Breytingar í nánd - eða?

Ekkert veit ritstjóri hungurdiska um það - en reiknimiðstöðvar eru að gefa eitthvað slíkt til kynna. Lítum fyrst á spákort sem gildir síðdegis á morgun (mánudag 23. október).

w-blogg221017a

Hér má sjá spá evrópureiknimiðstöðvarinnar um hæð 500 hPa-flatarins og þykktina. Jafnhæðarlínur eru heildregnar en þykkt er sýnd í lit. Þykktin mælir hita í neðri hluta veðrahvolfs - því meiri sem hún er því hlýrra er loftið. 

Mikil lægð er fyrir sunnan land. Hún dýpkaði svo hratt í gær (laugardag) að varla hefur annað eins sést um hríð. Mátti m.a. sjá þrýsting falla um meir en -30 hPa á þremur klukkustundum þar sem mest var - slíkt yrði íslandsmet kæmi það fyrir hér. - En lægðin er fljót að grynnast. Hér á landi er austsuðaustanátt í háloftunum - eins og oft áður að undanförnu. Í þessu veðurlagi berst úrkoma inn á Austfirði og Suðausturland, en víðast hvar annars staðar er frekar meinlaust.

Til að búa til illviðri í háloftastöðu sem þessari þarf kalda útrás úr norðurhöfum - slíkt er alls ekki óalgengt - en virðist ekki vera á borðinu í þetta sinn því lítið er að sjá á kortinu öllu nema mikil hlýindi - blár litur aðeins við Norður-Grænland. Eitthvað af því kalda lofti mun vera í neðstu lögum þar suður með ströndinni en ekki nægilega mikið til að það sjáist skýrt á þessu korti. Þó er strekkingur við Brjústerhorn og nyrst norðantil í Grænlandssundi - nær jafnvel um tíma inn á Halamið.

En þetta á víst allt að raskast (sé að marka reiknimiðstöðvar) - því veldur mikil ólga handan heimskauts og á föstudag á staðan að vera orðin svona.

w-blogg221017b

Hreint viðsnúin staða. Í stað austsuðaustanáttar er komin hvöss vestnorðvestanátt. Mikill hæðarhryggur í stað lægðar fyrir sunnan land. Hæðarhryggnum fylgja ólíkindaleg hlýindi austan Grænlands, þykkt er þar spáð í 5670 metra - myndi að sumarlagi gefa möguleika á 30 stiga hita þar undir (en það er ekki sumar). Reyndar verður að teljast líklegt að reiknimiðstöðin sé heldur að ofgera hlýindin. En bandaríska veðurstofan er nú sömu skoðunar - í bili að minnsta kosti. 

En við sjáum líka að kalda loftið hefur sótt að norðan við - og sterkur háloftavindur eins og hér er spáð er fljótur að skjóta upp kryppum og sveigjum sem gefa ekki bara tilefni til mikilla hlýinda heldur líka hvassviðra og kulda af verri gerðinni. - Margir möguleikar á slíku uppi - enginn þó óhjákvæmilegur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg230424
  • Slide10
  • Slide8
  • Slide6
  • Slide5

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 227
  • Sl. viku: 1931
  • Frá upphafi: 2350800

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 1725
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband