnhæðarlínur 500 hPa-flatarins eru heildregnar en þykkt er sýnd í litum. Því meiri sem þykktin er því hlýrra er loftið. Gulir og brúnir litir einkenna sumarhlýindi. Mörkin milli þeirra og grænu litanna er við 5460 metra.

Meðalþykkt júnímánaðar yfir Íslandi er um 5420 metrar - sú tala er í ljósasta græna litnum. Eins og sjá má á kortinu (það skýrist nokkuð sé það stækkað) er landið í „miðgrænu“, en dekksti græni liturinn snertir Vesturland. Þetta þýðir að hita er spáð neðan meðallags hér á landi á miðvikudaginn. 

Ekki er hægt að benda á eina orsök þessa óróa - en mikil hlý hæð hefur skotist langt norður um kanadísku heimskautaeyjarnar - nægilega fyrirferðarmikil til að stugga við kuldanum og hrekja hann til allra átta. Góða aðstoð fær hún frá tveimur hlýjum hæðum yfir Síberíu. Einhvers staðar verður kuldinn að vera þannig að hann hörfar undan og kemur nokkuð víða við þessa dagana. 

Á netinu sást falleg mynd af snjó í nýlaufguðum birkiskógum Kamtsjatkaskaga (blá ör á kortinu) og sömuleiðis nokkuð óvenjulegar myndir af snjó úr Bresku Kólumbíu í Kanada þar sem kalt loft ruddist suður með ströndinni (önnur blá ör) - lausafregnir herma að það sé eitthvert það kaldasta sem þar hefur lengi sést í júnímánuði. Á báðum þessum slóðum mun þó mesti kuldinn kominn hjá þegar þetta kort gildir. 

Ef við lítum nær okkur má sjá að kalda loftið fyrir sunnan okkur er á miðvikudaginn að hitta fyrir hlýja tungu úr suðvestri (rauð ör) vestan við Bretland. Flestar spár gera ráð fyrir því að þar myndist óvenjuöflug lægð sem fari til norðausturs rétt norðan við Skotland og þaðan norðurúr talsvert fyrir austan Ísland. Hún hefur óbein áhrif hér - auðveldar köldu lofti langt að norðan að stinga sér hingað á fimmtudag og föstudag. 

Fyrir okkur skiptir líka máli hvað kuldapollurinn vestan við Grænland gerir. Á kortinu er hann á suðurleið - og langtímaspár stinga upp á því að hann æsi upp fleiri djúpar lægðir sunnan Grænlands um eða upp úr næstu helgi. Sem stendur er þeim lægðum spáð beint til okkar - en alltof snemmt er þó að segja til um slíkt. Það er samt ljóst að vikan verður lengst af svöl og sólarlítil um meginhluta landsins - og raunar enga breytingu að sjá svo langt sem greint verður að sinni - en kannski skýin hér suðvestanlands verði eitthvað hærra á lofti en verið hefur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 118
  • Sl. sólarhring: 393
  • Sl. viku: 1943
  • Frá upphafi: 2350679

Annað

  • Innlit í dag: 113
  • Innlit sl. viku: 1741
  • Gestir í dag: 113
  • IP-tölur í dag: 113

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband