Nóvember og desember

Nóvember var fremur kaldur mánuður - landsmeðalhiti reiknaðist -0,5 stig, -2,3 stigum neðan meðallags nóvembermánaða síðustu tíu ára. Desember hefur hingað til ekki verið jafnkaldur að tiltölu, meðalhiti í byggð stendur þegar þetta er ritað í -0,4 stigum og er það um -0,3 stigum neðan meðallags síðustu tíu desembermánaða. Hins vegar er nokkuð ljóst að síðustu dagarnir verða kaldir - nær öruggt er að hitinn fer niður fyrir nóvembermeðaltalið og trúlega meira að segja nokkru neðar, en hins vegar verður vikið ekki eins afgerandi og í nóvember. 

Nóvember var á landsvísu sá kaldasti síðan 1996, en þó desember verði neðan meðallags telst hann samt alls ekki óvenjulegur hvað hita varðar. Meðalhiti í desember 2015 og 2013 var ámóta, og mun kaldara var í desember 2011, en þá var nóvember hins vegar hlýr. Ekki er ólíklegt að mánuðirnir tveir saman verði þeir köldustu frá 1996 - þá var mun kaldara en nú. 

Við skulum nú til gamans líta á meðalhita mánaðanna tveggja saman á landinu frá 1874 (og þokukennt aftur til 1823).

w-blogg261217a

Meðalhiti er á lóðrétta ásnum, en tíminn á þeim lárétta. Við sjáum að kalt skeið ríkir frá því upp úr 1960 og fram á miðjan 9. áratuginn - síðan þá skjótast einstök hlýindi upp úr á stangli - og kuldi ríkir aðeins einu sinni (1996). Kuldarnir í nóvember og desember 1973 skera sig mjög úr og þá þurfti að leita allt aftur til 1887 til að finna eitthvað viðlíka. Sömuleiðis voru nóvember og desember saman mjög kaldir 1917. En - eins og eldri veðurnörd muna boðuðu kuldarnir 1973 ekkert sérstakt - árið 1974 var hagstætt og vorið ómunahlýtt - þvert ofan í illan beyg (og „reynslu“ hliðstæðuspámanna). 

En árið 2017 verður í flokki þeirra hlýjustu. Það verður þó ekki ofar á landsvísu en í 5. hlýjasta sæti, kannski í 8. eða 9., því aðeins munar ómarktækum hundruðustuhlutum á þessum sætum. 

Taflan sýnir hvaða ár eru hlýjust (á landsvísu) hingað til:

 ármeðalh
120145,08
220035,06
320164,98
419334,91
519394,72
619414,70
719464,67
820044,65
919604,61
101945

4,60

Þegar þetta er ritað (26. desember) stendur 2017 í 4,71 stigi. Kuldar næstu daga munu draga það eitthvað niður - en samt verður það í hópi öndvegisára allra tíma. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 241
  • Sl. sólarhring: 398
  • Sl. viku: 1557
  • Frá upphafi: 2350026

Annað

  • Innlit í dag: 214
  • Innlit sl. viku: 1417
  • Gestir í dag: 211
  • IP-tölur í dag: 206

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband