Ný októberhitamet í háloftum

Hitamet októbermánaðar voru slegin í háloftaathugun yfir Keflavíkurflugvelli um hádegi í dag (laugardag 28. október), bæði í 500 hPa og 400 hPa. Hiti í 500 hPa fór í -10,6 stig (eldra met -11,1 stig frá 1987 og 1991, en hiti í 400 hPa í -20,8 stig, eldra met var -21,7 stig (líka frá 1987 og 1991). Frostmarkshæð á miðnætti var í 3490 metrum yfir Keflavík(hærra en hábunga Grænlands) - það mun nærri októbermeti, en (óábyrgir) skyndireikningar ritstjóra hungurdiska benda þó til þess að metið hafi ekki verið slegið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta hlýtur að teljast nokkuð gott met, þ.e. hitalega. Man ekki hvort ég hafi einhversstaðar séð íslandsmetin á ársgrundvelli, í 500 og 400 hp, á síðunni hjá þér Trausti. Hver eru þau svona til samanburðar? 

Hjalti Þórðarson (IP-tala skráð) 28.10.2017 kl. 20:28

2 Smámynd: Trausti Jónsson

Árshámarksmetið í 500 hPa er -7,6°C, en -16,3°C í 400 hPa. Það leikur hins vegar nokkur vafi á því hvort þessi mæling sé rétt - en ég treysti mér ekki til að afskrifa hana nema fara lið fyrir lið í gegnum frumgögnin.

Trausti Jónsson, 29.10.2017 kl. 00:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 415
  • Sl. sólarhring: 420
  • Sl. viku: 1731
  • Frá upphafi: 2350200

Annað

  • Innlit í dag: 375
  • Innlit sl. viku: 1578
  • Gestir í dag: 365
  • IP-tölur í dag: 353

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband