8.6.2017 | 01:19
Óvenju ...
Í kaldara lagi kannski en það er varla hægt að segja að það sé óvenjukalt - júníkuldaköstin oft miklu verri en þetta. Meðalhiti á landinu í dag var 5,5 stig, 1,1 stig sama dag 1997. Förum kannski í frekari upprifjun - ef núverandi kast endist eitthvað. En lítum samt á spá um hita í 850 hPa. Hún gildir kl. 9 í fyrramálið (fimmtudag 8. júní).
Hiti er sýndur með litum, jafnhæðarlínur heildregnar og vindur sýndur með vindörvum. Blái flekkurinn er nokkuð fyrirferðarmikill - þar er frostið meira en -6 stig í 850 hPa (rúmlega 1300 metra hæð). Þetta gæti verið verra - og fer svo hægt (mjög hægt) hlýnandi.
Eins og sjá má stefnir mjög hlýtt loft í áttina að Norðaustur-Grænlandi - tökum eftir því.
Hér kemur það óvenjulega. Kortið sýnir sjávarmálsþrýsting og úrkomu. Það gildir kl. 6 að morgni föstudags 9. júní. Neðri rauða örin bendir á djúpa lægð langt suður í hafi. Miðjuþrýstingur er hér 964 hPa - það er óvenjulegt í júní.
Efri rauða örin bendir á úrkomuklessu við Norðaustur-Grænland - þar er hlýja loftið áðurnefnda að rekast á fjöllin. Á þessum slóðum er venjulega mjög þurrt á þessum tíma árs og atburðurinn er óvenjulegur að sögn útvísa evrópureiknimiðstöðvarinnar.
Tíu daga úrkomuspáin sýnir vel hversu óvenjulegt þetta er.
Spáin gildir frá 7 til 17. júní. Litir sýna hlutfall tíudagaúrkomu af meðallagi. Örin bendir á úrkomuklessuna við Grænland - 25 falda meðalúrkomu - og hún á reyndar ekki að falla á tíu dögum heldur fylgir nær eingöngu þessu eina veðurkerfi sem sjá mátti á efri myndinni. - En munum að meðalúrkoma á þessu svæði er sáralítil í júní þannig að flestum hér á landi þætti ekki mikið til heildarmagnsins koma. - En þetta er athyglisvert ef rétt reynist.
Hér á landi er úrkomu hins vegar spáð undir meðallagi næstu tíu daga - lægstu tölurnar eru við Breiðafjörð - dekksti brúni liturinn sýnir svæði þar sem úrkomu er spáð innan við 25 prósent af meðallagi.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.11.): 38
- Sl. sólarhring: 322
- Sl. viku: 2300
- Frá upphafi: 2410289
Annað
- Innlit í dag: 29
- Innlit sl. viku: 2060
- Gestir í dag: 27
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
nú hef ég ekki skoðað hitan á svæðinu en féll ekki þessi mikkla úrkoma við grænland sem snjór sem í sjálfu sér er gott, því þá hækkar jökullinn
kristinn geir steindórsson briem (IP-tala skráð) 8.6.2017 kl. 07:22
5,5 stiga meðalhiti á sólarhring þykir nú frekar kalt jafnvel þó að megi finna mun kaldari daga í júní á kuldatímabilinu í lok siðustu aldar (lengi má böl mæta með að benda á annað verra)! Ef borið er saman við meðalhitann á landinu í maí (7,4 stig) þá er þessi sólarhringur tæpum tveim gráðum kaldari!!
Fróðlegt væri að sjá hvort svona kalt hafi verið á yfirstandandi "hlýskeiði" á þessari öld en reyndar voru einnig kaldir júnímánuðir á öldinni svo sem árið 2001 (8,8 stig í borginni). Alls fimm júnímánuðir undir 10 stigum í Rvík!
Og þessari kuldatíð er spáð áfram næstu vikuna á mestöllu landinu.
Já, hnattræna hlýnunin virðist eiga mjög erfitt uppdráttar - eða amk ganga mjög hægt fyrir sig.
Torfi Stefánsson (IP-tala skráð) 8.6.2017 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.