Smáhugleiđing um veđurlag í ţarnćstu viku

Fjölmiđlar nútímans eru alltaf fullir af fréttum um ţađ sem vćntanlega mun gerast í nćstu viku eđa nćsta mánuđi og taka ţćr meiri og meiri tíma frá fréttum af atburđum sem ţegar hafa gerst. Ritstjóri hungurdiska getur svosem skiliđ ţessa spááráttu - en reynslan segir honum ţó ađ varlegt sé ađ treysta fréttum úr framtíđinni. 

Ţađ á auđvitađ líka viđ um veđurspár - veđurreiknimiđstöđvar hafa ţó náđ meiri árangri í ađ segja fyrir um framtíđina en flestar ađrar. Mörk hins vitrćna eru ţó ekki langt úti í framtíđ og mörkin á milli reikninga og ađ ţví kemur ađ óvissan verđur jafnmikil og sú sem glímt er viđ ţegar spil eru dregin úr hatti eđa teningum kastađ. 

Samanburđur á spám og raunveruleika bendir ţó til ţess ađ skárra sé ađ taka mark á reikningum heldur en spilum nokkrar vikur fram í tímann - jafnvel lengri tíma ef sátt er viđ lođiđ orđalag. Eftir ađ ţeim ójósu tímamörkum er náđ er vafalítiđ ađ vel orđađar véfréttir verđa bestar - ţćr sem eru best orđađar stađfestast í misminni „spáţega“ og verđa ţar međ réttar.

En fjölviknaspár evrópureiknimiđstöđvarinnar eru međ ţeim ósköpum gerđar ađ eigi menn einhverra langtímahagsmuna ađ gćta borgar sig ađ taka mark á ţeim - ţrátt fyrir ađ ţćr bregđist oftar en ekki. Í fljótu bragđi kann ţađ ađ hljóma ólíkindalega - en veltiđ samt vöngum yfir ţessu.

Fjölviknaspár reiknimiđstöđvarinnar eru settar fram á tiltölulega skýran hátt - en eru hins vegar í reynd afskaplega lođnar - rétt eins og véfréttir fortíđar - og í reynd treystir reiknimiđstöđin dálítiđ á misminniđ líka ţví međ ţví ađ senda frá sér hverja spána á fćtur annarri ruglast allt venjulegt fólk í ríminu og man aldrei hvađ er hvađ. 

En lítum til gamans á spá um veđurlag í ţarnćstu viku. Hér er spáđ um hćđ 500 hPa flatarins og ţykktina. Til hćgđarauka birtir reiknimiđstöđin líka ţykktarvik - sem segja okkur hversu mikiđ hiti í neđri hluta veđrahvolfs víkur frá međallagi árstímans.

w-blogg260118c

Nokkuđ skýr spá. Kuldapollurinn Stóri-Boli í miklum ham - ţó hann liggi í sínu heimabćli. Sendir hann jökulkalt heimskautaloft út yfir Atlantshaf - og í átt til okkar. Veđrahvolfshiti hér á landi 2 til 3 stig undir međallagi (mest suđvestanlands - minna eystra). Kannski ţýđir ţetta élja- eđa snjóatíđ um landiđ sunnan- og vestanvert? Eđa eru almennari umhleypingar undirliggjandi međ mjög köldum dögum á stangli og svo hláku og stormi ţess á milli. 

Viđ vitum líka ađ meiri líkur en minni eru á ađ ţessi spá sé röng - en hún gćti veriđ rétt og hollast ađ trúa ţví ţar til annađ kemur upp - ţví viđ getum varla giskađ betur. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 222
  • Sl. sólarhring: 245
  • Sl. viku: 2047
  • Frá upphafi: 2350783

Annađ

  • Innlit í dag: 204
  • Innlit sl. viku: 1832
  • Gestir í dag: 198
  • IP-tölur í dag: 197

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband