4.2.2017 | 14:20
Mikil úrkoma?
Þó hér sé fjallað um nýja spá eru skýringarnar samt að mestu endurtekið efni pistils sem birtist á hungurdiskum 27. maí 2016 (og var endurtekning á enn eldri pistli).
Til að læra að lesa þarf að lesa - og helst mikið. Sama á við um lestur veðurkorta - til að læra á þau þarf að lesa þau oft og mikið. Þetta á jafnt við um ritstjóra hungurdiska sem aðra. Þegar nýjar gerðir af veðurkortum birtast þarf hann að sitja við og lesa sem flest - til að læra á þau. Ekkert er við ólæsinni að gera nema lesa því meira.
Evrópureiknimiðstöðin reiknar tvisvar á dag 50 spár 15 daga fram í tímann og þuklar jafnframt á útkomunni og segir frá ef farið er nærri eða fram úr því sem mest hefur orðið í samskonar spám sem ná til síðustu 20 ára. Oft er ein og ein af spánum 50 með eitthvað útogsuðurveður - og telst það ekki til tíðinda.
En stundum gefur stór hluti spánna 50 til kynna að eitthvað óvenjulegt kunni að vera á seyði. - Líkur á því að svo sé raunverulega aukast eftir því sem styttra er í hið óvenjulega.
Reynslu þarf til að geta notað þessar upplýsingar í daglegum veðurspám. Sú reynsla mun byggjast upp - og til munu þeir sem orðnir eru vanir menn. Við lítum reynslulitlum augum á spá sem evrópureiknimiðstöðin hefur gert fyrir miðvikudaginn 8. febrúar 2017.
Kortið sýnir hana.
Hér er reynt að spá fyrir um hvort 24-stunda úrkomumagn er nærri metum. Tveir vísar eru sýndir - hér kallaðir útgildavísir (lituðu svæðin) og halavísir (heildregnar línur). Líkanið veit af árstíðasveiflu úrkomunnar - sömuleiðis veit það að úrkoma yfir Vatnajökli sunnanverðum er að jafnaði mun meiri en norðan hans.
Hér verða vísarnir ekki skýrðir frekar, en þess þó getið að veðurfræðingum er sagt að hafa varann á ef útgildavísirinn fer yfir 0,9 - og sömuleiðis ef halavísirinn (nafnið vísar til hala tölfræðidreifingar) nálgast 2,0 - hér er hann hins vegar vel yfir 2 á allstóru svæði yfir Vatnajökli - og fer hæst í 3,2 - það er mjög óvenjulegt, gildið 0,0 mun algengt.
Það sem er þó einna óvenjulegast við þessa spá er að hún tekur ekki gildi fyrr en á miðvikudaginn (nú er laugardagur). Venjulega eru úrkomuspárnar 5 orðnar það ósammála á þriðja til fimmta degi að vísarnir tveir smyrjast út. En ekki nú - mjög stór hluti spánna 50 virðast sammála um að gera verði ráð fyrir óvenjumikilli úrkomu á miðvikudaginn - og fádæmaúrkomu á Bárðarbungu.
Þess má geta að hin almenna spá reiknimiðstöðvarinnar gerir ráð fyrir allt að tífaldri meðalúrkomu á Suðrausturlandi næstu 10 daga.
En - líkan evrpópureiknimiðstöðvarinnar er ekki með full tök á landslagi - auk þess eru enn margir dagar til úrslitadags og spár hafa nægan tíma til að taka aðra stefnu. Þar að auki er ritstjóri hungurdiska nær reynslulaus í túlkun útgildaspáa af þessu tagi. Hvort kortið er að vara við einhverju sérstöku verður reynslan að skera úr um. Lesendur eru beðnir um að hafa þetta í huga.
En til að læra að lesa þarf að lesa - og helst mikið.
Orðið útgildavísir er þýðing á því erlenda extreme forecast index, EFI, en halavísir reynir að íslenska shift of tail, SOT. - Þýðingar þessar hafa ekki öðlast hefðarrétt (né annan) og aðrar (og vonandi betri) munu e.t.v. sýna sig síðar.
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Um bloggið
Hungurdiskar
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 85
- Sl. sólarhring: 354
- Sl. viku: 1617
- Frá upphafi: 2457172
Annað
- Innlit í dag: 75
- Innlit sl. viku: 1479
- Gestir í dag: 70
- IP-tölur í dag: 69
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Mars 2025
- Febrúar 2025
- Janúar 2025
- Desember 2024
- Nóvember 2024
- Október 2024
- September 2024
- Ágúst 2024
- Júlí 2024
- Júní 2024
- Maí 2024
- Apríl 2024
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
Athugasemdir
Hvað þýðir þetta í úrkomu? Landafræðibókin í denn sagði að 4000 mm á ári og meir en það væri ákoma Vatnajökuls. Fyrir mér lítur út fyrir að það verði mikil úrkoma en í hvaða samhengi er torskilt. Er hægt að magntaka svona spár?
Sindri Karl Sigurðsson, 4.2.2017 kl. 17:00
Svona spár eru fyrst og fremst hugsaðar sem aðvaranaábendi fyrir veðurfræðinga og aðra viðbragðsaðila - fylgjast beri sérstaklega með raunverulegum magnspám. Magnið að baki þessum tölum er bæði háð árstíma og stað - 100 mm í maí gefa fleiri „stig“ heldur en sama magn í febrúar - og 100 mm á Norðurlandi fleiri en 100 mm á Suðausturlandi. - Hér liggja 50 spár að baki - bornar saman við veður á sama árstíma 20 ár aftur í tímann. Meirihluti þeirra spáir óvenjumikilli úrkomu - útgildavísirinn er yfir 0,8 - líklega þó varla met - en halavísirinn er alveg sérlega hár - það bendir til þess að fáeinar spár af 50 séu með afspyrnuhá gildi.
Svo kreistir háupplausnarspáin (51. spáin) út tífalda meðalúrkomu á Suðausturlandi næstu tíu daga (hámark á því svæði) - meðalúrkoma á Höfn í Hornafirði er um 50 mm á tíu dögum í febrúar - það er verið að spá fimm- til tífaldri þeirri úrkomu þar - eða um 250 til 500 mm á tíu dögum. - Það væri eftirtektarvert ef rétt reynist.
Annars er fyrst og fremst hugað að úrkomumagni í spám 1 til 2 daga fram í tímann.
Trausti Jónsson, 4.2.2017 kl. 20:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.