Glitskýjadagur

Í dag (2. janúar) sást mikið af glitskýjum yfir landinu norðan- og austanverðu - enda skilyrði bæði til myndunar þeirra og skoðunar góð. Glitský myndast í 12 til 30 km hæð og þarf frost að vera meira en -70 stig og helst nokkru meira eigi þau að verða áberandi. Áberandi verða þau sömuleiðis ekki nema að flotbylgjuhreyfing sé á loftinu - vindur hvass og vindátt helst svipuð frá jörðu og upp í þá hæð sem þau myndast í. Í raun eru skýin afskaplega efnislítil og sjást því ekki nema eftir sólarlag á jörðu niðri - sól skín þá enn á og undir þau.

w-blogg020117a

Kortið sýnir hæð 30 hPa-flatarins í dag, auk vinds og hita í honum. Hiti er sýndur í lit (kvarðinn skýrist sé kortið stækkað). Vindur er sýndur með hefðbundnum vindörvum. Það er 23 km jafnhæðarlínan sem liggur yfir þvert landið. Við getum séð nokkurn óróa í hitanum - og þeir sem rýna í tölur munu sjá -85 stig í fjólubláum bletti yfir Austurlandi - þar er greinilega mikið uppstreymi - hlýrri blettir sýna niðurstreymi. Við sjáum líka að bylgjur eru í jafnhæðarlínunum. - Vestanáttin við jörð sér svo um að halda neðri skýjalögum í skefjum.

Nú vitum við ekki hvort skýin í dag voru í þessari hæð - eða kannski fleiri.

w-blogg020117b

Hér erum við komin niður í 100 hPa (tæplega 16 km hæð. Frostið er um -70 stig þar sem mest er - en við sjáum líka bylgjur - bæði í jafnhæðarlínum og litum. Trúlega eru skýin ofar en þetta - hér er varla nægilega kalt - en munum þó að líkanið ræður ekki við einstakar háreistar bylgjur þar sem kaldara gæti verið í toppum. 

Hryggur af hlýju lofti í veðrahvolfinu á okkar slóðum lyftir öllu heiðhvolfinu og þar kólnar og ýtir það undir bæði bylgjugang og skýjamyndun. Glitský eru algengust hér á landi við þessi skilyrði. Þau sjást mun oftar á Norður- og Austurlandi heldur en sunnanlands vegna þess að hlýir hryggir af þessu tagi ryðjast oftast úr suðri hingað norður. Þá er oftast lágskýjað sunnanlands. Stöku sinnum ber þó svo við að aðrar vindáttir komi við sögu og þá von á glitskýjum syðra líka. 

Fyrir kemur (ekki þó oft) að glitskýja verður vart án mikilla vinda - en það er önnur saga (sem ritstjóri hungurdiska hefur reyndar sagt einhvern tíma áður). 

Næstu daga er áfram spáð bylgjugangi og miklu frosti í heiðhvolfinu og góð von til þess að meira sjáist af skýjum þessum - miðvikudagur og fimmtudagur þó líklegri en morgundagurinn. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hungurdiskar

Höfundur

Trausti Jónsson
Trausti Jónsson
Höfundur er veðurfræðingur og áhugamaður um veður.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • w-blogg160424b
  • w-blogg160424a
  • w-blogg120424c
  • w-blogg120424b
  • w-blogg120424a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 81
  • Sl. sólarhring: 122
  • Sl. viku: 1830
  • Frá upphafi: 2348708

Annað

  • Innlit í dag: 72
  • Innlit sl. viku: 1602
  • Gestir í dag: 68
  • IP-tölur í dag: 68

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband