Skemmtileg hitasveifla

Stundum sjást í mćlingum hitasveiflur sem má klóra sér í kollinum yfir. Ein ţeirra gekk yfir Sauđárkróksflugvöll nú í kvöld (21. janúar).

w-blogg220118b

Ritiđ byrjar kl. 9 í morgun (ţann 21.), en endar kl. 01:30 (ţann 22.). Mikiđ frost var í allan dag, mćldist -19,6 stig um hádegiđ og síđan á milli -16 og -18 stig lengst af. En milli kl.22 og 23 dró til tíđinda og upp úr kl. 22 ţaut hitinn á skammri stund upp - og toppađi í -1,2 stigum - en féll síđan snögglega aftur niđur í -12. Hitasveifla innan klukkustundarinnar varđ 11,9 stig. 

Ţannig hagar til ađ yfir landinu liggja víđa grunnir kuldapollar og sjást ţeir margir hverjir vel á kortinu hér ađ neđan.

w-blogg220118a

Ţađ sýnir mun á hita í 2 m hćđ og 100 metra hćđ í iga-harmonielíkaninu kl. 22 í kvöld. Viđ Sauđárkróki var ţessi munur -10,4 stig. Líklega hefur loft loft ađ ofan fengiđ tćkifćri til ađ slá niđur - hitahvörfin sullast til í firđinum - efra borđ ţeirra getur lyfst og sigiđ á víxl - rétt eins og vatn í bađkari. Frostiđ í kvöld var ekki nema -2 til -3 stig á Nautabúi - vćntanlega ofan hitahvarfanna. 

Viđ sjáum fleiri svona snarpa bletti austar á Norđurlandi ţar sem munurinn er jafnvel enn meiri en í Skagafirđi. Stórar skyndilegar hitasveiflur sáust líka á fleiri stöđvum í dag, Ţingvöllum (10,2 stig innan klukkustundar), í Svartárkoti (8,2 stig), viđ Mývatn (8,1 stig), á Grímsstöđum á Fjöllum (10,8 stig), í Möđrudal (10,0 stig) og í Básum (8,4 stig). Á Ţingvöllum og í Básum fór hitinn ţó ekki niđur aftur á sama hátt og á hinum stöđvunum (enda er loft ţar orđiđ betur blandađ - ađ sjá - á kortinu hér ađ ofan).

Rétt er ađ taka fram ađ líkaniđ sér ekki alla polla - og býr sjálfsagt til einhverja líka sem ekki eru raunverulegir. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veđurfrćđingur og áhugamađur um veđur.

Fćrsluflokkar

Júlí 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • w-blogg220724b
  • w-blogg220724a
  • w-blogg210724
  • Slide2
  • Slide1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 17
  • Sl. sólarhring: 427
  • Sl. viku: 2733
  • Frá upphafi: 2378309

Annađ

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 2421
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband