20.4.2017 | 15:44
Sumardagurinn fyrsti - sundurlausir fróðleiksmolar (taka 2)
Fyrir fjórum árum rifjaði ritstjóri hungurdiska upp nokkra fróðleiksmola um sumardaginn fyrsta - þetta er að mestu endurtekning á því með lítilsháttar uppfærslum, leiðréttingum og viðbótum þó. Aðallega er miðað við tímabilið 1949 til 2016.
Þetta er vægast sagt þurr upptalning en sumum veðurnördum finnst einmitt best að naga þurrkað gagnaroð.
Aðrir hafa helst gaman af þessu með því að fletta samhliða í kortasafni Veðurstofunnar en þar má finna einfölduð hádegiskort sumardagsins fyrsta á sérstökum síðum (fletta þarf milli áratuga).
Meðalvindhraði var minnstur 1955, 1,9 m/s. Langhvassast varð 1992, 15,1 m/s. Næsthvassast var 1960.
Þurrast var 1996 og 1978. Að morgni þessara daga mældist úrkoma á landinu hvergi meiri en 0,5 mm og varð aðeins vart á um þriðjungi stöðva. Úrkomusamast var hins vegar 1979 en þá mældist úrkoma á 98 prósentum veðurstöðva á landinu. Ámótaúrkomusamt var 2009 en þá mældist úrkoma meira en 0,5 mm á 96 prósentum veðurstöðva.
Kaldasti dagurinn í hópnum var 1949 (meðalhiti -7,3 stig). Landsmeðalhitinn var hæstur 2014 (8,0 stig) og litlu lægri 1974 (7,7 stig). Meðalhámark var einnig hæst 2014 (12,4 stig). Lægst varð meðalhámarkið dagana köldu 1949 (-4,5 stig) og 1967 (-3,1 stig). Landsmeðallágmarkið var lægst sömu ár, 1949 (-9,7 stig) og 1967 (-7,8 stig). Hæst var landsmeðallágmarkið (hlýjasta aðfaranóttin) 1974 (5,8 stig).
Lægsti lágmarkshiti á mannaðri veðurstöð á sumardaginn fyrsta á tímabilinu 1949 til 2016 mældist 1988, -18,2 stig (Barkarstaðir í Miðfirði). Lægsti hiti sem mælst hefur á landinu á sumardaginn fyrsta er -23,4 stig á Brúarjökli 2007, en hæsti hámarkshiti þessa góða dags mældist 1976, 19,8 stig (Akureyri). Hiti fór reyndar í 20,5 stig á Fagurhólsmýri á sumardaginn fyrsta 1933, en það er óstaðfest í bili. Á sumardaginn fyrsta 1949 fór hiti hvergi á landinu yfir frostmark, hæsta hámark dagsins var -0,2 stig. Þetta er með ólíkindum. Sumardagurinn fyrsti 1951 var litlu skárri því þá var hæsti hámarkshitinn nákvæmlega í frostmarki.
Í Reykjavík er kaldasti sumardagurinn fyrsti sem vitað er um 1876, þá var meðalhitinn -6,9 stig (ekki nákvæmir reikningar). Þann dag segir blaðið Norðanfari að -18 stiga frost hafi verið á Akureyri (en opinberar mælingar voru engar á Akureyri um þær mundir). Það hefur sjö sinnum gerst svo vitað sé að ekkert hafi hlánað í Reykjavík á sumardaginn fyrsta, síðast 1983 þegar hámarkshiti dagsins var í frostmarki, 0,0 stig. Dagsmeðalhiti sumardagsins fyrsta í Reykjavík var hæstur 1941, 9,5 stig, en hæsta hámark sem vitað er um á sumardaginn fyrsta eru 13,5 stig sem mældust 1998.
Sumardagurinn fyrsti var sólríkastur í Reykjavík árið 2000, þá mældust sólskinsstundirnar 14,6, þær voru litlu færri 1981, eða 14,4. Síðustu 100 árin rúm hefur 14 sinnum verið alveg sólarlaust í Reykjavík á sumardaginn fyrsta.
Á Akureyri var hitinn hæstur 19,8 stig 1976 - eins og nefnt var hér að ofan, en mesta frost sem mælst hefur á sumardaginn fyrsta á Akureyri er -10,5 stig. Það var 1949.
Meðalskýjahula á landinu var minnst 1981 (aðeins 1,8 áttunduhlutar). Það var bjartur dagur - en býsnakaldur. Skýjahulan var mest 1959 (7,9 áttunduhlutar) - mörg önnur ár fylgja skammt á eftir.
Loftþrýstingur var hæstur 1989 (1041,6 hPa) en lægstur 1958 og 2006 (980,6 hPa).
Algengast er að vindur sé af norðaustri á sumardaginn fyrsta (miðað við 8 vindáttir). Norðvestanátt er sjaldgæfust.
Ameríska endurgreiningin segir að þrýstisviðið yfir landinu hafi verið flatast 1958 (vindur hægastur), en langbrattast 1992 (hvassast). Sama dag var hvassast á veðurstöðvunum (eins og áður sagði) og þrýstimunur á milli veðurstöðva landsins mestur og hittir endurgreiningin hér vel í. Þrýstivindur var af austsuðaustri, en á veðurstöðvunum var meðalvindátt rétt norðan við austur. Það er núningur sem er meginástæða áttamunarins. Þrýstisviðið var flatast á sumardaginn fyrsta 2014.
Sé litið á 500 hPa-flötinn segir endurgreiningin hæðarbrattann hafa verið mestan 1960, af vestnorðvestri.
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 16:28 | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.11.): 162
- Sl. sólarhring: 388
- Sl. viku: 2556
- Frá upphafi: 2411182
Annað
- Innlit í dag: 133
- Innlit sl. viku: 2200
- Gestir í dag: 129
- IP-tölur í dag: 128
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.